Danmörk þarf ekki að taka við mæðrum frá kúrdískum fangabúðum- þær eru ekki danskar

Eystri Landsréttur staðfesti þetta í vikunni og samsinnir Utanríkisráðuneytinu um málið. Danmörk er ekki skyldug til að taka við konum sem eru ekki með danskan ríkisborgarrétt úr fangabúðum, bara börnum þeirra. Takið eftir bara ef börnin þeirra eru með danskan ríkisborgarrétt.

Málið snýst um tvær mæður með þrjú börn sem voru í kúrdisku al-Roj fangabúðunum í norðvestur hluta Sýrlands.

Voru sviptar ríkisborgararéttinum

Áður en konurnar fóru til Sýrlands til að ganga til liðs við Íslamskt ríki voru þær með danskan ríkisborgararétt og frá heimalöndum sínum Marokkó og Sómalíu. Af sömu ástæðu brýtur það ekki í bága við samninginn um ríkisfangslausa að svipta þær ríkisborgarrétti sínum í Danmörku vegna fylgis við Íslamska ríkið.

Hafa boðist til að taka börnin

Utanríkisráðuneytið hefur frá því í maí 2021 boðist til að flytja börnin á brott með mæðrum síðan en aðeins ef þær eru danskir ríkisborgarar. Frá því í maí 2021 hefur utanríkisráðuneytið boðið að dönsku börnin í flóttamannabúðunum í Sýrlandi verði flutt á brott ásamt mæðrum sínum en aðeins ef mæðurnar eru danskir ríkisborgarar og án mæðranna ef þær eru ekki danskir ríkisborgarar.

Eins og þú veist er Danmörk aðeins skuldbundin eigin ríkisborgurum.

Tvö af börnunum eru komin til Danmerkur

Málið snerist upphaflega um brottflutning þriggja danskra barna og mæðra þeirra sem eru ekki danskir ríkisborgarar.

Málið var höfðað gegn Utanríkisráðuneytinu af samtökunum ,,Senda börnin heim” (Foreningen Repatriate The Children) í Danmörku. Áður en Hæstiréttur kvað upp úrskurð voru tvö af börnunum og marokkósk móðir þeirra flutt til Danmerkur vegna þrýstings frá stjórnmálamönnum.

Þau lentu á flugvellinum í Kaupmannahöfn 22. júní í fyrra þar sem móðirin var handtekin og fangelsuð fyrir að hafa aðstoðað og hjálpað hryðjuverkasamtökum.

Sómalíska konan

Þetta mál varðar sómalísku konuna. Hún neitar að bjarga barni sínu úr fangabúðunum nema hún fái að koma með. Nauðungarflutningur, sem væri réttlætanlegur, er ekki möguleiki vegna löggjafar á svæði Kúrda. Sómalska konan var með dómi svipt dönskum ríkisborgararétti sem kveðinn var upp vorið 2023. Dómnum um danskan ríkisborgararétt hefur verið áfrýjað til Eystri Landsréttar sem hefur ekki afgreitt málið.

Hér má lesa dóminn.

Heimild.


Lögreglan tekur svona símtal alvarlega ef lögin ná fram að ganga

Í nánustu framtíð kemur 11 ára strákur heim og segist vera stelpa. Hann klæðir sig til að fara út með vinum sínum í bólstraðan brjóstahaldara, örpils og vel farðaður. Þegar foreldrar hans segja honum að hann geti ekki farið svona út segir hann að þetta sé hans leið til að tjá kynvitund sína og hótar að hringja í lögregluna.

Í heilbrigðu landi myndi ekkert meira gerast, fyrir utan kannski stutt skapofsakast. Ef drengurinn býr hins vegar í Skotlandi, ef nýjar tillögur verða samþykktar, gæti sagan einn daginn endað allt öðruvísi.

Í Skotlandi tekur lögreglan símtalið alvarlega. Þegar löggan kemur að húsinu eru foreldrarnir handteknir og hótað allt að sjö ára fangelsi fyrir að staðfesta ekki kynvitund barnsins.

Þetta hljómar fáránlega, en Skoski þjóðarflokkurinn virðist vinna hörðum höndum að þetta verði veruleika. Flokkurinn hefur lagt til ný lög sem gætu gert refsingu foreldra að lögum fyrir að neita að staðfesta barn sitt trans í einu og öllu.

Meðal aðgerða sem gætu verið refsiverðar er að koma í veg fyrir að einhver ,,klæði sig þannig að það endurspegli kynhneigð eða kynvitund" jafnvel þótt sú ákvörðun yrði tekin af foreldri sem reynir að vernda barn sitt gegn kynjahugmyndafræðinni.

Þessi viðurstyggilegu lög eru búin til í nafni þess að stöðva ,,umbreytingarmeðferð", þó hún sé ekkert í þá veru. Ég ætti að þekkja muninn segir Jane Rober. Árið 2014 þegar Jane rannsakaði bók um menningu lesbía og homma fór hún í dulargervi til kristins trúarmeðferðarfræðings í Bandaríkjunum.

Í vikunni sem fylgdi í kjölfarið var Jane sagt að hún væri brotin, ill og óelskuleg þrátt fyrir ahafa tileinkað sér falska persónu. Ástríkt foreldri, sem hefur áhyggjur af áhrifum kynjahugmyndafræðinnar og er umhugað um velferð barnsins síns er allt annað mál.

Þegar öllu er á botninn hvolft hafa þeir góða ástæðu til að hafa áhyggjur. Síðastliðinn áratug hefur fjöldi barna sem segjast vera trans aukist gífurlega og fjöldi þeirra sem leita á kynjastofur.

Staðreyndirnar eru átakanlegar.

Hátt hlutfall barna sem sækja í kynjabreytingu er með einhverfu; Kynþroskablokkar leiða næstum alltaf unga manneskju á óafturkræf krosskynhormón þegar þau ná 18 ára aldri. Oft er litið framhjá alvarlegum geðheilbrigðisvandamálum og áföllum sem barnið glímir við í þágu þess að staðfesta (merkja) þau sem trans.

Heimild.

 


Meðferðarglaðir kynfræðingar bjóða dætrum þjóðarinnar upp á hárvöxt og dimma rödd

Margir af þeim sem hafa sótt um ,,kynskiptimeðferð” á meðferðarstofunni Nasjonal, en þeir finna fyrir ónotum í eigin líkama, hófu meðferð utan þjónustunar sem ríkið veitir. Ákafir meðferðaraðilar í einkageiranum standa í röðum eftir að gefa unglingsstúlkum hormóna og hormónablokkandi lyf vegna upplifun þeirra á ónotum í eigin líkama.

Tökum dæmi um tilbúna sjúklinga. ,,Erik er 16 ára þegar hann kom á sjúkrahúsið í síðustu viku með skeggstubba á hökunni og dimma rödd, hrjúfa rödd, þrátt fyrir að hafa fæðst með eggjastokka og leg. Meðferðina hóf stofa sem hefur lág viðmið og býður unglingum meðferð sem upplifa að þeir séu ,,fæddir í röngu kyni.”

,,Casper, er 12 ára og mætti í fyrsta viðtalið með sprautumerki á maganum eftir að hafa fengið, í langan tíma, mánaðarlega sprautur af hormónastoppandi lyfjum uppáskrifað af norskum kynfræðingi. Nú hefur mamma ekki lengur efni á þessari dýru meðferð og því sækir hann til stofnunarinnar Nasjonale til að fá löglegan lyfseðil.”

Sprenging í fjölda

Þetta er staðreynd: Undanfarin á hefur orðið sprenging í fjölda þeirra barna og unglinga sem óska eftir kynstaðfestingu. Sömu sögu er að segja um allan heim. Á síðasta ári (2021) óskuð um 200 börn undir 18 ára aldri aðstoðar. Aukningin er mörg hundruð prósent á hverju ári frá 2012. 

Nýtt, tveir af hverjum þremur eru líffræðilegar stúlkur

Við erum að tala um unglingsstúlkur sem nokkrum árum eftir kynþroskann segjast allt í einu vera strákur. Tvær af hverjum þremur hafa að auki glímt við andlega kvilla, alvarlegt þunglyndi, kvíða, sjálfsskaða, áföll, einhverfu, ofskynjanir og hugsanir að taka eigið líf.

Er þetta skammvinn löngun?

Við vitum ekki af hverju þessi aukning er meðal stúlknanna. Það getur verð viðbragð við opnari umræðum sem sýr að kyni í samfélaginu. Eða er þetta viðbragð á utanaðkomandi álagi eða kannski tímabundið val? Um víða veröld ræða menn um þessa gífurlegu fjölgun af stúlkum sem vilja hjálp eftir kynþroskann. Umræðan kallar á varkárni en það hefur engin urmæða til staðar í Noregi.

Til lengri tíma litið er ekki vitað hve margir af unglingunum munu upplifa viðvarandi reynslu af að vera hitt kynið.

Í bland við aðra andlega sjúkdóma

Fjölmiðlar og þáttaröðun ,,Fæddur í röngum líkama” hafa á undaförnum árum fjallað um að vera trans frá barnæsku. Flestum gengur vel. Það eru þessi börn, þegar þau eldast, sem rannsóknir beinast að. Þau upplifa góð áhrif af meðferðinni sem er til og er sniðin að þessum hópi.

Aftur á móti er lítil þekking á unglingum sem upplifa misræmi milli sjálfsmyndar og kyns eftir að kynþroskinn er hafinn. Hvetja á til varúðar með þessa einstaklinga þar sem þekking er lítil sem engin og oftar en ekki eru aðrir geðrænir kvillar undir. Ekki er vitað hve mörg ungmennin munu upplifa viðvarandi reynslu af að vera hitt kynið. Frekari rannsóknir eru því nauðsynlegt.

Þróunin veldur áhyggjum

Við sem vinnum á Nasjonale meðferðarstofnuninni eru upptekin af að veita góða meðferð með alþjóðlegri þekkingu. Við höldum okkur við rannsóknir og veitum meðhöndlun til þeirra sem rannsóknir sýna að hafa gagn af meðferð. Samhliða berum við mikla ábyrgð á að sýna varúð þegar upp kemur nýr hópur unglinga sem vill meðhöndlun.

Við erum því verulega áhyggjufull af þeim vaxandi hópi kynfræðinga og öðrum meðferðaraðilum sem eru utan Nasjonale meðferðarþjónustunnar í landinu og byrja meðhöndlun með litlar sem engar kröfur.

Þeir reka virk fyrirtæki sem þrýstihópur

Þeir segjast taka mið af óskum og þörfum unglinganna og vilja með þeim prófa hver sé besta meðferðin fyrir þennan einstakling. Sem dæmi hormónar, líka til barna undir 16 ára aldri, og hormónablokkandi lyf eiga aðeins sérfræðingar í innkirtlafræðum fyrir börn að gefa. Þeir reka fyrirtæki og eru í leið virkur þrýstihópur á stjórnmálmenn. Sagan segir að þeir hafa tengsl sig inn í Fri-ungmennahópinn (systursamtök Samtaka 78), en sá hópur er viðkvæmur og á að mæta með virðingu. En, samtímis og einmitt af því við höfum með viðkvæman hóp að gera verður erfitt að fá áheyrn og stuðning með hversu nauðsynlegt það er að fara varlega. 

Ráðherra, það er engar rannsóknir

Heilbrigðisráðherra Bent Høie sagði við norska ríkissjónvarpið árið 2015 ,,Það er frábært að þú sér sá sem þú ert. Það ætti að vera í höndum hvers og eins, ekki ríkisins, að ákveða hvaða kyni þeir tilheyra.” En Bent, það finnast engar rannsóknir á þessum nýja hópi af unglingsstúlkum sem vilja skipta um kyn. Við getum gengið svo langt að segja að hér sé um tilraunameðferðir að ræða.

Þegar þessir unglingar í dag, þrátt fyrir Nasjonal meðferðarþjónustuna, eru elt af meðhöndlunaróðum kynfræðingum og þeim boðin hormónameðferð þrátt fyrir ólöglega aldur, samkvæmt heilbrigðislögum, er nauðsynlegt að vara við þessi meðferðartilboði.

Áhugasamir kynfræðingar

Sumir sjúklingar þurfa meðferð fljótt. Það er óhjákvæmilegt. En miðað við þá gífurlegu aukningu sem við sjáum í dag er krafan að við fagfólkið, með alþjóðlegum kollegum, notum góðar aðferðir til að meta hvort meðferð til lengri tíma litið virkar. Ekki blanda sama góðvild minnihlutahópa og faglegri baráttu.

Kæri ráðherra; Haltu í taumana á meðferðarglöðum kynfræðingum, þeir dreifa hárvexti og djúpri rödd til dætra þjóðarinnar, á móti fáum við glataða frjósemi og óvissa framtíð.

Til að mæta þeirri sprengingu sem hefur orðið meðal unga fólksins, að gera tilraunir með eigið kyn, ætti að mæta með þjóðarvígbúnaði í öllu til að tryggja gæði í greiningu en ekki staðfestingarþjónustu frá kynfræðingum landsins.

Höfundar greinarinnar eru læknarnir; Anne Wæhre og Kim Alexander Tønseth, báðir starfandi í Noregi. Þýðing er bloggara.


Múslímskur læknir stóð fyrir herferð gegn gyðingum í frítíma sínum- yfirvöld fengu nóg

Wahid Asif Shaida hefur starfað sem læknir í Harrow í Bretlandi í 20 ár.

Í október fór illa. Hann var afhjúpaður undir nafninu Abdul Wahid sem leiðtogi í bókstafstrúarsamtökunum Hizb –ut Tahrir í Bretlandi. Í gegnum samtökin stuðlaði hann að andúð í garð gyðinga og viðhorfum gegn þeim.

Í mótmælum hefur hann fagnað að hryðjuverkum Hamas sem drap 1400 gyðinga, menn, konur og börn þann 7. október. Hann hefur líka tekið þátt í að hvetja til ,,jihad“ í mótmælunum.

Sjúklingar hans eru í áfalli og höfðu ekki hugmynd um að læknirinn þeirra lifði tvöföldu lífi en hann er vel máli farið og er menntaður læknir úr einkaskóla, segir DailyMail.  

Samtökin Hizb-ut-Tahrir  

Samtökin vöktu gremju því félagsmenn stóðu og hrópuðu ,,jihad” í mótmælunum fyrir framan egypska og tyrkneska sendiráðin í London og hvöttu ,,múslíma heri” til að ráðast á Ísrael.

Samkvæmt blaðinu sagði Wahid við mótmælin ,,Sigurinn er á leiðinni og allir eiga að taka afstöðu.” Hvoru megin ert þú?

Eftir mótmælin fór Wahid aftur til vinnu á heilsugæslunnu þar sem hann vinnur, það olli áhyggjum hjá hluta sjúklinga hans. 

En þetta er yfirstaðið. Wahid Asif Shaida var rekinn úr vinnu. Búið er að banna samtökin Hizb ut-Tahrir er í Bretlandi. En af hverju voru bresk stjórnvöld svona lengi um að taka ákvörðunina? Svarið er sennilega: Stjórnvöld í Bretlandi skríða fyrir rótækum múslímum af hræðslu við að vera sakaðir um ,,fóbíu fyrir íslam.”

Hizb ut-Tahrir er ekki bannað í Danmörku.

Heimild.


Styðja kennarar hryðjuverk Hamas í Ísrael

í gegnum ályktun Kennarasambands Íslands og annarra launþegahreyfinga? Segja má að stéttarfélög og regnhlífasamtök séu komin LANGT úr fyrir verksvið sitt þegar þeir senda svona ályktun í nafni félagsmanna um pólitískt málefni. Innan samtaka eins og KÍ eiga allar skoðanir að rúmast, trúarbrögð og ólík afstaða til pólitískra málefna.

Engin ályktun kom þegar hryðjuverkasamtökin HAMAS réðist á Ísrael og myrti þar með köldu blóði, konur, karla og börn, 1400 manns. ENGIN! Hverju sætir það. Get ekki túlkað það öðruvísi en að KÍ samþykki það blóðbað sem má lesa um hér. Engin álykt kemur vegna árása Húta á skip í Rauða hafinu. Engin ályktun kom þegar Hútar stráfelldu fólk í Jemen vegna stjórnmálalegra átaka, o.s.frv. KÍ velur sér gæluverkefni.

Bloggari frábiður sér, sem félagi í Félagi grunnskólakennara og þar með KÍ, svona ályktanir og málflutning. Haldið ykkur við það sem þið eigið að gera. Hef heyrt í mörgum kennurum sem eru sama sinnis, stéttarfélag á ekki að ganga erinda aðgerðasinna eða stjórnmálamanna.

Þeir Palestínumenn sem héngu á Austurvelli sýndu það og sönnuðu að þeir hyggjast ekki breyta sér, gyðingar réttdræpir og það styðja kennarasamtökin. Hatrið í garð gyðinga fer ekki fram hjá neinum. Kennarasamband íslands hefur stillt sér upp með þeim málflutning, annað er ekki hægt að lesa út úr ályktuninni sem sambandið lét frá sér fara.

Víða um heim sæta gyðingar ofsóknum vegna stríðsins, múslímar og Palestínumenn eru þar að verki. Hér er dæmi, tekið út þessu bloggi: ,, Mótmælendur voru með palestínska fána og slagorð. Þeir voru á svæði þar sem aðallega Gyðingar búa. Í stað þess að færa mótmælin á annan stað gerði lögreglan hið gagnstæða og gaf út yfirlýsingu ,,Með tilliti við almanna reglu verður Avenue Road Bridge lokuð. Aðgangur að svæðinu verður opinn í gegnum Highway 401. Lögreglan er á staðnum til að hindra aðgang og tryggja öryggi mótmælenda og umferðarinnar.”

Ekki nóg með það: vingjarnleg framkoma lögreglunnar sýndi að það eru engin takmörk á góðmennsku lögreglunnar sem sótti kaffi fyrir mótmælendur, sem stuðlaði að enn meiri ótta og óöryggi gyðinga í hverfinu. Augljóst er á staðsetning mótmælanna er ógn við gyðinga. Tímasetningin er líka ógn sem er laugardagur og hátíð gyðinga fór ekki fram hjá neinum. Múslímskt spakmæli segir að eftir laugardaginn komi sunnudagur sem vísar í eyðingu Gyðinga fyrst og síðan kristinna.“

Hafi formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson áhuga á pólitískri þátttöku á hann að vera annars staðar en í formannstól KÍ. Sama með hina formennina sem sitja í stjórn KÍ og lögðu blessun sína yfir þessa pólitísku afgreiðslu.


Slagorðið ,,Frjáls Palestína" eyðum Ísrael af landakortinu!

Þetta átti að vera falleg og hátíðarleg guðsþjónusta fyrir nýja konungsparið í Danmörku, en var misnotuð fyrir pólitískan áróður fyrir Palestínu.

Nýja konungsparið í Danmörku, Friðrik konungur og Mary drottning, var fagnað s.l. sunnudag með hátíðarguðsþjónustu í dómkirkjunni í Árósum. Það var allt í samræmi við hefðirnar sem Danir þekkja. Margir hlökkuð til athafnarinnar með konungshjónin í aðalhlutverki.

En því miður var svartur blettur settur á athöfnina. 

Athöfnin var ekki aðeins til heiðurs konungshjónunum heldur líka þeim grunngildum sem danskt samfélag og danska konungsfjölskyldan byggir á.

Tveimur imams (maður sem leiðir guðþjónustu í mosku) var boðin þátttaka. Sennilega gert vegna hugmynda konungshjónanna eða annarra skipuleggjenda um að viðburðurinn ætti að vera merki um hreinskilni og fjölbreytileika.

Séð með augum stjórnmálanna virðist rétt að bjóða þeim, en það er ekki sérstaklega augljóst af hverju múslímskum imamum ætti að vera boðið til athafnar fyrir dönsku konungshjónin. Þessi góði ásetningur um hreinskilni og fjölbreytileika skilaði vægast sagt ekki góðum gjörningi og alls ekki í samræmi við danska hefð.

Á mynd hér neðar má sjá imans frá þessari hátíðlegu stund. Hann misnotaði hátíðlegan atburð til að flytja áróður í formi skilaboða, sérstaklega flutt af íslömskum hópum, sem vilja þurrka Ísrael af landakortinu. Þessi maður heitir Siad Dahir Ali var með trefil sem á stóð ,,Frjáls Palestína.”

Boðskapurinn er almennt slagorð meðal múslíma sem eru andvígir Ísraelum í Mið-austurlöndum. Sérstaklega núna þegar ástandið er svona. Slagorðið ,,Frjáls Palestína, er víðfeðmt en segir samt hvaða pólitísku kröfur maður sendir.

Fyrir hvern þann sem fylgist með þróuninni í Mið-austurlöndum er enginn í vafa um hvað boðskapurinn þýðir. Í athöfninni misnotaði múslímskur gestur hana fyrir áróður í pólitísku máli sem er mjög umdeilt.

Útrýma á Ísraela frá landakortinu

,,Frjáls Palestína” er sami boðskaður og ,,Frá ánni til sjávar.” Það þýðir að útrýma eigi Ísrael frá landakortinu.

Textinn á tefli imamens tók afstöðu með pólitísku afli sem vinnur fyrir múslímsk öfl og átakanna við Ísrael. Maður ætti frekar að segja: Hvernig dettur honum í hug að ræna fallegri danskri athöfn til að sýna þessa pólitísku afstöðu?

Jim Lyngvis er einn þeirra sem sá misnotkun mannsins.  Hann vakti athygli á því að imamen söng heldur ekki með í þeim sálmum sem sungnir voru við hátíðar guðþjónustuna þar sem hann var gestur. Það hefði hann átt að gera eins og allir aðrir. Virðingavottur við konungshjónin.

Danir létu í sér heyra á samfélagsmiðlum um málið, allt í sömu átt. Við skrifum þetta sem fólk sem hefur miklar áhyggjur af því hvernig eigi að koma á friði í Miðausturlöndum. Við höfum tekið þátt í pólitískum umræðum um málið. Okkur finnst það algjörlega óviðeigandi að fulltrúi róttækra íslam ræni hátíðarathöfn fyrir dönsku konungshjónin í pólitískum tilgangi. 

Skipuleggjendur hefðu átt að átta sig á vandanum. Þetta var viðburður þar sem menn áttu að tryggja að svona pólitísk misnotkun í þágu Palestínu geti ekki átt sér stað.

Heimild.

imam-gudstjeneste


Orðsending til kennara, á við marga innan þeirra stéttar.

KALDLYNDI Í BOÐI VÓKISMANS

Síðustu árin hef ég fylgst grannt með starfi í skólum á Íslandi og víst hef ég skrifað margt um skólamál. Nokkrir starfsmenn skóla hafa bókstaflega sagt mér samskiptasögur og rauði þráðurinn í þeim sögum er ekki sú fegurð sem ætla mætti að skólastarfið státaði af. Menn hafa sagt mér sögur af slaufun og hreinni útskúfun þeirra sem ekki falla inn í tiltekinn ramma. Nýlegustu dæmin eru verri en ég gat gert ráð fyrir. Sum dæmin eru þess eðlis að sem foreldri myndi ég helst ekki vilja hafa börn mín í skólum á Íslandi. Ég hreinlega vorkenni kennarastéttinni eins og hún leggur sig. Þar líðst það að setja samstarfsfólk til hliðar ef það fer ekki í einu og öllu að pólitískri rétthugsun. Vopnin snúast í höndum þeirra sem hafa tómhyggju rétttrúnaðar að verja og í skjóli vókisma eru kennarar málsvarar og löghlýðnir umbjóðendur þeirra sem til dæmis leggja áherslu á transvæðingu barna. Kennarar sem láta ekki í sér heyra þegar þeir skynja skelfilega þróun eru sekir. Skólayfirvöld sem aðstoða við að skapa óreiðu í hugarheimi barna eru að stunda glæpsamlegt athæfi. Kennarar sem taka þátt í þjónkun við öfugþróunina eru með óbragð í munni þegar þeir loksins þora að tjá sig.

Okkur er sagt að til sé eitthvað sem heitir kynáttunarvandi eða kynami. Þetta ku eiga sér þá rót að ungmenni geti átt erfitt með að velja sér kyn eða átta sig á kyni sínu. Vandinn er oft undirstrikaður með þeim hætti að í boði sé fjöldi kynja. Þessi fjöldi kynja leynist þá í líkama sem einungis getur valið á milli þess að vera karlkyns eða kvenkyns. Hér er skapaður fjölbreytileiki til þess að hægt sé að standa frammi fyrir lúxusvanda – að velja sér hið eina rétta kyn.

Í starfsskýrslu Samtakanna ´78 fyrir árið 2009 er kynáttunarvandi eða kynami ekki nefndur sem ástæða fyrir komu ungmenna í ráðgjöf. Nú er svo komið að kynami er daglegt brauð í skólum landsins. Skilgreiningin er að vísu enn á gráu svæði. Okkur ber þó að þakka kynningarstarfi Samtakanna ´78, ríki, borg og skólayfirvöldum allan þann vanda sem núna blasir við. Aldrei hafa fleiri börn verið ráðvillt gagnvart því að ákveða eigið kyn. Þetta er grátbroslegt og engu líkara en kaldhæðni örlaganna sé að sturta yfir okkur ömurlegu myrkri. Áróðurinn er ekki nein tilviljun, þetta er allt útpælt. Þetta er allt skipulögð glæpastarfsemi í boði yfirvalda um leið og siðvit kennara og skólayfirvalda er lagt til hliðar. Allt góða fólkið sem á að vernda börnin, allt góða fólkið sem veit af vandanum, allt þetta góða fólk kýs að þegja þunnu hljóði.

Í dag er svo komið að kynami er ekki skilgreindur sem geðsjúkdómur, kynami er í dag skilgreindur sem auðlind, frábær viðskiptahugmynd og gróðavon fyrir lyfjafyrirtæki, læknamafíur og aðra heilbrigðisstarfsmenn. Þetta er allt hægt vegna þess að kennarar á Íslandi eru svo lánsamir að hafa Samtökin ´78 sem kenna börnum að þau geti valið sér kyn. Þetta fúsk er stutt af kynleysisfræðingum og sjálfskipuðum gúrúum sem eru settir á stall innan stjórnsýslunnar, dyggilega studdir af ríkisreknum málsvörum vókismans. Orðræðu skal breyta í þágu kynleysis, til þess eins að leggja áherslu á hversu erfitt það getur verið að velja sér kyn. Gerum börnin ráðþrota, þau verða hvort eð er ráðþrota þegar þau eldast. Ætlunin er að skapa ótta, gera glundroðann að féþúfu og skjótfengnum gróða.

Hér eru yfirvöld, íslenska ríkið og Reykjavíkurborg í broddi fylkingar líkt og um glæpaklíkur sé að ræða. Þeir sem benda á tilbúinn vandann, þeir sem ekki vilja bjóða hættunni heim, þeir eru settir út í kuldann og látnir dúsa í myrkri. Þeir sem virkilega vilja vernda börnin og segja skilið við áróður sem víðast hvar er rekinn af öflugu peningaveldi, þeir eru stimplaðir sem vont fólk og eru sagðir merkisberar ófögnuðar og öfgahyggju. Þeir hljóta stimplun sem málpípur hatursorðræðu.

Margt fólk sér ljósið í pólitískri rétthugsun – þar er þó að finna hið dýpsta myrkur mannsandans.

 

Í svörtu myrkri margur deyr,

þótt menn það vita kunni

að inn í ljósið leita þeir

sem lifa í blekkingunni.

 

Kristján Hreinsson skrifaði færsluna á snjáldursíðuna sína. Feitletrun er bloggara.

 


Í þýskalandi lenda menn í vandræðum með nemendur sem vilja fylgja íslam í þýsku skólakerfi

Í þýskalandi fylgja margir nemendur reglum íslam sem þykja ofsafengnar. Þeir krefjast að samnemar þeirra geri slíkt hið sama. Þýskaland uppsker afleiðingarnar í dag af þeirri skelfilegu stefnu sem Merkel hafði í innflytjendamálum til fjölda ára.

Hópur nemenda með íslamskan bakgrunn í borginni Neuss hafa krafist þess að settar yrðu strangar íslamskar reglur í námi og meðal annarra nemenda í skólanum. Þeir haga sér eins og ,,Sharia lögregla” gagnvart skólafélögum og kennurum. Sharia þýðir ,,vegur íslams.”

Dagblaðið BILD segir frá hvernig hegðun umræddra nemenda breyttist fyrir um ári síðan, hegðun sem maður er ekki vanur að sjá. Meðal annars byrjuðu þeir að safnast saman í bæn eftir reglum sharia á skólasvæðinu. Nokkrir nemendanna fóru snemma úr skólanum á föstudögum svo þeir gætu mætt í föstudagsbæn í mosku.

Þeir hundsuðu fyrirmæli kennarans um að þetta væri ekki leyfilegt. En í þeirra heimi ganga reglu Allah lengra en skólareglurnar.

Skólinn fékk múslímska kennara til að útskýra fyrir nemendunum að það væri leyfilegt fyrir nemendur að stunda ekki föstudagsbæn. Krakkarnir tóku fyrirmælunum ekki alvarlega. Fleiri bættust í hópinn og fylgja ströngum reglum íslam.

Margir af þessum nemendum ávíttu kennara sína fyrir að fylgja ekki þessum ströngu reglum sem íslam setur þeim!

Karlar æðri konum

Nemendurnir æfðu kynjaskiptingu í kennslustofunni upp á eigin spýtur og samkvæmt góðum íslömskum reglum sitja strákarnir fremst. Þetta uppátæki leggur áherslu á að ,,karlar standa konum framar” eins og segir í Kóraninum.

Kynjaskipt sundkennsla er líka sjálfsögð í íslamska ,,pakkanum” og fór nemendurnir fram á að því yrði fylgt. Í kjölfarið fóru nokkrir nemendum fram á íslamskt bænasvæði. Aðrir nemendur klöguðu yfir að þeir væru í reynd þvingaðir í að fylgja íslömskum reglum.

Það er ekki verið að tala um múslímskan skóla. Þetta er venjulegur þýskur skóli. En nú krefjast nemendur sem búa við innrætingu frá múslímsku samfélagi að allir fylgi íslam.

Sem hluti af þessari íslamsvæðingu hættu stúlkurnar að horfa í augun á karlkennurum skólans þegar þær töluðu við þá. Það má ekki samkvæmt sharia.

Skólayfirvöld brugðust við þessari þróun. Afleiðingin var sú að íslamskir nemendur höfnuðu þýska réttarkerfinu. Þeir sáu það sem valkost að beita villimannslegum íslömskum refsingum- eins og að grýta konur fyrir hórdóm.

Hlusta ekki á viðvaranir

Þannig, að í nútíma samfélagi eins og Þýskalandi má finna hugarfar nemenda sem ríkti fyrir mörgum öldum en menn hafa horfið frá. En þetta er ekki fortíð í borginni Neuss heldur nútíð þar sem múslímskir nemendur sýna öfgafulla hegðun gagnvart samnemum og kennurum í anda íslam. 

Den Korte Avis hefur í gegnum tíðina aðvarað gegn íslamsvæðingu sem afleiðing af stjórnlausu innstreymi innflytjenda. Þessar aðvaranir hafa ekki náð eyrum þeirra sem stjórna. Þetta er menningarstríð sem grefur undan vestrænni menningu sem byggir á frelsi og lýðræði.

Hér má lesa um nemendur sem vilja grýta konur.

Hér má lesa um mál af svipuðu meiði.

Heimild.


Fyrrverandi stjórnandi varar við Íslam- sem breiðist hratt út í Evrópu

Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar varar við íslam: ,,Allt önnur menning nálgast okkur og við erum alls ekki tilbúin.” Kapphlaupi Evrópu er lokið

Í nýlegu viðtali á FPÖ TV – sem greint var frá í GulfInsider 5. desember 2023 - segir Hans-Georg Maassen, fyrrverandi yfirmaður innri öryggisþjónustu Þýskalands, Bundesverfassungsschutz, að íslam sé vel í stakk búið til að sigra Evrópu.

Þýskaland og Austurríki gætu spornað við þróuninni en velja að gera það ekki.

,,Allt önnur menning nálgast okkur. Við erum alls ekki tilbúin fyrir það. Við erum ófær um að leysa átök með ofbeldi eins og fjölskylduættirnar frá arabaríkjunum gera. Þetta fólk leysir ágreining með ofbeldi á meðan fólk í Mið-Evrópu trúir því að það sé aðeins hægt að gera fyrir dómstólum," segir Maassen, sem var yfirmaður Bundesverfassungsschutz frá 2012 til 2018.

Evrópa lætur undan Íslam

Hann heldur áfram og segir; ,,Evrópubúar munu láta undan íslam. Að hluta til vegna þess að þeir sjá ekki einu sinni að átökin nálgast og að hluta til vegna þess að þeir geta ekki leyst átök á sama hátt [og múslímar]... Lokaniðurstaðan verður smám saman eyðilegging evrópskrar menningar."

Fyrrverandi yfirmaður öryggismála segir Evrópubúa ekki hafa skýra mynd af stefnu sinni í málaflokknum.

,,Við lifum aðeins í núinu og þess vegna töpum við fyrir öðrum sem hafa trú eða hugmyndafræði og vita hvert þeir vilja fara... Flestir múslimar koma til okkar með allt aðra vitund um menningu, trúarbrögð og fjölskyldu. Í veraldlegri Evrópu eru trúarbrögð og fjölskylda – ef þau gegna einhverju hlutverki – mál einstaklingsins, en í þessum menningarheimum er það eitthvað sem ættin skilur eftir."

Stjórnmálamenn

Samkvæmt Hans-Georg Maassen stuðla evrópskir stjórnmálamenn, og þá sérstaklega pólitíska vinstrið, vísvitandi að fjöldainnflutningi fólks vegna þess að þeir vilja annan íbúafjölda. Því sundurleitari sem þjóðin er, því minna mun hún geta tjáð sig og iðkað raunverulegt lýðræði. Þegar stjórnmálamenn úthluta ríkisborgararétti til innflytjenda breytist samsetning kjósenda vegna þess að útlendingar kjósa öðruvísi en innlendir.

Maassen segir lönd eins og Þýskaland og Austurríki hafa úrræði til að stöðva innflutning fólks en þau hafi vísvitandi valið að nota þau ekki. Ef þeir vildu gætu þeir vísað fólki frá við landamærin. Lönd gætu einnig vísað úr landi hundruðum þúsunda útlendinga sem vilja ekki samþætta sig samfélaginu eða fremja glæpi og lifa á fjármagnsflutningum frá ríkinu, eða tryggja að þeir fari sjálfviljugir. 

Eitt af vandamálunum er að löndin sem viðkomandi kemur frá neitar að taka aftur við þegnum sínum, en það er ráð við því, segir fyrrverandi stjórnandi njósnadeildarinnar. Hægt væri að frysta erlendar eignir þeirra, koma í veg fyrir að þegnar þeirra kæmust inn í Evrópu og margt fleira.

,,Af hverju þvingum við ekki lönd eins og Ítalíu og Grikkland til að gera loksins það sem þeim ber að gera samkvæmt evrópskum sáttmálum, sem er að veita skynsamlega landamæravernd. Hvers vegna leyfum við þessu fólki að koma til okkar, nærast á því og eyða milljörðum í það, á meðan margir fátækir ellilífeyrisþegar í landinu með 920 evrur í eftirlaun eftir fulla starfsævi þurfa að safna flöskum?"

Fjölgun múslíma

Lýðfræðileg spá Pew Research sýnir að múslimar í Evrópu gætu þrefaldast í 76 milljónir árið 2050. Samkvæmt öðrum útreikningi verða múslimar í meirihluta árið 2100 og í löndum eins og Grikklandi, Írlandi, Frakklandi, Belgíu og Bretlandi verða þá meira en þrír fjórðu íbúanna múslímar.

Reynslan sýnir að múslímar þurfa ekki að vera í meirihluta til að komast til valda. Ofbeldisfullur hluti, til dæmis 20 prósent er nóg fyrir slakt og ráðalaust ríki til að beygja sig fyrir kröfum Múhameðstrúarmanna, eins og við höfum nýlega séð með dönsku Kóranalögunum en í Danmörku eru múslímar varla meira en 7 prósent.

Danskir foreldrar sem kjósa að koma börnum í heiminn verða að búast við því að búa við íslamskt einræði áður en þeir verða 30 ára. Það er að segja nema ríkið fari að ráðum Hans-Georg Maassen en ekkert bendir til þess að stjórnmálamenn séu tilbúnir til þess.

Í raun er ekkert nýtt í athugunum Maassen. Fjölmargir gagnrýnendur og andófsmenn hafa sagt það sama í áratugi en hafa verið rægðir, hataðir og ofsóttir af fjölmiðlum, sérfræðingum, dómstólum, prestum og stjórnmálamönnum.

Þessir dyggðu stórmenni munu ekki skilja að ríki sem trúir því að lög og samþykktir séu áhrifarík vopn gegn skipulögðum ofbeldismönnum og ættum mun farast.

Eða þeir skilja það - sem er meira en ógeðfellt.

Heimild.


Sniðgöngum Ölgerðina- sem nauðgar íslenskri tungu

Forsvarsmenn Ölgerðarinnar stigu fram og kynntu nýtt slagorð fyrir Kristal. Þeir sem búa til slagorð fyrir fyrirtæki verða að kunna íslensku. Hjá Ölgerðinni virðast þeir ekki kunna íslensku eða notkun tungumálsins. Það er ljóst á slagorðinu, þriggja ára barn gæti notað þessi orð því það kann ekki meira en svo í notkun tungumálsins.

Í kjölfarið var mér boðið í hóp á snjáldursíðunni sem vill sniðganga vörur Ölgerðarinnar. Mér er bæði ljúft og skylt að gera það. Öðruvísi get ég ekki sýnt vanþóknun mína á fyrirtæki sem nauðgar tungumálinu mínu. Samlíkingin er sterk en lýsir því best hvernig fólk hefur það í tengslum við gjörning Ölgerðarinnar.

Hvet sem flesta að sýna vanþóknun sína í verki.

Hafi aðrir í hyggju að sýna Ölgerðinni að þeim misbjóði nauðgunin á tungumálinu ætti fólk ekki að kaupa vörurnar þeirra, bæði heimatilbúnar og innfluttar. Hægt að kaupa sömu vörur í betri gæðum.

Oft hefur íslenskan borið á góma í tengslum við auglýsingar. Nota á gott og vandað mál, forðast enskuna. Börnin okkar lesa og hlusta á auglýsingar og þegar íslenskunni er nauðgað eins og Ölgerðin gerir með slagorði sínu hefur það áhrif. Börn halda að fyrirtækið hafi góðan íslenskumann sem býr til auglýsingar og átta sig ekki á bullinu sem kemur fram í auglýsingunni. Ölgerðinni virðist vanta starfsmann sem kann íslensku. Vantar klárlega íslenskuvottun!

Hafi forsvarsmennirnir haldið að þjóðin væri hlynnt transvæðingu samfélagsins og afbökun tungumálsins í þeirra þágu þá eru þeir á villigötum.

Góð ráð eru gefin í hópnum og þetta er eitt þeirra ,, Mér finnst Tango vera líkast Egils Appelsíni.“ nú er bara að kaupa Tango ef menn geta ekki verið án Appelsíns.

Verndum íslenskuna með þeim úrræðum sem við getum notað.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband