Framkvæmdastjóri Samtaka 78 fer með rangt mál

og ekki í fyrsta sinn. Málsókn hans og annarra öfgamanna gegn Arnari sýna það. Töpuðu réttilega málinu. Í grein á Visi ræðst formaður Samtaka 78 að Eldi Deville sem veitti Mannlífi viðtal um transbörn. Formaður Samtaka 78 slær sér á brjóst og fer með rangt með segir Eldur og hrekur staðhæfingar hans hér. 

,,Það er magnað að sjá framkvæmdarstjóra Samtakanna 78 fara með rangfærslur um viðtal Mannlífs við mig. Ég hef ALDREI nokkurn tímann sagt eða haldið því fram að ég hafi unnið með transfólki sem einhver fagaðili. Það er alrangt. Ég gef svona gaslýsingum afar lítin gaum.

En hérna ætla Samtökin 78 sér að eigna sér skilgreiningarvaldið á því sem telst hatursorðræða og "upplýsingaóreiða" þegar kemur að málefnum samkynhneigðra (LGB) annars vegar og hinsegin fólks (TQ+) hinsvegar.
Eins og ég sagði í viðtalinu þá er ég ALLTAF reiðubúinn í að mæta þessu fólki í umræðum. Hvenær sem er. En svar þeirra við því er að banna mig í spjallhópum, skella á mig, hringja í fólk og skamma það fyrir að læka færslur okkar hjá Samtökunum 22 og hjá mér persónulega, blokka mig, útiloka mig, slaufa mig, vegna þess að ég er "wrong kind of gay". Hin nýja stofnanavædda woke homófóbía er ekkert skárri en þessi gamla. Hún er svæsnari og lævísari.
Þess vegna er það einmitt ég sem fronta þessa hreyfingu. Það er vegna þess að ég er ekki á Íslandi. Það er ekki hægt að klaga mig til vinnuveitanda, og það er ekki hægt að taka neitt frá mér.
Ég er einnig hamingjusamlega giftur og lífið mitt er á fínu róli.
Það er vandamálið þeirra.
Ég er ALLTAF til í samræður.
Þetta samfélag okkar, sem erum samkynhneigð og/eða hinsegin, er ekki nein súkkulaðikleina í stóra samhenginu. Okkar samfélag á ekki að geta sífellt komið sér undan gagnrýni, og réttmæt gagnrýni á fyllilega rétt af sér. Þeir sem forðast réttmæta gagnrýni og geta ekki átt opin samskipti á báða vegu, vita það að þau hafa ekki góðan málstað að verja.
Samkynhneigðir gerðu börn ALDREI að miðdepli sinnar frelsisbaráttu. Það tók hreyfinguna mjög langan tíma að losna við óæskilega aðila úr PIE og NAMBLA . Þeir eru mættir aftur. Og einmitt þar sem miðdepill hreyfingarinnar er núna. "Transbörn." Það sást síðast við afhjúpanir á Mermaids í Bretlandi í fyrradag. Og ÉG er inn í þessu netverki sem rannsakar þetta og hef skoðað í 7 ár! Og við erum hvergi nálægt því hætt.
"NO DEBATE" IS OVER- "Engar umræður" tímabilinu er lokið."
 
Ég er ósammála framkvæmdastjórn Samtak 78 að samfélagið sé á sömu línu og þeir. Auðvitað eiga allir að lifa í friði og enginn ætti að upplifa einelti. Þessi ágæti framkvæmdastjóri ætti að líta í spegill, það sem hann sjálfur hefur sagt um fólk getur varla talið eðlilegt. Löngu tímabært að stoppa öfgaumræðuna af hálfu þessa fólks. Látið börn í friði, kuklið ekki í þau og gefið þeim ekki hormónabælandi lyf. Enga tilraunstarfssemi á börnum. Koma á vel fram við alla. Mér kemur kynhneigð manna ekki við og hvað þá að mér komi við hvað menn skilgreina sig. 
 
Viðtal við framkvæmdastjóra Samtak 78 er hér, reyndar fær þetta fólk alltof mikið pláss í umræðunni því við erum að tala um svo lítinn hluta landsmanna. Það ríkir engin upplýsingaóreiða varðandi transmálefnin því það kemst enginn að nema Samtök 78 og fleiri öfgamenn. En það vilja þeir, þöggun af hálfu skynsemisfólks sem vill vernda börnin.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband