Finnar borgar sínum kennurum góð laun

Sjálfmyndatökur sem dæmi og hrifning annarra af myndinni er það sem fer með stúlkur, til lengri tíma litið. Hversu mörg ,,like" virðist lífið ganga út. Frekar hjá stúlkum en drengjum. Sjálfsdýrkun og fyrirmyndir oft vafasamar. Foreldrar geta gripið í tauminn og fækkað stundum sem þær eru á netinu. Fjarlægja ber síma úr skólum þar sem tækin er góð og skólinn útvegar tólin til að sinna kennslu með rafrænum kennslustundum. Margt hægt er að gera en fæstum hugnast að taka slaginn við unga fólkið. Við skulum ekki minnast á samverustundir foreldra og barna. Ábótavant í íslensku samfélagi.

Vinnuumhverfi grunnskólakennara er víða ábótavant. Þeir eru undirmannaðir í stórum bekkjum. Útlenskum börnum fjölgar og sveitarfélögun sinna komu þeirra ekki nóg. Alltof oft er það sett á herðar umsjónarkennara og sérgreinakennara að finna út hvernig kennslu útlenskra barna sé háttað. Mörg sveitarfélög eru með allt niðrum sig þegar horft er til menntun útlenskra barna.

Launin, þarf nokkuð að ræða það oftar. Allir vita að launakjör kennara eru ekki í samræmi við menntun, álag, ábyrgð og störf. Lilja er eins og köttur, fer í kringum heitan grautinn þegar kemur að launaumræðunni. Hún þorir ekki að segja hlutina eins og þeir eru þegar kemur að stéttinni, launin eru of lág. Finnar hafa hlúð að kennurum með fjölgun grunnskólakennara og góðum launum. Við föllum í þá gryfju að bæta við stuðningsfulltrúum, og ég set ekki út á þá, sem hafa ekki sömu ábyrgð með undirbúning og úrvinnslu kennslustunda. Í stað þess að hafa 3 kennara í 54 barna hópi freistast sveitarfélögin til að ráð 2 grunnskólakennara og einn stuðningsfulltrúi. Álagið er því á tveimur grunnskólakennurum í stað þriggja.


mbl.is Kennarar bera kerfið uppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennarar leggja sig fram

,,Flest­ir nem­end­ur telja að kenn­ur­um sé annt um sig eða um 81% nem­enda í 6. bekk og 65% í 10. bekk sem er já­kvæð niðurstaða og rím­ar vel við al­menna vellíðan nem­enda í skól­um lands­ins. Lang­flest­ir treysta kenn­ara sín­um vel og virðist það eiga við nem­end­ur í öll­um lands­hlut­um."

Kemur ekki á óvart. Ekkert launungarmál að kennarar, almennt, leggja sig fram um að koma á móts við þarfir og óskir nemenda. 


mbl.is Mikið traust nemenda til kennara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband