29.8.2008 | 09:41
Hlíð á Akureyri
Ósköp er að heyra þetta. Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri er í sömu stöðu og Seljahlíð, nema hvað á Hlíð er tekið fagnandi á móti þessu fólki. Engin vandamál hafa komið upp þegar ófaglærðir verða sjúkraliðar, því oftar en ekki eru þetta konur sem taka nám með vinnu. Þar á bæ er talið æskilegt að hafa sjúkraliða í vinnu, fáist þeir til starfa.
Stefna Seljahlíðar er alveg á skjön við það sem stjórnvöld vinna að, þar sem hvetja á fólk til náms sem hefur litla grunnmenntun.
Ragnheiður Guðmundsdóttir augnlæknir frumkvöðull sjúkraliðamenntunar sagði fyrir rúmum fjórum áratugum ,,betra sé að hafa lærðan en ólærðan" við hjúkrun. Þessi lífssýn á við enn þann dag í dag. Hvet stjórnendur Seljahlíðar að kippa málinu í liðinn.
Fá ekki að vinna sem sjúkraliðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.