Tillögurnar brandari

sem ekki er hlægjandi að. Borgarfulltrúar eru veruleikafirrtir.

Að komið verði á bakv­arðarsveit til að mæta mann­eklu á leik­skól­um. Hvaða bull er það að búa til bakvarðasveit í leikskólum þegar þeir eru ekki fullmannaðir. Vantar um 170 starfsmenn.

 

Komið verði á fót starfs­námi í leik­skól­um fyr­ir nem­end­ur í leik­skólaliðanámi. Nemar eru ekki fullgildir starfsmenn og eiga ekki að vera það. Þarf breytingu á lögum um viðkomandi nám ef á að reka leikskóla á nemendum.

Starfs­mönn­um frí­stunda­heim­ila verði boðið upp á heils­dags- og hálfs­dags­störf svo starfs­kraft­ar þeirra geti nýst fyrri part dags á leik­skól­um. Hvað gera leikskólarnir seinni partinn? Á þjónusta við sumar foreldra að vera hálfan daginn? Hvað svo!

Að borgarfulltrúar skuli eyða tíma sínum að búa til svona vitleysu og hvað þá að leggja slíkt fram. Enginn tekur á vandanum sem eru launakjörin. Á meðan þau eru ekki betri fer fólk í aðra vinnu þar sem álag og ábyrgð er ekki eins mikil. Skiljanlega. Raunhægt að fá fólk til starfa ef launakjör eru góð.

Þeir sem stjórna borginn náði í atkvæði út á loforð sín og þá þarf ekki að gera meira.


mbl.is Leggja fram þrjár tillögur til viðbótar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband