Heilbrigðisyfirvöld í Noregi herða tökin

Cass skýrslan hefur vakið menn til umhugsunar. Reyndar ekki Ölmu Möller landlækni en það er önnur saga. Í Noregi segjast yfirvöld heilbrigðismála ætla að herða tökin hvað varðar órannsakaðar meðferðir á börnum. Notkun hormóna og krosshormóna á börn.

Í blaðinu segir:

-Heilbrigðisyfirvöld eru sammála um að slíkar meðferðir falli undir skilgreininguna ,,tilraunameðferð". Þetta kom fram á fundi norska landlæknisembættisins og svæðisbundinna heilbrigðisyfirvalda á Radisson Blue í Gardermoen í gær.

-Fjögur heilsuumdæmi hafa ákveðið að þetta sé tilraunameðferð. Við styðjum það, segir Bjørn Guldvog forstjóri Embættis landlæknis eftir fundinn.

-Næsta skref er að finna fyrirmynd að þessu. Háskólasjúkrahúsinu í Osló var falið þetta verkefni. Þegar við sjáum hvernig það virkar munum við gera breytingar á stefnu okkar.“

Þessu ber að fagna. Norskir snjáldurvinir hafa fjallað um blaðagreinina. Þeir undra sig á að FRI (systursamtök trans Samtakanna 78) skuli enn berja hausnum við steininn og krefjast tilrauna á börnum. Og það þrátt fyrir allar skýrslur og rannsóknir um skaðsemi lyfjanna. Hvern vernda þeir, sjálfa sig? Er hugmyndafræðin mikilvægari en líf og lífsgæði barna? Ljóst að börnin eru ekki í forgangi hjá samtökunum. Ekki það trans Samtökin 78 virðast á sömu línu. Í það minnsta á tjáningarfrelsið ekki að blómstra fái þau að ráða.

Því er spáð að innan fárra ára mun enginn kannast við að hafa talað fyrir tilraunameðferðum á börnum sem líður illa í eigin skinni. Hvað þá að hafa notað þær. Menn munu benda hvor á annan og að lokum munu foreldrar barnanna sitja í súpunni.

 


Bloggfærslur 28. apríl 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband