7.8.2019 | 15:39
Slæm niðurstaða
Dómurinn er slæmur. Hann mun veita vinnuveitendum á almennum markiði gífurlegt vald til að segja upp fólki án þess að rökstyðja það til hlítar eða koma með sannanir. Dómarinn taldi orð rektors og mannauðsstjóra næg fyrir brottrekstri, en þau lögðu ekki fram neinar kvartanir nemenda eða kennara. Ummælin sem Kristinn lét falla eru í mesta lagi áminning í starfi. Vona sannarlega að Landsréttur snúi þessum dómi við, vinnandi fólki til heilla.
Þegar málaflokkurinn er skoðaður í heild sinni er ekki laust við að maður spyrji hvað ef konur í svipaðri stöðu og Kristinn verði lögsóttar. Í þessum skjölum er margt ljótt að finna. https://forrettindafeminismi.com/2018/05/22/feministaskjolin/
Hef ekki lesið dóminn en mun gera það þegar hann birtist á netinu.
Kristinn mun áfrýja til Landsréttar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.8.2019 | 10:42
Leita sér aðstoðar
Merkilegt ,,Bæjarráð Fjarðabyggðar fór þá út fyrir sitt valdsvið og gaf listamanninum Kevin Sudeith sérstakt leyfi fyrir verknaðinum, sem braut í bága við náttúruverndarlög." Þekkja bæjarráðsmenn ekki náttúruverndarlögin? Hefðu átt að leita aðstoðar sérfróðra manna áður en þeir leyfa skemmdir á náttúru landsins.
Ekki ráðlegt að afmá áletranir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)