27.10.2022 | 21:52
Þær hljóta þessar útlensku konur
að læra íslensku allar sem ein. Mér hefur þótt skorta töluvert á það hjá of stórum hópi. Kemst upp með að tala ensku. Það þarf að stoppa. Ætli þær að setjast að í landinu ber þeim að læra tungumálið.
Mér þykir þetta dónaleg framkoma. Segir meira um útlensku konurnar en formann Eflingar. Gestgjafar báðu verkalýðsleiðtogann að tala.
![]() |
Þingið í raun gerviviðburður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.10.2022 | 21:53
Varnarbarátta kvenna.
Þetta gengur á samfélagsmiðlum. Sjálf tók ég þetta frá Lindu Hart sem er vinur minn á snjáldursíðunni. Já konur þurfa að berjast fyrir tilverurétti sínum.
Milli Hill Writer

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2022 | 20:18
Argasti dónaskapur
af ríkinu ef þeir ætla sveitarfélaginu að annast flóttafólkið. Skólarnir eru langflesti illa í stakk búnir til að taka á móti mörgum útlenskum börnum.
Auðvitað þarf að vinna svona mál í góðri samvinnu við sveitarfélögin.Flóttamanna- og hælisleitendastefna er í molum. Bæta þarf úr. Horfa þarf til Danmerkur og Svíþjóðar. Þeir lentu í feni og við á góðri leið út úr því. Skil ekki af hverju Íslendingar telja sig alltaf í betri í alþjóðlegum málaflokkun en aðrar Norðurlandaþjóðir. Meiri hrokinn.
![]() |
Ríkið leigir húsnæði án vitneskju sveitarfélaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2022 | 19:09
Kynjafræðingar og tungumálið, skyldi Hanna Katrín skilja þetta allt?
Hanna Katrín er með galið frumvarp í þinginu. Frumvarp um breytingar á hegningarlögum þar sem bælingarmeðferðir (conversion therapy) verða bannaðar er kemur að kynhneigð, kyntjáningu og kynvitund. Kynjafræðingar hafa verið á flugi og fundið nöfn yfir kynhneigðir, sem er hugarástand, ekki líffræðilegt. Hanna Katrín þekkir ábyggilega öll orðin og getur skilgreint þau í frumvarpinu. Almenningur hlýtur að hafa rétt á að vita hvaða orð Hanna Katrín og félagar hafa í hyggju að dæma fólk fyrir. Hefur Alþingi í alvöru ekkert þarfara að gera, maður spyr sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2022 | 08:53
Samtök 78 félagsheimili, kynjafræðingar og transaktívistar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2022 | 20:55
Sími barna, netið og foreldrahlutverkið
Hömrum járnið á meðan það er heitt. Bendum foreldrum á skyldu sína að ala upp barnið sitt, fylgjast með umferð þess í síma og á samfélagsmiðlum. Margir gera það með sóma, aðrir með hangandi hendi og sumir láta það ógert. Setjum ábyrgðina þar sem hún á heima, hjá foreldrum, þegar kemur að óhóflegri notkun síma, tölvunotkun og einelti. Skjánotkun meðal barna er komin út fyrir öll mörk og foreldrar þurfa að leita leiða til að minnka hana. Fleiri samverustundir með barni án síma og tölvu.
Umræðan um samfélagsmiðlana og veru barna á þeim hefur eina ferðina enn vaknað. Miðlarnir auðvelda eineltið, um það deilir enginn. Miðlar sem börn mega ekki vera inn á býður upp á alls konar viðbjóð sem á ekki heima fyrir augum barna. Spjótin standa að veru barna á þessum miðlum sem eru bannaðir. Væri enginn viðtakandi væru ekki skilboð!
Áhugasamir geta haldið áfram að lesa greinina mína hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2022 | 09:10
Hatur kvenna á hvítum miðaldra mönnum
er efni viðtals við Gunnar Sandelin. Gunnar gaf út bók um hatur kvenna á hvíta manninum. Hann undrast ofstækið femínista í garð hvítra manna. Svarti maðurinn fær ekki sömu meðferð. Allt sem aflaga hefur farið er hvíta manninum að kenna. Svo lengi sem hugmyndafræðin stýrir umræðunni er fátt að gera. Menn sitja undir endalausum ásökunum. Konur hafa yfirtekið ýmsa málaflokka sem vísar ekki á gott.
Hér er viðtalið fyrir áhugasama.
Leyfi þessu að standa hér á dönsku ,,For resten er det hvide mænd, der har løftet samfundet frem til det nuværende stade; det er hvide mænd, der har skabt videnskab og de tekniske fremskridt, skabt retsvæsenet, skabt ytringsfriheden, skabt demokratiet (først kun for velhavende mænd; men sidne da for alle). Og det er hvide mænd, der har skabt hele infratrukturen. Uden dem, ingen huse, ingen veje, ingen elektricitet, ingen moderne apparater osv. osv. Stort set alle opfindelser er gjort af hvide mænd. Intet af alt det, som kvinder i dag nyder godt af, regnes dog mændene til gode. Intet af alt det gode, mænd har gjort og skabt, tæller til deres fordel. Den intersektionelle ideologi tilsiger, at den eneste rigtige behandling af hvide mænd er udskamning."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2022 | 09:14
Ósammála Þorsteini Sæberg
formanni Skólastjórafélagsins um síma í grunnskólum. Blaðamaður Fréttablaðsins hafi samband við mig. Vildi ræða um einelti. Benti honum á að skólar eigi fínar eineltisáætlanir til að fara eftir. Samvinna foreldar skiptir þar miklu máli eins og í mörgu öðru þegar kemur að skólabörnum.
Símanotkun er hins vegar ágreiningsmál okkar þorsteins. Að mínu mati á skólinn að banna síma. Börn þurfa ekki, þá sex tíma sem þau eru í skólanum, að nota hann. Skólar eiga tölvur til stafrænnar kennslu. Margir unglingar eru háðir símunum, fíkn. Alltaf að kíkja, fylgjast með og kanna hvort þau hafi fengið ,,like" á færslur. Teitur Guðmundsson læknir segir þetta fíkn sem leiðir til streituástands. Skólar eiga að leggja sitt að mörkum til að koma í veg fyrir það.
Hér má lesa umfjöllunina í Fréttablaðinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2022 | 16:18
Vantar inn í trans umræðuna á Íslandi
Áhugavert viðtal sem ég hlustaði á. Krækja neðst í færslunni. Viðmælandinn er samhljóma með Kåre Fog að langtímarannsóknir vanti á fólki sem hefur farið í gegnum kynskiptiaðgerð. Fylgja þarf fólki eftir í 10-15 ár.
Svona umfjöllun vantar í trans umræðuna hér á landi. Viðmælandinn segir, eins og margir aðrir sem upplifa sig trans, að sálin hafi ekki verið í lagi. Margir sálrænir kvillar herjuðu á hann. Kvillarnir biðu þegar hann vaknaði eftir aðgerðina. Hann sér eftir ferlinu. Mæli með að fólk hlusti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2022 | 10:07
Banna á síma í skólum landsins
Mér finnst ekkert tiltökumál að banna símana. Þeir sem hafna því nota sömu rök og Sigurður ,,Sigurður Sigurðsson, sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna hjá SAFT, segir í samtali við mbl.is að mikilvægt sé að kenna börnum að nota netið, líkt og um umferðarreglur sé að ræða, og að þau séu óhrædd að tilkynna neteinelti sem þau verða fyrir." HVER Á AÐ KENNA ÞAÐ? HVER Á AÐ FYLGJA ÞVÍ EFTIR AÐ ÞAU FARA EFTIR REGLUNUM? ÞARF EKKI AÐ SAMRÆMA KENNSLUNA MILLI HEIMILIS OG SKÓLA. þÝÐIR LÍTIÐ AÐ SKÓLINN SEGIR FRÁ HÆTTUM Á TIK TOK OG SVO LEYFA FORELDRAR BÖRNUM SÍNUM AÐ VERA Á MIÐLINUM.
Grunnskólakennarar hafa nóg annað að gera en fylgja því eftir hvort börn fari eftir settum reglum á netinu. Skólarnir eru flestir tölvum búnir til að sinna starfrænni kennslu. Þarf ekki símana. Líf barnanna myndi auðveldast til muna sé síminn fjarlægður úr skólanum. Þau eru, mörg hver, háð tækinu og stelast til að nota það. Þau fara á klósettið til að senda skilboð, skoða samfélagsmiða. Þau freistast til að kíkja í tímum o.s.frv. Myndi auðvelda þeim lífið til muna að banna síma í skólanum. Nóg er hægt að gera í frímínútum og hádegishléinu, þurfa ekki símann.
Held að skólayfirvöld ættu að endurskoða símareglur.
Góð vísa aldrei of oft kveðin: Foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum, gjörðum og athöfnum. Taka á síma af barni á grunnskólaaldri þegar það fer að sofa. Foreldrar hafa valdið. Notið það!
![]() |
Góð ástæða fyrir aldurstakmörkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)