26.9.2018 | 20:38
Segir Halldóra Mogensen ekki af sér
Miðað við djöflaganginn í þingmanninum og ásakanir í garð Braga hlýtur Halldóra Mogensen að segja af sér. Hún sýndi það og sannaði í þessu máli gegn Braga að hún er óhæf til starfans og axlar væntanlega sömu ábyrgð og hún vildi að aðrir gerðu í tilhæfislausum málatilbúningi gegn manninum.
Fór ekki út fyrir verksvið sitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér þykir þú vera bjartsýn. Hvenær hafa þessir "riddarar réttlætisins", sem kalla sig Pírata, axlað ábyrgð á nokkru sem þeir hafa bullað eða neinni vitleysu sem þeir hafa staðið fyrir?????????
Jóhann Elíasson, 26.9.2018 kl. 21:21
Skiptir það einhverju máli hvaða skoðun Velferðarráðuneytið hefur? Skoðun Velferðarráðuneytisins hrekur ekki ásakanirnar.
Vagn (IP-tala skráð) 27.9.2018 kl. 02:49
Lastu fréttina Vagn?
Halldóra hlýtur nú að tjá sig um málið, annað væri undarlegt. Ef er hún þér samsinnis og telur þessa rannsókn ráðuneytisins einhvern hvítþvott, á hún einungis einn kost, að kæra rannsóknina til saksóknara.
Að öðrum kosti verður hún að segja af sér þingmennsku. Velji hún hins vegar að þegja um þessa niðurstöðu, hefur hún viðurkennt að hún hafi farið offari í málinu. Það leiðir enn frekar til afsagnar hennar sem þingmanns.
Gunnar Heiðarsson, 27.9.2018 kl. 08:30
Ég tel nokkuð víst að "Þingflokkur Pírata telur að velferðarráðuneytið sé ekki réttur aðili til þess að rannsaka samskipti Barnaverndarstofu og barnaverndarnefnda á höfuðborgarsvæðinu. Píratar draga í efa hæfi ráðuneytisins." hafi ekki breyst neitt við aðra meðferð ráðuneytisins. "Þingflokkur Pírata telur velferðarráðuneytið þó ekki vera réttan aðila til þess að taka aftur upp rannsókn á samskiptum Barnaverndarstofu og barnaverndarnefnda Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar þar sem draga má í efa hæfi ráðuneytisins til að sinna rannsóknarskyldu sinni af kostgæfni. Þar til úrbætur innan ráðuneytisins hafa sannarlega átt sér stað." " Þingflokkur Pírata harmar hversu lítinn vilja virðist að finna hjá framkvæmdavaldinu til naflaskoðunar sem leitt gæti til raunverulegra umbóta í málaflokknum en leggja þess í stað allan kraft í að sópa málinu undir teppi. Þar eru pólitískir hagsmunir settir ofar hag barna. Hér hefur samtrygging stjórnmálanna verið sett ofar góðri og heiðarlegri stjórnsýslu."
Vagn (IP-tala skráð) 27.9.2018 kl. 11:59
Ráðuneytið fól óháðum aðilum að rannsaka þetta. Nú er niðurstaða komin. Niðurstaðan er sú að þessi Halldóra Mogensen fór langt út fyrir verksvið sitt sem þingmaður í krossferð gegn góðum og grandvörum embættismanni. Niðurstaðan er líka sú að þessi Halldóra Mogensen myndi, hefði hún manndóm til þess, biðja viðkomandi fórnarlamb eineltis síns afsökunar.
Þorsteinn Siglaugsson, 27.9.2018 kl. 12:12
Ráðuneytið fól óháðum aðilum að rannsaka..."Fullyrt var í upphafi að um óháða úttekt væri að ræða sem tæki til málsmeðferðar Barnaverndarstofu, barnaverndarnefnda og ráðuneytisins í tilteknum barnaverndarmálum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins 2. maí síðastliðinn. Síðar var það hlutverk þrengt án þess að greint væri frá opinberlega og tekur því úttektin aðeins til stjórnsýslu ráðuneytisins."...og niðurstaðan var að ráðuneytið hafi ekki upplýst málsatvik nægilega vel til þess að geta tekið ákvörðun um lögmæti embættisfærslna Braga. Ráðuneytið hafi hvorki virt rannsóknarregluna né andmælaregluna við meðferð málsins. Því þurfti ráðuneytið að taka málið fyrir að nýju en óháðu aðilarnir tók enga afstöðu til lögmætis athafna Braga. Pólitískir hagsmunir voru víst of miklir til að setja málið sjálft í hendur óháðra aðila.
Vagn (IP-tala skráð) 27.9.2018 kl. 16:08
Halldóra Mogensen er ásamt Stundinni sek um brot á lögum um friðhelgi barna með tilraun sinni til að funda í beinni útsendingu frá nefndarfundi um tiltekið barnaverndarmál, og nýta sér trúnaðarskjöl um tiltekið barnaverndarmál í pólitískum tilgangi. Réttur barna til verndar gegn átroðningi á einkamálum þess er varinn í barnasáttmálanum sem er innleiddur hér á landi. Það hvernig Halldóra Mogensen og félagar hennar í nefndinni komu barnaverndargögnum til Stundarinnar er mál sem ætti að sækja fyrir dómstólum enda er þar um refsivert brot að ræða sem liggur við fangelsisvist.
Gunnar Waage (IP-tala skráð) 29.9.2018 kl. 14:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.