Gleymdar stéttir

Í allri umfjölluninni gleymast margar stéttir í amstri dagsins. Vissulega eru hjúkrunarfræðingar í eldlínunni en veiruskrattinn skapar öðrum nýtt vinnuumhverfi. Það gleymist. Hvað með allt rannsóknarfólkið sem vinnur baki brotnu við að greina. Læknar standa líka vaktina á sjúkrahúsum sem og sjúkraliðar. Allt er þetta ein keðja.

Eins og sjúkraliðinn sagði er umönnun og hjúkrun allt önnur í dag þegar ættingjar koma ekki. álagið breytist og ekki síður haldi fólk sig smitað og beri það áfram. 

Í leik- og grunnskóla hefur álag aukist til muna. Mest er það þó á yngsta stigi þar sem börnin mæta alla daga í skólana. 

Horfum til allra stétta. Allt eru þetta mikilvæg störf á ögurstundum.


mbl.is Þau standa vaktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband