Sjálfsagt að Halldóra segi af sér

Það er ekki spurning að Halldóra Mogensen á að segja af sér. Með því sýnir hún ábyrgð í starfi. Reyndar hafa fleiri þingmenn Pírata orðið sér til skammar í þessu máli og nú er tímabært að þeir axli sína ábyrgð á orðum og gjörðum.


mbl.is Tilefni til að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

ÞARNA ættu margir að segja af ser---

Erla Magna Alexandersdóttir, 27.9.2018 kl. 21:10

2 identicon

Skoðun Braga og velferðarráðuneytisins eru ekkert sem kallar á viðhorfsbreytingu og/eða afsagnir hjá Halldóru og Pírötum. Og það er til skammar hvernig hlutverk óháðrar nefndar sem átti að gera úttekt á málinu var þrengt í það að ná aðeins til stjórn­sýslu ráðuneyt­is­ins. Sjálft ráðuneytið tók málið fyrir að nýju en óháðu aðilarnir fengu ekki að taka afstöðu til lögmætis athafna Braga. Pólitískir hagsmunir voru víst of miklir til að setja málið í hendur óháðra aðila. Það stendur því enn, og er jafnvel augljósara en áður, að póli­tísk­ir hags­mun­ir voru sett­ir ofar hag barna og sam­trygg­ing stjórn­mál­anna verið sett ofar góðri og heiðarlegri stjórn­sýslu.

Vagn (IP-tala skráð) 28.9.2018 kl. 02:06

3 identicon

Halldóra Mogensen er ásamt Stundinni sek um brot á lögum um friðhelgi barna með tilraun sinni til að funda í beinni útsendingu frá nefndarfundi um tiltekið barnaverndarmál, og nýta sér trúnaðarskjöl um tiltekið barnaverndarmál í pólitískum tilgangi. Réttur barna til verndar gegn átroðningi á einkamálum þess er varinn í barnasáttmálanum sem er innleiddur hér á landi. Það hvernig Halldóra Mogensen og félagar hennar í nefndinni komu barnaverndargögnum til Stundarinnar er mál sem ætti að sækja fyrir dómstólum enda er þar um refsivert brot að ræða sem liggur við fangelsisvist.

Gunnar Waage (IP-tala skráð) 29.9.2018 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband