6.9.2022 | 20:24
Enn bulla ráðamenn borgarinnar
þegar kemur að plássum í leikskólum borgarinnar. Þetta er eitt ,,Kallaði hann einnig eftir því að ríki, sveitarfélög og háskóli tækju höndum saman um að fjölga fagfólki á leikskólum." Launakjörin og starfsaðstæður, skiptir engu þó sé fjölgað um 10.000 manns. Á meðan helmingur leikskólum borgarinnar glíma við mygluvanda er ekkert sem heillar. Launin eru til háborinnar skammar og Reykjavík ríður ekki á vaðið og býður góð laun þeim sem vilja vinna á leikskóla. Þangað til verða menn að eta það úti frýs. Minni á að borgarstjóri er með 2/3 af launum leiksskólastarfsmanns í laun fyrir nefndarsetu (einn til tvo fundi á mánuði og enga ábyrgð) hjá slökkviliði borgarinnar.
Hvað kjósendur varðar þá er ég hissa að menn, árið 2022, hoppi á loforðalista stjórnmálaflokkanna og verða svo fúlir þegar listinn er ekki efndur. Ekkert stjórnmálaafl hefur staðið við kosningaloforð sín í áratugi.
Staðan er vond. Ábyrgðar- og forsjáraðilar barnanna verða að grípa til annarra úrræða.
![]() |
Enn um 200 pláss laus sem ekki er verið að nýta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2022 | 19:25
Illska og mannvonska sumra mæðra
gagnvart börnum sínum á sér engin takmörk. Sjálfselska mæðra ræður för. Kerfið er svo hliðhollt einstæðum mæðrum í forsjárdeilum að manni verður illt. Allir firra sig ábyrgð og börnin blæða.
Mýmörg dæmi um þetta og margt verra. Í einu tilfelli sagði barnsmóðir mannsins að hann hefði ekki áhuga á samskiptum við barn sitt í því skyni að þurfa ekki að stuðla að umgengni hans við barnið. Starfsmenn barnaverndar og sýslumanns komu orði á að það vantaði úrræði til að koma á umgengni en afsöluðu sér ábyrgð á því og vildu að ný stofnun yrði sett á legg.
Hér má lesa viðtalið sem vitnað er til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2022 | 11:56
Gott að líta í baksýnisspegilinn
og læra. Vera kann að í næsta faraldri grípa stjórnvöld til annarra ráðstafnana. Tel að flestir hafa gert það sem þeir töldu að kæmi mönnunum best. Hins vegar má deila um minkamálið í Danmörku.
Rannsóknir byggðar á reynslu eru af hinu góða. Lærum af því. Eins eiga eftir, á komandi árum, að koma fram rannsóknir sem sýna hvað covid gerði manninum.
![]() |
Vafi leikur á lögmæti sóttvarnaaðgerða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Rakst á grein Evu Hauksdóttur frá 2014. Góð upprifjun og lestur. Þá eins og nú hefur hún efasemdir um femínista og framgöngu þeirra í samfélaginu. Þróun sem engum á að vera sama um. Gríp aðeins í gein Evu og set krækju neðst.
,, Sú skoðun virðist útbreidd að grunnskólinn eigi að innræta börnum tiltekin viðhorf. Þessa sér stað í aðalnámskrá grunnskólanna en samkvæmt henni eru grunnþættir menntunar lýðræði, jafnrétti, sjálfbærni, heilbrigði, sköpun og læsi. Þótt merking þessara hugtaka sé hvorki einföld né óumdeild hefur þessi áhersla aðalnámskrár nánast engri gangnrýni sætt. Ef til vill skýrist það af þeirri túlkun að skólum beri að starfa í anda lýðræðis, jafnréttis o.s.frv. fremur en að taka upp markvissa kennslu í þessum grunnþáttum. Þó hafa feministar nú sent frá sér ályktun um að kynjafræði skuli tekin upp sem skyldufag í grunn- og framhaldsskólum og verði af því mun brátt reyna á það hlutverk grunnskólans sem aðalnámskrá virðist boða; að innræta börnum pólitískar og móralskar hugmyndir.
,, Í fyrsta lagi ríkir engin sátt um það sjónarmið að jafnréttisfræðslu sé best komið í höndum kynjafræðinga. Í öðru lagi er það tæplega hlutverk grunnskólans að stuðla að framgangi pólitískra hreyfinga. Ég tel í meira lagi vafasamt að láta kynjafræðinga annast jafnréttisfræðslu og ætlun mín með þessari grein er að færa rök fyrir þeirri skoðun.
,, Þann 21. september 2010 sat ég opinn fyrirlestur í Öskju, þar sem Þorgerður og Gyða Margrét kynntu fyrrnefnda rannsókn sína. Kjarninn í niðurstöðum þeirra var sá að karlar og karllæg gildi hefðu valdið bankahruninu og til þess að forða því að slíkt endurtæki sig væri nauðsynlegt að auka hlut kvenna í stjórnsýslunni. Reyndar nefndu þær dæmi um konur sem einnig bæru ábyrgð en þeirra þáttur var ýmist skýrður með styðjandi kvenleika eða því að konan hefði verið í karlgervi. Að sama skapi töldu þær að þeir stjórnmálakarlar sem voru í kvengervi hefðu litlu ráðið.
Að fyrirlestrinum loknum gafst áheyrendum færi á að varpa fram spurningum. Ég spurði vísindakonurnar hvernig þær teldu aukinn hlut kvenna vera lausn fyrst konur gætu hegðað sér af sama ábyrgðarleysi og karlar með því að taka á sig karlgervi. Þeirri spurningu var svarað út í hött.
,, Í framhaldsskólunum eru það feministar sem kenna kynjafræði og sumarið 2010 gaf menntamálaráðuneytið út Kynungabók, kynjafræðinámsefni fyrir framhaldsskóla. Texti Kynungabókar hefur fræðilegt yfirbragð og áhersla er lögð á að jafnréttismál varði bæði kynin. Engu að síður er hugmyndafræði kvenhyggjunnar undirliggjandi. Tónninn er sleginn strax í inngangi Kynungabókar:
Talið er að rekja megi núverandi kynjamisrétti til þeirra tíma er eingöngu karlar úr valdastétt höfðu tækifæri til að móta samfélagið en það gerðu þeir út frá hagsmunum sínum. (bls 7.)
,, Ef grunnskólarnir eiga að verða pólitískar uppeldisstofnanir þá skulum við spyrja hvaða grasrótarhreyfing, stofnun eða fyrirtæki muni næst biðja um aðgang að skólabörnum. Fær píratahreyfingin að sinna lýðræðiskennslu eða eiga lýðræðishugmyndir framsóknarmanna betur heima í skólum? Munu heilsugúrúar sem boða grænmetisát og jóga sinna heilbrigðisþætti aðalnámskrár eða verður það líkamsvirðingarhreyfingin eða kannski eitthvert tryggingafélagið? Hvort ætli Landsvirkjun eða Náttúruverndarhreyfingin verði fyrri til að óska eftir færi á að kynna börnum túlkun sína á sjálfbærni?
Og hvaða hugmyndir verða næst teknar upp sem grunnþættir menntunar? Ættu frelsi og friður ekki ágætlega heima í aðalnámsskrá? Verða þá hernaðarandstæðingar látnir sinna þeim þáttum eða frjálshyggjumenn eða Ástþór Magnússon?
Grein Evu á jafnvel við nú og fyrir 8 árum. Hér má lesa hana.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.8.2022 | 15:14
Gott að hún tali fyrir aðra,
ekki sjálfa sig. Katrín hefur ekki farið með góðu fordæmi þegar launahækkanir ráðherra og þingmanna eru annars vegar, eða aðrar sposlur. Hún tekur endalaust við en segir öðrum að gæta hófsemd. Sama að hverju þessi ráðherra kemur, algerlega ómaktæk. Hún gerir ekkert nema það komi sjálfri sér og stétt sinni til góða. Jú og þeim sem hafa það betra í þjóðfélaginu. Vg missti sjónar á hlutverki sínu og markmiðum fyrir langalöngu, enda Katrín vinsælust meðal þeirra sem hafa það best í samfélaginu.
![]() |
Atvinnurekendur sýni hófsemd í eigin kjörum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.8.2022 | 10:22
Ríkissaksóknari fellir niður mál Arons Einars og Eggerts,
kom fram í frétt í Fréttablaðinu og Rvu. Fréttin á báðum miðlum var fyrirferðalítil. Má sennilega ekki blása upp sakleysi mannanna.
Ofstækishópurinn Öfgar, skyldi hann biðja þá afsökunar og hina landsliðsmennina í leiðinni. Ætli kynjafræðingurinn sem fór mikinn um málið geri slíkt hið sama?
Landsliðmenn okkar máttu í kjölfar umræðunnar sitja undir hrópum og köllum frá ofstækishópnum þar sem þeir voru kallaðir nauðgaðar.
Samfélags- og fjölmiðlar létu eitt og annað frá sér sem þeir ættu líka að biðjast afsökunar á. Þeir blésu málið upp eins og um hinn eina sannleik væri að ræða. Vona að þessir aðilar stilli umræðuna um málaflokkinn í framtíðinni. Svona öfgar hjálpa engum. Hvorki þolendum né meintum gerendur nema síður sé.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.8.2022 | 15:24
Óskiljanlegt af hverju forræði
er tekið af fólki þegar það kemur á gossvæði og marga ferðamannastaði. Þreytist seint á að óskapast yfir forsjárhyggju íslenska ríkisins í þessu máli. Hvernig í heiminum er þessu farið svona með ferðamannastaði. Upplýsingar til ferðamanna og síðan er það þeirra að fara eftir þeim. Láti þeir lífið eða slasast við eigin fífldirfsku er það þeirra mál. Við getum ekki fylgt ferðamönnum hvert fótmál. Vilji fólk leggja börn sín í hættu þá er það val, ekki á herðum ríkisins.
![]() |
Ráða landverði þrátt fyrir möguleg goslok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2022 | 10:44
Íburður of mikill, hvenær tekur skynsemin yfir
Mér er óskiljanlegt af hverju þarf þessar svaka byggingar þegar leik- og grunnskólar eiga í hlut. Hafið byggingarnar einfaldar og ódýrar. Notið meira fjármagn í innviði leikskóla ekki byggingu. Tveggja hæða leikvöllur kallar á fleira starfsfólk við útiveru. Tröppurnar er hættumerki og á ekki heima í leikskóla. Ekki það leikskólinn er í stíl við hugarfar Íslendinga, flott að utan, sýndarmennskan.
![]() |
Ekkert tilboð barst í byggingu nýja leikskólans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.8.2022 | 10:17
Umskurður stúlkna telst ofbeldi en ekki þegar brjóst eru skorin af og kynfærum breytt í typpi?
Hjúkrunarfræðingur skrifar grein á Fréttin.is, hana má lesa hér. Brot úr greininni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.8.2022 | 14:20
Tillögurnar brandari
sem ekki er hlægjandi að. Borgarfulltrúar eru veruleikafirrtir.
Að komið verði á bakvarðarsveit til að mæta manneklu á leikskólum. Hvaða bull er það að búa til bakvarðasveit í leikskólum þegar þeir eru ekki fullmannaðir. Vantar um 170 starfsmenn.
Komið verði á fót starfsnámi í leikskólum fyrir nemendur í leikskólaliðanámi. Nemar eru ekki fullgildir starfsmenn og eiga ekki að vera það. Þarf breytingu á lögum um viðkomandi nám ef á að reka leikskóla á nemendum.
Starfsmönnum frístundaheimila verði boðið upp á heilsdags- og hálfsdagsstörf svo starfskraftar þeirra geti nýst fyrri part dags á leikskólum. Hvað gera leikskólarnir seinni partinn? Á þjónusta við sumar foreldra að vera hálfan daginn? Hvað svo!
Að borgarfulltrúar skuli eyða tíma sínum að búa til svona vitleysu og hvað þá að leggja slíkt fram. Enginn tekur á vandanum sem eru launakjörin. Á meðan þau eru ekki betri fer fólk í aðra vinnu þar sem álag og ábyrgð er ekki eins mikil. Skiljanlega. Raunhægt að fá fólk til starfa ef launakjör eru góð.
Þeir sem stjórna borginn náði í atkvæði út á loforð sín og þá þarf ekki að gera meira.
![]() |
Leggja fram þrjár tillögur til viðbótar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)