Jafnréttiskennsla félagsmiðstöðva í grunnskóla tekur mið af femínista

Fyrir augu mín bar bæklingur frá Félagsmiðstöðvum á Akureyri. Jafnréttisfræðsla nemenda er á forsendum femínisma. Mér þykir þetta miður. Sú kvenfrelsun sem felst í fræðslunni á ekki heima í grunnskólanum. Þar er rætt um jafnrétti, milli kynja. Grunnskólakennarar leysa þá fræðslu vel af hendi.

Í bæklingi fræðslumiðstöðva á Akureyri segir um Jafnréttisfræðsluna:

,,Fyrirlestur um femínisma og jafnrétti. Hvað þýðir hugtakið femínismi, jafnrétti og hver eru helstu baráttumál femínista. Stiklað á stóru um jafnrétti kynjanna."

Stígamót og önnur álíka samtök eiga auðvelt með að koma áróðri sínum inn í grunnskólann í gegnum félagsmiðstöðvarnar. Synd að sjá það. Enginn skólastjórnandi virðist mótmæla, hvað þá kennarar. Sjúk ást sem fjallar eingöngu um brot drengja, eins og stúlkur séu ávallt saklausar, er sýnd í grunnskólanum samkvæmt bæklingi félagsmiðstöðva á Akureyri. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband