Vantaði flokksbróður verkefni

Þeir eru samir við sig stjórnmálamennirnir. Hélt sannast sagna að þeir yngri væru ekki ofan í sömu hjólförum og þeir gömlu. Ásmundir sýnir það og sannar að ég hef rangt fyrir mér. Reyndar gerði Katrín Jakobsdóttir það sama þegar hún réð Höllu Gunnarsdóttur. Er nokkur furða að menn þreytist á stjórnmálamönnum sem leyfa sér allt...eða nær því allt.


mbl.is Jóni falin yfirumsjón með aðgerðum gegn félagslegum undirboðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegar en orð fá lýst

Skelfilegt að lesa að eldurinn sé af barnavöldum. Sennilega hefur þetta farið úr böndunum hjá piltunum. Verður þeim og foreldrunum dýr skemmtun svo ekki sé meira sagt. Gott dæmi til að nota þegar útskýra á fyrir börnum hvaða afleiðingar fikt með eld geta orðið.  


mbl.is Þrír piltar játuðu aðild að íkveikju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. maí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband