22.5.2020 | 22:35
Þráhyggja Ingibjargar gagnvart Dofra
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri sorpritsins Stundin er haldin þráhyggju gagnvart Dofra Hermannssyni og Félagi um foreldrajafnrétti. Hún ætlar sér að sverta félagið. Til þess notar hún ríkisstyrktan miðil og með öllum tiltækum ráðum, satt eða logið. Skiptir hana ekki máli. Sjálf virðist hún hafa óbeit á karlmönnum, það má lesa úr skrifum hennar í gegnum tíðina sem og þátttöku í femínistaspjalli. í grein sem ég las stendur þetta ,,Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, segir: Veruleiki kvenna er þessi. Kynbundið ofbeldi ógnar lífi þeirra og heilsu. ... Vondi karlinn á sér enga eina birtingarmynd, hann er alls staðar og hvergi og þú veist aldrei hvort eða hvenær þú mætir honum. Stundum þekkir þú hann bara af góðu einu þar til hann snýst gegn þér. Stundum laðar hann þig til sín og brýtur á þér.
Hér má lesa um kvenfrelsun sem ritstjórinn vill vera aðili að: http://arnarsverrisson.is/Home/Pistlar (Frelsun kvenna og kynandskotar.pdf)
Dofri segir í Kvennablaðinu:
,,En af hverju er þá Stundin að pönkast á mér? Ég spurði blaðamann Stundarinnar að því í gær, þegar ég var búinn að leiðrétta ótal rangfærslur hans og bein ósannindi. Svar hans var að ég væri formaður Félags um foreldrajafnrétti.
Þar fékkst grunur minn staðfestur. Þessi síðasta frétt er dæmigerð let him deny it taktík fjölmiðils sem er í herferð. Rætnar og persónulegar árásir Stundarinnar á mig eru gerðar í ákveðnum tilgangi og tilgangurinn er að þagga niður í vitundarvakningu Foreldrajafnréttis um foreldraútilokun með því að ræna mig mannorðinu.
Svo umhugað er Stundinni að þagga niður í Félagi um foreldrajafnrétti að ritstjórum hennar finnst aukaatriði hvort erfiðleikar í lífi 10 ára barns eru gerðir að umfjöllunarefni fyrir alþjóð og fyrir virka í athugasemdum að smjatta á."
22.5.2020 | 14:04
Nýtt stéttarfélag flugstétta
Áhugavert og sýnir að Bogi skaut ekki út í loftið. Menn hoppuðu á vagninn að nú myndi Icelandair stunda mansal.
,,Í samtali við Mannlíf í dag segir Vignir Örn Guðnason, formaður Íslenska flugstéttarfélagsins, að kjarasamningar félagsins við Play séu góðir og gildir og þau séu mjög sátt með með innihald þeirra. Stéttarfélagið varði áður hagsmuni flugmanna WOW air en er nú orðið löggilt stéttarfélag flugmanna og flugliða. Því sé ljóst að til staðar er hér á landi annað stéttarfélag flugfreyja en Flugfreyjufélag Íslands kjósi Icelandair að leita annað eins og það er orðað í umfjöllun Mannlífs."
Í ljósi þessa upplýsinga er ljóst að þeir sem vilja starfa við flug geta leitað í annað stéttarfélag en Flugfreyjufélagið. Það er áhugaverður kostur. Eins og alþjóð veit voru fleiri hundruð manna tilbúnir að starfa í fluggeiranum. Ekki skortur á fólki.