Ósamþykktar íbúðir rándýrar

Á fasteignavefnum má finna nokkrar ósamþykktar íbúðir, rándýrar. Þar má nefna listastofu og bílskúr sem dæmi. Fólk hefur innréttað þau rými sem íbúð og nú á að græða. Að sjálfsögðu fær fasteignasalinn sinn skerf, gleymum því ekki. Þessar litlu og ósamþykktu íbúðir seljast á tugi milljóna króna. Vonandi gefið upp, hjá öllum fasteignasölum, að íbúðin sé ekki samþykkt sem slík, annars getur kaupandi lent í verulegu basli. Venjulega bera fasteignasalar enga ábyrgð eftir á. 

,,Þær íbúðir sem uppfylla ekki skilyrði sem sett eru fram í lögum og reglugerðum samkvæmt mati byggingafulltrúa eru skilgreindar sem ósamþykktar."

Sumar lánastofnanir lána ekki þegar ósamþykkt íbúð er keypt. Menn þurfa að kynna sér það áður en farið er út í kaup á húsnæðinu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband