Mynd sem reynt er að banna- sannleikurinn má víst ekki heyrast!

Lesbíur hafna að karlmaður sem skilgreinir sem sem konu fá þau réttindi sem stúlkur og konur hafa, s.s. íþróttir, sama baðklefa, fangelsi, sömu klósett.

Bent er á að karlmaður sem skilgreinir sig sem konu getur ekki verið móðir og enn síður lesbía. Til að vera móðir þarf leg og eggjastokka. Karlmaður hefur hvorugt.

Bent er á kröfuna sem sett er á skólana að kenna um fleiri en tvö kyn, sem er greræðisleg. Líffræðin er skýr, það eru tvö kyn. Hugurinn hins vegar getur gert hvað sem er við fólk.

Talað er um pólitíkina, villigöturnar sem hún er á í samabandi við málaflokkinn.

Við erum minnt á þegar konur gerðust slökkviliðsmenn, þá átti að aðgreina salernin. Eru enn á því.

Hlustið á myndina, er á ensku. Hefur kvissast út að reynt sé að fá bann á myndina.

Hér er Christine Ellingsen á fundi kvenna á Írlandi sem passa upp á réttindi stúlkna og kvenna.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loncexter

Þegar þú setur rafmagnsnúru í bíl, er hann rafmagnsbíll. Ef þú setur bensin á bíl er hann bensínbíll.

Vonandi nær ruglið ekki meiri tökum á mannkyni en komið er, því þá er hætta að einhver setji rafmgnstengi við bensínbíl, og þá verður ,,big bang" og ekki verður bangið minna ef bensín fer í rafmagnsbíl !

Loncexter, 16.12.2022 kl. 16:47

2 identicon

Hann er margur sannleikurinn sem sagt er að ekki megi heyrast. Sannleikurinn um bóluefni, sannleikurinn um lendinguna á tunglinu, sannleikurinn um Elvis, Stórfót og morðið á Kennedy og dauða Díönu prinsessu. Sannleikurinn um árásina á tvíburaturnana, sannleikurinn um Paul McCartney, Sjálfstæðisflokkinn, alheimssamsæri Gyðinga, ofurlaun og fjögurra mánaða sumarfrí kennara, og eðlufólk utan úr geimnum í öllum ríkisstjórnum. Það eru víst margir sem sjá ekki mun á skoðun og sannleik.

Vagn (IP-tala skráð) 16.12.2022 kl. 18:18

3 Smámynd: Loncexter

Þeir sem eiga stærstu fjölmiðlana stjórna því nokkuð hvað er í loftinu. Ef þeir t.d taka sig saman um að þegja um að Kristur komi aftur, mun meginþorri manna ekki vera tilbúin þegar hann kemur, og því mun meginþorrinn aldrei sjá hina Guðlegu himnaparadís með alla sýna dýrð og dásemdum.

Loncexter, 17.12.2022 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband