12.10.2022 | 17:14
Andrés Ingi og bullorðin
í þágu transhópsins sem telur 0.05 % þjóðarinnar. Hann vill mismuna fólki með gjaldfrjálsu vegabréfi. Stenst það lög? Andrés Ingi býr til bullorð sem hann vill að Alþingi samþykki. Vissi ég ekki betur héldi ég að hann væri á síðasta ári leikskóla eða upphafi grunnskólagöngu og verkefnið væri að búa til bullorð. En því miður kæra þjóð, þetta er þingmaður. Bullorðin er kvár og stálp. Svo bætir hann um betur og vill taka góð og falleg orð úr tungumálinu amma og afi. Leggur til að tala um foreldri foreldris- hann á sér ekki viðreisnar von þessi maður. Hvílík tillaga. Ég kalla aðra þingmenn til ábyrgðar, látið þingmanninn ekki einu sinni komast í ræðustól með þetta bull.
Er nokkur undra að umrætt bakslag sé komið í baráttu trans fólks. Margt minnir á forréttindahóp. Það veður uppi, vill stjórna og ráða hvernig aðrir haga tungumáli sínu. Breyta á tungumálinu til að þóknast 0.05% landsmanna. Málefni trans fólks má ekki ræða. Allir eiga að vera sammála. Segja já og amen við kvenréttindahópum og öfgahópum sem hafa tekið málefnið undir sinn verndarvæg. Skynsöm umræða- nei takk segja þessir einstaklingar.
Fullt af fólki er komið með upp í kok af frekjunni og sýndarmennsku þingmanna eins og Andrésar Inga. Ég ætla nú ekki að tala um forsætisráðherrann þegar hann byrjar á kynjaræðunni til að þóknast kvennahópum, öfgahópum og Samtökum 78.
Í Danmörku eru til samtök, Dansk regnbueråd, sem vilja spyrna við fótum gagnvart transumræðunni sem er á villigötum og lyfjagjöfum barna. Því miður hafa Danir ekki bannað lyfjagjafir en vonandi þegar þingmenn þar sjá skemmdirnar sem verða á börnum við lyfjagjafirnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.10.2022 | 07:48
Fræðari Samtaka 78 er með
samkynhneigð fótboltamanna á heilanum. Hann virðist ekki una að fótboltamenn stígi ekki fram til að segja frá kynhneigð sinni. Hvern andskotanum kemur honum það við og þjóðinni í heild. Mega menn ekki hafa sína kynhneigð í friði. Játa fúslega, er komin með upp í kok af Samtökum 78, kvennahreyfingu og öfga hópnum þegar kemur að samkynhneigðum og hinsegin fólki. Þau haga sér eins og 40% þjóðarinnar lifi þannig, ekki gagnkynhneigðir. Efa ekki að fleiri séu sama sinnis. Svo tala samtökin um fólk eins og dýr, í hvorukyni- Öll velkomin. Hér ræður örlítill minnihluti yfir hvernig talað er við fólk, karlmenn og kvenmenn. Kann þessu illa.
Framkvæmdastjórinn gerði lítið úr sér þegar hann lagði inn kæru gegn sálfræðingi, hatursorðræða. Úfff...segi ég nú bara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.10.2022 | 20:53
Borin von að ASÍ nái sér
eftir útgöngu félaganna þriggja. Spurning hvort félögin myndi bandalag og láti ASÍ róa. Eða þau félög sem eru eftir myndi annað bandalag, mun minna í sniðum. Gæti hugsanlega gerst.
Áhugavert að hlusta á Kastljós, þar sem Vilhjálmur ræddi málið. Auðvitað eiga stéttarfélög að ræða markmið, leiðir og stefnu, ekki manneskjur. Menn fara misvel með vald. Ekki öllum gefið að nýta það til góðra verka.
Framhaldið verður áhugavert.
![]() |
ASÍ standi ekki undir sér án Eflingar og VR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.10.2022 | 08:44
Kúgun er það leiðin,
maður spyr sig. Mig grunar að þetta fólk hafi lítið innsýn í hve íþyngjandi það er hverju samfélagi að fá inn fleiri hælisleitendur, flóttamenn og fjárhagsflóttamenn en landið getur tekið á móti. Ljóst að hér leika tilfinningar lausum hala ekki raunsæi. Að sjálfsögðu getur flugfélagið ekkert gert í málinu. Ríkisvaldið tekur ákvörðun samkvæmt lögum og reglum sem við höfum í samfélaginu, ekki tilfinningum. Þannig á ákvörðun að liggja fyrir.
Hvað vilja aðstandendur hátíðarinnar taka á móti mörgum flóttamönnum, hver á að hljóta náð fyrir augum laganna. Hver á að standa straum af kostnaðnum og hvar á fólkið að búa. Á að leggja meira á grunnskólakennara en nú er. Mörg börn fylgja sem þurfa skólagöngu. Hver borgar aðstoðina sem börnin þurfa. Hingað til er það að mestu álag á kennara sem nú þegar starfa í skólakerfinu. Börnin fá í mörgum skólum ekki þá þjónustu sem við ættum að veita. Sveitarfélögin eru rekin með tapi, mörg hver ef ekki öll. Menn prenta ekki peninga, vegna tilfinninga aðstandenda hátíðarinnar. Hvað þá tilfinninga stjórnmálamanna.
Kjánalegur gjörningur.
![]() |
Hvetja listafólk til að spila ekki á Airwaves |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2022 | 15:49
Framhaldsskólakennari telur læknavísindin ljúga
um aukaverkanir og afleiðingar hormónabælandi lyfja sem börnum er gefið.
Ástæða lyginnar, dulin áróður gegn trans fólki. Lægra getur maður ekki lagst held ég.
Snorri í Bertel var kærður fyrir hvað!
Eftir að hafa sett inn myndband þar sem rætt var við barnalækni og sálfræðing (sem er trans) um lyfjanotkun barna og afleiðingar á Kennaraspjallið kom athugasemdin frá framhaldsskólakennaranum. Áhugavert í alla staði.
Fleiri kjánalegar athugasemdir komu frá kennurum. Kennarastéttin er ekki tilbúin í víðtæka umræðu um málefni trans barna. Ef málflutningurinn er ekki einhliða fer engin umræða fram. Hvað fólk gerir eftir 18 ára aldur er alfarið á þeirra ábyrgð. Börnin eigum við að vernda gegn inngripum, lyfjum og skurðaðgerðum. Hins vegar á að tryggja þeim sálfræðimeðferð, rétt eins og öðrum börnum sem eru í vanda.
Hjartanlega sammála dóttur minni sem er doktor í barna- og unglingasálfræði. ,,Sálfræðimeðferð á auðvitað að vera hluti af þeirri þjónustu sem þessi börn fá. Til þess að tryggja að þau skilji ferlið, skilji að þetta sé endanleg ákvörðun og að þessi ákvörðun sé vel ígrundað og þau fái leiðsögn. En sálfræðimeðferð á aldrei að vera með því markmiði að hindra aðgengi að ferlinu eða til þess að fá þau til að skipta um skoðun."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.10.2022 | 11:51
Hvað er nauðgunarmenning?
Fátt um svör þegar stórt er spurt. Sálfræðingur hefur lagt inn fyrirspurn til Skólastjórafélagsins og skólastjóra sem notaði orðið nauðgunarmenning. Verður fróðlegt að heyra hvað átt er við. Um samfélagið hefur þetta orð bergmálað. Gerði það líka þegar landsliðið okkar í fótbolta karla var ásakað.
Falskar ásakanir er böl, jafn mikið böl og kynferðisleg árteiti og nauðgun. Bregðast skólar ein við gerendum í þeim málum og hinum.
Arnar skrifar á snjáldursíðuna sína:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2022 | 08:41
Jordan Pedersen og þessir sérfræðingar,
annar transkona, eru sammála þegar börn eru annars vegar. Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands (KÍ) misnotaði aðstöðu sína þegar nefndin gagnrýndi að finna mætti kennara sem eru sammála Jordan í málefnum transbarna. Gefið börnum ekki hormónabælandi lyf og notið ekki skurðaðgerðir á börn. Leyfið börnum að vera börnum. Þessu virðist Jafnréttisnefnd KÍ ekki vera sammála miðað við þá yfirlýsingu sem hún sendi frá sér.
Auðvitað á að aðstoða börn með sálfræðihjálp sem upplifa að þau séu annað kyn en þau fæddust. Gefa þeim góðan tíma til að ræða við sálfræðing.
Almenningur þarf að kynna sér allar hliðar transumræðunnar og hvað er að gerast víða um heim. Við erum ávallt eitthvað á eftir. Svíar, Bretar og Finnar hafa nú stoppað meðferðir á börnum, guð sé lof. Ekki fást tölur hér á landi hvort einhvert barn sé í slíkri meðferð eður ei. Vona svo sannarlega ekki.
Áhugavert viðtal (krækja undir orðunum) við barnalækninn Dr. Julia Mason og sálfræðinginn Dr. Erica Andersonsem sem er transkona. Rætt um lyfjagjafir barna í því skyni að stoppa kynþroskann. Afleiðingar skelfilegar. Góð fræðsla fyrir þá sem vilja fræðast um hættuna við lyfin, og aukaverkanirnar, sem notuð eru til að bæla kynþroska barna sem telja sig trans. Um tilraunastarfssemi er að ræða segja margir sérfræðingar.
Hér á landi hefur t.d. Arnar Sverrisson talað um sömu þætti við litla gleði Samtaka 78 og annarra öfgahópa á svið transmálefna.
Að mínu mati ætti þetta að vera skylduáhorf fyrir kennara og aðra sem vinna með börnum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2022 | 17:17
Undirskriftasöfnun
sem andmælir lögum um kynrænt sjálfræði. Stjórnmálamenn stukku á transvagninn án skynsamlegrar umræðu. Mátti ekki móðga fáa en fjöldanum fórnað. Séu menn sammála að skoða þurfi málið mun betur en misvitrir stjórnmálamenn gerðu geta þeir lagt málstaðnum lið og skrifað undir.
Hér má finna undirskrifarlistann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2022 | 09:24
Svíkur kjósendur ef hann víkur
og sama með Brynjólf. Margir kjósendur á Akureyri kusu Flokk fólksins af því Jón var á listanum, ekki endilega kvennanna vegna. Inga eða stjórn Flokk fólksins hefur enga rétt til að skipa Jóni og Brynjólfi að skila umboði fólksins til sín þannig að hún geti ráðstafað úrslitunum.
Klárið þetta tímabil, klippið á Fólk fólksins og vinnið að þeim hagsmunum sem kemur Akureyri best. Mitt ráð, hættið að tala um málið í fjölmiðlum, við Flokk fólksins, kærið málið og haldið áfram að vinna í bæjarmálunum.
![]() |
Reiðubúinn að víkja að ákveðnu skilyrði uppfylltu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2022 | 17:00
Framkvæmdastjóri Samtaka 78 fer með rangt mál
og ekki í fyrsta sinn. Málsókn hans og annarra öfgamanna gegn Arnari sýna það. Töpuðu réttilega málinu. Í grein á Visi ræðst formaður Samtaka 78 að Eldi Deville sem veitti Mannlífi viðtal um transbörn. Formaður Samtaka 78 slær sér á brjóst og fer með rangt með segir Eldur og hrekur staðhæfingar hans hér.
,,Það er magnað að sjá framkvæmdarstjóra Samtakanna 78 fara með rangfærslur um viðtal Mannlífs við mig. Ég hef ALDREI nokkurn tímann sagt eða haldið því fram að ég hafi unnið með transfólki sem einhver fagaðili. Það er alrangt. Ég gef svona gaslýsingum afar lítin gaum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)