Dragdrottingar í grunnskóla- viðbjóður

segi ég. Mér þykja dragdrottningar frekar viðbjóðslegur gjörningur og fer aldrei á slíkar sýningar. Í Usa má sjá á myndbandinu hér móður mótmæla í grunnskóla í USA. Kennari og stjórnendur fengu dragdrottningu til að brjóta niður kynjamyndir í skóla. Stofnun sem framkvæmir kynskiptiaðferðir og hommabar borguðu herlegheitin. 

Danska regnbogaráðið segir þetta líka gerast í dönskum grunnskólum. Það spyr, hvernig á dragdrottning að brjóta niður staðalímyndin kynjanna? Hvaða lærdóm eiga börn að draga af slíkri sýningunni. 

Grunnskólar á Íslandi hafa ekki, að mér vitandi, gengið svona langt í öfgunum. Grunnskólakennarar eru vonandi gagnrýnni en svo að þessi óskapnaður verði tekinn í grunnskólakennslu.


Bloggfærslur 16. október 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband