Færsluflokkur: Bloggar

Karlmenn kúga konur, enn og aftur! Nú stjórnmálamaður

Skilboðin hér að neðan, sjá mynd, koma frá stjórnmálamanni, Erik Thoresen, og eru birt á snjáldursíðu Tone Klev sem er karlmaður sem skilgreinir sig sem konu. Erik segist hafa aðgang að fullt af peningum og ætli að draga Tonje Grenjov til helvítis og hann sé búinn að aðvara hana með þessu skilboðum. Erik tilheyrir Opnum hægri stjórnmálaflokknum eða Åpne Høyre eins og hann heitir á norsku.

Tonje skrifar, ég er kona og er lesbía og að sjálfsögðu bregst ég við þegar karlmenn sem segjast vera konur og lesbíur. Ég bregst við af því karlmaður er karlmaður alveg sama hvað gagnkynhneigðir og samkynhneigðir menn í Opnum hægri flokknum telja.

Ungar stúlkur og lesbíur mega ekki láta kúga sig af mönnum sem segjast vera konur og lesbíur. Það að íhaldsmenn hömruðu lögunum um kynrænt sjálfræði í gegn gera þá ábyrgða á árásinni á konur og skerðingu á réttindum lesbía sem við sjáum og upplifum. Ég sýni innlegg Eriks svo að fólk geri sér grein fyrir að þetta er hluti af þeirri ímynd sem konur standa frammi fyrir þegar þær berjast við grundvallarveruleika eins og kyn, blæti, fantasíum, öfuguggum og yfirlýsingum karla.

Samkynhneigðir karlar og konur í stjórnmálum eru þeir sem bera mikla ábyrgð á löggjöf sem tengist kynvitund - og hvernig lögin hræða fólk til þátttöku í umræðum um kyn. Þannig að í stuttu máli - möguleikar barna, kvenna og starfsmanna til að tjá sig og raunverulegs tjáningarfrelsis hafa minnkað og það var Høyre flokkurinn sem sparkaði þessum bolta af stað, þannig að fantasíukyn og kynferðisleg blæti trompa nú vísindi, þekkingu og mannréttindi kvenna.

Færslu Tonje má sjá hér.

Hér hótar stjórnmálamaður konur vegna þess að hún viðurkennir ekki að karlmaður geti verið lesbía. Eitthvað sem er svo augljóst að ekki þarf umræðu um málið. Þöggunartilburðir.

erik


Bókstafstrúarmenn eigi ekki að skrifa skólabækur

Þingmaðurinn Ida Meier Auken telur að bókstafstrúarmenn eigi ekki að skrifa skólabækur fyrir grunnskólann. Tek undir orð hennar og tel að slíkt eigi heldur ekki heima hér á landi.

Flestir eru 100% sammála henni. En flestir hugsa, þeir gera það ekki? Það er einhver sem passar upp á það. En, nei það er ekki þannig.

Í ,,gamla daga“ höfðum við námskrá. Listi yfir það sem átti að kenna. Í flestum löndum er sá háttur hafður á, en ekki í Danaveldi og bloggari segir heldur ekki á Íslandi.

Innihald bókanna stjórnast af lagasetningum og að hluta til eru því flestar skólabækur skrifaðar af kennurum sem eru tengdir kennaraháskólum og rannsóknarstofnunum. Við má bæta hgumyndafræðilegum þankagangi.

Námsbækur voru að auki yfirfarnar og markaðssettar í gegnum fagblöð sem orsakaði umræðu meðal félaga um bækurnar og mat á námsefninu.

Með tilkomu hæfnihugtaksins og lokun prestaskólanna lauk þessu fræðilega ferli, þannig að nú getur hver sem er búið til námsefni fyrir nemendur. Það geta verið marxísk félagasamtök, banki eða trúarlegur bókstafstrúarmaður.

Með hnignun kennslukerfisins í kringum kennslubækur og skólaefni tók það eðlilega nokkurn tíma áður en hlutirnir fóru að þróast. Margar skólabækur voru enn í hillunum en kennararnir höfðu þróað með sér náttúrulega gagnrýni.

Nú geta bæði trans-samtök og bókstafstrúarmenn boðið fram efni, svo framarlega sem þeir fara ekki á skjön við lögin.

Nú veistu það líka. Hér finnur þú færsluna.

Glímum við sama vanda

Íslenskir kennarar glíma við sama vanda og lýst er hér að ofan. Jafnréttiskafli Aðalnámskrá grunnskóla hefur verið teygður og togaður í þá átt að hægt sé að tala um trans-málaflokkinn sem skyldunám. Skólastjórar vitna meira að segja til þess þegar foreldrar frábiðja sig kennslu á það sem þau kalla innrætingu.

Jafnréttisskóla Reykjavíkurborg, sem menntayfirvöld þar í bæ virðast hafa óbilandi trú á, fer fremstur í flokki og önnur sveitarfélög virðast elta þau eins og blindur einstaklingur. Sveitarfélögin hafa misboðið nemendum sínum með námsefni sem er ekki vísindalega staðfest, en hleypur eftir tilfinningum og upplifun fólks sem glímir við ónot í eigin skinni.

 

 


Heildarmyndin, ráðstefna í Portúgal

Þann 27. september hefst áhugaverð ráðstefna í Portúgal sem stendur yfir í tvo daga.  Yfirskriftin er Heildarmyndin eða eins og þeir segja á ensku ,,The Bigger Picture.“ Hægt er að skrá sig og fylgjast með á netinu.

Á ráðstefnunni talar úrvalslið eins og Kathleen Stock, Helen Joyce, Emelie Köhler, Mia Hughes, Chris Elston, Jesper Waldvogel Rasmussen, Marcus Evans, Bob Witheres, Emma Thomas, Dr. Peter Boghossian, Tove Solander, Mattias Desmet og einn Íslendingur Eldur Smári Kristinsson. Hér eru einungis fáir af mjög mörgum taldir upp.

Alþjóðasamtökin Gespect standa fyrir ráðstefnunni, sem er sú þriðja í röðinni, en á síðunni þeirra segir að samtökin séu alþjóðleg og í þeim sé fagfólk, trans-fólk, þeir sem sjá eftir kynskiptiaðgerðum og foreldrar. Hóparnir tala fyrir að læknisfræðilegri nálgun sé ekki beitt á ónot í eigin líkama.

Þeir sem tala á ráðstefnunni hafa gert sig gildandi í umræðunni um trans-málaflokkinn. Þátttakendur hafa í umræðu sinni bent á limlestingar barna í tengslum við trans-málin. Auk þess hafa þeir bent á áróður sem fer fram í skólakerfinu í því landi sem þeir koma frá með röngum staðhæfingum eins og að barn fæðist í röngum líkama, að hægt sé að skipta um kyn, að karlmenn fái aðgang að einkarýmum kvenna við það eitt að skilgreina sig sem konu. Lögin um kynrænt sjálfræði er skaðvaldur sem hefur eyðilagt rétt kvenna til einkarýma og kvennaíþrótta.

Á ráðstefnunni, þar sem áhersla er á ,,Reframing the Future", verður rætt um að bera kennsl á vandann yfir í að kanna lausnir. Í boði eru fyrirlestrar, pallborðsumræður, umræður og viðtöl í beinni útsendingu. Allt er þetta gert til að tryggja að þessi flóknu mál séu tekin til umræðu.

Hér má sjá síðu ráðstefnunnar.

Hér má sjá dagskránna.


Íslendingum vantar svona kvenmann á þing, við eigum engar þingkonur sem eru málsvarar kvenna

Í Ástralíu eru margir þingmenn þjóðinni til skammar. Þeir leyfa hinsegin hópum að vaða yfir réttindi kvenna. Það er ein sem lætur sig málið varða, Pauline Hansen. Á síðunni hennar má lesa þetta.

Þakkir til Andrew Bolt fyrir að fá mig til að tala um frumvarpið mitt. Í því felst að við endurheimtum hugtökin ,,karl" og ,,kona" í líffræðilegum skilgreiningum sínum, eitthvað sem Verkamannaflokkurinn og Græningjar vilja loka á í þinginu.

Ég held að margir Ástralir séu réttilega hneykslaðir að sjá Verkamannaflokkinn og Græningja halda áfram að vera á móti því að verja réttindi kvenna og standa með heilbrigðri skynsemi.

Í gegnum árin hef ég staðið frammi fyrir endalausum árásum fyrir að segja það sem margir eru rétt að byrja að átta sig á, að þessi þjóð hafi verið á rangri leið.

Hvort sem það er um innflytjendamál, fjölmenningu eða að verja réttindi venjulegra Ástrala, þá hef ég alltaf staðið fast á því og oftar en ekki hef ég haft rétt fyrir mér.

Svo takk aftur, Andrew, fyrir að minna fólk á afrekaskrá mína og gefa mér tækifæri til að tala frjálslega og standa með venjulegum Áströlum.

Hér má sjá viðtalið.

Á Íslandi er sami vandi uppi. Þingmenn passa ekki upp á réttindi kvenna. Íslendingum vantar konur á þing sem ber hag kvenna fyrir brjósti. Þær sem fyrir eru virðast heillum horfnar þegar kemur að réttindunum sem konur höfðu.


,,Pride“ er hugmyndafræði sem fer fram úr öllu öðru og enginn má vera ósammála

,,Sannleikurinn er sá að fyrir marga birtist ,,Pride“ sem eins konar lífsspeki eða hugmyndafræði sem við neyðumst öll til að klappa og flagga fyrir og helst taka þátt í.

Þess vegna hefur komið fram kröftug og ekki síst fullkomlega réttmæt gagnrýni á ,,Pride“ og þá pólitísku stefnu sem ,,Pride“ stendur fyrir. 

,,Pride“ er pólitískt og hugmyndafræðilegt. Við megum vissulega ekki hafa sameiginlegan skilning á pólitískum skoðunum."

,,Á undanförnum árum hefur Pride-hreyfingunni tekist vel að takmarka bæði trú- og tjáningarfrelsi hér á landi [Noregi], oft nánast án opinberrar umræðu.

Hversu langt eru þeir, Pride, tilbúnir að ganga í nafni góðmennsku? Fyrir þessa hreyfingu er samþykki, umburðarlyndi eða virðing ekki nóg. Það krefst athygli og skjól allra. Hér má lesa greinina.

Undir innlegginu taka nokkrir til máls og má m.a. lesa þetta:

Ein athugasemdin: Jæja, að trú- og tjáningarfrelsi hér á landi sé meira og meira takmarkað getum við þakkað okkur kristnum fyrir, við erum allt of þögul og barnaleg í þeirri umræðu. Við þorum ekki að segja nóg er nóg.

Önnur athugasemd: ,,Pride“ er hugmyndafræði sem fer fram úr öllu öðru og enginn má vera ósammála. Þetta kemur í ljós aftur og aftur að þeir sem neita þessu hvort sem það er einstaklingar eða sveitarfélög eru áreittir og ,,Pride" skrifar um það."

Þriðja: Þetta er mikilvægur hluti af hinni nýju öreigastétt, sem skapast hefur á Vesturlöndum, vegna þess að verkamennirnir voru ekki nógu óánægðir til að brenna alla búðina. Þetta er undirliggjandi ástæða þess að húðlitur, kyn og kynhneigð hafa verið dregin fram eins og um tilvistarleg félagsleg vandamál sé að ræða. Við skulum ekki gleyma loftslaginu. Á bak við allt þetta eru öfl sem vilja nýjan heim. Frábær endurstilling ef þú vilt.

Fjórða: Það er rétt sem þú segir, en það á ekki aðeins við um ,,Pride.“ þetta á einnig við um yfirburði vinstrimanna. Það sem ég skynja gerðist í kringum 2020, þá gastu einfaldlega ekki gagnrýnt ,,Pride“, þú varst stimplaður af mörgum sem óþolandi. En á undanförnum árum hafa fjölmiðlar sleppt sífellt fleiri gagnrýnendum og bæði ,,Pride“ og stjórnmálamenn hafa gengið sér til húðar. Ég held að þeir viti núna að tími vinstri manna er liðinn, fólk eins og Donald Trump og Marine le Pen vilja ná völdum á Vesturlöndum. ,,Pride“ reynir nú að bjarga andlitinu með því að láta alla gagnrýni snúast um sig.

Fimmta: Kominn tími til að hlusta á öll börnin og ungmennin sem hafa verið limlest og særð fyrir lífstíð vegna þessa brjálæðis.

Hafi menn hér á landi haldið að málaflokkurinn væri öðruvísi en honum er líst þarna í Noregi þá eru þeir á villigötum. Áhugaleysið á yfirgangi og notkun ríkisfjármuna innan trans samtakanna er átakalegt. Pólitísku trans-Samtökin 78 fá um 100 milljónir árlega frá ríki og sveitarfélögum. Ásættanlegt, nei engan veginn.

Hér má lesa innleggið og athugasemdirnar.


Börnin gjalda þess

Fleiri hundruð börn á Norðurlöndunum hafa fengið hormónalyf til að stoppa kynþroskann. Þau fá mikið magn af hormónum gagnstæða kynsins með skelfilegum afleiðingum eins ófrjósemi og beinþynningu. Þetta hefur viðgengist hér á landi og í Danaveldi frá 2016 þegar Ríkisspítalinn fékk leyfi fyrir ,,kynskiptum“ barna.

Meðferðin var innleidd sem stöðluð meðferð án þeirrar kerfisbundnu eftirfylgni sem venjulega er krafist í tilraunameðferðum og án vísindalegrar þekkingar. Það er sérstaklega mikilvægt þegar um tilraunir er að ræða, eins og í þessum tilfellum, að vísindin séu að baki notkuninni.

Lyfin sem eru notuð til að stoppa kynþroskann hafa engar vísindalegar rannsóknir að baki sér. Um tilraunir á börnum er að ræða. Slakað hefur verið á þeim ströngu kröfum sem venjulega eru gerðar til lyfjanotkunar, að vitað sé um afleiðingar og aukaverkanir. Börnin gjalda þess.

Þetta hneyksli, að nota tilraunalyf á börn, er viðameira en hvíta duftið eða þvingaðar ófrjósemisaðgerðir á stúlkum eins og gert var í Danaveldi og víðar. Afleiðingarnar í framtíðinni verða skelfilegar eins og norski sálfræðingurinn segir. Lesið hér.

Í Cass skýrlunni kemur fram að átt var við niðurstöður rannsókna á lyfjum sem notuð eru í trans-málaflokkum. Síðan nota læknar þessi lyf á börn, á börn hugsið ykkur með skelfilegum afleiðingum. Hver leggur barn sitt að veði fyrir lyfjatilraunir lækna?

Að mati bloggara er um barnaníð að ræða þegar menn bæði mæla með að stúlkur láti fjarlægja brjóst sín og taki eiturefni til að breyta heilbrigðum líkama í allt annað en þau eru.


Enn karlaheimur!

Billy Bragg hefur tístað um stöðu kvennamála. Það virðist fara í taugarnar á fólki að menn bendi á réttindi kvenna sem hverfa þegar karlmaður er sagður kona. Gef henni orðið;

"... Það eru karlar í kvennafangelsum, þar á meðal barnaníðingar og nauðgarar.

Konum í fangelsi er refsað af ríkinu fyrir að nefna þessa menn sem karla.

Það eru karlar í kvennaíþróttum sem niðurlægja íþróttakonur á meðan þeir stela viðurkenningum þeirra og þessir menn eru líka í búningsklefum þeirra.

Það sama á við um stráka í íþróttum og rýmum stúlkna.

Konum hefur verið nauðgað, þær barðar og stungnar í athvörfum af körlum vegna þess að athvarfið lætur eins og karlar séu konur.

Konur á geðdeildum liggja við hlið karla í næsta rúmi sem þykjast vera konur og þær eru gaslýstar af starfsfólki að það sé enginn karlmaður þar.

Sama á sjúkradeildum.

Stelpum er kennt að ef þær fylgja ekki kynjuðum staðalímyndum, ef þær passa ekki við væntingar samfélagsins eða líður illa með líkama sinn, þá gætu þær ,,í raun verið strákar".

Konur og stúlkur láta fjarlægja brjóst sín, eitra líkama sinn með testósteróni, þjást af sársaukafullum aukaverkunum, snemmbúnum tíðahvörfum, ófrjósemi og svo margt fleira, allt í leit að ómögulegri lygi.

Orðin kona og stelpa hafa verið endurskilgreind sem blandað kyn og þar með eyðilagt öll réttindi kvenna og vernd, alla sögu okkar og afrek, getu og möguleika okkar til að tala um okkur sjálfar, málefni okkar og skipuleggja okkur í kringum þau.

Þetta er bara toppurinn af ísjakanum af skaðanum sem verður vegna afneitunar eigin kyns.

Þetta er enn karlaheimur. ..." Hér má lesa færsluna.


Amnesty á valdi vókismans

Þegar Sall Gover tapaði dómsmálinu gegn karlmanninum Roxy, sem vildi vera á kvenna-appinu sem Sall stofnaði, fagnaði Amnesty. Undravert, mannúðarsamtök sem segjast vera umhugað um mannréttindi. Ljóst er að með dómnum tapa konur og stúlkur mannréttindum. En bergmálshellir Amnesty er áþreifandi.

Vókismi þeirra kemur glögglega í ljós hér. Amnesty International bendir á að Talíbanar mismuni stúlkum og konum sem ,,skilgreina sig sem stúlkur"... Getur það orðið fáránlegra og niðurlægjandi?

 

 

Umræða um ,,pride."

núna


Gunnar Gíslason forstöðumaður skólaþróunarsvið HA-hræsni eða sýndarmennska?

Detta ekki allar dauðar lýs úr höfði mínu. Rætt um ráðstefnu hjá Skólaþróunarsvið HA, sjá hér. Fjalla á um læsi. Forstöðumaðurinn talar ranga íslensku. Hann vill gjarnan að dýr og börn mæti á ráðstefnuna því hann segir, „Öll ættu að hafa gagn og gaman af ráðstefnunni með því að hlusta og taka þátt þó svo að ráðstefnan sé sett upp fyrir kennara og stjórnendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum,“ segir Gunnar Gíslason, forstöðumaður…“

Við sem leggjum upp úr því að nota rétta íslensku og að hún sé rétt kennd vitum að þarna á að standa allir. En hvaða öll á Gunnar við ef það eru ekki dýr og börn sem hann á við. Öll kennarar, öll stjórnendur, öll þátttakendur…eða?

Það er þyngra en tárum taki að stofnun sem menntar kennara, sem eiga svo að mennta nemendur í íslensku, skuli ekki einu sinni virða íslenskar málfræðireglur.

Neðar í frásögninni segir Gunnar, ,, Flest sitja svo einnig ráðstefnuna daginn eftir…“ Enn talar Gunnar um flest dýrin eða flest börnin. Við sem þekkjum málfræðireglur íslenskunnar vitum að þarna á að standa flestir. Varla talar Gunnar um flest kennarar, flest skólastjórnendur, flest þátttakendur. Veit hann ekki betur?

Ef Gunnar Gíslason forstöðumaður ætlar að vera vókisti og nota ,,öll“ um ímynduð kyn þá er fokið í flest skjól. Getur maður borið traust til menntamanna sem kunna ekki með málfræðina að fara?

Skipar Háskólinn á Akureyri sér á sama stað og Ruv með, eins og sumir segja, nauðgun íslenskunnar?

Bloggari hefur séð auglýsta viðburði frá Háskólanum á Akureyri þar sem stendur ,,öll velkomin“ og undrast að sjá slíkt orðalag frá menntastofnun. Að háskólamönnum í HA sé svona umhugað um að börn og dýr mæti á viðburði hjá þeim er nýung.

Baldur Hafstað orðaði svona málnotkun eins og Gunnar notar á þessa leið ,,Öll velkomin. Það er ekkert ,,líbó“ við svoleiðis orðalag; þetta er í besta falli sýndarmennska-eða öllu heldur hræsni.“ Pistlar Baldurs heita Tungutak.

afkynjun íslenskunar


Hafa karlmenn skilning og upplifun af verkjum kvenna

Ríkisstjórn Viktoríuríkis tekur karlmenn með í heilsufarsrannsókn á verkjum kvenna.

Jacinta Allan forsætisráðherra Viktoríuríkis og ríkisstjórn hennar vita ekki hvað kona er. Þrátt fyrir að hafa ekki getað skilgreint helming íbúanna hefur hún haldið áfram og pantaði rannsókn "The Inquiry into Womens Pain" vegna heilsufarsbreytinga kvenna segir Kirralie Smith. Um er að ræða háa fjárhæð, 153 milljón dollara fjárframlag til verksins.

Rannsóknin tekur við svörum frá ,,hverjum þeim sem skilgreinir sig sem konu, þó að hann kunni að hafa annað kyn við fæðingu." Það sem þeir vísa til hér eru karlmenn.

Ríkisstjórn Viktoríuríkis tekur því við svörum um sársauka kvenna, frá körlum, sem hafa allt annan lífeðlisfræðilegan uppbyggingu og munu aldrei upplifa sársauka sem tengist kvennalíkama.

Fatnaður, lyf og skurðaðgerðir sem hylja karlmennsku mannsins breyta ekki æxlunarfærum hans frá karli til konu og hann mun aldrei skilja eða upplifa hvað það er að hafa kvenkyns æxlunarfæri.

Karlmaður mun aldrei þola breytingarskeið kvenna, legslímuflakk eða leghálskrabbamein, en samt vill ríkisstjórn Viktoríuríkis láta undan fantasíum sumra karla um að þeir geti verið konur með því að taka þá með í heilsufarsrannsókn kvenna.

Það er móðgandi og fáránlegt!

Þekktur skurðlæknir í Viktoríu, vildi ekki láta nafngreina sig af ótta við slaufun, talaði gegn þessu og sagði ,,kynstaðfestingar umönnun“ eyðileggingu í heilbrigðisþjónustunni. Það verður að setja líffræðina framar sjálfsmyndinni ,,sjúklingar kynna fyrir læknum hið ,,nýja“ kyn og gefa ekki upp líffræðilega kyn sitt. Þetta hefur gífurleg áhrif á þjónustuna.

,,Ef læknar segja eitthvað neikvætt er hægt að tilkynna það til eftirlitsaðila.“ Áfram heldur læknirinn ,,Yngri læknar eyða tíma í að læra hvernig á að tala við þetta fólk og einblína ekki á grunnatriðin eins og sykursýki, astma eða brjóstakrabbamein.“

Læknar geta ekki gagnrýnt brjálæði stjórnvalda af ótta við slaufun eða sviptingu leyfis.

Hvernig er hægt að ætlast til þess að nokkur treysti ríkisstjórn eða lækni sem afneitar raunveruleikanum, hafnar vísindum og gaslýsir konur með þeirri lygi að karlmaður geti verið kona?

Hér má lesa greinina.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband