Foreldrar ganga af göflunum

og gefa börnum sínum alltof dýrar gjafir í skóinn. Upphaflega var þetta hugsað sem eitthvað smáræði enda getur fólk með mörg börn ekki mokað í þau. Mandarína, tvær karamellur, brjóstsykur, sleikipinni, lítil púsluspil, sokkar og annað sem barni vantar var notað til að gefa í skóinn. 

Hafi þessi kona eitthvað af þeim foreldrum sem fyrirmynd sem gefa tölvuleik, dýrt spil, bíómiða og slíkar dýrar gjafir er ég ekki hissa að hún vilji ekki hoppa á vagninn. Alltof margir íslenskir foreldrar fara fram úr sér í þessum saklausa sið sem hefur viðgengist í áratugi. En í hófi.

Með slíku óhófi verða börnin frek og tilætlunarsöm. Foreldrar gera börn sín þannig með vitleysunni.


mbl.is Ógerningur að gefa börnum 39 gjafir fyrir jól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. desember 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband