14.4.2020 | 18:46
Kvennaathvarfið misnotað- leyfir misnotkun
Alþekkt að Kvennaathvarfið leggi sitt lóð á vogarskálina þegar kemur að þessu ofbeldi barna. Skiljir þú færðu ekki að sjá börnin. Reyndar er þetta alþekkt um allan heim. ,,Hún misnotaði kvennaathvarf til að ná sínu fram og notaði það sem tæki til kúgunar og hótana."
Greinin birtist á HUN.is
ATH. Þessi grein er aðsend. Lesendum er frjálst að senda inn greinar undir nafnleynd í Þjóðarsálina, en þær skoðanir sem birtast hér í Þjóðarsálinni endurspegla hvorki ritstjórnarstefnu né skoðanir HÚN.IS
Svavari leið illa í sambandinu og hafði gert í mörg ár vegna andlegs og líkamlegs ofbeldis af hálfu sambýliskonu sinnar. Hann bað konuna sína um skilnað.
Ragnheiður konan hans varð reið og sagði:
Þú færð þá aldrei að sjá börnin þín aftur og ég segi að þú hafir verið sérstaklega vondur við stjúpson þinn og beitt hann líkamlegu og andlegu ofbeldi! Og ég mun líka segja að þú hafir beitt mig líkamlegu og andlegu ofbeldi! Allir munu trúa mér! Allir! Og ég mun segja að þú hafir beitt þín eigin börn ofbeldi!
Tíminn leið
eitt ár, tvö ár
Svavar fékk kjarkinn aftur og varð mjög ákveðinn og bað um skilnað. Konan hans byrjaði að öskra og lemja hann. Svavar fór út úr húsinu eins og svo oft áður í svona aðstæðum. Þegar hann kom heim var börnin og konan hans farin. Tveimur dögum síðar fékk hann símtal. Þetta var konan hans. Hún tilkynnti honum að hún væri í kvennaathvarfi og kæmi ekki heim fyrr en hann væri búin að hugsa sitt ráð.
Í tvær vikur var konan hans með börnin sem hann elskaði meira en allt í kvennaathvarfi. Hún var í daglegu sambandi við hann í gegnum sms og símtöl. Hún sendi honum meira að segja myndir og videó af börnunum úr athvarfinu. Hún beitti hann hótunum og kúgun til að halda áfram í sambandi.
Að lokum kom hún heim með börnin og Svavar skildi núna að hann gat ekki komið sér út úr þessu sambandi. Ragnheiður konan hans var búin að sýna það í verki að hún myndi standa við það að eyðileggja mannorð hans. Að hún myndi fara alla leið. Hún misnotaði kvennaathvarf til að ná sínu fram og notaði það sem tæki til kúgunar og hótana.
Svavar var fastur. Svavar var hræddur og skelkaður.
Tveimur árum síðar kom Svavar sér út úr sambandinu. Ragnheiður reyndi samfélagslega séð að eyðileggja mannorð hans. Hún bjó til fullt af sögum um hann. En fólk sá í endanum í gegnum hana því enginn getur falið sinn innri mann lengi. Svavar hélt bara áfram að vera samkvæmur sjálfum sér og láta verkin tala. Svavar hélt áfram að vera hann sjálfur og með hjálp sálfræðings og fjölskyldu þá komst hann í gegnum ofbeldið sem hann varð fyrir af hálfu Ragnheiðar.
Þetta er sönn saga úr íslensku þjóðfélagi.
Konur beita líka ofbeldi.
Karlmenn, komið ykkur út úr ofbeldissamböndum. Verið óhræddir. Þið eigið betra skilið. Þið eigið allt gott skilið.
#KKMETOO
Kv, Svavar
12.4.2020 | 11:33
Skyldi maður heyra frá þeim
Icelandair hefur staðið sig illa þegar kemur að viðskiptavinum sínum. Þeir vísa endalaust inn á eyðublað sem gefur viðskiptavinum ekki kost á endurgreiðslu. Annað tveggja, inneign eða breytingu á flugi. Þeir hafa lokað sig af og engin leið að ná á þá. Vona að þeir bæti úr því nú þegar flugáætlun liggur fyrir.
![]() |
Flugáætlun Icelandair næstu þrjár vikur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.4.2020 | 14:57
Uppskeruhátíð ofbeldismanna!
Forsvarsmenn Stígamóta stigu fram og upplýst þjóðina um uppskeruhátíð ofbeldismanna á covid tímum. Það fengu þær að gera í opinberum þætti þar sem málefni tengdum covid 19 var til umfjöllunar. Merkilegt að enginn hreyfi athugasemdum við slíkan málflutning.
Fáir efast um aukið ofbeldi þegar heima- og innivera er mikil. Nánd fjölskyldna eykst og reynir á þolrifin hjá mörgum. Það á jafnt við um karla og konur. Bæði kynin beita ofbeldi, hvort á sinn hátt. Börn eru í sérstakri hættu. Ofbeldi á sér frekar stað þegar áfengi og vímuefni eru höfð um hönd. Ekki að ástæðulausu að Grænlendingar lokuðu fyrir áfengissölu á þessum tíma. Danir hafa lýst yfir áhyggjum vegna barna sem verða fyrir auknu ofbeldi þegar vímuefni eru á heimilum. Þeir hafa bent á að skólalokun valdi þeim sérstaklega áhyggjum vegna þessara barna. Athvarfi þeirra lokað, hvíldin frá vímuefnaheimilum er ekki til staðar.
Þar sem fleiri börn búa hjá einstæðum mæðrum er hættan á ofbeldi af hálfu mæðra eðlilega til staðar jafnt og feðra. Stígamótakonur töldu ekki ástæðu til að draga það fram í dagsljósið.
Karlmenn eru frá náttúrunnar hendi sterkbyggðari og því þarf minna til að mein sjáist á konu noti hann aflið. Konur aftur á móti beita annars konar ofbeldi. Ekkert ofbeldi er réttlætt hér. Ofbeldi er ofbeldi, sama hver og hvernig því er beitt.
Viðhorf kynjanna til ofbeldis eru ólík. Þegar skýrslur og rannsóknir eru lesnar sést að karlmenn kæra síður, eiginlega mjög sjaldan, ofbeldi af hálfu ástvinar, sambýlings eða eiginkonu. Í skýrslu frá Danmörku kemur fram:
,,Í viðtölunum spurðum við hvernig menn brugðust við ofbeldinu af hálfu ástvinar- hvort þeir fóru á slysavarðastofuna eða kærðu til lögreglu, hvort þeir slógu aftur, urðu reiðir, skömmuðust sín o.s.frv. Margar rannsóknir sýna að kynjamuninn hefur áhrif þegar leitað er hjálpar eftir ofbeldi frá ástvini sem og kæra ofbeldið (Federal Ministry for Family Affairs 2004; Stolt 2010; Schütt et al. 2008; MirrleesBlack 1999). Gera má ráð fyrir að ólík viðbrögð kynjanna endurspegli hugmyndir manna um kynin og tengjast kvenleika og karlmennsku."
Víða kemur fram að karlmönnum finnst niðurlægjandi að kæra ofbeldi sem þeir verða fyrir af hálfu konu. Þeim er ekki trúað, hvorki hjá lögreglu, læknum eða slysavarðastofum. Sömu sögu er að segja frá samfélaginu, fólk trúir ekki að menn verði fyrir ofbeldi innan veggja heimilanna. Þá er þöggunin betri en að vera ekki trúað!
Tel að landinn ætti að vera á varðbergi gagnvart öllu ofbeldi af hálfu fullorðnum, kvenna og karla, og ekki síður því sem börnin verða fyrir. Foreldrar úthúða börnum sínum, hrista þau, hrinda, loka þau inni, löðrunga eða hótar beita þau ofbeldi. Sumum kann að þykja þetta fylgja uppeldi en svo er ekki.
9.4.2020 | 12:23
Smekklaust og lágkúra frá öfgasamtökum
Nú hljóp aldeilis á snærið hjá öfgasamtökunum ,,Líf án ofbeldis." Tvö morð framin. Engum blöðum um það að fletta, ofbeldi sem á sér staði innan veggja heimilisins og milli fjölskyldumeðlima er heimilisofbeldi. Það á líka við þegar fólk er niðurlægt, talað niður til þess, hrint, sparkað í það og þvingað til einhvers sem það vill ekki sjálft.
Öfgasamtökin leggjast svo lágt að nota harmleikinn, sem morð er, sem auglýsingu. Vissi að margar konur innan samtakanna leggjast lágt en þetta er lágkúra af verstu gerð.
Sorglegra er að fólk deilir þessari lágkúru á samfélagsmiðlunum.
8.4.2020 | 20:14
Þá veit hún hvernig feðrum líður sem fá ekki að hitta börn sín
Þessi kona stökk fram á ritvöllinn til að rakka feður niður sem berjast fyrir að hitta börn sín. Hún var ein af þeim konum sem telja feður sem berjast fyrir rétti barna sinna ofbeldismenn. Auðvitað rangt hjá henni, stór hluti feðra, rétteins og mæðra, eru ekki ofbeldismenn. Þessi ágæti ritstjóri finnur nú á eigin skinni hvað það er að hitta ekki börnin sína. Geta ekki faðmað þau og talað við þau og horft í augu þeirra. Boðið þeim góða nótt með koss á kinn. Haldið í höfn þeirra. Setið og spjallað yfir sjónvarpinu.
Margir fjölskyldumeðlimir, feðramegin, hafa mátt þola slíkt í marga mánuði, ár og áratugi og henni finnst það í góðu lagi. Hún er heppnari því hún má tala við börn sín í síma og önnur snjalltæki. Það mega margir feður ekki einu sinni, hvað þá fjölskyldur þeirra. Börn sumra eru horfin, rétt eins og að jörðin hafi gleypt þau.
Þessi kona lagði hópi kvenna lið með blaði sem hún stýrir og lét sitt ekki eftir liggja í rætinni umfjöllun um feður sem berjast fyrir rétti barna sinna, að hafa aðgang að báðum foreldrum.
![]() |
Stundum upplifi ég heimilið eins og fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.4.2020 | 21:38
Annað sjónarhorn í umræðuna um skort á hjúkrunarfræðingum
Greinin birtist á Vísi.is fyrr í dag, 7. apríl.
Fyrir um þremur áratugum breyttu Danir menntun sjúkraliða. Til urðu stéttirnar Social- og sundhedsassistent (SOSU-assistent) og Social- og sundhedshjælper (SOSU-hjælper). Mikil bót fyrir danska heilbrigðiskerfið. Hjúkrunarfræðingar þar í landi settu sig upp á móti menntun SOSU-assistentana (heilsu- og félagsliði, þýðingin mín), töldu að þeir misstu spón úr aski sínum. Þáverandi heilbrigðisráðherra hlustaði ekki á andmælin, þörf landsins var í forgangi, og því hafa SOSU-assistenter verið að störfum í þrjá áratugi. Stéttin hefur sannað gildi sitt í Danmörku.
Sjúkraliðar sem hafa danska heitið ,,sygehjælper höfðu tök á að fara í nám, svokallað ,,opskoling sem tók innan við ár til að verða SOSU-assistent. Í 2008 var menntunarþörfinni fullnægt og síðasti hópurinn útskrifaðist, segir frá skólanum SOSU-nord, það ár. Þeir sem bættu ekki við sig námi vinna sem ,,sygehælper með takmarkaðra starfssvið en SOSU-assistent. Stéttin ,,sygehjælpere deyr smá saman út en ný stétt yfirtekur að mestu starfsviðið, SOSU- hjælpere (félagsliði).
Starfssvið SOSU-assistente er víðara en sjúkraliða, líka þegar horft er til Íslands, en takmarkaðra en hjúkrunarfræðinga. Með náminu var ákveðið að færa ýmis störf sem hjúkrunarfræðingar hafa haft á sinni könnu til SOSU-assistentana. Það var gert til að létta á stétt hjúkrunarfræðinga og færa til verkefni sem minna menntaður einstaklingur getur sinnt, án skerðingar á gæðum.
Uppbygging danska námsins
Sama grunnmenntun er fyrir SOSU- hjælper (félagsliða) og SOSU-assistent (heilsu- og félagsliði), en það fer eftir aldri, fyrri störfum og menntun hvar einstaklingur byrjar í ferlinu. Eftir grunnnám hefst sérhæfing.
SOSU-hjælper (félagsliði). Námið tekur 2 ár og 2 mánuði. Vinnustaðir eru m.a. dvalar- og elliheimili, verndaðar íbúðir aldraða og sambýli. Starfssvið félagsliða er persónuleg aðstoð, hjálp með innkaup, þrif og þvotta.
SOSU- assistent (heilsu- og félagsliði).Námið tekur 3 ár 10 mánuði, að meðtölu árunum sem tekur að verða Sosu-hjælper. Þessi stétt sinnir almennum hjúkrunarstörfum. Þeir vinna m.a. á hjúkrunarheimilum, sjúkrahúsum, á geðsviðinu og við heimahjúkrun.
Fyrir margt löngu vakti Sjúkraliðafélag Íslands athygli á málinu, án árangurs. Ráðherrar þeirra tíma ljáðu félaginu ekki eyra, því miður. Þess í stað var sétt með minna starfssvið en sjúkraliðar búin til, félagsliðar, sem svar við kalli ófaglærðra í öldrunar- og félagsgeiranum. Gera má að því skóna að mönnun innan sjúkrahúsanna væri önnur hefði menntun sjúkraliða verið breytt á sínum tíma eins og Danir gerðu. Menntunin er góð, vinsæl og bæði konur og karlar sækja í námið.
Ég hvet Sjúkraliðafélag Íslands, Landlækni, Menntamálaráðherra og Heilbrigðisráðherra að snúa bökum saman og skoða á hvern hátt má auka nám sjúkraliða með það fyrir augum að að auka starfssvið þeirra. Danir fóru þessa góðu leið til heilla fyrir heilbrigðiskerfið þeirra, vann á skorti hjúkrunarfræðinga. Viðbótarnám fyrir sjúkraliða (opskoling) tekur innan við ár. Með slíku námi mætti koma til móts við skort á hjúkrunarfræðingum á sjúkrahúsunum í dag. Danir gátu, hví ekki við!
Helga Dögg Sverrisdóttir, M.Sc. M.Ed. og sjúkraliði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2020 | 12:49
Veiran, ríkislögreglustjóri og kvenfrelsunaráróðursdeild SÞ
Greinin birtist á Vísi.
Mélissa Godin skrifaði grein þann átjánda mars í tímaritið Tímann (Time). Fyrirsögn hennar er: Meðan útgöngubann gildir í borgum víðsvegar í veröldinni, leita fórnarlömb heimilisofbeldis útgönguleiða (As Cites Around the World Go on Lockdown, Victims of Domestic Violence Look for a Way Out).
Mélissa víkur ekki frá forskriftinni um áróðursgreinar kvenfrelsaranna, þegar hræra á hjarta lesandans til meðaumkunar. Greinina prýðir mynd af konu á heimili sínu með smitvarnargrímu á ásjónunni, sem starir á vit frelsisins út um gluggann. Í upphafi greinarinnar segir grátklökk eiginkona ofbeldiskarls í neyðarsíma: Eiginkarl minn vill ekki hleypa mér úr húsi. Hann hafði einkenni, sem kynna að benda til flensu. Hann ber við smithættu til að réttlæta það að halda mér heima. En mér finnst það vera tilraun til að einangra mig.
Raunir kvenna eru raktar áfram. Nú er það Katie Ray-Jones, aðalframkvæmdastjóri Þjóðarheimilisofbeldisneyðarlínunnar (National Domestic Violence Hotline), sem tekur til máls: Ofbeldismenn hóta að fleygja fórnarlömbum sínum út á götu til að sýkja þau. Okkur hefur borist til eyrna, að nokkrir þeirra meini þeim um aur og heilbrigðisþjónustu. (Það eru skrítnir kúgarar, sem heldur vilja eltast við sýkt fórnarlömb sín út um hvippinn og hvappinn, fremur en að nauðga þeim ósýktum heima eða hvað?)
Starfsmaður nefndrar neyðarlínu nefnir annað dæmi. Kona nokkur í Kaliforníu tók upp á því að fara óumbeðin í sóttkví sökum kafmæði. Hann skrifar í dagálinn: Ástmaður konunnar reyndi að kyrkja hana í kvöld. Meðan ég talaði við hana, heyrðist mér, að hún ætti við verulega alvarleg meiðsl á stríða. Hún kinokar sér við að fara á neyðarmóttöku vegna ótta við smit af völdum COVID-19. Það virðist greinilega að fara úr ösku í eldinn.
Katie Ray-Jones eys enn af viskubrunni sínum: Okkur er kunnugt um, að heimilisofbeldi eigi rætur í [þörf fyrir] að neyta aflsmunar og stjórna [sýna mátt sinn og megin]. Eins og stendur erum við vanmáttug[ar] í líf okkar. Sá, sem ekki hefur aga til að bera, tekur [skapraunir sínar] út á fórnarlambi sínu. En Katie fullyrðir þó ekki, að ofbeldiskarlar muni færast í aukana í kreppunni.
Fleiri sérfræðingar kveða sér hljóðs. Anita Bhatia, varaaðalframkvæmdastjóri kvenfrelsunardeildar Sameinuðu þjóðanna (UN Women), lætur hafa eftir sér að þær aðgerðir, sem beitt er í þágu veiruvarna fyrir fólk gætu umsnúist í ákomu gagnvart fórnarlömbum heimilisofbeldis [ofbeldis karla gegn konum]. Aukin heldur segir hún, að enda þótt við styðjum það heilshugar, að reglur um fjarlægð og einangrun séu virtar, er okkur einnig ljóst, að það skapar tækifæri ofbeldismönnum [körlum] til að gefa ofbeldishvötinni enn lausari tauminn.
Að þessu sögðu er áréttuð kynkúgun kvenna um allan heim og vitnað í grein frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO World Health Organization). Fyrirsögnin er: Ofbeldi gegn konum. Efling heilbrigðis á krepputímum (Violence Against Women. Strenghtening the Health Response in Times of Crises). Í greininni er endurtekin gömul staðhæfing kvenfrelsaranna, byggð á eldgömlum, meingölluðum rannsóknum þeirra sjálfra á konum Vesturlanda - að mestu leyti frá Bandaríkjum Norður-Ameríku (BNA). Alhæfingarnar eru gengdarlausar og eiga ekkert skylt við agaða og ábyrga fræðimennsku. Ein af þrem á lífsleiðinni verður fyrir kynferðislegu ofbeldi af hendi karlmanns, er kunnugleg áróðurslumma, vígorð úr herbúðum kvenfrelsaranna. Í lesningu þessari er engra heimilda getið. En Elisabeth Roesch, sérfræðingur í kynbundnu ofbeldi, segir þjálfun heilbrigðisstarfsmanna beinast að því, hvernig megi leggja þeim konum lið, sem skýra frá ofbeldi í sinn garð af hálfu eiginkarls.
Mélissa segir: Enda þótt karlar verði fyrir heimilisofbeldi, eru það konur, sem eru meirihluti fórnarlamba. Henni flökrar greinilega ekki við áróðursrangfærslunum. Ofbeldi í hjónabandi og nánum samböndum öðrum, skiptist nokkurn veginn til helminga milli karla og kvenna. Sú staðreynd er ítrekað sannreynd og undirbyggð. Mélissa bætir við, að ofbeldi á heimilum samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og kynskiptinga aukist einnig. Hún vísar í þessu efni til heimildar, sem ekki er aðgengileg. Hins vegar er það svo, að ofbeldi meðal samkynhneigðra kvenna er engu minna, heldur en í samböndum gagnkynhneigðra. Það er líka margrannsakað og sannreynt fyrirbæri.
Nú snýr Mélissa sér að kreppum fyrir alvöru: [Á] krepputímum eins og náttúruhamförum, styrjöldum og faröldrum eykst hættan á kynbundnu ofbeldi [ofbeldi karla gegn konum]. Hún hefur á orði gríðarlega aukningu ofbeldis karla gegn konum sínum á tíma sóttkvíarinnar. Heimild Mélissu er grein eftir Bethay Allen-Ebrahimian.: Heimilisofbeldisfarandurinn í Kína (China´s Domestic Violence Epidemic).
Staðhæfingar um faraldur ofbeldis karla gegn konum á kínverskum heimilum eru grundvallaðar á fyrirspurnum til kvenna, sem samtök kvenfrelsara gerðu. Þriðjungur þeirra kvaðst hafa orðið fyrir einhvers konar ofbeldi af hálfu ástmanns. Það er í engu skýrt nánar frá aðferð við þessa könnun. Auk þess er vísað til uppgjafa lögreglukarls, Wan Fei, sem komið hefur á laggirnar félagsskap til baráttu gegn ofbeldi karla á heimilum. Það er eftir honum haft, að umkvörtunum um ofbeldi karla hafi fjölgað, meðan á sóttkví hefur staðið. Þetta segir hann í viðtali við fréttaveituna, Sjötta tóninn (Sixth Tone).
Því næst beinir Mélissa sjónum sínum að veröldinni allri. Kreppan torveldar fórnarlömbunum að sækja sér hjálp, segir hún. Og enn er Anita Bhatia óljúgfróð: Þegar best lætur eiga konur erfitt með á láta raust sína heyrast. Til frekari áréttingar vísar Mélissa til greinar í Nýju Jórvíkur Tímanum (New York Times) um stunur ítalska heilbrigðiskerfisins. Þar er ekkert sérstaklega vikið að eymd kvenna, nema hjúkrunarkonunnar, Elena Pagliarini, sem leið út af sökum þreytu, eftir tíu tíma vakt. Það er að sönnu ofurmannlegt álag. Og líklega er bannsettu feðraveldinu um að kenna.
Lengi má konuna reyna, heldur Mélissa áfram. Fórnarlömbin veigra sér við að leita til foreldra sinna, sökum smithættu. Ferðabann meinar þeim að dvelja hjá öðrum ástvinum og kvennaathvörfin kynnu að vera troðfull.
Þá víkur sögunni að efnahagshlið hörmunganna. Katie fræðir Mélissu og okkur um það, að konur þurfi í leyni að öngla saman fé til að yfirgefa ofbeldiskarlinn. Það verði vitaskuld erfiðara, þegar þær missa vinnuna. Því er það sjálfgefið, að snúnara verði að sleppa undan ofbeldiskarlinum. Og ekki bæti það úr skák, að mannúðarstarf kvenfrelsaranna gæti orðið fyrir skakkaföllum, þegar þrengra verði í búi. (Katie Ray-Jones)
Í annarri grein leggur Katie fórnarlömbum ofbeldiskarlanna lífsreglur í viðlögum. Hún segir: [Þ]egar krytur brjótast út, er mikilvægt að finna öruggustu staðina í húsinu, þar sem þeir hlutir liggja ekki á lausu - eins og í eldhúsi og baðherbergi - sem nota megi sem vopn. Þú ættir að búa þig undir aðstæður, þar sem ofbeldiskarlinn gæti falið fyrir þér nauðsynjavörur eins og sápu. (Tanya Selvaratnam)
Stella Samúelsdóttir, forstýra áróðursdeildar Kvenfrelsunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, vísar til ofanrakins texta til réttlætingar síðasta áróðurbragði þessarar makalausu stofnunar. Þar er því haldið fram, að karlar muni króa konur sínar af heima við til að misþyrma þeim. Ríkislögreglustjóri, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, staðhæfði í fréttatíma RÚV, að rannsóknir sýndu fram á slíkt hátterni karla. Ég skora á ríkislögreglustjóra að leiða bljúgan almúgann í sannleikann um heimildir sínar.
Áróðursútspil Stellu og Sigríðar (SS) gegn körlum, minnir um margt á hliðstætt útspil gegn slökkviliðskörlum af hálfu VG og (annarra) kvenfrelsara í Ástralíu nýverið Eftir þvílíkar hamfarir sem þessar, rís heimilisofbeldi til hæstu hæða. Almennt finna konur til geysilegs óöryggis, þegar karlar þeirra snúa aftur heim, eftir baráttuna við eldana, og beita þær heimilisofbeldi, segir kvenfrelsarinn, Sherely Moody.
Sherely vísar til heimildar til að gæða ásakanir sínar trúverðugleika. Um er að ræða doktorsritgerð kvenfrelsarans, Debra Parkinson, við Monash háskólann, og grein hennar í Australian Journal of Emergency Management: Hjúpuðu hamfarirnar: Heimilisofbeldi í kjölfar náttúruhamfara (The hidden disaster: Domestic violence in the aftermath of natural disaster).
Við undirbúning rannsóknar sinnar komst Debra réttilega að því, að til væru engar áreiðanlegar staðtölur, sem bæru vitni áhrifum hamfara á heimilisofbeldi ... [sem] sannreyndi þann grun, að fáir vísindamenn hafi sýnt áhuga á því að skoða kynbundið ofbeldi [ofbeldi karla gegn konum] við hamfarir, þar eð slíkt er hvort tveggja örðugt viðfangsefni úr aðferðafræðilega sjónarhorni og erfitt að koma við.
Og hvaða aðferð ætli Debra hafi beitt til að henda reiður á muldri því, sem heyrst hafði um aukið ofbeldi slökkviliðskarla á hamfarasvæðunum? Hún tók viðtöl við þrjátíu konur, sem buðu sig fram til viðtals, annað hvort um reynslu sjálfra sín eða annarra kvenna. Sömuleiðis átti hún viðtöl við fjörtíu og sjö hjálparliða. Fólk bauð sig fram eftir auglýsingu, kynningu í dreifibréfi eða afspurn. Umræddum vísindamanni komu rýr viðbrögð á óvart, en skýrði takmarkaðan áhuga á rannsókninni með þöggun, þ.e. að fórnarlömbin hefðu verið kúguð til þagnar. Þessi viðtöl, þ.e. óbeinar frásagnir, getgátur og hugboð, eru grundvöllurinn að þeirri niðurstöðu, að slökkviliðskarlar ráðist til grimmdarlegrar atlögu við elskurnar sínar, að hamförum loknum.
Kvenfrelsarar eins og SS, sem vilja sýna fram á, að ofbeldi karla gegn konum aukist við náttúruhamfarir, vísa gjarnan til tíu ára gamallar rannsóknar Julie A. Schumacher og félaga, sem rannsökuðu ofbeldi í nánum samböndum, eftir að fellibylurinn, Katrín (Katrina), reið yfir Louisiana-ríki í BNA.
Í inngangi greinar sinnar segja höfundar m.a.: Þjóðtækt yfirlit frá BNA yfir hjón, bæði sem lifa samvistum eða hafa slitið þeim, og sambúendur, bendir til, að árlega verði tæp 14% kvenna fyrir áþreifanlegu ofbeldi, en rúm 18% karla. Svipuð rannsókn, en miklu minni í sniðum, á hjónum í samvistum og sambúendum, benti til, að tæp 3% kvenna yrðu fyrir umtalsverðu, áþreifanlegu ofbeldi, en tæp 5% karla. Rúm 30% þeirra báru sig illa undan tilfinningalegu ofbeldi síðasta árið, en tæp 47% kvenna. Hvort tveggja karlar og konur, sem orðið hafa fyrir ofbeldi í nánum tengslum, sýna fleiri einkenni um andlega og líkamlega vanheilsu, heldur en fólk flest.
Fátt eitt er vitað um áhrif hamfara á tíðni illsaka í nánum samböndum, jafnvel þótt álag stuðli að því. og hamfarir auki oft kíf fólks, sem fyrir þeim verður. Höfundum er einungis kunnugt um tvær rannsóknir í þessu efni. Önnur þeirra var gerð á konum í kjölfar Floyd fellibylsins í Norður-Karólínu í BNA. Samkvæmt skýrslugjöf tæplega átta hundruð kvenna urðu þær ekki fyrir hamfaratengdu ofbeldi á heimavettvangi. Hin rannsóknin náði til sjötíu og sjö aðilja eða stofnana, sem störfuðu að heimilisofbeldi á hamfarasvæðum. Formælendur þeirra sögðu eftirspurn eftir þjónustu hafa aukist allt að ári eftir, að hamfarirnar voru yfirstaðnar.
Niðurstöður. Áður en rannsóknin átti sér stað höfðu tæp 44% kvenna skýrt frá andlegu ofbeldi, en rétt rúm 45% eftir. Sömu hlutföll fyrir karla voru tæp 37%, sem jukust í rétt rúm 43% hundraði. Áður en flóðbylgjan skall á, höfðu ellefu konur skýrt frá áþreifanlegu eða líkamlegu ofbeldi, en sautján, að þeim yfirstöðnum. Áþreifanlegt ofbeldi var í rannsókninni skilgreint sem að kýla, löðrunga, hrinda, stugga við og grýta hlutum.
Umreiknað hlutfallslega má komast að þeirri niðurstöðu, að umkvartanir sex kvenna nemi aukningu upp á 98%. Þetta er grundvöllurinn fyrir áróðri kvenfrelsaranna um tvöföldum líkamlegs ofbeldis gegn konum við náttúruhamfarir. Ljóst mætti vera, að fullyrðingar kvenfrelsaranna hafa ekki við nein marktæk rannsóknarrök að styðjast.
SS til frekari upplýsingar: Don Dutton er norður-amerískur félagssálfræðingur og langreyndur sérfræðingur á sviði heimilisofbeldis. Hann gerði nýlega samantekt rannsókna á efninu. Hann fjallar m.a.um yfirlitsrannsóknir breska sálfræðingsins, John Archer. Yfirlit hans ná til rannsókna á 65.000 manns. Niðurstöður: Konur eru líklegri til að sýna líkamlegt ofbeldi, heldur en karlar, en munurinn er óverulegur. Heldur fleiri konur leituðu til læknis vegna meiðsla.
Í yfirlitsrannsókn norður-ameríska félagsfræðingsins, Sarah Desmaris, er komist að þessari niðurstöðu: Í raun og sann er það svo, að karlar séu oftar fórnarlömb, heldur en konur ... samkvæmt félagsfræðilegum rannsóknum er það óneitanlega svo, að karlar séu oftar fórnarlömb heimilisofbeldis. Karlþolendur eru 18%, kvenþolendur 13%. Ofbeldiskarlar eru 18%, en ofbeldiskonur 23%.
Í langtímarannsókn Deborah Capaldi á ungum pörum í BNA var niðurstaðan sú, að þegar lögregla var kölluð á vettvang, var karlinn handtekinn í 85% tilvika. Höfundar segja: Þeir karlar, sem handteknir voru fyrir heimilisofbeldi, lifðu í sambandi, sem einkenndist af mikilli andlegri og líkamlegri ýgi af beggja hálfu. Því var ekki sannreynt það viðhorf, að hjón, sem opið beittu hvort annað ofbeldi, lifðu í hjónabandi, sem einkenndist af einhliða ofbeldi karls gegn konu, [þ.e. ofbeldi] feðraveldishryðjuverkamanns eða tilfinningalegs hryðjuverkamanns.
Því má svo við bæta, að hlutfall handtekinna karla við sams konar aðstæður á Reykjanesi er 100%.
Höfundur er ellilífeyrisþegi. Þýðingar eru hans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2020 | 16:59
GRUNNSKÓLAKENNARAR STANDA VÖRÐ UM VELFERÐ BARNA
Greinin birtist í Vikudegi s.l. fimmtudag.
Í umræðunni um vána sem geisir um heimsbyggðina hafa grunnskólarnir oft borið á góma. Skiptar skoðanir eru meðal grunnskólakennara um mikilvægi þess að halda skólastarfinu áfram. Margir óttast smit eða smita börnin. Kannski óþarfa áhyggjur. Í ljós hefur komið að veiran leggst sem betur fer síður á börn. Eins og Kári Stefánsson segir; Númer eitt, börn og unglingar smitast síður en fullorðnir. Ef þau smitast þá veikjast þau jafnframt minna.
Sem trúnaðarmaður í grunnskóla hvatti ég grunnskólakennara með undirliggjandi sjúkdóma að draga sig í hlé, það sama og sóttvarna- og landlæknir gerðu. Ég verð að trúa því að yfirvöld haldi hönd yfir þá kennara sem tóku þá ákvörðun, heilsu sinnar vegna, og hýrudragi þá ekki. Sennilega búið að stoppa þann leka.
Starf grunnskólakennara hefur breyst. Nú er skipulag og framkvæmd kennslu með allt öðrum hætti. Margir ganga svo langt og benda á að hér sé um pössun að ræða. Stangast svolítið á við það sem fræðin halda fram, að allt sem við gerum sé nám. Nemendur fá hvoru tveggja formlegt og óformlegt nám í skólunum í dag.
Nemendur læra um veiru og smit. Nemendur læra um mikilvægi hreinlætis. Nemendur læra að breyta þurfi skólastarfi með litlum fyrirvara. Nemendur læra og upplifa að fullorðna fólkið passi upp á það. Nemendur læra að kennarar séu sveigjanlegir í vinnubrögðum og störfum. Nemendur læra annars konar vinnubrögð við nám, s.s. aukna fjarkennslu. Eldri nemendur læra meira um sjálfstæð vinnubrögð og aukna ábyrgð á eigin námi. Nemendur kryfja eigin styrkleika og veikleika í fjarnámi sem og við breyttar aðstæður. Yngri nemendur halda áfram að læra það sem kennt er í skólum öllu jöfnu, lestur, stærðfræði o.fl. Nemendur sinna líka óformlegtu námi. Sumar námsgreinar breytast eins og íþróttir. Útivera með hreyfingu er meiri nú en áður. Margir kennarar hafa hreyfingu fast í stundatöflunni, bæði inni og úti. Ekkert bannar að kennarar fari í góðan göngutúr með nemendur, læra á nærumhverfið. Hér er ekki um tæmandi lista að ræða. Þegar vorið lætur á sér kræla bætist útikennsla við.
Á krefjandi tímum þarf annars konar hugsun og framkvæmd í grunnskólanum. Það ástand og sú kennsla sem hefur staðið nemendum til boða er krefjandi fyrir kennara. Nemendur þreytast sem og kennarar vegna íþyngjandi en nauðsynlegra reglna sem og verulegra breytinga í skólastarfi. Nú ríður á að starfsmenn sameinist í að létta undir hvor með öðrum, með öllum tiltækum ráðum. Mikilvægt er að aðstoða þann sem óskar eftir hjálp. Við verðum að virða að ekki eru allir jafn sterkir til starfans undir þessu álagi. Það er í lagi að beygja af og óska eftir hjálp. Vænti þess að allir stjórnendur bregðist við slíkum beiðnum.
Kennarar við erum mennsk, ekki ,,súperman úr kvikmynd sem getur bjargað öllu. Betra er að biðja um hjálp fyrr en seinna.
Bæjarfélagið getur lagt sitt að mörkum og óskað eftir bakvarðasveit grunnskólakennara sem eru tilbúnir að koma tímabundið inn til að létta álagi af kennurum. Slíkt er gert innan heilbrigðis- og félagsgeirans. Hér með hvet ég fræðsluyfirvöld á Akureyri að hefja undirbúning að slíkri bakvarðarsveit til að grípa til þegar skólastarf hefst að nýju eftir páskafrí grunnskólanna. Ég hef áhyggjur af að hluti grunnskólakennara snúi ekki aftur eftir páskafrí en vonandi eru þær áhyggjur innistæðulausar.
Samkvæmt orðum sérfræðinga mun þessu ástandi vart linna fyrr en í maí og jafnvel síðar. Því gætum við verið að tala um breytt skólastarf það sem eftir lifir skólastarfsins. Grunnskólakennarar hafa staðið vörð um velferð og heilsu nemenda og skólastarfið. Þeir hyggjast halda því áfram ákveði stjórnvöld að halda skólum opnum.
Ég vil nota tækifærið og þakka stjórnendum Síðuskóla á Akureyri fyrir gott skipulag á óvissutímum. Þeir hafa hlustað á raddir kennarar, bætt og breytt eftir því sem hægt er og létt undir með kennurum. Stjórnendur hafa auk þess séð til þess að starfsmenn fái glaðning með kaffinu af og til, þarf ekki mikið til að gleðja starfsmenn á álagstímum. Vona að kennarar úr öðrum skólum bæjarins hafi sömu sögu að segja.
Ég óska öllum starfsmönnum grunnskólanna gleðilegra páska og minni á mikilvægi þess að hlaða rafhlöðurnar fyrir næstu törn.
-Helga Dögg Sverrisdóttir, grunnskólakennari og trúnaðarmaður í Síðuskóla á Akureyri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2020 | 11:29
Gleymdar stéttir
Í allri umfjölluninni gleymast margar stéttir í amstri dagsins. Vissulega eru hjúkrunarfræðingar í eldlínunni en veiruskrattinn skapar öðrum nýtt vinnuumhverfi. Það gleymist. Hvað með allt rannsóknarfólkið sem vinnur baki brotnu við að greina. Læknar standa líka vaktina á sjúkrahúsum sem og sjúkraliðar. Allt er þetta ein keðja.
Eins og sjúkraliðinn sagði er umönnun og hjúkrun allt önnur í dag þegar ættingjar koma ekki. álagið breytist og ekki síður haldi fólk sig smitað og beri það áfram.
Í leik- og grunnskóla hefur álag aukist til muna. Mest er það þó á yngsta stigi þar sem börnin mæta alla daga í skólana.
Horfum til allra stétta. Allt eru þetta mikilvæg störf á ögurstundum.
![]() |
Þau standa vaktina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2020 | 09:50
Kórónupróf á netinu- ber að vara við slíku
Svikamál spretta upp á Covid tímum. Danir hafa aðvarað landann að kaupa heimapróf sem auglýst er á Internetinu. Gæðin eru ekki góð og geta gefið ranga niðurstöðu.
Prófið byggist á blóðprufu og er auglýst á þennan hátt ,,smá stunga í fingurinn og 10 síðar færðu svar um hvort þú hafir smitast af kórónavírusnum og þar með ónæmur. Allt án þess að yfirgefa heimilið þigg."
Hef ekki heyrt að þessi próf séu til sölu hér en vissulega bera að varast svikahrappa sem spretta upp eins og gorkúlur á þessum síðustu og verstu tímum.
Lesa má nánar um þetta hér á dönsku, https://www.dr.dk/nyheder/indland/sundhedsmyndigheder-fraraader-corona-hjemmetests-brug-pengene-paa-noget-andet
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)