Sá eftir kynréttingaferlinu og

varar ungmenni við að feta í fótspor sín fyrr en þau verða fullorðin. Kynskiptaferli er ekki alltaf eins og blómstrið eina. Því miður heyrum við ekki mikið um þessa hlið málsins hér á landi. Minnihlutahópar eru duglegir að þagga þá umræðu niður og kalla alla, sem hefja umræðu á málefninu, fordómafulla og þeir beri hatur í brjósti til transfólks. Í meira lagi furðulegar fullyrðingar. Því meiri umræða um allar hliðar málsins því betra. Ekkert að því að ræða málið frá öllum sjónarhornum. Hefur ekkert með fordóma að gera.

,,I really didn’t understand all of the ramifications of any of the medical decisions that I was making," Chloe Cole, 17, said at a public hearing Friday. She said she was medically transitioned from ages 13 to 16, taking so-called puberty-blocking drugs and testosterone, and undergoing surgery to remove her breasts at age 15. "I was unknowingly physically cutting off my true self from my body, irreversibly and painfully."

California ex-trans teen backs Florida ban on Medicaid funds for transgender medical interventions | Fox News

 

Bretar hafa stoppað með dómi kynbælandi lyf fyrir unglinga, þar verða börn að bíða þar til þau verða fullorðin.

Briterne træder på bremsen med hormoner til transkønnede | Kristeligt Dagblad (kristeligt-dagblad.dk)

Karólínska sjúkrahúsið í Svíþjóð hættir kynbælandi hormónameðferðum.

Karolinska stoppar hormonbehandling av barn med könsdysfori | SVT Nyheter


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Reynslusögur eru vinsælar. Sama hvort verið er að selja fæðubótarefni, trúarskoðun eða pólitíska stefnu. Einhver sem sér eftir kynleiðréttingarferli, fóstureyðingu, pabbahelgum, brjóstastækkun, lántöku, o.s.frv. Og eins er vinsælt að benda á sjúkrahús þar sem stjórnendur hafa ákveðið að hætta þátttöku í kynleiðréttingaferlum og ríki sem hafa bannað fóstureyðingar. Látið er eins og það séu gjaldgeng rök sem sanni réttmæti þeirrar skoðunar sem viðkomandi heldur á lofti. Og þegar ekki er tekið mark á sögunum og farið fram á að umræðan fari fram á vitrænni nótum er talað um tilraun til þöggunar.

Þér þætti það ekki málefnaleg umræða ef í hvert sinn sem þú bloggar um tálmun væru svörin hryllingssögur af pabbahelgum og upptalning á þeim embættismönnum, ráðamönnum og ríkjum sem telja tálmun hið besta mál. Þig mundi sennilega fljótt gruna að fordómar frekar en fróðleikur lægi þar að baki þó sögumenn segðu "Hefur ekkert með fordóma að gera".

Vagn (IP-tala skráð) 12.7.2022 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband