Enginn kennari hefur bent á meint hatursorð né fordóma

Bloggari hefur verið sakaður um hatursorð og fordóma í garð minnihlutahóps í samfélaginu. Hilda Jana sveitarstjórnarmaður glumdi eins og tóm tunna um málaflokkinn. Hanna Dóra Markúsdóttir formaður BKNE lét til sín taka um sama efni, líkar ekki skrif um ákveðna málaflokka.

Samverkmenn Hönnu, í þöggun og útilokin, voru stjórnarmenn í BKNE þær Pollý Rósa Brynjólfsdóttir og Erla Rán Kjartansdóttir báðar kennarar í Brekkuskóla eins og Hanna. Jónína Vilborg Karlsdóttir kennari í Lundarskóla og Sigríður Sigmundsdóttir kennari í grunnskólanum á Mývatni. Sumir í Síðuskóla fóru mikinn á snjáldursíðum sínum, m.a.a um að reka ætti bloggara, en enginn hefur rökstutt mál sitt eða bent á meint hatursorð né heldur hvar bloggari hefur farið með rangt mál.

Mér varð hugsað til þessara kennara þegar ég hlustaði á þennan frábæra kennara rökræða við nemanda um ummæli sem viðhöfð hafa verið um J.K. Rowling. Þegar menn skoða málið og rökræða kemur hið sanna í ljós, engin hatursorð eða fordómar í gangi. Margir óttast að ræða við þá sem andmæla trans- hreyfingum og hugmyndafræði þeirra. Hefur sýnst sig, þeir beita þöggun og útilokun.

Bloggari telur líka að umræddir kennara hafi litla hugmynd um það það þýðir að hefta tjáningarfrelsi einstakling. Kennararnir telja kúgun helga meðalinu, því miður þannig er það ekki. Hér má lesa grein um tjáningarfrelsið.


Bloggfærslur 22. febrúar 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband