Líst vel á konurnar...

bera virðingu fyrir sér. Alveg þess virði að taka þær sér til fyrirmyndar.

Að nokkrum þáttastjórnanda, kemur eftir 14 sek., detti í hug að ávarpa konur á þennan hátt er til skammar. Bæði niðurlægjandi og móðgandi.

Hugmyndafræðin smættar konur og þessar mótmæla. Vel gert.

Konur eiga ekki að láta þetta yfir sig ganga.

 


,,Þetta minnir á allar sögurnar frá fyrrverandi nasiþýskalandi þegar maður tilkynnti nágranna, vinnufélaga o.fl. ef maður óskaði að ryðja þeim úr vegi.“

Kvartað er til vinnuveitenda undan skoðunum fólks til að sverta mannorð þess. Líkist slaufunarmenningunni umtöluðu. Lotte segir á síðunni frá kvörtun undan kennari sem sagði að trans-konur ættu ekki að fara í kvennafangelsi. Trans-aðgerðasinnar í Danmörku eru herskáir eins og hér á landi. Sem betur fer eru vinnuveitendur með kollinn í lagi og láta svona gaspur og reiði sem vind um eyru þjóta.

Á bloggsíðu Lotte segir einn: Þetta minnir á allar sögurnar frá fyrrverandi nasiþýskalandi þegar maður tilkynnti nágranna, vinnufélaga o.fl. ef maður óskaði að ryðja þeim úr vegi.“

,,Det sender mindelser til alle historierne, fra eks. nazityskland, hvor man anmeldte naboer, kollegaer m.v. hvis man ønskede at "skaffe dem af vejen".

Leyfi þessu að fylgja með, einnig af síðunni: ,,Þetta sýnir bara hve langt trans-aðgerðarsinnarnir eru tilbúnir að ganga til að breiða út hugmyndafræði sína, þar sem þau halda ekki aftur að sér til að ráðskast með börn, og nú, með ljótu umtali, í gegnum vinnuveitendur manna og þar með lifibrauði þess til að þagga niður í þeim.“

,,Dette demonstrerer blot hvor langt transaktivismen er parat til gå for at udbrede deres ideologi, hvor de end ikke holder sig tilbage, for at manipulere børn, og nu, personlige hetze, via folks arbejdsgivere, og dermed folks levebrød, for at gøre folk tavse.“

Held áfram að vitna til athugasemda sem komu. ,,Bradley bendir réttilega á- aðferðir sem við höfum ekki notað í mjög mörg ár. Á ekki við í lýðræðilegu samfélagi.“

,,Bradley så rigtigt påpeger - metoder, vi ikke har set i mange, mange år. Og som ikke hører sig til i et demokratisk samfund.”

Hér má lesa um málið.

Það er í raun undarlegt til þess að hugsa að fólk sem segist vera í minnihlutahóp eða jaðarhóp skuli hegða sér svona. Sendir inn kvörtun til vinnuveitanda fólks af því það er ekki sammála hugmyndafræði trans-málaflokksins að öllu leyti. Það sem fer helst fyrir brjóstið á þeim er að konur og margir karlmenn viðurkenna ekki að transkona sé líffræðilega kona. Trans-kona er tegund af karlmanni og öfugt, trans-karl er tegund af konu.

Þeir sætta sig ekki við að margir séu mótfallnir lyfjagjöfum barna sem getur gert þau ófrjó, meiri líkur en minni. Sorglegt.

Margir hafna öðrum inngripum í líf barna sem eiga í vanda með kynáttun sína, nema góða sálfræðimeðferð. Aðrar skoðanir en trans-aðgerðasinnar hafa. Virðist kalla fram reiði þeirra gagnvart þessu fólki. Mikið er hegðun þeirra sorgleg. Bakslag í baráttunni, trans-aðgerðasinnar hafa valdið því sjálf.

Margir trans-aðgerðasinnar virðast haldnir fordómum gagnvart fólki sem annt er um heilsu barna sem glíma við kynáttun. Til að vinna á þeim fordómun þurfa þeir að afla sér upplýsinga eða þekkingar frá virtum fræðimönnum sem hafa þekkingu á málaflokknum og marktækum rannsóknum.

Hér á landi hefur það sama gerst. Trans-aðgerðasinnar fullir af reiði senda vinnuveitendum og lögreglu kvartanir. Geta trans-aðgerðasinnar ekki beint reiði sínni í annan farveg, sama hvar það er statt í heiminum. Leyfa tjáningar- og málfrelsinu að lifa, ekki ofsóknum eins og um er talað hér að ofan.

Gleðilega páska.


Transkonur eiga ekkert erindi í íþróttir kvenna

Í myndskeiðinu hér er rætt um það. Sharron Davies gullhafi í frjálsum íþróttum ræðir um málið eftir að hafa rætt skondnu uppákomuna hjá Nike. Hún bendir á staðreyndir.

Trú, rannsóknir og staðreyndir gera menn ekki transfóbíska eða á móti transfólki segir þulurinn. Því er haldið fram sé maður þeirrar skoðunar að transkona eigi ekki að keppa í kvennaíþróttum.

Í þeim löndum sem transkonur eru leyfðar í íþróttum eiga konur að taka sig saman og láta sig hverfa frá þeim keppnum.

Af hverju sækja transkarlar (kona sem skilgreina sig sem karlmaður) ekki í íþróttir karla, af því þær hafa ekki roð í þá.

Réttlátast er að hafa sérflokk fyrir transfólk- þá keppir það á jafnréttisgrundvelli.

Hér má sjá frekari umræðu. Myndir af transkonum í íþróttum.

 

Þrjár transkonur (karlmenn) vinna hlaupið, gull, silfur og brons, Í KVENNAFLOKKI!


Í Danaveldi hafa stjórnmálamenn ekki séð að transhugmyndafræðin skaðar fjöldann allan af ungmennum segir í góðri grein

Blaðamðaurinn Dorte Toft skrifaði grein í Berlinske um þá sýn Danmarks Radio, Femina, Vi unge að kynskipti fyrir börn og ungmenni sé flott og hugrakkt. Ungmennin fá næstum að vita að hamingjan bíði þeirra við endann á LBGT- regnboganum.

Ríkisrekna sjónvarpið DR horfir framhjá að um 80-90% af ungmennum sem glíma við kynáttunarvanda og eru ekki sett í lyfjameðferð jafna sig á því. Kåre Fog skrifaði um greinina á bloggsíðu sinni og ég þýddi.

Áhyggjusamir foreldrar segja ,,Við fáum að vita of lítið um áhættuna við kynskiptimeðferðina, og áhættuna um hvernig unglingar bregðast við öðrum vandamálum sem leysast ekki með kynskiptum.“

Dorte Toft skrifar líka að í leikskólum, skólum og ungdómsskólum má finna áróðursbæklinga unna af félaginu ,,Stuðningur fyrir transbörn" (FSTB) með fjárhagsstuðning frá Heilbrigðigisyfirvöldum- efni sem er fullt af aðvörunum að ef barnið er ekki viðurkennt þá er mikil hætta á sjálfskaða og sjálfmorði. Sama gildir um áróðurinn sem ætlaður er foreldrum.

Dorte Toft gerir rétt í að gagnrýna þessi röngu skilaboð. Það er t.d. ekki sannanir fyrir að ef barnið fær ekki leyfi til að skipta um kyn að það auki hættuna á sjálfsmorði. Ungmennin sem glíma við kynáttun og fá kynskipti eru í jafn mikilli hættu á að taka eigið líf og þau sem fá ekki meðhöndlun.

Greinar hennar hafa fengið tvö andsvör, frá Sunnanne Branner þann 12. mars sem er skrifstofustjóri LGBT í Danmöku og þann 13. mars frá Marie Elisabet Lind- Thomson sem er fyrrverandi formaður FSTB, félags fyrir tranbörn. 

Susanna Branner skrifar sem dæmi ,,við höfum aldrei heyrt að 89-90% af ungmennum í kynáttunarvanda jafni sig á því.“ Hún fer gegn fullyrðingum Dorte Tofts að þetta sé dregið áfram á ,,transhugmyndafræði.“

Svari Marie Elisabet Lind-Thomsens er hagrætt, vægast sagt. Allt sem hún fullyrðir er lygi. Hún fullyrðir ,,að meirihluti af rannsóknum sýnir að flestir sem eru trans sem börn og ungmenni verða það sem fullorðnir. Það finnast mjög fáar rannsóknaniðurstöður um það sem Dorte Toft fullyrði, en þessir rannsakendur hafa ekki tekið þau börn og ungmenni sem rannsóknin á að fjalla um.“ Þessar fullyrðingar eru ósannar, alla leið.

Yfirskrift innleggsins er ,,Maður er ekki trans-hugmyndafræðingur af því maður vinnur út frá staðreyndum og rannsóknum, Dorte Toft.“ Viðbjóðsleg fyrirsögn þegar innlegg hennar fer gegn öllu sem rannsóknir sýna og transhugmyndafræðin er byggð á.

Aðeins tveimur dögum síðar svaraði Dorte Toft þessum tveimur andsvörum. Það er kjarnyrt og hafnar því sem sagt er. Margt af því sem hún segir myndi ég nota sem svar segir Kåre Fog. 

Varðandi hve margir jafni sig á kynáttun skrifar hún:

,,Samkvæmt Ríkisspítalanum sérfræðideild fyrir ungmenni undir 18 ára með kynáttunarvanda munu um 75% vaxa frá því. Í stærsta blaði Finnlands segir Riittakerttu Kaltiala, chefpsykiater fyrir stærstu kynskiptistofuna, að um 80% geri það- ef þeir fullorðnu ýti ekki á um kynrænt sjálfræði."

Hún sér það sem vandamál að fái börnin stopphormóna, sem koma í veg fyrir gelgjuskeiðið, þá halda um 95% áfram í eiginlegri kynskiptameðferð með horóm hins kynsins. Þau eru þá leidd inn á braut sem þau hefðu annars ekki farið. Hún vísar í breytingar og afstöðu til meðferðar um kynáttun í Englandi, Svíþjóð og Finnlandi. Danmörk er aftar á merinni- í Danaveldi hafa stjórnmálamennirnir ekki séð að transhugmyndafræðin skaðar fjöldann allan af ungmennum.

 

Færslan er á snjáldursíðunni 15. mars 2023.

Í færslunni setur Kåre Fog inn krækjurnar.


https://www.berlingske.dk/.../teenagepigers-medicinske...

https://www.berlingske.dk/.../medier-og-det-offentlige...

https://www.berlingske.dk/.../maa-transkoennede-have-lov...

https://www.berlingske.dk/.../man-er-ikke-transideolog...


Bakslag í baráttu trans-fólks segja

margir. Vissulega ekki gott. Skoða þarf hvar skóinn kreppir. Geta samtökin gert eitthvað!

Ráðinn var bakslagsstarfsmaður hjá Transsamtökunum 78.

 

Spurningin er hvernig ber hún sig að.

Kannski byrjar hún á þessu. Mjög þarft að skoða þessa hlið baráttunnar.

Næst þessu, transkonan hefur lög að mæla.

Eða skiptir sér af þessum málaflokki sem talað er um.

 

Transsamtökin 78 eru komin á spena ríkissjóðs. Slæm þróun. 


Starfsmenn Akureyrarbæjar sitja uppi

með gjafabréf sem bæjaryfirvöld gáfu þeim í jólagjöf. Kómískt. Góður styrkur til félagsins frá bænum. 

Nú er að sjá hvort Niceair gefi fólki kost á endurgreiðslu gjafabréfanna. Vonin er veik. Hann veit ekkert um framhaldið að svo komnu máli.


mbl.is Eingöngu „hlussur“ á lausu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trans kona hefur ekki á klæðum og getur ekki verið móðir

Trans kona fer ekki í gegnum kynþroska stúlku

Trans kona þekkir ekki túrverki

Trans kona getur ekki tekið pilluna

Trans kona finnur ekki breytingar á líkama sínum vegna pillunnar

Trans kona getur ekki talað um sjálfsfróun kvenna

Trans kona getur ekki orðið ófrísk

Trans kona getur ekki talað um hvaða áhrif fósturlát hefur á sál og líkama konu

Trans kona veit ekki hvaða áhrif meðganga og fæðing hefur á líkamann

Trans kona getur ekki talað um hríðir, styrk þeirra og áhrif

Trans kona veit ekki hvernig konu líður við legsamdrátt eftir fæðingu

Trans kona þekkir ekki tilfinninguna þegar brjóstin þrútna út vegna mjólkurframleiðslu

Trans kona þekkir ekki tilfinninguna að gefa barni brjóst og getur því ekki rætt það

Trans kona þekki ekki tilfinninguna að kona mjólki ekki nóg fyrir barn sitt

Trans kona getur ekki talað um breytingarskeið kvenna

Trans kona getur ekki verið lesbía, líffræðilegt kyn er karl

Trans kona getur ekki fengið legkrabbamein

Trans kona getur ekki fengið krabbamein í eggjaleiðara

Þetta er fátt eitt af því sem ég get nefnt sem trans kona getur ekki rætt um sem ,,kona“ því trans kona hefur aldrei möguleika á þessari upplifun. Hvað þá að hún geti talað um þessi mál af eigin reynslu.

Á heimasíðu Samtaka 78 stendur: ,,enginn einn sannleikur eða veruleiki myndi sameiginlega reynslu allra kvenna.” Hér er farið með rangt mál. Er þetta boðskapurinn í skólakerfinu, hreinlega logið að börnum. Set spurningamerki við ,,fræðslu“ samtakana í skólakerfinu. Treysti fulltrúum samtakanna tæplega til að vera hlutlaus.

Hér er líffræði kynjanna dregin í efa. Á sama veg getur trans karl ekki rætt mál er varðar karla.

Trans karl getur ekki talað um tilfinningu sína þegar limurinn stækkar

Trans karl getur ekki rætt um stærð limsins

Trans karl getur ekki rætt ótímabært sáðlát

Trans karl getur ekki rætt upplifun af lötum sæðisfrumum

Trans karl getur ekki lýst upplifun sinni af stinningu

Trans karl getur ekki talað um sjálfsfróun stráka

Trans karl getur ekki rætt um gráa fiðringinn sem stundum er sagt að karlmenn fái

Trans karl getur ekki verið hommi, líffræðilegt kyn er kona

Trans karl getur ekki fengið eistnakrabbamein

Og svona get ég haldið áfram. Kynin hvort um sig hafa ýmislegt að ræða sem varðar eigið kyn. Út frá líffræðinni eru kynin tvö. Hugmyndafræðin hins vegar getur leitt fólk inn á ýmsar brautir kynhneigðar.

Samtökin 78 segja á heimasíðu sinni ,, Hugmynd þessara og fleiri femínista er sú að konur séu undirokaðar og kúgaðar vegna líffræðilegra eiginleika, það er að segja getu þeirra til að eignast börn.“ 

Hér er ekki um hugmynd að ræða, STAÐREYND. Danska regnbogaráðið segir : ,,Transkona er karlmaður sem hefur þörf fyrir að lifa eins og kona. Transkarl er kona sem hefur þörf fyrir að lifa eins og karlmaður. Það eru TVÖ kyn. Karlmenn geta aldrei orðið konur og konur ekki karlmenn. Vanlíðan með kynáttun er andleg líðan og á að viðurkennast sem slík.“

Transakvívistar hafa sýnt það og sannað að þeim stendur ógn af frjálsu tali kvenna um málefni kvenna. Þeir mæta á viðburði þar sem konur tala til þess eins og beita ofbeldi og ráðast á konur. Transakvívistar bera ekki virðingu fyrir tjáningarfrelsi kvenna og baráttu.

Víða í hinum vestræna heimi hafa konur tekið sig saman og berjast fyrir réttindum kvenna, að eingöngu konur hafi aðgang að rýmum kvenna. Hér er áhugaverð lesning.

Ég óttast að hugmyndafræði trans-samtakana blómstri í skólakerfinu án gagnrýnnar hugsunar. Foreldrar ættu að óttast þá hugmyndafræði sem boðuð er í skólakerfinu og hvert barn skyldað að sitja undir. Sálfræðingur í Danaveldi aðvarar við trans hugmyndafræðinni, segir hugmyndina rugla börn og gera þau óörugg.

,, To get an idea of how bad things can get, one need only look to the US, where schools have rolled out the rainbow carpet to trans ideology.“

Mannréttindadómstóllinn sagði trans karl ekki geta verið faðir, þá er búið að skera út því. Lesið bloggið.


Framkvæmdastjóri Ungmennafélagsins komst réttilega að

orði þegar hún þakkaði börnunum fyrir að ÞORA að segja frá óviðeigandi fræðslu í skólabúðunum á Reykjum. Að öðru kosti hefði ekki verið hægt að taka á málinu.

Transsamtökin 78 fara inn í skólana með fræðslu. Þar sitja mörg börn og hlusta á rangfærslur þeirra, t.d. að kynin séu fleiri en tvö. Barn sem hugnast ekki þessi málflutningur hefur hvorki þrek eða þor til að standa gegn fullorðnu fólki og mótmæla, jafnvel tveimur fræðsluaðilum. Það situr undir áróðrinum sem ég vil kalla. Valdastaða fræðsluaðila og barnanna er gerólík. Sama með leik- og grunnskólakennara sem boða fagnaðarerindi transhópsins, valdastaðan ólík. Börn mótmæla ekki kennara sínum og hafa ekki rökin til að ræða um málaflokkinn.

Við verndum ekki börnin inni í skólakerfinu og þau eru ekki örugg eins og þessi góði faðir bendir á í þessu stutta myndbandi. Faðirinn mótmælir harðleg fræðslu kennara og segir hann beita börnin kynferðislegu ofbeldi, munnlega. Hér er um ábyrgt foreldri að ræða. Umfram allt, barnið þorði að segja frá. 

Nemendur eiga að mæta í tíma, líka þegar transsamtökin mæta. Fræðsla á vegum transsamtakanna á að vera valkvæð og í félagsmiðstöðvunum. Þá mæta þeir sem hafa áhuga. Engu barni á að vera skylt að fræðast um hugmyndafræði transsamtaka. Danir hafa stigið skrefið víða um land og hafnað svona hagsmunasamtökum inn í skólakerfið.

Transhugmyndafræðin er í reynd einföld.


Lyfjagjöf án samþykkis foreldra er algeng í transheiminum

segir Abigail og bendir á að kynskiptistöðvar í Ameríku séu um 300. Hún undrar sig á lyfjagjöfum til barna án samþykkis foreldra og án ráðgjafar viðeigandi fagaðila.

Laga þarf börnin áður en þau fremja sjálfsmorð er oft sagt. Engar rannsóknir eru til sem styðja það segir Abigail. Þessum rökum er víða haldið fram til að flýta meðferðum barna, líka hér á landi.

Í fyrirlestrinum fer hún yfir áhrif hormónablokkandi lyfja. Fjallað er um fjölgun unglingsstúlkna sem telja sig trans. Aukningin er 4.700% og flestir stúlkur. Þær smita hvor aðra, samfélagsmiðlar koma þar inn. Þær eiga í mörgum tilfellum við önnur andleg veikindi að stríða. Samfélagsleg áhrif, ekkert annað skýrir þessa miklu fjölgun.

Abigal talar um að á leikskóla segja starfsmenn börnum að menn hafi getið sér til um kyn þeirra þegar þau fæðast.

Konur geta ekki notað kvennamál um líðan sína og stöðu, kallaðar transfóbískar. 

Transakvívistar tala ekki fyrir transkonur sem vilja ekki troða meðferðum upp á börn. Lifa í sátt við sig og samfélagið.

Það er lygi að segja að transkona sé kona og við eigum ekki að ljúga segir Abigail.

Af hverju segir leikskólakennari börnum að þau ein viti hvaða kyn þau eru, hvað réttlætir að ungum drengjum sé sagt að þeir séu kannski stúlkur og stelpum að þær gætu verið strákar? Hún talar um málið á 27 mínútu eða svo.

Transaktívistarnir þjálfa kennara og munurinn á boðskapnum er orðinn ansi lítill.

Læknar töluðu ekki um áhættuna af lyfjunum, heldur boðuðu fagnaðarerindi. Þeir sem vildu ræða áhættu lyfjanna voru afboðaðir.

Komið krökkunum ykkar út úr skólum þar sem fjöldi barna segist trans.

Einn úr salnum sagðist þreyttur á að vera áhorfandi og spyr hver og hvers vegna.

Tilraunir á börnum hafa ekki staðið yfir nógu lengi til að sjá staðreyndir.

Af hverju eru þetta bara ungar stúlkur með önnur andleg vandamál en ekki konur á þrítugs- fertugs og fimmtugsaldrinum. Abigail bendir á það sem hluti af svarinu við spurningu áhorfenda.

Góður fyrirlestur þar sem hér stendur kemur fyrir.


Transakvítvistar hefðu drepið hana,

en öryggisverðir komu henni til hjálpar. Tjáningarfrelsið er dýru verði keypt. Lögreglan lét ekki sjá sig. Þessir transakvívistar er skríll. Hef engin önnur orð yfir það sem kom fyrir hana. Konur mega ekki tala um réttindi sín. Konur mega ekki tala um það sjálfsagða að kona er kona og karl er karl.

Ég hef hvergi séð Kvennréttindafélag Íslands, sem segist berjast fyrir allar konur, tala um málið. Kvennaréttindafélagið er rangnefni, það styður ekki konur sem vilja verja réttindi sín gagnvart körlum sem skilgreina sig sem konur. Hvorki gagnkyn- eða samkynhneigðar. Kynjafræðingar hafa yfirtekið Kvennréttindafélagið og að mínu mati bera slíkir fræðingar almennt ekki hag og réttindi allra kvenna fyrir brjósti.

Almenningur og stjórnvöld í hverju landi verða að grípa í taumana. Konur eiga rétt á að tjá sig um réttindi sín og málefni án þess að transakvívarskríll ráðist á þær.

Hlustið.

 

 

 

 

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband