Karl Frímannsson fræðslustjóri

Akureyrar gekk fram af mörgum grunnskólakennurum í viðtali við fréttastofu Ruv í gærkvöldi. Þar segir hann rakningateymið gangi of langt með aðgerðum sínum um sóttkví á Akureyri. Hann segir meira að segja að reglum hafi verið breytt.

Sem betur fer tjáði sig fróðara fólk um málið. Hjördís Guðmundsdóttir segir í útvarpsfréttum að við hópsýkingum sé verklagið eins og á Akureyri. Sjá hér. Hjördís segir, „Ástæðan fyrir fjöldanum sem fór í sóttkví var einkennasaga margra, fjöldi bekkja og skóla sem voru undir. Útbreiðslan var orðin mikil." Takk segja kennarar, slakið í engu á þrátt fyrir ,,væl" fræðslustjóra Akureyrar.

Þess skal getið að kennarar sem eru innan um smituð börn og eru í hættu á að smitast urðu hissa á öðrum Karls. Hann sjálfur fór í skjól, í formi heimavinnu, þegar sóttvarnaaðgerðir stóðu sem hæst. Það gátu kennarar ekki. Karl getur valið hvern hann er í samskiptum við, tekið fjarfund þegar honum hentar, ekki kennarar. Þeir þurfa að kenna nemendum sínum í skólanum.

Karl segir í fréttinni ,,við þurfum bara að umgangast með þeim hætti." Samt finnst honum sjálfsagt að kennarar láti þetta yfir sig ganga. Hann les rangt í stöðuna og kennarar vilja harðar sóttvarnaraðgerðir þegar hópsmit er í gangi. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband