Margt starfsfólk í grunnskóla hafa slæma stjórnendur

Slæmir yfirmenn eru alls staðar og þeir geta verið heilsuspillar. Í grunn- og framhaldsskólum landsins finnast misgóðir og inn á milli slæmir stjórnendur. Starfsfólk hefur flúið starf sitt vegna yfirmanns. Fræðsluyfirvöld gera oftast lítið þegar yfirmaður er annars vegar.

Í litlum bæjarfélögum, sem hefur kannski bara einn skóla eða fáa, getur ástandið orðið verulega slæmt fyrir einstaka starfsmann. Yfirmenn þekkja stjórnendur og hafa jafnvel tengst vinaböndum. Bloggari las áhugaverða grein um slæma yfirmenn og þýddi lauslega.

Flest okkar munu kynnast lélegri stjórnun á starfsævinni. En hvenær fer slæmur yfirmaður að hafa áhrif á heilsu starfsmanns?

Það eru nokkur einkenni, skrifar Simon L. Dolan í nýrri bók sinni um streitu á vinnustað.

Er yfirmaður þinn öfundsjúkur vegna velgengni annarra? Eignar hann sér heiðurinn af verkum annarra? Bera hann sig saman við aðra? Sér hann keppendur eða jafnvel óvini alls staðar? Stuðlar ástandið að streitu og átökum? Ef svarið er já við þessum spurningum gætur þú haft yfirmenn sem hafa áhrif á heilsuna þína.

Þunglyndur í vinnunni?

Það er starfið sem hefur mest áhrif á andlega heilsu fólks," skrifar Simon og vísar til bandarískra gagna.

Þetta er í samræmi við fjölda annarra rannsókna í atvinnulífinu. Dönsk rannsókn sýnir að ósanngjarn yfirmaður og slæmt vinnuumhverfi getur gert fólk þunglynt.

Afskiptalausir stjórnendum sem krefjast alls án jákvæðrar endurgjafar auka hættu á þinglyndi starfsmanna samkvæmt áströlskum rannsóknum. Léleg stjórnun dregur úr starfsmönnum og skapar óheilbrigða streitu á vinnustað segir Simon í bókinni.

Þrýstingur og áhyggjur valda óheilbrigðri streitu. Streita er í sjálfu sér ekki hættuleg, segir höfundur en að hafa mörg verkefni og lítinn tíma til að vinna þau er stundum viðunandi. Að hafa ákveðið álag í vinnunni er eðlilegt. En hafir þú ert alltaf áhyggjur og heldur að hlutirnir muni fara úrskeiðis getur þrýstingur breyst í neikvæða streitu.

Slæmir yfirmenn skapa og auka óheilbrigða streitu. Þeir anda ofan í hálsmál starfsmanns, stjórna og skapa ótta. Hættulegur yfirmaður getur eyðilagt vinnuumhverfi. Í Noregi verða um fimm prósent starfsmanna fyrir einelti í vinnunni á hverjum tíma. Í helmingi tilvika er yfirmaðurinn yfirgangsseggurinn, samkvæmt rannsókn frá háskólanum í Bergen og Vinnueftirlitinu.

Rétt fólk í kringum sig

Slæmir yfirmenn hafa tilhneigingu til að safna hirð tryggra starfsmanna í kringum sig, skrifar Simon í bókinni. Þeir sem eru inn undir hjá stjórnendum og komast upp með meira en hinir. Þeir eru oft verðlaunaðir með stöðum sem aðrir fá ekki. Þegar þeir njóta verðlaunanna halda þeir áfram á sömu braut og verða slæmir leiðtogar. Þannig verður neikvæð vinnustaðamenning til að sögn Simon.

Tölur frá 2016 sem Vinnueftirlitið birti sýna að slæm vinnustaðamenning kostar um 30 milljarða árlega. Hér er um að ræða kostnað vegna lakari lífsgæða, sjúkradagpeninga og örorkubóta.

Enginn fæðist svona

Enginn fæðist slæmur yfirmaður, en allir geta orðið slíkir, samkvæmt Simon L. Dolan. Þetta felst í sér hvernig stjórnendur takast á við streitu. Yfirmenn hafa oft vinnuálag sem þeir geta ekki stjórnað. Þeir þurfa að leysa mörg flókin vandamál fljótt og þeir verða að fylgjast með og helst vera á undan þróun á sínu sviði.

Mörkin milli vinnu og tómstunda eru fljótandi eða engin. Næstum 60 prósent stjórnenda upplifa sig örmögnun í lok dags, samkvæmt könnun sem birt er í bókinni. Það gæti verið upphafið að kulnun.

Það er erfitt fyrir stjórnendur að forðast streitu, sagði Simon. Margir hafa lært að takast á við mikinn hraða og mikið vinnuálag. Aðrir höndla það illa. Þeir láta eigin óheilbrigða streitu bitna á starfsmönnum sínum.

Slíkt ástand getur spillt heilsu fólks. Það er ekki gott fyrir vinnustaðinn. Vel stjórnuðum vinnustað vegnar betur og er afkastameiri samkvæmt Simon L. Dolan.

Heimild, hér og hér.

 


Hugrakkur kennari lét ekki kúga sig

Þegar bloggari hugsar til þess hvers konar kúgun fólk er beitt hlýði það ekki því sem trans-hugmyndafræðin hefur að bjóða, kom Selma Gamaleldin upp í hugann. Hún var kennari. Foreldrar 7 ára drengs sem skilgreindi sig (eða foreldrarnir skilgreindu) annað en stelpu eða strák og fóru fram á að hún notaði fornafn trans-hugmyndafræðinnar. Selma var ekki á því enda stríðir það gegn trú hennar og lífsgildum. Hún sagðist tilbúin að nota nafn barnsins í stað trans-fornafns.

Vert er að taka fram, það ber engum skylda til að nota fornöfn eða nafngiftir trans hreyfinga.

Foreldrarnir létu ekki laust við fast fyrr en Selma var rekin frá skólanum þar sem hún starfaði. Hennar lífsgildi og trú voru einskins virði í augum stjórnanda og foreldra drengsins. Trans-hugmyndafræðin valtaði yfir hana.

Skólastjórinn hugsaði ekki um önnur börn sem vildu ekki missa hana. Sérlundaðir foreldrar tóku ákvörðun sem aðrir þurftu að beygja sig eftir og hin börnin misstu kennarann sinn.

REKIN fyrir að fylgja lífskoðun sinni og gildum.

REKIN fyrir að vilja nota nafn barns ekki trans-fornafn 7 ára drengs.

Hugrakkar manneskjur er þáttur í Svíþjóð og að sjálfsögðu var Selma boðuð þangað, enda hugrökk fram í fingurgóma. 

Hvert eru við komin þegar skólastjórnendur grípa til þessa ráðs. Hvert eru við komin þegar trans-hugmyndfræðin ræður ríkjum á þennan hátt. Vonandi höfum við lært eitthvað og að árið 2024 kunnum við að virða skoðanir fólks og lífsgildi þó þau fari ekki saman við okkar eigin. Það sem Selma gerði er ekki brottrekstrarsök.

Um er að ræða hugmyndafræði kristinnar trúar annars vegar og hins vegar trans- hugmyndafræðinnar. Hvorug hugmyndafræðin er hinni merkilegri ef maður á að skoða það hlutlaust. Hvað veldur að hugmyndafræðin sem Selma lifir eftir er fótum troðin vegna trans-hugmyndafræðinnar?

Vonandi er þetta liðin tíð en Selma var rekin frá skólanum árið 2021. Hér má hlusta á viðtal við hana og hér er grein um málið.

Kennarasamband Íslands með Magnús Þór Jónsson og Félag grunnskólakennara með Mjöll Matthíasdóttur í fararbroddi myndu aldrei verja kennara á Íslandi myndi þetta gerast hér á landi. Dreg þá ályktun því þau hafa bæði sýnt í orðum og gjörðum að þau aðhyllast trans hugmyndafræðinni hvað sem það kostar.


Vesturlöndin hafa sent stórar peningaupphæðir til mannúðarmála til Palestínu, megnið af þeim hafnar hjá rótækum íslamistum í Hamas.

Þá gerðist það aftur. Hinn vestræni heimur hefur komið til móts við íslamista í von um að hafa jákvæð áhrif á þá. En íslamistar hafa notfært sér barnalega hegðun vestrænna ríkja. Þeir hafa mjólkað Vesturlönd fyrir peninga.

Í mörg ár hafa Vesturlöndin fjárfest með háum upphæðum í aðstoð til Palestínumanna á hernumdum svæðum Ísraelsmanna. Þetta hjálparstarf er skipulagt af UNRWA (stytting á Hjálparstofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir flóttamenn frá Palestínu). Undanfarin ár hafa verið alvarlegar pólitískar deilur um vinnu UNRWA.

Deilt er um að stuðningurinn við Palestínumenn hafi að mati nokkurra vestrænna ríkja verið misnotaður í áróðri Palestínumanna, íslamista og fjandsamlegum aðgerðum í garð Ísraels og Vesturlanda. Nokkrum sinnum hafa vestræn ríki gagnrýnt starfsfólk UNRWA sem hafa að sögn nýtt féð í öðrum tilgangi en til mannúðarmála.

Eða, til að orða það hispurslaust: Íslamskir Palestínumenn hafa mjólkað Evrópu fyrir peninga sem runnu til óvina Vesturlandanna.

Fögnuðu fjöldamorðunum

Gagnrýnendur hafa bent á að fólk sem átti að aðstoða Palestínumenn efnahagslega hafi notað stöðu sína í hjálparstarfinu til að styðja öfgasinnaðar sveitir Palestínumanna sem berjast við Ísrael. Oft hafa umræddir ,,mannúðar aðstoðarmenn" verið mjög virkir í að misnota aðstöðu sína til að fylgja eftir öfgafullri stefnu Palestínumanna, þar á meðal stuðningi við íslamska hryðjuverkastarfsemi.

Óhugnanlega dæmi sýnir hversu alvarlegt það virðist vera:

Samkvæmt heimildum hafa menn með þekkingu á starfi UNRWA séð nokkra samstarfsmenn fagna þeim viðbjóðslegu fjöldamorðum á saklausum Ísraelum þann 7. október, með slátrun, fjöldanauðgunum og fleiru.

Dönsk þöggun

Lönd eins og Bandaríkin, Kanada, Bretland, Þýskaland, Ástralía, Ítalía og Finnland brugðust við þessum óhugnanlegu fréttum með að rifta starfi sínu við UNRWA þar til búið er að rannsaka málið [Ísland tók stöðu með þessum löndum]. Vandræðalegt, Danmörk er ekki meðal þessara landa og það hefur afleiðingar. 

UNRWA tryggir að málið sé tekið alvarlega sem er víst nauðsynlegt með þann þrýstingi sem samtökin finna fyrir og þeir sem hlut eiga að máli. Framkvæmdastjóri samtakanna, Philippe Lazzarini, hefur leyst hina grunuðu frá störfum og fyrirskipað rannsókn á þessum alvarlegum ásökunum.

Blóðþyrstir FN- starfsmenn

Samtímis hefur NGO- stofnunin UN Watch lagt fram lista yfir UNRwEA starfsmennina sem fögnuðu hryðjuverknum 7. október gegn íbúum Ísrael, líka á samfélagsmiðlunum. Á meðal þessara árásagjörnu blóðþyrstu FN-starfsmanna er augljóslega fólk sem eru læknar og ráðgjafar í UNRWA kerfinu. Sannarlega falleg fyrirmynd fyrir upplýsta, manneskjulega og almennilega hegðun.

Það er kaldhæðnislegt að kalla stofnun, sem heldur hlífðarskyldi yfir svona miskunnarlausa og ofstækisfulla slátrara, fyrir mannúðarsamtök.

Myrtur sennilega fleiri en 1200 manns

Undir hryðjuverkaárásinni þann 7. október myrtur, nauðguðu og limlestu palestínskir hryðjuverkamenn 1200 manns eða fleiri.

Þörf er á sjálfsgagnrýni og uppgjör gagnvart blóðþyrstum andstæðingum Ísrael ef UNRWA á að teljast til trúverðugra mannúðarsamtaka. En í alvöru talað: Hver trúir því eftir þá atburði sem við erum vitni af?

Hvar er danska stjórnin?

Hvar eru danskir fulltrúar í UNWRA- kerfinu í þessari umræðu?

Hvar er danska ríkisstjórnin? Enn sem komið er hefur ekkert komið frá henni að viti varðandi þessa skelfilegu atburðarrás.

Vestræn ríki, þar á meðal Danmörk, veita Palestínumönnum verulegan stuðning.  ,,Þakkirnar" eru nú hrottaleg brot á öryggi af hálfu fólks sem átti að sinna mannúðarverkefnum.

Hvenær fáum við sterk og heiðarleg viðbrögð frá þeim löndum sem fram af þessu hafa verið aðgerðarlaus?

Staðan er vandræðaleg fyrir Mette Frederiksen

Staðan er vandræðalega fyrir dönsku ríkisstjórnina. Vandræðalega fyrir Mette Frederissen. Hún er vandræðalega fyrir þau öfl í heiminum sem slá sér á brjóst sem fulltrúar mannréttinda. Því miður á það við um Danmörku.

En svona kýli hverfa. Fljótt meira að segja.

Heimild.


Nú er í auknum mæli hægt að kalla WHO Woke Health Organization

Deild WHO (Alþjóðlegu heilbrigðisstofnunni) sem hefur með Dei (Diversity, Equity, Inclusion) að gera býr til nýjar leiðbeingar. Þar er lögð áherslu á fimm þætti: framboð á kynstaðfestandi meðferð, þar með talin hormón; menntun og þjálfun heilbrigðisstarfsmanna til að veita meðferð án aðgreiningar vegna kyns, að veita trans og kynfjölbreyttu fólki heilbrigðisþjónustu sem hefur orðið fyrir ofbeldi í mannlegum samskiptum út frá þörfum sínum; heilbrigðisstefnur sem styðja við meðferð án aðgreiningar kyns og lagalega viðurkenningu á sjálfsákvarðaðri kynvitund. Þetta skrifar líffræðingurinn Kåre Fog á snjáldursíðuna Kønsdebat.

Áhersla þeirra er aðallega á ,,kynstaðfestandi meðferð" (það er í reynd kynbreytandi meðferð) með hormónum og skurðaðgerðum. Leiðbeiningarnar munu hafa áhrif á lækna og hjúkrunarfræðinga o.fl. um allan heim.

Ég vek sérstaka athygli á því að í leiðbeiningum WHO, segir Kåre, verður því haldið fram að löggjöfin eigi að viðurkenna sjálfákvarðaða kynvitund. Þetta þýðir að það verður að vera bundið í lög að öllum sé frjálst að skilgreina hvaða kyni hann eða hún tilheyrir. Að mínu mati er þetta brjálæði segir á síðunni.

Það er nú í auknum mæli hægt að kalla WHO Woke Health Organization segir á síðunni Kønsdebat.

Í þessari grein segir að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) eigi undir högg að sækja fyrir að velja hóp trans aðgerðasinna til að þróa fyrstu alþjóðlegu leiðarvísi sinn um ,,kynstaðfesta umönnun." Aðaláhyggjunefnið er tilnefning einstaklings sem vill stöðva kynþroska barna með tilheyrandi afleiðinum. Florence Ashley, kanadískur ,,transfemíninskur, fræðimaður og drusla" sem hefur talað fyrir ,,takmarkalausum félagslegum umskiptum" ásamt  ,,greiðum aðgangi að kynþroskablokkandi lyfjum" sem á að vera ,,sjálfgefinn valkostur" innan heilbrigðiskerfa.

Það vita það allir sem vilja að kynþroskablokkarar gelda börn. Með vali um slíka geldingu vegna andlegra veikinda verða samfélögin veik, sérstaklega þau sem hampa þessu. Samfélög múslíma og Íslamista sem hafna svona aðgerðum mun fjölga sér nái þessi stefna fram að ganga. Tímabært fyrir Íslendinga að skella í lás þegar kemur að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

Redduxx skrifaði um málið.

 

 

Reddux hefur skrifað um sama efni:


Karlar sem gefa sig út fyrir að vera konur

Trans-konur eru ekki konur. Góð vísa er aldrei of oft kveðin í þeim efnum. Þeir eru ákveðin tegund af karlmanni. Fæddir með xy- litninga, typpi og pung. Litningunum er ekki hægt að breyta en vissulega má fjarlægja ytri líffræði. Innri líffærin breytast ekki.

Redduxx heldur úti snjáldursíðu þar sem upplýst er um þessa ákveðnu tegund karlmanna. Margt fróðlegt má lesa þar.

Trans-aðgerðasinni á Nýja Sjálandi, sem hefur mjög áberandi í baráttu sinni fyrir að karlmenn sem upplifa sig sem konu fái aðgang að kvenna íþróttum og einkarýmum þeirra varð uppvís af að dreifa óviðeigandi myndum og sumar þeirra af börnum. Hann segist vera lesbía. Já öllu má nafn gefa. Sjá hér.

Trans-kona sem er karlmaður og barnaníðingur var aftur dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Hann notar nafnið Abigail Wallar og í réttinum var persónufornafnið ,,hún” notuð um hann. Árið 2021, meðan hann var í fangelsi, byrjaði Waller að skilgreina sig sem ,,konu" og nota nafnið Abigail eða "Abi". Hann krafðist þess að starfsfólk fangelsisins vísaði til hans með því að nota ,,hún" fornafnið.

Konur eiga að spyrja sig, sættum við okkur við það að karlmenn geti misnotað kyn okkar svona heiftarlega. Er ekki tímabært að konur rísi upp og mótmæli þessari tegund karlmanna sem þykjast vera eins og við, konur! Sjá hér.

Hér má lesa dæmi frá Skotlandi þar sem trans-kona er yfirmaður kvennaathvarfs og vildi reka hvern þann sem aðhylltist ekki trans-hugmyndafræðinni sagði vitni fyrir dómstólum.

Kvennaathvörf eru nú í hættu en J.K. Rowling hefur bent á þessa hættu. Fyrir vikið uppskar hún skítkast, vægt til orða tekið.

Kanada, trans-kona, kynferðisafbrotamaður, barnaklám og langvarandi löngun til barna. Sjá hér.

Er veröldin ekki dásamleg þegar karlmenn geta breytt skilgreiningu á konu sér í hag. Samfélögin þurfa að vakna og breyta lögum um kynrænt sjálfræði. Ákvörðun ríkja að setja þessi lög hefur kostað börn og konur mikið.

Það er ekkert litróf konu til. Annað tveggja ertu fædd kona eða ekki. Háhælaðir skór, farði eða kvenleg föt gerir menn ekki að konu!


Múslímar taka stórt skref í átt að meiri völdum í Evrópu, flokkur Erdogan er í fæðingu í Þýskalandi

Hann vill meiri völd í Þýskalandi og nú er flokkur hans í fæðingu. Þannig hljómar fyrirsögn í þýska blaðinu BILD.

Í dag búa 2.5 milljónir múslíma í Þýskalandi með vegabréf og kosningarétt. Sú tala getur tvöfaldast í apríl þegar ný lög um ríkisborgararétt verða samþykkt. Það þýðir, að það munu vera um fimm miljónir múslíma með vegabréf og kosningarétt. Margir af þeim Tyrkir segir í BILD:

Þau atkvæði vill íslamski forsetinn Erdogan gjarna setja fingurna í. Það gæti hann mögulega fengið við valið á Evrópusambands-þinginu þann 9. júní. Hann vinnur að því að fá tyrkneskt stjórnmálaafl til að bjóða sig fram í Þýskalandi.

Það er tyrkneska aflið DAVA sem býður fram á þingi Evrópusambandsins 9, júní. Tyrkneski forsetinn Erdogan sendir eigið stjórnmálaafl sem hann kalla ,,DAVA” á hlaupabrautin fyrir valið á Evrópuþinginu. Það skrifar þýska blaðið BILD.

Dagblaðið Bild kynnir fjóra frambjóðendur stjórnmálaaflsins

Mustafa Yoldas (53) læknir í Hamborg hefur verið gagnrýndur af innanríkisráðuneyti Bandaríkjanna fyrir að ,,styðja Hamas og tengd samtök." Hann stýrði Alþjóðlegu mannúðarsamtökunum þar til þau voru bönnuð árið 2010.

Læknirinn Ali Ihsan Ünlü kemur frá Bad Eilsen (Neðra-Saxlandi). Hann er embættismaður tyrknesku samtakanna DITIB sem fellur undir stjórn trúarmála forsætisnefndar ríkisins sem heyrir beint undir Erdogan.

Fatih Zingal (42) er lögfræðingur frá Solingen. Vegna reiði sinnar gagnvart Thilo Sarrazin (Þýskaland afnemur sjálft sig), hann yfirgaf SPD árið 2000 og gerðist aðgerðasinni fyrir þrýstihóp AKP í Evrópu. Hann efast um þjóðarmorð á Armenum og leggur PKK og Gülen hreyfingunni lið.

Sjálfskipaði mannréttindafrömuðurinn Teyfik Özcan (42) er nýskipaður flokksleiðtogi ,,DAVA." Hann er einnig fyrrverandi meðlimur SPD og er nú í góðum tengslum við Erdogan. Hann sagði BamS að kosningabaráttan yrði fjármögnuð ,,alfarið með félagsgjöldum og styrktaraðilum frá Þýskalandi."

Borgaralegi flokkurinn CDU varar við

Meðlimir ,,DAVA" laða kjósendur að stjórnmálaaflinu með einföldum slagorðum eins og að innflytjendum sé mismunað og að landamærin verði opnuð fyrir innflytjendum

Christoph de Vries (49) hjá CDU sér skýra stefnu hjá flokki Erdogans: ,,að sýna múslima sem fórnarlömb kynþáttahaturs meirihlutasamfélags og að þeir starfi sem fulltrúar til að gæta hagsmuna þeirra.”

Sambandsstjórnin ætti ,,ekki undir neinum kringumstæðum að taka þessari flokksmyndun létt," ráðleggur de Vries.

Fyrrverandi ráðherra í borgaraflokknum CDU Jens Spahn aðvarar líka við þessu á samfélagsmiðlinum X. ,,Erdogan-AKP afsprengi í Þýskalandi yrði annar öfgafullur flokkur í landinu."

Jens Spahn vill stöðva útvíkkun laganna um ríkisborgararétt. Að auki verður að stöðva erlenda fjármögnun fyrir moskur í landinu. Ef þetta gerist ekki þá munu áhrif róttækra afla aukast, skrifar hann.

Pia Kærsgaard, stjórnmálamaður í Danaveldi, hefur varað við fjölgun múslínum. Hér segir hún að Danmörk sé óþekkjanleg. Þróunin í löndunum sem stoppa ekki innrás múslíma til Vesturlanda.

Heimild.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband