5.11.2022 | 09:32
Meira um þetta en menn halda
og þörf umræða. Síma á að banna í grunnskólum landsins, ekki flókið hjá mér. Verra þegar framhaldsskólanemendur svívirða kennara sinn með stafrænu ofbeldi. Taka upp myndskeið eða hljóðbút og setja á netið. Taka kennslu úr samhengi. Ásaka kennara um eitthvað sem á ekki við rök að styðjast. Margir sögur framhaldsskólakennara eru ófagrar. Sama í reynd með eldri stig grunnskólans.
![]() |
Kennarar rægðir á lokuðum síðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2022 | 16:28
KÍ þingi lauk
og segja má að það hafi verið friðsælt. Til mín komu kennarar, bæði í veislunni í gærkvöldi og þinginu sjálfu til að þakka mér fyrir orð mín gagnvart kynjaorðræðunni sem allir vilja vera meðvirkir með. Formaður KÍ varð sér til skammar þar og lýsti þröngsýni innan sambandsins í málefnum kynjaköltsins. Túlka orð hans þannig.
Kennarar sem ræddu við mig sögðust ekki hafa kjark til að ræða þessi mál eftir að Magnús formaður KÍ kom í pontu því hann gaf berlega í ljós hvaða skoðun hann vildi sem formaður. Menn geta varla túlkað það öðruvísi en að víðsýni og ólíkar skoðanir verða ekki liðnar. Sama með hjarðhegðun sem margir kennarar sýna. Synd og skömm að mínu mati. Enda er staðreyndin sú, engin málefnaleg umræða getur farið fram um málaflokkinn á meðan kennarar haga sér svona.
Alls konar ályktanir samþykktar. Koma þarf þeim ýmist á framfæri eða inn til nefnda til að vinna úr.
Heita kartaflan í stéttinni eru þeir kennarar sem eru ranglega sakaðir um kynferðislega áreitni eða snertingu. KÍ hefur látið eins og þetta fólk sé ekki til. Kennarar látnir víkja úr störfum sínum, sendir heim. Þar mega þeir koðna ofan í klofið á sér án afskipta sambandsins, þannig hefur það verið. Hef ekki trú á að formaður KÍ lyfti neinu Grettistaki í þeim efnum. Eins og ég sagði í fyrri færslu hefur álit mitt á honum snarminnkað.
Margt áhugavert sem kemur fram á svona þingi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2022 | 21:34
Formaður KÍ harmar að
félagsmenn hafi aðra skoðun á kynlausu orðunum sem margir vilja taka inn í tungumálið. Hann þóttist í upphafi KÍ þings, sem ég sit, opinn fyrir umræðum og skoðanaskiptum innan samtakana. Allir ættu rétt á að tjá skoðun sína. Síðar kom í ljós, í dag, þegar ég mótmælti ályktun Jafnréttisnefndar um kynlausa umræðu og orðanotkun innan KÍ að hann er ekki eins viljugur að menn segi skoðun sína. Kom í pontu sem formaður og tjáði þingheimi það. Sagðist harma að ég hafi þessa skoðun og það sem ég sagði, hvað þá að segja hana upphátt. Formaður KÍ féll í áliti hjá mér. Álit mitt á honum er komið þangað sem geyma á bíla, í kjallarann. Lít manninn ekki sömu augum. Kjaftaskur!
Kennarastéttin sýnir hjarðhegðun. Sá það enn og aftur á þinginu sem stendur yfir. Á morgun lýkur því. Spjallaði við konu sem á barnabarn sem er trans-barn. Amman var ekki fróðari en svo að hún telur áhrif hormónalyfja afturkræf ef börn hætta við. Benti henni á að ég hafi heyrt viðtal við lækna, séð þætti þar sem rætt er við lækna og þeir á sömu skoðun, áhrifin ekki afturkræf. Miklar aukaverkanir. Hún sagði þetta lygi. Sagði við umrædda ömmu að ég gæti ekki rætt við hana ef hún tryði ekki læknavísindunum. Hún hefur þá trú að barnabarnið sé trans- vissulega, hef ekkert á móti því. Auðvitað er eitt og eitt sem upplifir það. Meirihlutinn snýr aftur að upprunalegu kyni. Staðfesti enn trú mína að margir ákveða að sýna hjarðhegðun án þess að kynna sér málaflokkinn að nokkru viti.
Bloggar | Breytt 6.11.2022 kl. 17:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2022 | 09:09
Ættu að byrja hjá sér
og fækka fulltrúum. Gæluverkefni stjórnmálaflokka er augljóst, fjölga fulltrúum í Rvk er merkilegur gjörningur í samhengi við fjárstöðu borgarinnar.
Eins og venja er, og skiptir engu hvaða stjórnmálaafl er við völd, hugsa þeir um sig fyrst og fremst.
Eins og lög gera ráð fyrir þá verða leik- og grunnskólar verst út úr þessu.
![]() |
Tryggja að ekki verði ofgnótt af starfsfólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2022 | 08:18
Icelandair klúðrar flugi frá Akureyri
svo um munar. Við erum nokkur á leið suður, þing Kennarasambands Íslands. Ég ásamt öðrum fengum skilaboð, ,, Okkur þykir leitt að tilkynna þér að Icelandair fluginu þínu FI31 með bókunarnúmerið 42GPO4 hefur verið aflýst, og við höfum fært þig á annað flug. Upplýsingar um nýja flugið þitt eru hér..." Gott og vel. Samt komust þrír af þeim fulltrúum, sem ég þekki, með og áttu flug á sama tíma. Það fór flugvél á settum tíma. Sem sagt Icelandair lýgur að mér til að færa mig um flug síðar á deginum.
Deginum ljósara, fluginu var ekki aflýst. Það fengu bara sumir að fara með aðrir ekki. Falleinkunn til flugfélagsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2022 | 15:51
Er það ekki einboðið,
gæti komið illa við ráðherra fjármála. Þegar formannsslagur er hafinn þá er best að passa hvað fer út í samfélagið. Neikvæð umfjöllun gæti haft áhrif á úrslitin. Landsþingsfulltrúar fylgjast með.
![]() |
Skýrslan ekki væntanleg fyrir landsfundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2022 | 12:34
Bjarni fullur af hroka
og sjálfselsku. Hlustaði á hann í morgun, á Sprengisandi. Veldur ógleði þessi sjálfánægja og hroki sem hann sýnir þjóðinni hvað eftir annað. Vona að annað hljóð sé í strokknum hjá Guðlaugi og hann sigri Bjarna, gefi hann kost á sér. Ekki vitað þegar þetta er skrifað.
Bjarni sagðist hverfa af sviði stjórnmála ef hann tapi kosningu, farið hefur fé betra.
![]() |
Bjartsýnn á góðan árangur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2022 | 09:19
Kennurum ekki treystandi
las ég í góðri grein. Skólaþræðir birtu hana hér. Í greininni má m.a. lesa ,,Flokkur fólksins telur sig vita betur en kennarastéttin hvernig best sé að kenna börnum að lesa (Birna Dröfn Jónasdóttir, 2022). Lilja Alfreðsdóttir þáverandi menntamálaráðherra skipaði starfshóp um bætta kynfræðslu í skólum landsins þar sem kennarastéttin átti tvo fulltrúa af þrettán, grunnskólinn átti engan fulltrúa þrátt fyrir að faghópurinn ætti að fjalla um málefni sem snerta hann beint (Stjórnarráð Íslands, 2020). Í Kópavogsbæ þar sem ég kenni voru kennarar aldrei spurðir hvort þeir vildu taka upp spjaldtölvur í kennslu og í síðustu borgarstjórakosningum þar sem eina umræðan um menntamál voru biðlistar á leikskólum vildi frambjóðandi hefja grunnskólann við fimm ára aldur (Hildur Björnsdóttir, 2022). Hugmyndir þessar eru misgóðar en eiga þó allar sameiginlegt að horft var framhjá fagmennsku kennara og þeim ekki treyst til að taka sjálfir ákvörðun er snertir þeirra starf." Allt satt og rétt. Kennarar ekki hafðir með í ráðum í mikilvægum málefnum skólans.
Starfshópur Lilja Daggar var eftirtektarverður. Af 13 manns voru tveir kennarar þar af annar framhaldsskólakennari og öfgafullur kynjafræðingur. Enginn grunnskólakennari! Tveir karlmenn voru í nefndinni. Afraksturinn eins og við var að búast.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2022 | 11:02
Mamma Internetsins lokkar börn í transheiminn
Að mínu mati er þetta viðbjóðslegur heilaþvottur og börn hafa aðgang að þessu. Óheft. Hvet foreldra til að opna augun. Markaðssetning sem þessi er ekki eðlileg.
Sálgreinirinn Lotte Ingverslev skrifar um þetta á blogginu sínu. Þar segir ,, Jeffrey Marsh (sjá myndskeiðið hér) er TikTok stjarna og transaktívisti. Hann skrifar að auki fyrir Huffington Post, Time Magazine og Oprah.com. Jeffrey Marsh lýsir sjálfum sér sem ,,kynflæðandi aktívista og sem ,, genderqueer.
Á Internetinu eru margir queer- leiðbeinendur fyrir börn og ungmenni eins og Jeffrey Marsh.
Jeffrey Marsh er dæmi um fullorðinn mann, sem kynnir sig sem ,,mamma internetsins fyrir börn á sama tíma og hann segir foreldra ekki skilja börnin, kúgandi og skaðlega.
Þetta er sagan af Rauðhettu og úlfinum- í þversögn. Amman (foreldrarnir) eru þeir slæmu og úlfurinn (queer- leiðbeinandinn Jeffrey Marsh) er hetjan sem bjargar barninu.
Takið eftir aðlaðandi, kelandi, kynleiðandi röddinni sem Jeffrey Marsh notar, yfirdrifna af augliti samkenndar- blanda af móðurlegri umhyggju og kynferðislegri girnd.
Myndskeiðin hans eru mjög vinsæl á TikTok (þú þarft ekki aðgang til að sjá þau).
Ef þú gúgglar ,,Jeffrey Mars TikTok þá birtast myndskeiðin. Sum af þeim hafa 500.000 áhorf. Þú getur líka séð þau á YouTube.
Horfðu á nokkur, þá veistu hvers konar fólki þú hleypir að barni þínu inni á herbergi í gegnum skjáinn.
Tilvitnun lýkur.
Um mig fer hrollur. Hugsið ykkur að börn á grunnskólaaldri hafi aðgang að þessum manni. Óhugnaður. Tælir börn, ef þetta er ekki tæling þá veit ég ekki hvað það er. Foreldrar gagnrýnislausir á svona heilaþvott.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2022 | 07:38
Agaleysi í skólum og föðurímynd
vantar. Þekkt vandamál. Las góða grein eftir Sigurstein, lesið hér.
Sigursteinn hætti að kenna í grunnskóla vegna agaleysi barna. Held að flestir kennarar geti tekið undir það. Því miður þegar taka á agaleysinu bregðast foreldrar illa við. Á margan hátt höfum við pakka börnunum inn í bómull. Þau eiga réttindi samkvæmt öllum mögulegum sáttmálum en skyldur virðast vera fáar ef nokkrar. Í það minnst leggjum við meiri áherslu á réttindin.
,,Árin 2000 til 2002 starfaði hann sem grunnskólakennari en hætti eftir tveggja ára feril, meðal annars vegna þess agaleysis sem honum fannst ríkja í grunnskólum:..."
Samfélagið virðist ekki sammála um að taka á agaleysi barna. Af hverju er mér hulin ráðgáta.
Föðurleysi drengja ber líka á góma. Stórt hlutfall barna býr án föðurs og allir vita að ímyndir kynjanna þurfa að vera til staðar. ,,Sigursteinn segir að eineltisgerendur séu oft drengir sem hafi fáar eða engar karlkynsfyrirmyndir í lífinu. Ekki sé karlmaður á heimilinu og enginn karlkynskennari sem kenni þeim í skólanum. Þessir drengir átta sig ekki á því að sönn karlmennska felst alls ekki í því að nýta sér líkamlega yfirburði gegn öðrum, það er lélegasta tegundin af karlmennsku, það er þessi eitraða karlmennska. En maður á að nota sína styrkleika í lífinu, bara ekki á þennan hátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)