Merkel opnaði dyr Þýskalandi fyrir íslamistum- þegar hommi var drepinn leit hún í hina áttina- nú beinist reiðin að henni

Kvöld eitt í október 2020 gengu tveir menn á götu í þýska bænum Dresden og héldust í hendur.

Múslímskur maður sem hallast að ríkis Íslams sá þá. Hann heitir Abdullah al Haj Hasan og hefur sýrlenskan bakgrunn. Honum fannst augljóslega að þessir menn ættu að deyja af því þeir litu út fyrir að vera hommar. Hann stakk þá báða með hníf. Annar dó, hinn lifði.

Í kjölfarið af þessum óhugnanlega atburði hefur umræða skapast um ástæðu þessarar blóðugu árásar. Það er verið að tala um árás gagnvart samkynhneigðum. En hver er ástæðan? 

Hryðjuverk íslamista í landi Merkels- Þýskalandi

Það lítur ekki út fyrir að gerendur séu bara menn sem tilfallandi eru ósáttir við samkynhneigða. Reiði þeirra hangir saman við trú þeirra, Íslam. Fyrir íslamista er það skýrt að þeir viðurkenna ekki samkynhneigð. Fyrir þá marga þýðir að samkynhneigðir eru réttdræpir. Það var tilfellið í Dresden.

Sá sem lifið hefur vill ekki að drápið verði minnst sem ,,hómófóbískt ofbeldi.“ Hann vill skýra fordæmingu á hryðjuverkum íslamista. Hann krefur stjórnmálamenn að tala skýrt og fordæma íslamista og grimmdarverk þeirra.

Hvar var Merkel?

Margir stjórnmálamenn sem hafa tekið þátt í fordæminu íslamistanna og hryðjuverka. Einn stjórnmálamaður sker sig úr með fjarveru sinni…Angela Merkel. Hún er fyrrverandi kanslari og ber ábyrgð á íslam væðingu landsins og afleiðingum. Eftirlifandi og syrgjandi makinn segir ,,Satt að segja fannst mér það dónalegt.“ 

Merkel gaf eftir bæði gagnvart Pútin og íslamistunum.

En í raun og veru snýst þetta ekki um ósvífni. Merkel alltaf átt í erfiðleikum með að setja íslamistum stólinn fyrir dyrnar. Rétt eins og hún hefur átt í erfiðleikum með að koma böndum á alræðisstjórn Pútíns.

Hún ber mikla ábyrgð vegna veikburða og eftirlátssamra tengsla sinna við bæði alræðisstjórn Pútíns og öfl íslamista sem hafa náð banvænni fótfestu í Þýskalandi og Evrópu almennt.

Dómarinn í málinu sagði ,,Hann vildi refsa þeim með lífi þeirra því þeir voru par af sama kyni.“ Þetta er bara einn angi þeirra ofbeldisverka sem Angela Merkel ruddi brautina fyrir með slakri innflytjendastefnu. Gerandinn kom til Þýskalands sem ,,fylgdarlaust flóttabarn.“ Foreldrarnir sendu hann af stað svo hann gæti notið betri lífskjara í Þýskalandi.  

Hryllileg ábyrgð 

Málið hefur haft íþyngjandi áhrif á þann ljóma sem stefna Angela Markel hafði í málum hælisleitenda. Abdullah al Haj Hasan kom til Þýskalands sem fylgdarlaust flóttabarn. Hann var alinn upp með múslímskri ofbeldismenningu og notaði hana í Þýskalandi þegar hann fékk aðgang að þýsku samfélagi.

Merkel brást ekki við þessuari ofbeldisfullu menningu en þau viðbrögð hefðu verið nauðsynleg.

Abdullah al Haj Hassan var íslamisti og hann framkvæmdi viðurstyggilega árás vegna þess að hann var íslamisti. Samkynhneigðu mennirnir tveir áttu að sæta refsingu Allah fyrir að vera samkynhneigðir.

Íslamistar telja lögmætt að drepa homma- og það gerði Abdullah al Haj Hasan- með hníf í hönd. Hann særði annan manninn það mikið að hann féll í jörðin og lést.  

Dómarinn í málinu sagði um gerandann: ,,Hann virkar sem róttækur íslamisti. Hann vildi refsa mönnunum með lífinu fyrir að vera hommar.“ 

Markel veikburða og eftirlátssöm bæði gagnvart íslamistum og kommúnistum

Angela Markel átti að vera fremst í flokki og fordæmi þennan óhugnanlega gjörningi. En Merkel hefur aldrei verið til gagns í baráttunni gegn íslamistum. Hún var veikburða og eftirlátssöm gagnvart íslamistum, eins og hún var gagnvart kommúnisma Pútins.

Hún gekk of langt til að friða Pútin- jafnvel smjaðra fyrir honum. Hún gekk of langt með að sýna ,,skilning“  á þeim íslömsku öflum sem stöðugt breiddist út í Þýskalandi.

Það kom ekki í veg fyrir að hún hefði eigin hvatningakór af réttum sérfræðingum stjórnmálanna- líka í Danmörku. Í dag ættu sérfræðingarnir að horfa á ranga og öfgafulla mat þeirra  á mikilvægi Merkel.

Vandræðalegt!

Hún færði íslamistum landið á silfurfati

Nú eru margir Þjóðverjar áhyggjufullir um hvað gerist með landið þeirra. Það er hægt að sjá með auknum stuðningi á hægri væng stjórnmálanna. Enginn hefur átt jafn ríkan þátt í því og Angela Markel að færa íslamistum landið á silfurfati.

Hún hefur ekki hugmynd um hvernig á stoppa það sem hún setti í gang. Markel hefur lagt sitt að mörkum til íslam væða land sitt.

Skaðinn vegna áhrifa Merkels er óbætanlegur

Það er þörf á marktækri stefnubreytingu. Væntanlega mun ástandið batna með þeirri hægri stjórn sem virðist vera á teikniborðinu.

En Þýskaland mun bera þess merki að Merkel var við völd.

Þær afdrifaríku breytingar í samsetningu samfélagsins, hælisleitenda og Þjóðverja, munu móta landið til framtíðar. Skaðinn frá áhrifum Merkel mun sýna að hann er að mestu leyti óafturkræfur.

Heimild.


Bloggfærslur 9. janúar 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband