Palestínumaður búsettur í Danaveldi er ákærður fyrir að mæra hryðjuverk. Fleiri Evrópu þjóðir hætt stuðningi við Hamas.

Tuttugu og sex ára gamall maður er ákærður fyrir hryðjuverk á samfélagsmiðlunum en réttað er yfir honum í dag, 15. febrúar, í Kaupmannahöfn segir í frétt Kristelige dagblade. Aðrar þjóðir í Evrópu reyna að draga úr stuðningi sínum við hryðjuverkamenn með lögsóknum og ýmsum bönnum.

Palestínumaðurinn er kærður fyrir myndskeið sem hann birti á Snapchat þar sem hann samkvæmt saksóknara styður hryðjuverk Hamas þann 7. október í fyrra. Í Danmörku er hægt að refsa manni með sekt eða fangelsi allt að þremur árum fyrir að mæra opinberlega hryðjuverkaárás.

Hann er sakaður um fleiri slíkar færslur í tengslum við stríð Hamas og Ísrael sagði dómsmálaráðherra Peter Hummelgaard í síðustu viku.

Það er ekki bara í Danmörku sem gegnið er hreint til verks fyrir svona verknaði sem hægt er að túlka sem lofsöng fyrir hryðjuverkum Hamas sem hafa verið á hryðjuverkalista Evrópusambandsins síðan 2003.

Blaðið hefur safnað saman nýjustu dæmum frá öðrum löndum.

Bretland

Í Englandi hafa þrír verið dæmir fyrir að hafa tekið þátt í mómælunum Sjálfstæði Palestínu í London þann 14. otkóber. Guardian skrifar um málið. Það eru einstaklingar á aldrinum 26-29 ára og allir dæmdir í 12 mánaða fangelsi.

Mótmælendurnir voru kærðir samkvæmt bresku hryðjuverkalögunum sem fyrir að sýna hlut eða hegðun sem vekur rökstuddan grun um að þeir séu stuðningsmenn hryðjuverkasamtakanna Hamas. Allir höfðu komið með myndir af svifvængjaflugum á mótmælafundinn viku eftir að fjölmiðlar greindu frá hvernig meðlimir Hamas notuðu svifvængjaflugvélar til að fara yfir landamærin frá Gasa til Ísrael í árásinni 7. október.

Allir segjast saklausir.

Í Bretlandi varðar aðild að og stuðningur við bönnuð samtök eins og Hamas refsingu allt að 14 ára fangelsi. Í janúar var einnig sett bann á samtökin Hizb ut-Tahrir á þeim forsendum að þau hefðu fagnað árásum Hamas 7. október og þannig stutt hryðjuverk.

Þýskaland

Annan nóvember auglýsti Þýskaland bann við starfsemi Hamas og hópum sem eru hliðhollir Palestínumönnum og grunaðir eru um að dreifa hugmyndum gegn Gyðingum og Ísrael. Þetta þýddi meðal annars að Samidoun netið var bannað. Landið hefur einnig bannað nokkrar mótmælagöngur hliðhollar Palestínu síðan í október, jafnvel þótt þær séu ekki skipulagðar af fólki með tengsl við Hamas.

Í október var skólum í Berlín gefinn kostur á að banna nemendum að bera palestínsk tákn eins og hefðbundinn palestínskan ,,keffiyeh” höfuðklút. Ekki er vitað hvort skólar hafi nýtt sér bannið.

Samkvæmt CNN er það einnig glæpsamlegt í Þýskalandi að nota slagorðið ,,frá ánni til hafsins." Kristelige Dagblade hefur áður lýst því hvernig sumir líta á slagorðið sem gyðingahatur en það má óbeint túlka sem útrýma eigi gyðingum af svæðinu og að notkun orðanna hafni tilverurétt Ísrael.

Frakkland

Franski innanryksráðherrann Gérald Darmanin, reyndi í október s.l. að banna mótmæli til stuðning Palestínu þar á meðal mótmæli sem skipulögð eru af aðgerðasinnum sem kalla eftir vopnahléi. Hins vegar greip æðsti dómstóll landsins inn í málið og úrskurðaði að dæma þyrfti í hverju máli fyrir sig. Dómstóllinn segir að ekki sé hægt að leggja almennt bann við mótmælunum á grunvelli tjáningar- og fundarfrelsis.

Austurríki

Annars staðar hefur hins vegar verið ákveðið að banna mótmæli hliðholl Palestínumönnum. Þetta á við um Ungverjaland, Sviss og Austurríki. Í síðastnefnda landinu bannaði lögreglan mótmælendum að fara út á götur vegna hættu á ofbeldisfullum átökum.

Árið 2018 settu þáverandi stjórnvöld í Austurríki bann við því að sýna fána Hamas sem sýnir trúarjátningu íslams á grænum bakgrunni. Sama er að segja um fána sjítahreyfingarinnar Hezbollah sem er hreyfing studd af írönsku klerkastjórninni sem Ísrael og Bandaríkin hafa stimplað sem hryðjuverkasamtök.

Hér má sjá blogg um svipað málefni.

Hér má lesa meira um málið.

 


Bloggfærslur 17. febrúar 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband