Nei takk ekki mann á Bessastaði

sem hefur opinberlega gefið til kynna að honum sé sama um mannréttindi ungra stúlkna, unglingsstúlkna og kvenna.

Felix Bergsson er yfirlýstur stuðningsmaður trans- Samtakanna 78 og fylgir þeirra stefnu, í það minnsta í auglýsingamyndbandi sem hann segir skoðun sína. Hann vanvirðir íþróttir kvenna og konur þar með.

Felix finnst ekkert athugavert að trans kona með kynfæri karlmanns fái aðgang að kvennaklefa þar sem barnungar stúlkur afklæðast. Fer ekki alveg saman við málflutning makans sem vill á Bessastaði og taka Felix með.

Ekki nóg með það, Felix finnst sjálfsagt að karlmenn sem skilgreina sig sem konu taki þátt í kvennaíþróttum. Sveit attan, ekki svona mann á Bessastaði. Nú reynir á að konur sýni stuðning við kynsystur sínar og hleypi honum ekki nálægt forsetaembættinu.


Bloggfærslur 20. mars 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband