Hanna Björg varpaði skugga á

kennarastéttina í Kastljósi í gær. Hún er hrokafull og telur sig vita mest og best. Hún neyddist til að biðja afsökunar á framferði sínu í Kastljósþættinum í gær. Bjarga eigin skinni.

Hanna Björg er svo upptekin af feðraveldinu og ofbeldi karlmanna að öll skynsemi er farin út í veður og vind. Hanna talaði í gær eins og grunnskólinn væri ekki starfi sínu vaxinn, eða grunnskólakennara, til að sinna kynfræðslu eins og hún vill sjá hana. Aumt er það! 

Heyri á fólki, í meira mæli en áður, að það er komið með upp í kok af málflutningi þessarar konu. Komið tími á hvíld hjá henni. Hanna skemmir jafnvel meira en hún gerir gagn. Margir löngu hættir að lesa og hlusta á hana. Heggur í sama knérunn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband