Af fósturvísum sem urðu börn

Það gengur ekki jafn vel fyrir allar konur að verða ófrískar. Þá er gripið til tækninnar. Við erum svo tæknivædd að hægt er að búa til fósturvísa á tilraunastofu og setja upp hjá konu. Margir leita þessarar leiða til að eignast barn. Stundum tekst það, stundum ekki.

Þeir sem bjóða upp á þessa meðferð búa oft til fleiri fósturvísa en á að nota. Frysta fósturvísana. Síðan er þeim sem ekki eru notaðir fleygt, siðferðilega skylda og í samráði við foreldra. Er það alltaf svo!

Nú hafa hjónin Gunnar og Hlédís stigið fram og segja farir sínar ekki sléttar. Þau fengu að vita í gegnum gagnaleka að fósturvísar þeirra hafi verið notaðir til að setja upp hjá öðrum konum. Þau segja sjálf frá málinu.

Gunnar og Hlédís voru grunlaus. Það var ekki fyrr en þessari óhugnanlegu frétt var laumað að Gunnari á förnum vegi að þau vissu um málið. Einhver sem vissi meira en þau sagði frá. Þetta varð upphafið af þrautargöngu hjónanna til að fá úr því skorið hvort umrædd börn séu þeirra. Að fósturvísum þeirra hafi verið stolið af læknastofunni. Að læknir hafi stolið ,,fóstrum“ þeirra og látið öðrum þá í té.

Vissulega eftirtektarvert að enginn vill hjálpa þeim að finna út úr málinu. Þau vilja taka af allan vafa, fara veg sannleikans. Gunnar og Hlédís segja líka að þau sé undir það búin að þetta eigi ekki við rök að styðjast. Til að skera úr um það þarf erfðafræðilega rannsókn.

Gunnar og Hlédís hafa beðið öll viðeigandi yfirvöld um aðstoð. Þeim er mætt með tómlæti. Af hverju? Er eitthvað til í lekanum? Í stað þess að einhenda sér í að fá málið á hreint þá rekast hjónin á vegg hvað eftir annað. Búið er að króa hjónin út í horn með afskiptaleysi og nú hafa þau nafngreint þessa foreldra sem fengu stolna fósturvísa. Þau hafa beðið þessa foreldra að sýna fram á að börnin séu þeirra, ekkert gerist. Er það ekki hagur barnanna og foreldranna að fá botn í þetta mál hverra þá?

Getur nokkurt foreldri með góðri samvisku tekið við stolnum fósturvísum? Höfðu foreldrarnir vitneskju um stolna fósturvísa? Var það bara læknirinn sem er meintur brotamaður? Hvað er í gangi sem má ekki líta dagsins ljós?

,,Fyrir hverja góða ástæðu til að ljúga- er ein betri til að segja sannleikann“ – Bo Benett.


Álfur Birkir kærði ummæli snjáldurvinar

Í kæru Álfs Birkis til lögreglu fyrir hönd trans Samtakanna 78 eru ummæli danskrar snjáldurvinkonu kærð. Nokkuð sérstakt, vægt til orða tekið, að kæra orð danskrar konu í gegnum bloggara.

Álfur Birkir virðist ekki lesa færsluna í heild sinni en í lok hennar stendur ,,færslan er þýdd frá snjáldurvinukonu minn XXX“ og krækja fylgir með. Sem sagt lesendum gefið skýrt til kynna að orðin eru annars.

Færslan er svona, en Álfur Birkir kærir fyrirsögnina sem hatursorðræðu:

Áróðurinn að trans-kona sé kona er lygi

Hreyfingin heldur fram að ,,trans-konur séu konur” og hefur gert orðið kona að engu.

Það þykir mjög umdeilt að spyrja ,,Hvað er kona?" og það í fyrsta skipti í sögunni.

,,Þetta er hreyfing sem eyðileggur tilfinningu okkar fyrir raunveruleikanum, tungumálinu og getu til að segja sannleikann.” Þetta kemur fram í skrifunum hér.

,,Konur eru fullorðnar konur. Karlmenn eru fullorðnir mennskir karlmenn."

,,Stelpa sem hefur gaman af íþróttum, er með stutt hár og finnst gaman að leika sér á vörubílum, hún er samt stelpa."

,,Strákur getur klæðst bleiku og verið með sítt hár og leikið sér með dúkkur, hann er samt strákur.”

,,Láttu engan segja þér að þessi orð séu ,,hatursorðræða.”

,,Láttu engan segja þér að konur sem tala opinberlega um rétt sinn og raunverulegar hættur séu ofbeldisfullar eða stundi hatursglæpi.”

,,Við búum í lýðræðissamfélagi, frjálsu samfélagi. Við eigum rétt til málfrelsis. Við erum helmingur þjóðarinnar og munum ekki þurrkast út. Við munum ekki þegja þegar við vitum að við segjum sannleikann og að allt sem barist var fyrir glatist.”

Af hverju má einstaklingur ekki hafa orð á staðreyndum og vísindum?

Af hverju má einstaklingur ekki halda fram sannleikanum?

Af hverju móðgast Álfur Birkir út í staðreyndir og sannleik?

Af hverju þykir Álfi Birki það móðgun að konur séu konur, ekki karlar sem upplifa sig sem konu?

Af hverju er það Álfi Birki mikilvægara að tilfinning sé rétthærri líffræðinni?


Kennurum mætt með eitraðri vinnustaðamenningu

Það fer ekki fram hjá neinum sem fylgist með að deilt er um trans hugmyndafræðina. Hér er á ferðinni hugmyndafræði sem gengur út á að menn geti skipt um kyn og börnum úthlutað kyni. Nokkuð vel gefinn einstaklingur veit að það er ekki hægt, kyni verður ekki breytt. Líffræðinni verður ekki breytt. Það ætti Guðrún Hafsteinsdóttir ráðherra dómsmála líka að vita, þó hún velji að svara eins og kjáni.

Einstaklingur getur hins vegar haft tilfinningu, hugmynd og hugsun sem segir að það sé hægt. Líkaminn segir engum það. Síðan eru það kjánalegu lögin, sem leyfa mönnum að breyta kyni í lagalegum skilningi. Lög eru mannanna verk og verða ekki betri en þeir sem búa þau til. Við lagalegar breytingar missa kynin réttindi, óhjákvæmilega.

Las áhugaverða grein og hugsaði til þeirra kennara sem hoppa ekki á trans hugmyndafræðina eins og hún er kynnt í dag. Þeir taka ekki við boðskapnum. Þeir gagnrýna réttilega og málefnalega.

Í greininni segir:

„Hegðun sem leiðir til þess að starfsmenn upplifa sig vanmetna, lítilsvirta eða óörugga, til dæmis vegna ósanngjarnrar eða niðrandi meðferðar, fordómar, niðurrif, niðurlægjandi samkeppni, meiðandi stjórnun og nánast siðlaus hegðun stjórnenda eða vinnufélaga.“

Bloggari getur sagt án þess að hiksta að svona meðferð fá kennarar sem varpa fram gagnrýni á trans hugmyndafræðina. Skiptir þá engu á hvað skólastigi viðkomandi er.

Mönnum er talið trú um að þeir meiði minnihlutahópa, séu með fordóma, hatursorð þegar þeir segja sannleikann um kynin o.s.frv. Betra að þegja en segja eins og formaður Kennarasamtakanna sagði í grein. Sem sagt ljúga frekar en að segja satt er stef Kennarasambandsins. Magnús Þór vill þagga niður í kennurum sem eru ekki sammála minnihlutahópi og honum. Ævarandi skömm fyrir Magnús Þór Jónsson og stjórn KÍ ásamt formanni Félags grunnskólakennara Mjöll Matthíasdóttur.

Magnús Þór vill kannski sjá kennslu í þessum dúr!

Grunnskólakennarinn, Heiða Björg Guðjónsdóttir vildi láta reka kennara úr starfi fyrir að vekja athygli á námsefni trans Samtaka 78 í grunnskólum og spyrja einfaldra spurninga, hvort það stangist á við lög. Brottrekstrarsök að mati Heiðu Bjargar að láta sig velferð barna varða.

Í upphaflegu færslunni var mynd af fólki sem fagnar fjölbreytileikanum. Myndin birtist á báðum kennarasíðunum og fékk bloggari myndina þaðan. Eigandi myndarinnar hafði samband við mig og hafði ekki gefið leyfi fyrir birtingu myndarinnar. Ekki annað hægt en að biðjast velvirðingar á birtingunni og taka myndina út eins og eigandi bað um. ;) 


Um 70% múslimskra ungmenna telja shíri lög æðri þýskum lögum

Íslam er ekki bara trú.

Íslam er safn reglna um skipulag samfélagsins og lífshætti fólks skrifaðar í Kóraninn og aðrar heilagar ritningar. Reglurnar gefnar af Allah og mennirnir geta ekki breytt ritinu. Af því leiðir að Íslam er alræðishugmyndafræði rétt eins og stalínismi, maóismi og nasismi.

Margir stjórnmálamenn hafa snúið blinda auganu að þessari staðreynd í áratugi.

Afleiðingin er sú að hættulegur stuðningur við bókstafstrúaða íslamista hefur aukist í Danmörku og öðrum löndum Vestur-Evrópu. Þetta má sjá víða í samfélaginu.

Slíkt má líka sjá í nokkrum skoðanakönnunum. Kannanir sýna að íslam sem hugmyndafræði hefur verulegt fylgi meðal stórs hluta múslima. Og stuðningur við bókstafstrúaða íslam virðist vaxa ásmegin, sérstaklega meðal ungra múslima.

Ný skoðanakönnun meðal múslíma í Þýskalandi

Stuðningur við bókstafstrúar íslam er augljós í nýrri skoðanakönnun sem hin virtu afbrotafræðirannsóknarstofnun í Neðra-Saxlandi gerði.

Stofnunin spurði 8539 ungmenni úr 9. bekk um viðhorf þeirra til mismunandi félagslegra aðstæðna og afbrota. Um 300 ungmenni sem spurðir voru eru múslímar. Niðurstöðurnar eru birtar í 193 blaðsíðna skýrslu: Lower Saxony Surveys 2022.

Viðbrögð múslimanna valda miklum áhyggjum í Þýskalandi. ,,Þessar tölur vekur fólk til umhugsunar og vissulega athygliverðar. Ljóst, það þarf að hafa áhyggjur af viðhorfum ungra múslima," skrifar þýska dagblaðið BILD.

Íslam er svarið

Ungir múslímar líta á íslam sem svarið við vandamálum samfélagsins og stór hluti þeirra telur jafnvel í lagi að beita ofbeldi til að verja íslam.

Hér eru nokkur svör:

,,Aðeins íslam er fær um að leysa vandamál okkar tíma." (51,5 prósent)

,,Reglur Kóransins eru mikilvægari fyrir mér en lög Þýskalands." (67,8 prósent)

,,Íslamskt guðræði er besta stjórnarformið" (45,8 prósent)

Yfir þriðjungur sagði að þeir hafi ,,skilning á ofbeldi gegn fólki sem móðgar Allah eða spámanninn Múhameð." (35,3 prósent)

Einn af hverjum fimm svarendum svaraði því til að ,,ógnin sem steðjar að íslam frá hinum vestræna heimi réttlætir það að múslímar verji sig með ofbeldi". (21,2 prósent)

Sama ógnvekjandi þróun um alla Vestur-Evrópu

Um 300 nemendur úr grunn- og framhaldsskólum í þýsku sambandslöndum er ekki tölfræðilega dæmigert þýði eitt og sér. Engu að síður eru tölurnar ógnvekjandi.

Tilhneigingin til að styðja íslam sem andlýðræðislega hugmyndafræði er mjög skýr í svörunum.

Að auki hafa nokkrar svipaðar rannsóknir verið gerðar sem sýna sömu ógnvekjandi viðhorf í öðrum löndum Vestur-Evrópu.

Þannig hefur nýlega verið gerð viðhorfskönnun meðal múslima í Frakklandi.

Múslímar í Frakklandi

Könnunin sýnir víðtækan stuðning við lög sharía og íslömsku hryðjuverkasamtökin Hamas. Það sýnir líka hatur á Gyðingum.

Þar að auki virðast 42% franskra múslima bera meiri virðingu fyrir lögum sharía en frönskum (hlutfallið hækkar í 57% meðal ungra múslima á aldrinum 18 til 25 ára).

Könnunin sýnir einnig að 49% franskra múslima vilja að kaþólikkar snúist til íslams og að 36% vilja að kirkjum verði breytt í moskur.

Hatur á Bretlandi

Í Bretlandi virðist bókstafstrúar íslam einnig breiðast hratt út um þessar mundir. Þetta sést meðal annars á mjög fjölmennum mótmælum hliðhollum Palestínumönnum sem einkennast af hatri á Ísrael og Gyðingum.

Annað dæmi, en Sunday Times (22.4) segir frá. Sagt frá hvað gerðist þegar breskur kennari spurði nemendur sína: ,,Do you hate Britain", 30 nemendur réttu upp hönd.

Stuðningur við Sharia í Danmörku

Stuðningur við Sharia meðal múslima er einnig útbreiddur í Danmörku.

Árið 2015 var gerð rannsókn af skyldum toga (Wilke/Jyllands-Posten, getið í DKA). Dæmigert úrtak múslima í Danmörku var spurður um hvað ætti að vera grundvöllur allrar löggjafar í Danmörku.

Rúmlega einn af hverjum tíu múslimum (11,3 prósent) svaraði að grundvöllur allrar löggjafar í Danmörku ætti að vera Kóraninn. Þá töldu 26,5 prósent að grundvöllur laganna ætti að vera blanda af stjórnarskránni og Kóraninum.

Bókstafstrúar íslam í núverandi Pro-Palestínumanna sýnikennslu

Tilhneigingin í nýrri þýskri skoðanakönnun kemur mjög skýrt fram í fjölmennum mótmælum hliðhollum Palestínumönnum í Þýskalandi. Mótmælendur í Essen skiptast eftir kyni. Karlarnir fremst og konurnar aftast. Eins og mælt er fyrir um í Kóraninum. Mennirnir veifuðu fánum sem minntu á Íslamska ríkið og Talíbana.

Shahada fáni með íslömskum hollustueið sýnir hollustu við íslam.

Margir mótmælendur lyfta vísifingri. The Tawheed fingur, sem í íslam þýðir ,,Það er enginn guð nema Allah". Skiltin eru mikið notuð af Íslamska ríkinu og öðrum bókstafstrúarmúslimum.

Bregðast stjórnmálamenn við þessari hættulegu þróun?

Nú hafa margir stjórnmálamenn alvarlegar áhyggjur af þessari þróun. Sjálfir hafa þeir leyft þessari alvarlegu þróun að ganga of langt og allt of oft sætta stjórnmálamenn sig enn við orð án verka.

Það er mikilvægt að takast á við þessa þróun, sem gæti umbreytt samfélagi okkar til hins ýtrasta. Búast má við að pólitískir ráðamenn haldi áfram að loka augunum og þora ekki að gera það sem nauðsynlegt er.

Heimild.


Stolnu fósturvísarnir- tveir forsetaframbjóðendur hafa svikið venjulega Íslendinga vegna frændsemi

Það er átakanlegt að hlusta á sögu hjónanna, Gunnars og Hlédísar, sem segja að fósturvísum þeirra hafi verið stolið og aðrar konur frjóvgaðar með þeim. Gagnaleki kom upp um málið. Nú hafa þau barist í þrjú ár fyrir sannleikanum. Vegna þröskulda sem embætti og embættismenn, m.a. tveir forsetaframbjóðendur, hafa byggt upp eru þau brátt á þrotum komin. Að þeirra sögn stendur það ekki til boða.

Lögregla og ríkissaksóknari gera þeim erfitt fyrir að kæra málið. Í reynd er það ótrúlegt miðað við að bloggari var kærður fyrir ómerkileg orð sem ekkert er og lögreglan notar margar vinnustundir í þá þvælu. En mál Gunnars og Hlédísar fær ekki áheyrn. 

Landlæknir Alma Möller er vingjarnleg, ekki söguna meir. Sé brotist inn í sjúkrasskrá einstaklings eins og hjónin geta sannað þá á Alma að kæra það. Ekki taka öðruvísi á málinu. Henni er ekki treystandi ef hún gefur slaka.

Helga, fyrrverandi forstjóri Persónuverndar og nú frambjóðandi til forseta horfði fram hjá sömu brotum og Alma. Faðir Helgu var forstjóri Landsspítala Háskólasjúkrahús og því varðar málið kannski föður hennar. Þá á ekkert að gera í málinu benda hjónin á.

Katrín Jakobsdóttir, líka í framboði til forseta, hefur ekki viljað blanda sér í málið þó hún eigi að gera það. Frændsemi starfsmanns hennar við meinta brotamenn er ástæðan segja hjónin sem eiga fósturvísana.

Samkvæmt frásögnum Gunnars og Hlédísar virðast menn í valdastöðum hrókera einum manni og öðrum til að mæta þeim. Það á ekki að hjálpa þeim.

Nú vona ég að þau brýni járnin og láti hart mæta hörðu. Skera á úr um hvort börnin eru þeirra eða ekki. Væru menn vissir í sinni sök að börnin eru ekki þeirra væri búið að klára málið. Allur feluleikurinn, hræðslan og veggirnir sem hjónin mæta eru í meira lagi grunsamleg.

Hvar eru rannsóknarblaðmennirnir núna? Af hverju eru þeir ekki komnir á fullt að fletta ofan af svona spillingu?

Eru fleiri sem hafa lent í því sama. Undrast ekki að foreldrar spyrji sig að því.

Viðtal við hjónin.


Kona þekktu líkama þinn

Í Danaveldi kemur út, árið 2025, endurútgefin bók ,,Kona þekktu líkama þinn.“ Fram að þessu hefur engin umræða verið vegna útkomu bókarinnar. Nú er komið annað hljóð í strokkinn.

Konur eru lítillækkaðar, smánaðar, auðmýktar og niðurlægðar vegna rangfærslna og kynningu á bókinni um konur og konulíkamann. Talað um konur eins og þær hafi kynfæri karlmanns. Hvílík niðurlæging. Hvílík móðgun við kvenfólk. Hvílík smánun gagnvart konum að halda fram að karlmaður geti verið kona.

Enginn virðist kippa sér upp við móðgun eða niðurlægingu kvennalíkamans. Kona getur ekki verið með typpi, pung eða XY-litninga. Sé því haldið fram er slíkt kæruefni- eða hvað!

Danskir snjáldurvinir hafa ekki legið á skoðun sinni um bókina. Allt réttmætar færslur.

,,Konur þekkja ekki líkama sinn og því neyðist ég til að útskýra fyrir þeim hvað konulíkami er segir snjáldurvinur minn Ulf. Hann kann að orða hlutina og segir. 

Konulíkami er skilgreindur sem kvenkynslíkami, sem vil segja, líkami sem framleiðir kynfrumur sem kallast EGG. Að auki eru brjóstin einkenni kvennalíkama sem geta framleitt mjólk til afkomenda.

Árið 2021 skrifuðu kvennasamtök, á snáldursíðuna sína, að kynfæri kvenna gætu haft eistu. Af þeim sökum er nauðsynlegt að nokkrir karlmenn gerist meðlimir í þessum samtökum sem geta kennt eistalausum konum, kynlausu körlum og þeim sem skilgreina sig trans og halda að þeir séu konur, að það finnast ekki eistu á líkama konu alveg sama hve lengi maður leitar.

Þetta er allt í höfðinu á ykkur.

Líffræðinni er sama hvaða tilfinningar þú hefur."

,,Ástæða færslunnar er bók sem var gefin verður út í Danaveldi. Í bókinni er talað um karlmenn sem konur sem er fjarri sannleikanum. Svona breiðist lygin og þvælan út. Líffræðinni verður ekki breytt segir annar."

,,Þegar bók eins og ,,Kona þekktu líkama þinn“ fer inn í bergmálshelli -í nafni jafnréttis- er um margt að tala eins og gerðist á FB í gær segir Birgitte Baadegard.

Þess vegna völdu menn að loka kommentakerfinu. Mörg ummælanna voru m.a. trans-fóbísk auk ummælum sem þeim þótti ekki við hæfi. Eins og Femina- síðan er vön að gera (fyrst að loka, síðan eyða).Ég hef áður sent inn lýðræðislegar áskoranir sem þykja ósækileg mómætli.

Í kommentakerfinu voru síðueigendur beðnir um svör við nokkrum spurningum sem enn er ósvarað. Hér er nokkara af eigin spurningum segir Birgitte.

  1. Á bókin að fjalla um lim og blöðruhálskritil?
  2. Vill karlmaður, sem kallar sig lesbíu, skilgreina sig sem konu?
  3. Mun hann segja að karlmaður geti eignast börn og haft á klæðum?
  4. Mun koma fram hvernig hinar ólíku íþróttakeppnir fyrir konur eru skekktar til að þóknast líffræðilega fæddum karlmönnum? (shewon.com)
  5. Vilja lesbíur skilgreina sig sem líffræðilega fæddar konur sem laðast að konum- eða trans-einstaklingi?
  6. Hvaða orð verða notuð um líffræði kvenna? Bónusgat? Menneskja með leg?Fæðandi manneskja? (Bara til að nefna nokkur dæmi á uppnefnum sem woke- tungumálið notar um konur)
  7. Verður hugtaið ,,kyn útdeilt við fæðingu notað- eins og í kynningunni? Þar liggur áherslan á bókina.
  8. Og að lokum: getur ritstjórn fundið út muninn á konu og kvenleg? Það er nefnilega mikill munur á þessum tveimur orðum.

Að lokum: ef ég þarf að sætta mig við núverandi kynjaröksemdafærslu er það sama og að ég geti kallað mig kínverska vegna þess að DNA próf sýnir að ég er 0,9 prósent asísk. Ég krefst þess að aldur minn í vegabréfinu ætti að vera 39 (en ekki 57) vegna þess að líkamsaldurspróf hefur staðfest það. Er það vísindalegur grunnur?

Áður en þú reiðist, eyðir eða kallar mig ýmsum nöfnum, hugsaðu þig aðeins um: hver eru gildin þín, skynsamlegu rökin gegn því sem ég er að benda á? Því þau hafa ekki heyrst ennþá.

Að lokum bendir hún fólki á að gúggla hvað sé maður og kona, myndskýringar segja meira en mörg orð."

Bloggari vonar að öldurnar lægi ekki í Danaveldi við útkomu bókarinnar.  Vona að konur hafi betur í þessari baráttu til að viðhalda réttindum sínum sem þær hafa barist fyrir í áratugi.

Gárungarnir leika sér með forsíðu bókarinnar, rétta útliðitð er þessi rauða.

kvinde kend din krop

kona þekktu ´líkama þinn


Þetta er bara bóla sagði formaður Félags grunnskólakennara

Í tengslum við skrifin um trans-málaflokkinn og þann skaða sem börn verða fyrir í tengslum við hugmyndafræðina sagði formaður Félags grunnskólakennara Mjöll Matthíasdóttir í samtali við bloggara, ,,þetta er bara bóla.“ Hún átti við að bloggari gæti hætt að skrifa um málaflokkinn þar sem hann var formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra. Var víst ekki sæmandi að kennari hefði aðra skoðun, hvað þá að láta hana í ljós.

Ástæða fyrir að formaður Fg blandaði sér í málið var að hávær öskrandi lítill minnihluti kennara sem aðhyllist tans-hugmyndafræðina hringdu á skrifstofuna til að kvarta. Fengu trans Samtökin 78 með sér í lið. Sendu líka tölvupósta. Vildu þagga umræðuna. Vildu stjórna hvað yrði sagt. Vildu stjórna hvaða upplýsingar kæmust út í samfélagið. Aðrir kennara þegja þunnu hljóði, því miður.

Mjöll formaður Fg var ein þeirra sem skrifaði undir ályktun stjórnar Kennarasambandsins sem Álfur Birkir, í trans Samtökunum 78, skreytti kæru sína með.

Hvað hefur komið á daginn? Bloggari hefur engu logið. Bloggari benti á staðreyndir sem nú hafa litið dagsins ljóst. Bloggari benti  á réttindi kvenna sem hverfa smá saman. Bloggari hefur ekki legið á upplýsingum um málaflokkinn, hvorki frá einstaklingum, stofnunum né fræðimönnum.

Mjöll Matthíasdóttir formaður Félags grunnskólakennara hafði rangt fyrir sér, þetta er ekki bóla. Hún sjálf hefur tileinkað sér hugmyndafræðina með afbökun íslenskrar tungu í þágu hugmyndafræðinnar. Þvert á íslenska málahefð og reglur um tungumálið.  

Formaður félags grunnskólakennara hefur brugðist því trausti að vera formaður allra félagsmanna rétt eins og kennari á að vera kennari allra nemenda, líka þeirra sem aðhyllast ekki trans-hugmyndafræðina eins og hún birtist í dag. Kennari á virða að það vilja ekki allir kennslu um hugmyndafræði sem snerti innan við 0.1% þjóðarinnar og er á skjön við vísindi og staðreyndir.

Búið er að skemma regnbogafánann sagði ungur strákur við mig og ég mun aldrei lita hann. Hvað ætli mörgum börnum líði illa undan áróðri skólafólks þegar þessi hugmyndafræði er annars vegar, það er spurning. Tilfinning bloggara er sú að börnin fá ekki að tjá hug sinn um það, kallast fordómar af fullorðna fólkinu.

 

með bólunni


Frásögn trans-ungmennis

"Umskipti eyðileggja líf. Það eyðilagði mitt líf segir Prhisa.

Umskiptin eyðilögðu heilsu mína. Umskiptin eyðilögðu innkirtlakerfið. Umskiptin eyðilögðu lifrina í mér. Hélt ég væri ófrjó vegna umskiptanna. Umskiptin fjarlægðu heilbrigðu brjóstin mín - og umskiptin stálu mat frá barninu mínu. Umskiptin ollu mikilli áhættu og mjög erfiðrar meðgöngu. Umskiptin stofna heilsu sonar míns í hættu.

Umskipti eyðilögðu mörg sambönd. Umskiptin eyðilögðu getu mína til að treysta læknum. Umskipti gerðu það erfiðara að leita til læknis. Umskiptin særðu foreldra mína.

Umskiptin eyðilögðu kynhneigð mína. Umskiptin eyðilögðu kynlífið. Umskipti eyðilögðu getu mína fyrir eðlilega kynferðislega nánd.

Umskiptin eyðilögðu tækifærin mín. Ég get ekki gert eins mikið vegna sársauka og þörf fyrir hjálp og aðstoð hefur aukist. Umskipti gerðu það erfiðara að útskýra sjálfan mig og hvers vegna ég lít út eins og ég geri, og hvers vegna ég er löglega maður með karlmannlegt nafn í samskiptum við þjónustuaðila og svo framvegis.“

Hér má sjá færslu hennar sem varð hann á X.

Fleiri og fleiri ungmenni stíga fram og segja frá hversu röng meðferðin á þeim hafi verið. Það er í takt við það sem fram kemur í Cass skrýrlunni. Spurningin er hve mörg þúsund börn hafa mátt líða fyrir hugmyndafræðina. Sennilega verður það aldrei vitað.

Skotland bætist í hóp þeirra landa sem stöðva hormóna-og krosshormóalyfjagjöf barna.

 


Ummæli sem Álfur Birkir kærði til lögreglu

Á bloggsíðunni þann 13. apríl 2023 er fjallað um bresku baráttukonuna Kellie-Jay. Hún berst fyrir réttindum kvenna. Á mörgum stöðum hefur hún og hennar fólk fengið óblíðar móttökur frá trans-aðgerðasinnum, vægt til orða tekið. Í bloggfærslunni stendur, og þetta eru hin kærðu ummæli, ,,Styttir í að trans aðgerðasinnar verði eins og hryðjuverkamenn. Taka þarf á þeim sem slíkum, fyrr en seinna.“ Flestum dugar að horfa á þetta myndband til að átta sig á samhenginu, styður mál mitt.

Álfur Birkir virðist ekki hafa sömu skilgreiningu á hugtakinu ,,hryðjuverkamaður“ og bloggari. Sársaukalaust af hálfu bloggara sem telur sér frjálst að nota hugtakið um hóp manna sem haga sér eins og ofbeldismenn þegar konur verja réttindi sín. Ein útskýring á hryðjuverkamanni er: ,, Hryðjuverk er umdeilt hugtak án nokkurrar almennt viðurkenndrar skilgreiningar. Algengast er að hryðjuverk sé talið hver sú árás sem af ásetningi er beint gegn almennum borgurum til ógnunar sem framin er í þeim tilgangi að ná fram stjórnmálalegum eða öðrum hugmyndafræðilegum markmiðum.“

Við getum verið ósammála um hvað skal kalla þá hegðun sem trans-aðgerðasinnar sýna baráttukonunni Kellie-Jay og gestum hennar. Við getum notað orð eins og tartaralýður, spellvirkjar, ofbeldislýður, uppreisnarmenn, þorparar, kúgarar, hyski, ribbalda, óþjóðalýður, rumpulýður og óknyttafólk.

Eitt er ljóst, skoðunin og tjáningin á hugtakinu um svona ofbeldishneigða hópa varðar ekki við lög um tjáningarfrelsi.

Til að hnykkja á færslunni, af hverju mega konur ekki koma saman og berjast fyrir þeim réttindum sem þær hafa misst án þess að trans-aðgerðasinnar skemmi baráttufundina? Umhugsunarefni út af fyrir sig!

 

Hann heitir Álfur og er kálfur

býr til hatur á sér sjálfur

Spái hann muni fara flatt

á að hata fólk sem segir satt.

Höf: Ásgrímur Hartmannsson


Tilmæli til lögreglustjórans á Norðurlandi eystra

Kæra Álfs Birkis fyrir hönd Samtökin 78 á hendur bloggara, sem hvorki er fugl né fiskur, lenti hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra. Stjórinn boðaði bloggara ásamt lögmanni í skýrslutöku í gær. Ekkert varð úr. Frestað af óviðráðanlegum ástæðum. Lítið við því að gera.

Eftir spjall og yfirferð á kæruliðum með lögmanni kom í ljós að ekkert í kærunni gefur tilefni til að halda rannsókn áfram og því sendi lögmaðurinn tilmæli til lögreglustjórans. Er ekki tímabært að lögreglustjórar landsins komi sér saman um að eyða ekki tíma lögreglumanna og fjármunum samfélagsins í svona rakalausar kærur? Í Danmörku tekur lögreglan ekki við kærum af þessu tagi er mér sagt af konu sem trans-aðgerðasinni ætlaði að kæra. Sá varð frekar illur og auglýsti það, löggan skynsöm.

Vonandi sér lögreglustjóri að sér. Það kostar samfélagið peninga og lögregluna tíma að eltast við svona tittlingaskít eins og í þessu tilfelli.

Ljóst er á ákæruliðum að Álfur Birkir fyrir hönd Samtaka 78 reyndi að finna eitthvað, bara eitthvað, til að leggja fram kæru. Kannski að bloggari taki ummælin sem Álfur telur hatursfull og fjalli um þau. Kemur í ljós. En, eitt sýnishorn ,,Áróðurinn að trans-kona sé kona er lygi“ hér er tekin ein setning úr þýddum tekta í færslu frá dönskum snjáldurvini. Setningin er tekin úr samhengi og kemur skýrt fram að um þýðingu sé að ræða.

Í bréfinu til stjórans stendur m.a.:

,,Ekkert af þeim texta sem vísað er til í kærunni er þess eðlis að hann verði heimfærður undir 233. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Textinn ber það hins vegar berlega með sér að skjólstæðingur minn hefur skoðun á málefni sem varðar hana og samfélagið sem hún býr í og vill tjá þá skoðun, svo sem stjórnarskráin tryggir henni frelsi til. Hvergi er í textanum að finna minnstu vísbendingu um óbeit, andúð, fyrirlitningu eða fordæmingu á kæranda né því fólki sem hann fer með hagsmunagæslu fyrir.  Hvergi í textanum er að finna nokkuð sem hæðir, rægir, smánar eða ógnar nokkrum manni eða hópi manna, né nokkuð sem hvetur til þess að það verði gert.“

Upphaf málsástæðukafla kærunnar ber keim af því að kæranda sé óljúft að hafðar séu eða tjáðar aðrar skoðanir en hans eigin á þeim málefnum sem hann brennur fyrir. Við slíkt verða menn þó að búa í lýðræðisríkjum.

Að undanförnu hefur það færst í vöxt að baráttuhópar af ýmsu tagi eða hópar sem vinna að málefnum sem þeir telja mikilvæg, kæri til lögreglu eða stefni fyrir dómstóla þeim einstaklingum sem hafa tjáði opinberlega aðrar skoðanir en þeir sjálfir hafa eða vilja koma á framfæri leiðréttingum eða upplýsingum um mál sem eru til umfjöllunar í samfélaginu. Þetta kann að hafa þær afleiðingar að meginþorri fólks kann að veigra sér við að hafa skoðanir um þjóðfélagsmálefni eða upplýsa um þær. Við það skaðast samtalið í samfélaginu og um leið sá hluti tjáningarfrelsis sem ætlaður er til að verja rétt almennings í lýðræðissamfélagi til að hafa aðgang að mismunandi skoðunum, sjónarmiðum og upplýsingum svo hann geti tekið afstöðu til samfélagsmálefna. Skjólstæðingur minn telur ástæður til þess að skora á Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra að taka það til skoðunar hvort ekki sé tilefni til að sýna aðgát áður en lögreglu er beitt með þeim hætti sem getur valdið því að fólk óttist að nýta stjórnarskrárvarin réttindi sín.„

Samtökin sjötíuogátta,

segja sig leita til sátta,

En kemur í ljós

að þetta er fjós

af slagsmálahundum án átta

Höf. Geir Ágústsson

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband