Sjálfsagt að Halldóra segi af sér

Það er ekki spurning að Halldóra Mogensen á að segja af sér. Með því sýnir hún ábyrgð í starfi. Reyndar hafa fleiri þingmenn Pírata orðið sér til skammar í þessu máli og nú er tímabært að þeir axli sína ábyrgð á orðum og gjörðum.


mbl.is Tilefni til að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir Halldóra Mogensen ekki af sér

Miðað við djöflaganginn í þingmanninum og ásakanir í garð Braga hlýtur Halldóra Mogensen að segja af sér. Hún sýndi það og sannaði í þessu máli gegn Braga að hún er óhæf til starfans og axlar væntanlega sömu ábyrgð og hún vildi að aðrir gerðu í tilhæfislausum málatilbúningi gegn manninum.


mbl.is Fór ekki út fyrir verksvið sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltof margar stéttir eru í sömu stöðu

Því miður eru margar stéttir í sömu stöðu og hjúkrunarfræðingar. Þarf átak í launa- og vinnuumhverfismálum þessara stétta. Lífeindafræðingar, geislafræðingar, grunnskólakennarar og leikskólakennarar svo ég nefni einhverjar. Ekki má gleyma sjúkraliðum og iðnaðarmönnum sem skortur er á. Þurfum að beina sjónum nema í fleiri áttir.


mbl.is Ójöfn laun á dagskrá í næstum öld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram um móttöku útlenskra barna

Hér að neðan er svar við grein fræðslustjóra Akureyrarbæjar við fyrstu grein minni en fræðslustjóri telur vel á móti börnunum tekið.  https://www.vikudagur.is/is/frettir/akureyrarbaer-tekur-vel-a-moti-erlendum-bornum

Svo rætist hver draumur sem hann er ráðinn. Ekki laust við að mér hafi dottið þetta orðatiltæki í hug eftir að hafa lesið svar fræðslustjóra við grein minni um móttöku útlenskra nemenda. Með sanni má segja að grein mín vakti athylgi, áhuga og umræður. Það er gott. Við lögum ekki það sem við ræðum ekki og vitum ekki um.

Tölfræði og veruleikinn  

Þeir sem aðhyllast tölfræði glöddust yfir svari fræðslustjóra og fínt að hann bætti við mína grein. Tölurnar sem birtust í greininni dreg ég ekki í efa, en ekki er það einum bót þó annar sé verri. Hins vegar má geta að fámennir skólar eins og Finnbogastaðaskóli, skólarnir í Hrísey og Grímsey, og fleiri fámennir skólar, skekkja meðaltal nemenda á hvern kennara hér á landi. Betra er að einbeita sér að hinum einfaldari hliðum málsins og ræða fjölda nemenda á umsjónarkennara á Akureyri. Grunnskólakennarar telja það gefa skýrari mynd af stöðu mála hér í bæ.

Tvítyngi

,,Þegar börn læra fleiri en eitt tungumál verða þau tvítyngd. Sum börn eiga eitt móðurmál sem þau læra hjá foreldrum í heimaranni og bæta síðan öðru tungumáli við, tungumáli samfélagsins. Önnur tileinka sér tvö tungumál samhliða og eiga því tvö móðurmál, oftast vegna þess að foreldrar eru af sitt hvoru þjóðerni. Svo eru börn sem eiga tvö móðurmál og tungumál samfélagsins sem þriðja mál. En oft eru skil á milli tungumála í lífi barna ekki svo skýr” (Sigríður Ólafsdóttir og Freyja Birgisdóttir, e.d.).

Samkvæmt tölum Akureyrarbæjar, Akureyri í tölum- október 2015, eru tvítyngdir nemendur í leikskólum bæjarins á árunum 2006-2014, 667 samtals. Af þessum börnum eru 521 komin inn í grunnskólann. Fjöldi tvítyngra barna er nánast sami fjöldi nemenda og voru í Glerárskóla og Oddeyraskóla á þessum tíma. Þróunin er í takt við tilfinningu og upplifun grunnskólakennara að útlenskum nemendum sem hafa ekki góð eða engin tök á íslensku, mæltu og rituðu máli, fjölgi í grunnskólanum með tilheyrandi erfiðleikum.

Skoðum tölfræðina

Fræðslustjóri upplýsir að 4,4 stöðugildi séu eingöngu vegna útlenskra barna sem er vel, svo langt sem það nær. ,, Í heildina eru því um 4,4 stöðugildi sem eingöngu er ætlað að koma til móts við þarfir erlendra barna.” Hins vegar væri áhugavert að sjá hvernig þessi stöðugildi skiptist á milli grunnskólakennara og stuðningsfulltrúa. Það kom ekki fram. Í ljósi orða fræðslustjóra um fjölda stöðugildi skulum við skoða málið.

Notum tölur sem eru ekki fjarri lagi. Á sjö skóla gera 4.4 stöðugildi um 60% stöðugildi í hvern skóla. Sé um stöðugildi grunnskólakennara að ræða er það fimmtán og hálf kennslustund á viku auk undirbúnings fyrir hverja kennslustund. Gefum okkur að meðalfjöldi útlenskra nemenda sem þarf viðbótar íslenskukennslu sé 15 í hverjum skóla. Út frá gefnum forsendum er ein kennslustund á nemanda í hverri viku. Mörgum kann að þykja vel að verki staðið, öðrum ekki.

Sé um stöður stuðningsfulltrúa að ræða þá er vinnuframlag þeirra í 60% starfi um 24 klst. Rétt rúmar tvær klst. fara í undirbúning sem þeir eiga samkvæmt kjarasamningi (eiga rétt á 4 klst. á viku í 100% starfi). Sé þessum tæpu 22 klst. deilt niður á 15 nemendur er um 1.5 klst. á hvern nemanda hverja einustu viku. Þess má geta að stuðningsfulltrúar eiga ekki að sinna kennslu samkvæmt kjarasamningi þeirra, þeir eru grunnskólakennurum til stuðnings. Feli skólastjórnendur stuðningsfulltrúa íslenskukennslu, eða aðra kennslu, er um brot á kjarasamningi að ræða. Vel í lagt, um það eru menn ekki sammála, sem er í góðu lagi. Þessum 4.4 stöðugildum er ætlað að koma á móts við allar þarfir útlenskra nemenda samkvæmt fræðslustjóra.

Kennslustundir sem bærinn úthlutar

Fræðslustjóri segir í grein sinni, ,,...eru 89 kennslustundir á hverri einustu viku ætlaðar til kennslu erlendra barna í grunnskólum bæjarins...” Eins og í fyrra dæminu gefum við okkur að 15 nemendur séu í hverjum skóla sem þurfa á viðbótar íslenskukennslu að halda. Hver skóli fær rétt rúmar 12 og hálf kennslustund sem deilist á nemendur innan skólans, sem hafa mismikla þörf fyrir íslenskukennslu en allir einhverja. Samkvæmt þessum tölum og skiptingu er tæp kennslustund á nemanda hverja einustu viku. Einhverjum kann að þykja vel í gefið, öðrum ekki.

Ef ég gerist svo djörf að skoða tölur bæjarins í samhengi við fjölda tvítyngdra nemenda á leikskólunum 2015 (521 barn) í tengslum við 89 kennslustundirnar sem ætlaðar eru á hverri einustu viku þá sýnist mér syrta enn frekar í álinn fyrir útlenska nemendur, gefi ég mér að þau þurfi öll einhvern stuðning í íslensku.

Stend við orð kennara

Fullyrðing kennara, að bæjarfulltrúar vilji ekki gera betur, er sett fram eftir samtal við grunnskólakennara sem hafa fengið þau svör að ekki sé hægt að bæta við t.d. íslenskukennslu eða stuðningi í bekk þar sem ekki fást fleiri tímar. Þar sem kjörnir fulltrúar deila út peningum bæjarins er ekki flókið að sjá hver stjórnar og tekur ákvörðun. Hvort formleg beiðni hafi borist til kjörinna fulltrúa um aukið fjármagn skal ósagt látið en það er í höndum stjórnenda. Kannski hefur sú beiðni ekki litið dagsins ljós.

Ekki er hægt og það á ekki að draga einhvern einn til ábyrgðar í svo viðamiklum málaflokki. Við sem störfum í skólakerfinu eigum öll okkar þátt í að málaflokkurinn sé ekki í betri farvegi en raun ber vitni samkvæmt grunnskólakennurum. Eftir höfðinu dansa limirnir og við grunnskólakennarar þurfum að kryfja okkar þátt.

Skólafólk fagnar að stjórnendur bæjarins úthluti stuðningstímum til þeirra sem hafa ekki greiningu, eins og fram kom í grein fræðslustjóra, því vissulega þarf einhver hluti nemenda stuðning þó greining liggi ekki fyrir. Og ekki er hægt að fá greiningu á allt. En, það er ekki þar með sagt að það sé nóg, enda kemur hvergi fram hve tímafjöldinn er á þá 10 skóla sem bærinn rekur. Það er trú mín að við náum árangri með því að brjóta efnið til mergjar frá öllum sjónarhornum. Útlenskum nemendum hefur fjölgað á Akureyri og margir grunnskólakennarar eru þeirrar skoðunar að skólakerfið hafi ekki mætt fjölguninni nægilega vel. Sérgreinakennarar fá mjög sjaldan stuðning í kennslu vegna nemenda, hvað þá útlenskra enda sýna tölur fræðslustjóra að ekkert svigrúm er til þess eigi að nota tímana í íslenskukennslu.

Nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku, sérstaklega tungumál af öðrum stofni, þurfa nokkuð mörg ár til að ná þeirri færni í íslensku sem skólakerfið krefur þau um. Hvergi má slá slöku við í íslenskukennslu og stuðningi við þessa nemendur á meðan skólaganga þeirra stendur yfir, hvort sem það er eitt ár eða tíu. Víða erlendis eru sérmenntaðir kennarar ráðnir til að sjá um kennslu barna sem eiga annað móðurmál en er talað í landinu sem þau búa. 

Ég tel að góður stjórnandi og yfirmenn menntamála ættu að fagna þegar skoðunum er komið á framfæri um það sem betur má fara í grunnskólum. Góður stjórnandi, að mínu mati, myndi setjast niður með starfsmönnum sínum og spyrja út í hvar skóinn kreppir, hvað þarf til að bæta vinnuumhverfið í kringum málaflokkinn og svo framvegis. Stór þáttur í vellíðan á vinnustað ásamt sveigjanleika. Mér skilst á fræðunum að til séu margir stjórnunarhættir og því vinnum við undir ólíkri stjórnun.

Að lokum. Ég fagna lokaorðum fræðslustjóra um að betur megi gera í málaflokknum og því hvet ég forsvarsmenn bæjarins að kryfja málið til mergjar og hafa grunnskólakennara með í þeirri krufningu.

Helga Dögg Sverrisdóttir, grunnskólakennari og varaformaður BKNE

Heimild:

Akureyri í tölum. 3. tölublað. Sótt 18. sept. 2018 af https://www.akureyri.is/static/research/files/sept2015pdf

Sigríður Ólafsdóttir og Freyja Birgisdóttir (e.d.). Tvítyngi og læsi. Sótt 18. sept. 2018 af http://lesvefurinn.hi.is/node/147


Læknar þurfa ekki að tala íslensku

Mér þykir það merkilegt að krafan um íslenskukunnáttu sé ekki fyrir hendi hjá læknum en dýralæknar hafi hins vegar þurft að hafa íslenskuna. Ekki er öll vitleysan eins.


mbl.is Þurfi ekki að tala íslensku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grunnskólar myndu næstum tæmast...en!

Því miður finnur enginn fyrir því, nema kennarar sjálfir, að konur leggja niður vinnu á þessum tíma dags. En vissulega finna margir vinnustaðir fyrir því láti konur vaða.


mbl.is Konur hvattar til að ganga út 24. október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TEKUR AKUREYRARBÆR VEL Á MÓTI ÚTLENSKUM GRUNNSKÓLABÖRNUM?

Í spjalli sem ég átti við Leif Hauksson í þættinum Samfélagið í nærmynd vakti ég athygli á stöðu útlenskra grunnskólabarna. Vegna ummælanna hef ég verið spurð hvað ég hafi átt  við. Það er auðvelt að útskýra.

Ég vel að taka tilbúið dæmi um nemanda sem flytur frá Úkraínu til Akureyrar. Hann ásamt fjölskyldu á lögheimili í bænum og fer í hverfisskólann, gef mér að hann fari í 5. bekk og tali ekki ensku. Hafi nemandi ekki greiningu á hann ekki rétt á stuðningi. Honum ber því að sitja sömu kennslustundir og íslensku nemendurnir. Hann fær nokkra tíma aukalega í íslensku á viku og er þá tekinn út úr bekknum, oftar en ekki einn. Það er gert á meðan þjónusta bæjarins er í boði. Alla hina tímana situr nemandinn með bekknum þar sem íslenska er töluð og hann skilur ekki það sem fer fram. Sveitarfélagið setur það á herðar grunnskólakennara að finna út hvað og hvernig eigi að kenna umræddu barni og á hvaða tungumáli. Þar sem nemandinn fær ekki stuðning situr hann kennslustundir í samfélagsfræði, stærðfræði, ensku, náttúrufræði, list- og verkgreinum og öðrum fögum sem eru kennd, allt á íslensku að sjálfsögðu. Ef við setjum okkur í spor barnsins hlýtur vanlíðan vera það fyrsta sem fólki dettur í hug. Að sitja hverja kennslustundina á fætur annarri án þess að skilja orð hlýtur að vera erfitt, hvað þá fyrir ungan nemanda.

Grunnskólakennarar hafa tekið á móti útlenskum börnum með opnum örmum og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að öllum nemendum líði vel. Það er sárt að horfa upp á vanlíðan í andliti og líkamsmáli útlendra nemenda sem eru í þessari stöðu. Stundum bregður svo við að hegðun versnar sem afleiðing af vanlíðan í skólanum. Kemur ekki á óvart. Þó svo kennarinn hafi vilja til að sinna nemandanum betur er það ekki í boði, aðrir bíða og allir hafa sama rétt á aðstoð frá kennaranum sínum. Grunnskólakennari sem fær útlenskan nemanda í bekk fær hvorki aukinn undirbúningstíma eða kennsluafslátt til að undirbúa og hanna námsefni fyrir nemandann. Hugsið ykkur ef þeir væru tveir í bekknum frá sitt hvoru landinu. Kennari þarf að nota tíma til að finna út hver staða nemandans er og það er ekki gert nema nægur tími sé til þeirrar vinnu. Hafi kennari ekki tíma til að vinna þá vinnu á að leggja hana til hliðar. Sé það ekki gert er það á kostnað hinna barnanna og við bætist við vinnutíma kennara án greiðslu. Skólakerfi hinna ýmsu landa er ekki eins og okkar og því ekki á vísan að róa um stöðu barns þó það sé jafngamalt bekkjarfélögunum. Vinnutími sem tengist útlenskum nemendum er vanmetinn af forsvarsmönnum bæjarins ef hann er á annað borð eitthvað metinn.

Umræða um brottfall nemenda í framhaldsskóla er viðvarandi umræðuefni. Nemendur sem hafa útlenskan bakgrunn eru þar í meiri hluta. Kemur engum á óvart. Íbúðarblokk með veikar undirstöður er líkleg til að hrynja á einhverjum tímapunkti og um það geta allir verið sammála og það sama hlýtur að gilda um börnin. Sé menntagrunnur nemenda ekki góður er ekki hægt að ætlast til að þau byggi ofan á hann sem nokkru nemi. Málaflokkurinn ,,útlenskir nemendur og þarfir þeirra“ þarfnast endurskoðunar hjá bæjarfélaginu og kannski fleirum.

Hver tekur ákvörðun um að útlenskir nemendur fái ekki aðstoð til að aðlagast íslensku skólakerfi? Eftir því sem ég best veit er ákvörðun sveitarstjórnarmanna. Þeir stjórna með fjármagninu. Þegar grunnskólakennarar leita á náðir stjórnenda er svarið oftar en ekki að fjármagnið sé ekki til og því ekki hægt að bæta við starfsfólki vegna útlenska barnsins, rýmka tíma kennarans eða greiða aukalega fyrir viðbótarvinnu. Með það í farteskinu er öll vinnan og ábyrgðin komin á herðar grunnskólakennarans. Aukið álag.

Til að svara spurningunni sem felst í fyrirsögninni þá er einfalda svarið, NEI.

Helga Dögg Sverrisdóttir, grunnskólakennari og varaformaður BKNE.


Í upphafi skólaárs- grunnskólakennarar hugsið ykkar gang!

Grunnskólar bæjarins eru hafnir. Sumum til gleði, öðrum til leiða. Um það er ekki spurt, við höfum starfsár sem þarf að fara eftir. Grunnskólakennarar eru væntanlega eina stétt bæjarins sem fær ekki greidda yfirvinnu, nema fyrir forfallakennslu að sjálfsögðu, en skilar oft fleiri tímum en þeir eiga að gera.

Vinna grunnskólakennara er víðfeðm og ekki hægt að búa til einfaldan ramma sem passar öllum. Grunnskólakennarar hafa gert sitt besta til að sinna nemendum sínum, foreldrum og bæjarfélaginu. Fyrir nokkrum árum ákváðu fulltrúar bæjarins að grunnskólakennarar notuðu vinnustund. Það er tæki sem mælir vinnuframlag starfsmanna en greiðir ekki samkvæmt því, allavega ekki grunnskólakennurum. Mikil óánægja er með þá ráðstöfun bæjarins. Forsvarsmenn bæjarins virðast hafa tekið einhliða ákvörðun, grunnskólakennurum er ekki greitt aukalega þrátt fyrir aukið vinnuframlag. Forsvarsmenn bæjarins hafa líka tekið þá ákvörðun að ekki skuli greiða aukalega fyrir stigsstjórn eða formennsku í vinnufrekum nefndum, s.s. umhverfisnefnd. Allt á þetta að rúmast innan hefðubundins vinnutíma.

Vinnutími grunnskólakennara er annar en venjulegs launamanns. Grunnskólakennari þarf  að skila tæpum 43 stundum á viku til að vinna upp í haust- jóla- vetrar- og páskafrí. Þeir fá ekkert gefið eins og margir vilja halda fram. Grunnskólakennarar eins og aðrar stéttir vinna fyrir sínum fríum. Hins vegar fá grunnskólakennarar ekki að velja fríin sín, sveitarfélagið ákveður þau. Grunnskólakennari á að sinna endurmenntun, 102-150 stundum eftir orlofsrétti, sem bætist við vinnuframlagið. Grunnskólakennari skilar 1800 vinnustundum á ári.

Grunnskólakennarar eru þeir einu sem geta passað upp á vinnutímann sinn. Geri þeir það ekki gefa þeir bæjarfélaginu vinnu sína. Engin ástæða til þess. Grunnskólakennari sem vinnur mörg ár umfram lögboðins vinnutíma brennur út, því álag er mikið í kennslu. Við þekkjum öll að við fall á loftþrýstingi í flugvél setjum við grímuna fyrst á fullorðna fólkið og svo á börn séu þau með í för. Það er gert til að við séum í ástandi til að aðstoða þau. Sama má segja um kennara, hugsaðu fyrst um þig svo þú getir hugsað um nemendur þína.

Ágæti grunnskólakennari taktu málið í eigin hendur, skerðu niður verkefni, lengdu tíma yfirferða á verkefnum nemenda, settu foreldrum skorður og farðu ekki í vinnupóstinn eftir að vinnu lýkur eða áður en hún byrjar. Svaraðu aldrei á snjáldursíðu utan vinnutíma hafi bekkurinn eina slíka, hvað þá smáskilaboðum eða símtali. Skoðaðu heildarskipulagið og sjáðu hvort ekki megi sleppa eða breyta einhverju þannig að verkefnin falli innan vinnustundarinnar.

Öll vinna grunnskólakennara á að rúmast innan tæpra 43 stunda vinnuviku!

Njótið skólaársins.

Helga Dögg Sverrisdóttir, grunnskólakennari og varaformaður BKNE.


Ekkert minnst á launin

Launin eru ekki til umræðu þó vitað sé að þau eru helsta ástæða þess að fólk ræður sig ekki á leikskóla. Já menn fara eins og köttur í kringum heitan graut. Var það ekki þessi meirihluti sem lagði mikla áherslu á að bæta í laun kvenna, sem aðallega vinna þessi störf. Minnir það.


mbl.is Hafa ráðið í 97,5% stöðugilda leikskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband