Framafemínisti

Góð grein um framafemínista. Greinarhöfundur, sem er kona, segir alla þekkja veginn að velgengni og áhrifum. Sama leið sé fyrir konur og karlmenn, þeirra er valið. Sammála skrifum hennar. Eins og í Danaveldi eiga bæði konur og karlar rétt á veikindadögum barna. Framafemínistinn heldur því fram að konan þurfi alltaf að taka veikindadaga barns en greinarhöfundur bendir á að slíkt sé samkomulag innan fjölskyldunnar.
 
Það væri óskandi að konur sem eru þessarar skoðunar kæmu henni á framfæri í fjölmiðlum hér. Vantar jafnvægi við þá umræðu að kona sé eins og viljalaust verkfæri í höndum karlmanna þegar kemur að ákvörðun um frama og völd. Við þurfum ekki annað en horfa á stjórnmálaflokkana, félagsmenn fá ekki að velja á lista því konur hafa talið mönnum trú um að framboðslisti sé ekki frambærilegur nema kynin skiptist á um sætin. Hér eru verðleikar einstaklings einskins metnir. Það er slæmt. Nú síðast heyrði ég að Félag framsóknarkvenna fari fram á breytingar á listum til að kynjaraða inn á lista. Þær falla í sömu gryfju og margir aðrir hafa gert.
 
,,Karrierefeministerne søger forudbestemte udfald, og respekterer derfor ikke kvinders frie valg, og indfører i stedet politiske løsninger.
Som både mor, ægtefælle, erhvervsleder og liberal er min position klar: Der findes mange veje til det gode liv. Lad hver kvinde finde sin egen."
 
Framafemínistinn sækir í fyrirfram gefna niðurstöðu og virða ekki val kvenna og því vilja þeir nota stjórnmálin til að ryðja brautina.
Hún segir sem mamma, eiginkona, stjórnandi og lýðræðissinni er staðan hennar ljós. Það eru margar leiði að hinu góða lífi. Leyfið hverri konu að ákveða fyrir sig.
 
Hér má lesa greinina.

Ein af reglunum,

leggðu líf þitt ekki í hættu. Sú regla er boðuð í námi björgunar- og slysavarnadeilda Landsbjargar. Hafir þú komið sjálfum þér í hættu sem björgunaraðili hjálpar þú engum. Geðræðislegar ákvarðanir einstaklinga við gosið er á þeirra ábyrgð.

Þegar rafskútufaratækin voru rædd í sjónvarpinu um daginn kom skýrt fram frá eiganda hjólanna að fólk bæri ábyrgð á eigin hegðun, boð og bönn ættu ekki við. Fræðsla. Forvarnir. Sama upp á teningnum við gosið. Björgunarsveitamenn hafa staðið sig vel.

Vona að engum björgunarsveitarmanni detti í hug að hætta lífi og limum fyrir vitleysinga sem sækja gosið heim.


mbl.is Fórni ekki lífi sínu til bjargar þeim sem fara upp á hraunið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilegt til þess

að hugsa að farga þurfi dýrmætu bóluefni. Heppni að stutt sé á milli staða og hægt að nýta efnið. Meðan margar þjóðir hafa ekki nóg virðumst við vera í forréttindahópi. Lendum í vandræðum með afgang af bóluefni. Menn mæta ekki í bólusetningu! Landinn tekur sig vonandi á næstu daga þegar bólusetning verður í boði.


mbl.is Keyrðu skammtana í Reykjanesbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sekkur dýpra

Merkilegt að koma með endalausar afsakanir. Engin málefni rædd. Af hverju á Samherji svona mörg skúffufyrirtæki í skattaparadísum, hefur Þorsteinn útskýrt það. Af hverju tóku þeir upp veskið og greiddu á 4 tug milljóna til Færeyja eftir þáttinn sem þar var sýndur, komið útskýring af hverju allt í einu þá skuldaði fyrirtækið skatta til eyjanna. Lengi mætti áfram telja.

Held að þorri almennings hafi fyrir löngu síðan misst traust og trúnað á það sem frá Samherjamönnum kemur. Af hverju þráast Þorsteinn Már við, ómögulegt að segja. Dómstólar munu leiða í ljós hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Hér á landi gengur rannsókn mála gegn Samherja ansi hægt, en vonandi fær það endi. 

Samherjamenn hafa lagt sig í líma við að kenna einum manni um það sem gerðist í Namibíu. Sem stjórnandi fyrirtækisins ber hann ábyrgð, líka á þeim sem hann hefur gert að blóraböggli til að hreinsa sjálfan sig. Aðferðir hans valda velgju.

Stundum er betra að þegja en segja. Í tilfelli Samherja held ég að það eigi ágætlega við.


mbl.is Biðst afsökunar fyrir hönd Samherja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kynin eru ólík

frá náttúrunnar hendi. Byggt á rannsóknum. Munurinn finnst í öfgum segir Bergsveinn. Kvenna- og karlaströrf myndast vegna þess að kynin eru ólík. AF hverju fylla karlar fangelsin? Gaman að hlusta á viðtalið við Hermund og Bergsvein. Áhugamál karla og kvenna eru ólík. Hlustið, Harmageddon - Líffræði skýri muninn milli kynja - Útvarp - Vísir (visir.is)


Klux, klux, klan nútímans!

Hlustaði á gott viðtal við rithöfund, Rúnar Helga, sem gagnrýnt hefur hegðun fólks á netinu í tengslum við aftökur, bæði innan og utanlands. Viðtalið kemur í kjölfar greinar sem hann skrifaði. Hegðun og aðferðir margra netverja minnir á margt um aðferðir klux, klux, klan (mín orð) sem menn fordæmdu og fordæma enn. Sú aftaka sem netverjar fremja gegn ákveðnum einstaklingum er í takt við einelti sem við fordæmum. Slíkt aftaka er á þeim forsendum að þeir telja, halda og fá veður af án sannanna. Nethópar sem hafa markmiðið að níða skóinn af öðrum eru varhugaverðir. Þeim mislíkar dómskerfið en taka það út á einstaklingi oft með skelfilegum afleiðingum.
Því miður rísa of fáir upp gegn þeirri herferð sem samfélagshópar hafa hrundið af stað og beinist t.a.m. gegn ákveðnum einstaklingum, án dóms og laga. Sama í útlandinu. Lífsviðurværi þeirra er tekið af þeim, mannorð og þeir lagðir í einelti. Rúnar Helgi tekur gott dæmi um að safnist fólk að þeim sem hefur sagt eitthvað, hóti honum eða sýni ögrandi hegðun sé það ofbeldi. Er því öðru vísi farið í netheimum, það má spyrja sig. Þegar menn safnast að heimili stjórnmálamanna með dólg þykir öllum nóg um. Þegar netverjar níða skólinn af einstaklingi í netheimum virðist það ekki eins slæmt. Í reynd sami gjörningur.
 

Má nýta menntun sjúkraliða

betur en nú er gert. Margir hafa eytt þremur árum í að mennta sig til hjúkrunarstarfa en eru nýttir í þrif, þvotta og bakstur. Illa farið með góða hjúkrunarmenntun. Vonandi sjá nýir eigendur ástæðu til að nota sjúkraliða betur en gert var á Hlíð og Lögmannshlíð. 

Sjúkraliðar eru menntaðir til að sinna fjölþættum hjúkrunarstörfum og margir hafa bætt við sig í formi endurmenntunar heilmikilli þekkingu sem ekki er nýtt sem skildi.

Verður forvitnilegt að fylgjast með þróuninni.


mbl.is Hópuppsagnirnar komu ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínt að ná í skottið

á þeim sem höfðu ekki fyrir því að sækja um tilskilin leyfi og greiða skatta af tekjunum. Dæmi var um að menn flyttu í sumarbústað til að leigja íbúðina út. Menn fluttu til foreldra sinna til að leigja íbúð út. Alls konar útfærslur af þessum bransa. Margir talið sig óhulta af því fyrirtækið gaf ekki upp tekjur þeirra. Nú hins vegar getur það breyst í martröð hjá mörgum að hafa ekki farið að lögum. Stundum kemur það í bakið á mönnum.

Fátt eðlilegt við að menn þéni um 2 milljónir á ári vegna útleigu og greiða ekki skatta af þeim fjármunum. Hótel- og gistieigendur komast ekki hjá þessum greiðslum og því eiga menn sem reka húsnæði sitt sem gistiheimili ekki að slappa því heldur.

Vonandi taka yfirvöld fastar á málunum nú þegar fyrirtækið Airbnb er skyldugt að gefa upp greiðslur til Íslendinga.


mbl.is Grunur um stórfelld skattalagabrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæður bindast böndum

og full þörf á. Sú fæð sem lögð eru á drengi er með ólíkindum. Á þá dynur trúboð. Drengir eru kúgarar, þuklara, ofbeldismenn og nauðgarar. Skiptir engu sekt eða sakleysi. Í Ástralíu var drengjum gert að biðja afsökunar á hegðun fárra karlmanna og voru það stúlkur sem áttu að fá afsökunarbeiðnina. Við höfum ekki gengið svo langt en litlu munar.

Mannorðsmorð eru framin hér á landi og fáir sporna við því. Stúlkur í hefndarhug skulu ná sínu fram. Fjölmiðlar leggja fæð á þá sem hoppa ekki á já- vagninn og gleypa við öllu.

Löngu vitað að hafi einhver gerst brotlegur og afsökunarbeiðni dugar ekki á að sækja viðkomandi til saka, karl eða konu.

Hér má sjá þátt mæðra sem hafa fengið meira en nóg af áróðri gegn drengjunum þeirra. Hvet fólk til að horfa. Skyldu við hér á Fróni verða vitni af slíkri umhyggju mæðra, spurning. Campaign to stop boy shaming in schools - YouTube


Gleðilega hátíð

sjómenn og fjölskyldur. Víða um land halda menn sjómannahátíðir með ýmsu sniði. Flestir bæjarbúar eru hvattir til þátttöku. Í mörgum bæjarfélögum hafa sjómannahátíðir breyst og ekki svipur hjá sjón víða. Allt er breytingum háð, líka Sjómannadagurinn.

Norðan heiða er gott veður og kjörið til útivistar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband