15.6.2021 | 09:25
Fínt að ná í skottið
á þeim sem höfðu ekki fyrir því að sækja um tilskilin leyfi og greiða skatta af tekjunum. Dæmi var um að menn flyttu í sumarbústað til að leigja íbúðina út. Menn fluttu til foreldra sinna til að leigja íbúð út. Alls konar útfærslur af þessum bransa. Margir talið sig óhulta af því fyrirtækið gaf ekki upp tekjur þeirra. Nú hins vegar getur það breyst í martröð hjá mörgum að hafa ekki farið að lögum. Stundum kemur það í bakið á mönnum.
Fátt eðlilegt við að menn þéni um 2 milljónir á ári vegna útleigu og greiða ekki skatta af þeim fjármunum. Hótel- og gistieigendur komast ekki hjá þessum greiðslum og því eiga menn sem reka húsnæði sitt sem gistiheimili ekki að slappa því heldur.
Vonandi taka yfirvöld fastar á málunum nú þegar fyrirtækið Airbnb er skyldugt að gefa upp greiðslur til Íslendinga.
Grunur um stórfelld skattalagabrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það versta við þetta er hversu slæm áhrif þessi ólöglegi atvinnurekstur í íbúðarhúsnæði hefur á húsnæðismarkaðinn með því að taka fjölda íbúða af leigumarkaði og skapa húsnæðisskort.
Guðmundur Ásgeirsson, 15.6.2021 kl. 14:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.