Takmarka setu þingmanna

Forsætisráðherra ætti að leggja til takmörkun á þingsetu frekar en embætti forseta. Steingrímur J. er gott dæmi um þingmann sem hefði átt að hætta fyrir langa löngu. Nóg að þingmenn sitji 12 ár. Forsetinn má vera lengur, enda nánast valdlaus og gerir lítið annað en auglýsa landið.

Meðmælendur forsetaefnis mættu vera mun fleiri en 6000. Til að fara í kosningu ætti að þurfa ákveðið hlutfall í hverju kjördæmi þannig að dreifing væri jafnari, s.s. 5% í hverju kjördæmi af kosningabærum einstaklingum.

 


mbl.is Sex ára kjörtímabil og tólf ára hámarksseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Núverandi lög gera nú þegar ráð fyrir tilteknum lágmarksfjölda út hverjum landsfjórðungi (kjördæmi eiga ekki við um forsetakosningar). Það þarf ekki að vera stjórnarskrárbundið.

Svo er engin ástæða til að hækka lágmarksfjölda meðmælenda. Í nýafstöðnum kosningum náðu aðeins 40% frambjóðenda lágmarksfjöldanum sem sýnir að hann er frekar of hár ef eitthvað er.

Guðmundur Ásgeirsson, 1.7.2020 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband