Of menntaðir til að taka sýni

Við Íslendingar erum gjörn á að nota ofmenntað fólk í hin ýmsu störf. Nú notum við hjúkrunarfræðinga, með fjögurra ára háskólanám, til að stinga pinnum upp í nef og ofan í kok á fólki. Sjúkraliðar gætu allt eins gert þetta sem heilbrigðisstétt. Hjúkrunarfræðingar hafa öllu jöfnu annað og þarfara að gera, eins og alþjóð veit. 

Minnisstætt þegar dóttir mín fór í bólusetningu fyrir kíghósta í USA. Þar sprauta lyfjafræðingar í apóteki. Af hverju tökum við ekki slíkt fyrirkomulag upp hér á landi. Hér þarf að panta tíma á heilsugæslu og hjúkrunarfræðingur sér um að sprauta. Löngu tímabært að skoða verkferla einstöku stétta í samhengi við heildina, menntun, þekkingu, hæfni og færni. Við getum án efa létt álagi af sumum stéttum við slíkar breytingar.


mbl.is Þetta er réttasta og besta leiðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þormar

Fyrir skömmu var frá því sagt í fréttum að flugvélar Icelandair fóru í fragtflug fyrir erlendan aðila.

Það kom leigutaka flugvélanna þægilega á óvart að flugmennirnir aðstoðuðu við affermingu vélanna.

Það þótti sjálfsagt hér áður fyrr að menn færu svona út fyrir verksvið sitt, en kannski heyrir það nú að mestu sögunni til.

Ekki kom fram í fréttinni að flugfreyjur hefðu verið  með í þessum ferðum.

Hörður Þormar, 8.6.2020 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband