Engan skyldi undra

að heilbrigðisstarfsmenn vilji bara vinna vinnuna sína, ekki aukavinnu. Álag á þessar stéttir hefur verið gífurlegt. Öllum finnst það sjálfsagt. Sjálfstæðisráðherrar hafa látið í ljós óánægju sína í ljós með aðferðir. Samt á veikt fólk að leggjast inn og fá hjúkrun og læknismeðferð. Tvískinnungur.

Stend með heilbrigðisfólkinu okkar. Ákveði það að svara ekki nauðungarkalli verður svo að vera.

Mette forsætisráðherra gekk fram af hjúkrunarfræðingum um daginn þegar Danir hertu aðgerðir. Hún setti lög á verkfall þeirra í sumar. Kröfðust hærri launa enda sýnt það og sannað hve mikilvægt stéttin er. Í ávarpi sagði Mette að nú þyrftu hjúkrunarfræðinnar að leggja sig fram, aðeins meira en venjulega. Hjúkrunarfræðingar í Danaveldi hafa 100 tíma í yfirvinnu vegna kóvíd-veikinda og eru að gefast upp. 

Hér eins og í Danaveldi er hægt að skikka fólk í yfirvinnu sé vá fyrir dyrum. Þannig túlka Danir ástandið.


mbl.is Þykir ekki lengur spennandi að sinna Covid-sjúkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband