31.3.2020 | 19:23
Eiga heiður skilið
Hetjur þjóðarinnar ásamt mörgum öðrum stéttum. Landsmenn verða að fylgja fyrirmælum svo við kaffærum ekki heilbrigðisstarfsfólkið okkar. Við erum illa stödd ef hjúkrunarfólkið okkar hverfur af vellinum. ,,Á þessari deild eru þeir allra veikustu af COVID-19 sjúkdómnum sem kórónuveiran veldur og eru meðal annars tengdir öndunarvél. Nú er meðal annars verið að, stúka af, smíða milliveggi og koma upp aðstöðu sem áður rúmaði 6 sjúklinga en þar munu alls 18 manns geta legið. Við uppsetninguna er gert ráð fyrir að starfsfólk fari í hlífðarfatnað á einum stað og úr honum á öðrum."
Líður eins og hún sé stödd í kvikmynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2020 | 07:37
Ánægjulegt og vel að þessu komnir
Gaman að heyra. Kennarar og aðrir starfsmenn eru svo sannarlega vel að þessu komnir. Skólastarf hefur verið með óhefðbundnum hætti undanfarnar vikur og álag á starfsfólk skólanna eins og aðra.
Fá páskaegg sem þakklætisvott | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2020 | 20:19
Skelfilegt...en er þetta nauðsyn?
Skelfilegt að heyra um slysið og vona ég að þeir slösuðust nái sér.
Álag á sjúkrahúsin eru gífurleg og því er svona slys slæm viðbót. Velti fyrir mér af hverju fólk þvælist um á þennan hátt vitandi að slys getur átt sér stað. Heilbrigðiskerfið getur vart bætt við sig eins og sakir standa. Þau verða og gera það.
næsta vetur mun koma snjór rétt eins og Geysir fer ekki eins og Víðir sagði. Bíðum með það sem telst ekki til nauðsynlegra þátta.
Fóru fram af hengju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.3.2020 | 13:17
Eftirköst
Sláandi fréttir en ætti svo sem ekki að koma á óvart eftir svo skæð veikindi. Enn sem komið er hefur enginn tíma til að kanna þetta, kemur þegar hægist um. Fólk er mjög upptekið af dánartíðninni, sem eðlilegt er, en minna hefur verið talað um annað; það er að helmingur þeirra sem fá ARDS eða brátt andnauðarheilkenni fær fylgikvilla eftir veikindin og kemur til með að búa við skert lífsgæði. Það er sláandi, segir Karl Kristinsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir við Ríkisspítalann í Ósló, um fólk sem veikist alvarlega af kórónuveirunni.
Helmingur fær fylgikvilla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2020 | 17:21
Icelandair stillir viðskiptavinum upp við vegg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.3.2020 | 12:19
Heltekin þjóð- tvísaga sótti og landi
Engum blöðum er um það að fletta, veiran heltekur þjóðina. Þarf ekki að undra. Veiran skapar vandræði fyrir fólk og fyrirtæki. Grunnskólakennurum, mörgum hverjum, er ekki skemmt. Nú flokka læknar, sóttvarna og landsins, stéttina sem framvarðarsveit. Án grunnskólakennara gætu börn landsins ekki lifað eðlilegu lífi. Sennilega rétt þar sem margir foreldrar hafa ekki aga eða vilja til að halda rútínu barna sinna. Margir freistast til að snúa sólarhringnum við. Spila of mikið i tölvu og við það fá margir foreldrar lítið ráðið, þó heima séu.
Með blendnum tilfinningum mæta margir grunnskólakennarar í vinnuna. Þeir leggja sig alla fram eins og þeirra er von og vísa. Margir metnaðarfullir og slá ekki slöku við að kenna nemendum. Grunnskólakennarar slá ekki slöku við og hafa tekið áskoruninni eins og aðrir í samfélaginu.
Styttist í páskafrí og gera má ráð fyrir að örþreyttir grunnskólakennarar hlaði rafhlöðurnar til að taka á móti nemendum eftir páskafrí, nema sótti og landi ákveði annað.
Stjórnendum er heldur ekki skemmt. Þeir sjá kennara sína þreytast dag frá degi. Koma með björgunarhring eftir því sem aðstæður leyfa. Nemendur verða óþolinmóðari enda fátt skemmtilegt við að vera njörvaður í sæti sitt inni í stofu. Endalaus handþvottur og spritta hendur. Lítið frelsi. Yngstu nemendurnir eiga að vera sem mest í skólanum. Reynir á þessa rollinga.
Grunnskólakennarar halda áfram með að fylgjast með. Vonandi hætta sótti og landi að gefa tvíeggjuð skilaboð hvað skólana varðar. Halda á börnum heima ef foreldrar geta það. Fyrir alla muni sendið heilbrigð börn í skólann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.3.2020 | 18:13
Loka á grunnskólanum í Vestmannaeyjum
A vísi er spjall við Páley, lögreglustjórann í Vestmannaeyjum. Þar kemur fram að smit sé komið á yngsta og elsta stig. Held að menn megi ekki draga lappirnar. Að færa starfsfólk á milli starfsstöðva er varhugaverður gjörningur.
Vestamannaeyjar er eins og smækkuð mynd Íslands, eyja út í hafi. Er ekki tímabært að loka þeim fyrir mannfólkinu. Flytja inn vörur. Setja Eyjamenn í útgöngubann og sjá hver hratt og vel það virkar- eða virkar ekki. Sennilega auðveldara um að tala en í að komast.
Sammála að halda eigi grunnskólum opnum þar sem slíkt er mögulegt. Skynsemin má þó ekki víkja fyrir viljanum að halda þeim opnum með öllum tiltækum ráðum þegar smit lætur á sér kræla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2020 | 16:54
Verðlag höfðaði til útlendinga
Miðað við verðlagningu margra ferðaþjónustuaðila hafa þeir miðað verðlag sitt við útlenda ferðamenn. Hafa ekki haft áhuga á þeim íslensku. Ætli þeir að fá íslenska ferðamenn verður verðlagning að vera í takt við tímann.
Hingað til hafa Íslendingar ekki haft efni á að gista á gististöðum á landinu. Vænti nú ekki að mikillar breytinga sé að vænta þar. Sama um afþreyingu. Nú er hver sinnar gæfu smiður í þessum geira.
Þetta sumar verður ekki upp á marga fiska | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.3.2020 | 13:38
Gott að heyra
Verður forvitnilegt að sjá útfærslu samningsins. Að mínu mati á að lækka vinnuskyldu í 35 stundir og ráða fólk í þær stöður sem vantar. Atvinnuleysi hefur aukist og betra að fá fólk í vinnu en greiða því bætur. Kemur ábyggilega út á eitt fyrir launagreiðanda sem í flestum tilfellum er sveitarfélög og ríki.
Velti fyrir mér hvernig stytting vinnuvikunnar kemur út fyrir grunnskólakennara þegar samnið verður við þá.
Sömdu um styttingu vinnuviku vaktavinnufólks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2020 | 20:00
Loksins
Í stað þess að tala og tala þá gera þær eitthvað. Gott að heyra. Verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu. Lögreglan gæti vísað málinu frá. Vonandi ekki. Þarft að fá vitneskju um hver ber ábyrgð. Margir fá góð laun vegna ábyrgðar.
Vísa braggamálinu til lögreglu og saksóknara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)