Samherjamaskínan...ekki eins saklaus

og hún vill vera láta. Aðkeyptu mennirnir líka, sem þóttust ekkert vita, ekkert sjá ná heyra. Kallast mafía á Ítalíu. Úr Kjarnanum. ,,Í kjölfar birtingarinnar ræddu Arna og Páll saman um að það væri enn nóg til í vopnabúrinu til að nudda RÚV upp úr. Arna skrifaði: „Vona að óskar bubbi og Þorbjörn standi við það sem þeir hafa sagt við þig, að gefa ekki eftir. Við erum búin að stinga. Nú þarf að snúa og svo salta í sárið.“

Siðleysi þessa fólks er með eindæmum. Páll skipstjóri hafði fengið í athugasemd að greinar hans væri of vel skrifaðar til að þær gætu verið eftir hann. Koma á daginn sé rétt farið með í gögnum Kjarnans.

Hér má lesa grein Kjarnans sem byggir á gögnum sem þeir hafa undir höndum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Síðasta atlaga Kveiksmanna rann út í sandinn og skilaði engu, nema skömmum frá siðanefnd RUV. Sannanirnar sönnuðu ekkert, gögnin gagnslaus og niðurstöður Kveiksmanna persónulegar skoðanir úr lausu lofti gripnar. En það var spennandi. Gott sjónvarpsefni að siga Seðlabankanum og löggunni í húsleit og haldlagningu gagna og fá að fara með. Eitthvað sem hægt var að gera marga þætti um og halda lifandi á facebook og víðar þau ár sem árásin stóð. Og ef ein atlaga misheppnast er bara að gyrða sig í brók og hefja aðra. Enda Samherji vinalaus og réttdræpur að mati Kveiksmanna. Og Samherjamenn slá frá sér, verjast af hörku og miskunnarleysi og skortir alla auðmýkt og undirgefni sem bendir til að þeir séu sekir. Meira gott sjónvarpsefni og fóður á samfélagsmiðla.

Vagn (IP-tala skráð) 21.5.2021 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband