Mæður bindast böndum

og full þörf á. Sú fæð sem lögð eru á drengi er með ólíkindum. Á þá dynur trúboð. Drengir eru kúgarar, þuklara, ofbeldismenn og nauðgarar. Skiptir engu sekt eða sakleysi. Í Ástralíu var drengjum gert að biðja afsökunar á hegðun fárra karlmanna og voru það stúlkur sem áttu að fá afsökunarbeiðnina. Við höfum ekki gengið svo langt en litlu munar.

Mannorðsmorð eru framin hér á landi og fáir sporna við því. Stúlkur í hefndarhug skulu ná sínu fram. Fjölmiðlar leggja fæð á þá sem hoppa ekki á já- vagninn og gleypa við öllu.

Löngu vitað að hafi einhver gerst brotlegur og afsökunarbeiðni dugar ekki á að sækja viðkomandi til saka, karl eða konu.

Hér má sjá þátt mæðra sem hafa fengið meira en nóg af áróðri gegn drengjunum þeirra. Hvet fólk til að horfa. Skyldu við hér á Fróni verða vitni af slíkri umhyggju mæðra, spurning. Campaign to stop boy shaming in schools - YouTube


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Svo lengi sem konur eins og þú og margar fleiri hafið báða fætur á jörðinni í kjölfari róttækra þjóðfélagsbreytinga, þá er ástæða til að vona að þetta augljósa hatur og hefnigirni forsmáðra femisista sem nú ríður yfir, líði hjá líkt og raunin varð um McCarthyismann og svokallaða menningarbyltingu Maos.

Jónatan Karlsson, 12.6.2021 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband