Færsluflokkur: Bloggar
14.7.2024 | 15:08
Þrír miðaldra karlmenn
Það er ekki ofsögum sagt, karlmenn gera sig gildandi á öllum sviðum. Af hverju ekki þeir eru helmingur mannskynsins. Hinn helmingurinn eru konur.
Breski verkamannaflokkurinn lét loksins eitthvað vitrænt úr úr sér. Bann við hormónablokkurum og lyfjagjafir fyrir börn í tilraunaskyni verða áfram bannaðar og sennilega um ókoman framtíð. Tilraunum á breskum börnum verður hætt, er það ekki fagnaðarefni hverrar mannveru? Hvað getur maður annað sagt en sem betur fer. Ekki eru allir á því. Börn skulu notuð í tilraunir.
En víkjum að þessum þremur miðaldra karlmönnum. Tveir af þeim segjast vera konur og einn tvíkynhneigður. Hann ruddi brautina. Veit svo ekki hvað braut en það er annað mál. Þessir þrír miðaldra karlmönnum finnst af og frá að banna eigi tilraunameðferðir á börnum. Einum finnst nú forkastanlegt að banna karla sem upplifa sig sem konu í kvennaklefa kvenna og stúlkna. Lesið skáskotin ykkur til fróðleiks.
Einn karlinn sem upplifir sig sem konu, og vill æstur karla inn í kvennaklefa, segir:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2024 | 09:53
Áhugaverð heimildarmynd
Bloggari horfði á heimildarmynd í gær, rétt rúmur klukkutími. Alveg þess virði að hlusta á þennan blaðamann, Tommy Robinson, sem fæddur er og alin upp í Luton. Honum líst ekki á hvernig Bretland er að verða eða orðið.
Hann hefur áhyggjur af frjálsri blaðamennsku því blaðamenn frávelja fréttir í fjölmiðlana. Þeir vega og meta hvað almenningur fær að hlusta á og það samrýmist oft því sem stjórnvöld vilja.
Hann hefur áhyggjur af tjáningarfrelsinu. Það hafa 3300 manns verið handteknir fyrir ummæli á samfélagsmiðlum á meðan 400 manns hafa verið handtekin fyrir það sama í Rússlandi.
Fjölgun múslíma veldur honum áhyggjum. Óþarfa handtökur af hálfu lögreglunnar koma við sögu. Afstað lögreglunnar til ákveðinna málaflokka. Mótmæli í London og víðar þar sem hann kemur við sögu. Hræðsluáróður yfirvalda vegna Covid er eitt umfjöllunarefnið.
Hvet lesendur til að horfa, Tommy Robinsons New Documentary #LawFare (youtube.com)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2024 | 09:10
Líður börnum vel í skólanum ef það er logið að þeim
Spjall við stjórnanda í skóla vakti bloggara til umhugsunar. Umfjöllunarefnið var trans-málaflokkurinn. Í samtalinu heyrði ég að hann hafði ekki aflað sér upplýsinga umfram það sem trans-Samtökin 78 boða. Þegar bloggari spurði út í eitt og annað sem gerist t.d. Norðurlöndunum og Bretlandi vissi hann ekkert. Eitt sagði stjórnandinn, ,,við viljum bara að börnunum líði vel í skólanum. Um það geta allir verið sammála. Allir vilja að börnum líði vel.
Líður börnum vel þegar logið er að þeim? Líður barni vel þegar logið er að því að kynin séu fleiri en tvö? Líður barni vel þegar því er sagt að pabbi og mamma hafi getið sér til um kyn þess? Líður barni vel þegar logið er að því að kona geti verið með typpi? Líður barni vel að logið sé til um að karlmaður geti átt barn? Líður barni vel þegar því er sagt að það eigi eftir að velja kyn sitt? Líður barni vel þegar því er sagt að mamma geti verið með yfirvaraskegg? Líður börnum vel þegar sagt er að þau séu það sem tilfinningin segir þeim? Líður börnum vel þegar þeim er sagt að þau séu kannski fædd í röngum líkama? Líður börnum vel með lygar trans hugmyndafræðinnar?
Til að skerpa á þekkingu um líffræðina sem á að kenna börnum má horfa á þetta.
Bloggari á ekki von á svörum enda myndi enginn faglegur leiðtogi fara út í slíkt. Við sjáum bæði í Smáraskóla í Kópavogi og Breiðholtsskóla hver takturinn er, lygin má blómstra í nafni fjölbreytilega hinsegin hugmyndafræðinnar.
Undanfarin áratug hefur andlegt ástand skólabarna versnað. Umhugsunarvert sem þessi rannsóknar blaðamaður segir (alvöru rannsóknarblaðamaður, ekki eins og þeir íslensku).
Danskur sveitastjórnarmaður
Ulf Baldrian segir það vera honum til ama að lygar og blekkingar, um að börn sem fá ekki meðferð til að stoppa kynþroskann og gera sig ófrjóa með kynhormónum, séu í aukinni sjálfsvígshættu. Það er ekki bara að kyn sé þurrkað út heldur einnig samkynhneigð og kynbundin réttindi kvenna, t.d. í íþróttum og fangelsum. Tek undir með honum.
En svona erum við ólík.
Ulf segir ,,Trans börn eru ekki til. Það eru bara til börn og ekkert barn er fætt í röngum líkama. Barni getur liðið illa með líkamann og glímt við sálræna erfiðleika sem veldur upplifun um að líkaminn og kynið sé rangt.
Sem betur fer komast langflestir sem eru greindir með röskun vegna líkamsímyndar og Kynvanlíðan yfir það eftir kynþroskann. Börnum ferst betur að samþykkja sig eins og þau eru, jafnvel þó að það sé eilíf áskorun sem við vinnum öll með í gegnum lífið segir hann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.7.2024 | 09:26
Áhugaverð grein eftir Atla Harðarson á Vísi.is í gær
Atli fjallar um bók sem gefin var út á þessu ári. Höfundur bókarinnar talar um breytingar á lífskjörum barna og ungmenna. Atli segir að meginefni bókarinnar séu sálfræðilegar útskýringar og hvernig breytingarnar spilli heilsu barna.
Atli segir; ,, Óheftur aðgangur að klámi veldur minni félagsfærni, einkum hjá piltum; Sífellt streymi mikið unninna glansmynda af grönnum líkömum ýtir undir átröskun og fleiri kvilla, einkum hjá stúlkum; Orsakir versnandi geðheilsu valda jafnframt versnandi námsárangri. Því miður nefnir Atli ekki kvillann ónot í eigin skinni, kynama, Því sprenging hefur orðið meðal stúlkna sem líður illa í eigin líkama.
Hér má hlusta á greinargóðan fyrirlestur um áhrifin og glansmyndina sem búin er til um málaflokkinn. Þeir vita sem vilja að áhrif samfélagsmiðlanna eru gífurleg þegar kemur að sálarkvillanum kynami.
Vitað er að átröskunarhópar eru víða til á miðlunum og ekki ýkja langt síðan einum slíkum hópi var eytt í Danaveldi. Þar þótti sannað að stúlkurnar lofsungu hvor aðra í sjúkdómsástandi. Sama gera stúlkur sem glíma við ónot í eigin líkama. Þær horfa á glansmyndir sem birtast á samfélagsmiðlunum um brjóstnám, trans-ferli og ,,kynskipti. Skammgóður vermir, því eftirköstin koma rétt eins og timburmenn eftir mikla áfengisdrykkju. Og það sem þekkt er sálræni kvillinn hverfur ekki.
Aukið þunglyndi og kvíði
Í greininni stendur; ,,Tölurnar sem reifaðar eru í fyrsta kafla bókarinnar sýna að á milli 2010 og 2015 jókst tíðni þunglyndis og kvíða meira hjá stúlkum en piltum. Hér má geta þess að vanlíðan stúlkna með ónot í eigin líkama jókst líka á þessum árum og hefur þúsund faldast í sumum löndum frá því sem var. Skyldi þetta ekki haldast í hendur? Margir sérfræðingar hafa bent á að það sé ekkert eðlilegt við fjölgun barna sem glíma við ónot í eigin líkama. Í kjölfarið samþykktu mörg lönd ólögin um kynrænt sjálfræði. Hlusta má góða fyrirlestur hér.
Áfram heldur Atli; ,, Könnun á tengslum netnotkunar og geðsjúkdóma bendir til að töluvert meira sé um að stúlkur verði fyrir miklum skaða þegar á aldrinum 11 til 13 ára en hjá strákum byrji þetta oftast að bíta nokkru seinna eða á aldrinum 14 til 15 ára. Þegar börn horfa á myndband eins og þetta án þess að foreldrar grípi inn í, og kannski fleiri af þessum toga, er voðinn vís. Eins og Atli segir, stelpur eru viðkvæmari fyrir þessu en drengir og kannski ekki tilviljun að maðurinn í myndbandinu klæðir sig eins og lítil stúlka. Hvern á að veiða?
Hér getur þú lesið þessa áhugaverðu grein.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2024 | 08:03
Kvenna- og jafnréttisráðherra Breta gagnrýndur
Ekki að ósekju hefur J.K. Rowling gagnrýnt val á nýjum ráðherra kvenna og jafnréttismála í Bretlandi sem kemur úr Verkamannaflokknum. Hún leggst á sveif með öðrum sem hafa gagnrýnt valið. Ráðherrann gat ekki svarað hvað kona sé. Ráðherrann, 46 ára Anneliese Dodds, var kynnt til sögunnar ásamt nýrri stjórn í síðustu viku.
Höfundur Harry Potter kallar sjónarmið ráðherrans á samfélagsmiðlinum X, þvælu. Rowling birti viðtal við ráðherrann sem heitir ,,Womans Hour frá BBC og var sent út á kvennadaginn 8. mars 2022. Í þættinum var spurt um skilgreiningu Verkamannaflokksins á hvað kona sé.
Anneliese Dodds svaraði að það væru ólíkar skilgreiningar, lagalega séð hvað kona sé. Svarið var ófullnægjandi eða í reynd ekkert svar svo hún var spurð aftur. Dodds sagði sína skoðun, það færi eftir samhenginu. Sem sagt fer eftir samhenginu hver skilgreining á konu er. Segi eins og Rowling, þvæla.
Síðan segir Dodds, ég tel þetta mjög mikilvægt. Það er fólk sem hefur ákveðið að fara í gegnum trans-ferli. Ég hef talað við marga af þeim. Þetta var erfitt ferli fyrir marga. Skiljanlega af því þeir lifa sem konur og vilja láta skilgreina sig sem konu sagði Dodds sem þá var talsmaður jafnréttismála hjá Verkamannaflokknum. Hér má lesa um málið.
Það er ekki ofsögum sagt, konur niðurlægðar af eigin kyni og Verkamannaflokknum í Bretlandi. Ekki langt síðan að þessi kjánalega útskýring kom frá öðrum. Getur maður verið svona heimskur, spyr bara. Hvað höfum við að gera með fólk á þingi sem veit ekki hvað kona er?
Verra er þegar leik- og grunnskólakennarar vita ekki hvað kona er, hvaða líffæri tilheyra konu. Þetta er fólkið sem á að fræða æsku þessa lands. Kemur mér ekki á óvart að traust til kennara fari þverrandi. Hver vill að logið sé að barni sínu í leik- og grunnskóla!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2024 | 09:30
Ha, afsökunarbeiðni frá Kennarasambandi Íslands
Bloggari var spurður hvort hann hefði fengið afsökunarbeiðni frá Kennarasambandi Íslands vegna upphlaups stjórnarmanna í tengslum við trans-málaflokkinn. Bloggari kannast ekki við það.
Tilfallandi hafði hins vegar orð á að það réttast hjá Kennarasambandinu. Við vitum að Magnús Þór Jónsson fer með sambandið eins og honum þóknast. Þarf ekki mjög viti borið fólk til að sjá það. Hann var forsprakkinn af ályktun sem hann sendi blöðunum til að þóknast aðgerðasinnum í trans-málaflokknum. Betra að ljúga en segja sannleikann!
Bloggari hallast að því að stjórn KÍ sé ekki vel að sér í trans-fræðum heldur láti trans-Samtökin mata sig á áróðri sem þau kalla fræðslu. Kennarasamband sem styður kennara í að kenna samkvæmt sannleik, vísindum og staðreyndum horfir nú allt í einu fram hjá því. Nú má hugmyndafræði einstakra einstaklinga sem byggist á lygi ráða för. Norskir kennarar hafa látið í sér heyra um málaflokkinn.
Af hverju ætti KÍ að biðjast afsökunar?
Frá því að bloggari hóf skrif um málaflokkinn hefur hann eingöngu stuðst við sannleikann, vísindi og rannsóknir á málaflokknum. Eitthvað sem Magnús Þór formaður KÍ og fylgisveinar hafa virt að vettugi. Nú þegar hver stofnunin á fætur annarri hættir eða dregur úr starfsemi vegna vísindalegrar þekkingar og staðreynda. Þessu ber að fagna því eins og norskur sálfræðingur skrifar, þetta verður einn af myrku tímar sögunnar.
Cass skýrslan ætti að vera skyldulesning fyrir starfsmenn KÍ, hvort sem þeir eru ráðnir til starfa eða kosnir. Sama með kennara. Í skýrslunni kemur fram margt, ef ekki allt, sem bloggari hefur bloggað um. Fagfólk stígur í auknu mæli fram til að andmæla þeirri meðferð sem trans-samtök víða um heim vilja að börn undirgangist, s.s. félagsleg kynskipti og breyti fornafnanotkun sinni. En, kannski taka forsprakkar KÍ ekki mark á öðru fagfólki. Gúru Norðmanna í trans- málaflokknum missti lækningaleyfið, full ákafur í að koma börnum á hormóna blokkandi lyf.
Formaður KÍ og stjórn hans virðast ekki vilja vita sannleikann, í það minnsta verja þau hann ekki. Fyrir það verður þeirra minnst.
Halda menn að börnum líði vel með lygina sem borin er á borð í leik- og grunnskólum? Hvaða lygi, jú sem dæmi, kynin eru fleiri en tvö. Hér má sjá góð skrif um það.
Prófessor í þróunarlíffræði segir réttilega og náttúrufræðikennarar kunna og þekkja, ,,Frjóvgun er einnig tvöföld sameind. Umfang þróunarinnar, eins víðfeðmt og það kann að virðast, takmarkast í raun af þeirri staðreynd að erfðasameindin er tvíundarsameind. Kyn er því þróunarlega og stærðfræðilega stöðugt fyrirkomulag, hvorki meira né minna. Ekkert heyrist frá íslenskum náttúrufræðikennurum.
Enn sem komið hefur engin afsökunarbeiðni borist frá Kennarasambandinu, sjáum til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.7.2024 | 07:32
Lobotomi okkar tíma- tilraunir á börnum!
Við getum ekki leyft þeim að gera svona tilraunir á börnum, lobotomi okkar tíma!
Kynþroska blokkandi lyf, brjóstnám og kynfæraaðgerðir munu verða ennisblaðskurðlækningar (lobotomi) okkar tíma segir Silje Schevig sérfræðingur í sálfræði. [Í þessum aðgerðum voru tengingar við og frá heilaberki rofnar hjá geðsjúklingum með skelfilegum afleiðingum. Tilraunameðferðir á geðsjúkum.]
Aleksander Linkowski var ungur maður þegar hann gekkst undir kynfæraaðgerð og hormónameðferð til að verða kona. Hann var lagður í einelti vegna skorts á karlmennsku og hélt að hann yrði að vera stelpa til að fá samþykkt. Nú sér hann eftir því og segir mér að hann hafi í raun bara þurft einhvern til að segja honum að hægt sé að samþykkja hann eins og hann er.
Í skoðanagrein í Nettavisen gefur sálfræðingurinn Peder Erlend Anda í skyn að ég fari með rangt mál um LGBTQ+ samfélagið og að ég ali á fordómum og hatri gegn hinsegin fólki. Hann skrifar enn fremur: ,,Fullyrðingar Silje Schevig virðast byggðar á goðsögnum og hálfsannleika, ekki vísindum." (svipað orðalag notuðu kennararnir á Akureyri vegna orða bloggara)
Höfum það alveg á hreinu: Ég er að tala um þetta vegna umhyggju fyrir börnunum. Ég er ekki að tala um lesbíur eða homma heldur aukinn fjölda barna sem eru ekki viss um hvort þau hafi fæðst í röngum líkama. Sem sagt, ég styð hinsegin ást og vil að allir geti verið þeir sjálfir.
Það sem ég hef áhyggjur af er ill og óbætanleg meðferð á börnum og ungmennum.
Ennisblaðskurðlækningar (lobotomi) okkar tíma
Það eru margir myrkir kaflar í sögu læknisfræðinnar, en einn sá myrkasti er ennisblaðskurðlækningarnar (lobotomi). Á þeim tíma var samstaða í fræðasamfélaginu um vinnubrögð sem við fordæmum. Nú hryllir okkur við því hvernig geðsjúklingar urðu fyrir heilaskaða í þeirri trú að meðferðin hjálpaði.
Góður ásetningur er engin trygging fyrir góðum árangri. Ég tel að kynþroska blokkandi lyf fyrir börn, hormónameðferð, brjóstanám og kynfæraaðgerðir á ungu fólki geti verið ennisblaðskurðlækningar (lobotomi) okkar tíma. Ég byggi þessar fullyrðingar á vísindum.
Alvarlegar aukaverkanir
Óháð rannsókn á öllum rannsóknum sem gerðar hafa verið á þessari svokölluðu ,,kynstaðfestandi" meðferð fyrir börn og unglinga leiðir í ljós að við vitum ekki með vissu hvort meðferðin geri meira gagn en skaða og að meðferðin sé tilraunakennd.
Kynþroska blokkandi lyf hafa þekktar aukaverkanir eins og óeðlilega þyngdaraukningu, útvíkkaðar æðar, ógleði, aukna svitaframleiðslu, minni hæðarvöxt, orkuleysi, ládeyðu, tap á kynhvöt, beinþynningu og svefnvandamál.
Langtímaáhrif af notkun lyfjanna í þessum tilgangi er ekki vel þekkt
Að auki segja niðurstöður í skýrslunni að við getum ekki verið viss um að hve miklu leyti kynþroska blokkar hindri eðlilegan þroska á heila sem á sér stað við kynþroska. Heilbrigðisráðherra Bretlands segir vinnubrögðin einkennast meira af hugmyndafræði en vísindum og staðreyndum.
Getur skaðað fleiri en við hjálpum
Áður var talið að hindra kynþroska með lyfjagjöf væri pásuhnappur en nú vitum við að mikill meirihluti barna sem sett hafa kynþroskann á ,,pásu halda áfram að breyta kyni sínu með kynhormónum og skurðaðgerðum.
Rannsóknir á börnum með kynvanlíðan sem hafa ekki stoppað kynþroskann sýna að þau sættast við líkama sinn eftir kynþroskaskeiðið. Með kynstaðfestingaraðferðum nútímans sviptum við börn því tækifæri og eigum á hættu að skaða fleiri en við hjálpum.
Ætti það ekki að vera markmið að flest börn séu ánægð í þeim líkama sem þau fæðast í?
Hippókratesareiðurinn, eða læknaeiðurinn, segir að við eigum ekki að valda skaða. Við gætum verið að skaða heilbrigða unglinga sem hefðu undir venjulega kringumstæðum sætt sig við líkamann.
Við getum ekki leyft okkur að gera tilraunir með börn á þennan hátt.
Þess í stað ættu börn og ungmenni að fá meira rými til að vera og tjá sig jafn karlmannlega eða kvenlega og þeim finnst hverju sinni. Að auki ættu þau að fá sálrænan stuðning til að aðstoða þau með sjálfsmyndina í heild sinni, mannskepnan er flókin.
Hér má lesa greinina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2024 | 09:55
Sjálfsvígstíðni rúmlega 12 sinnum hærri hjá þeim sem hafa farið í kynstaðfestandi aðgerð
Það er ábyrgðarhluti að hvetja börn til að skipta um félagslegt kyn. Það er ábyrgðarhluti að flagga fyrir þau og fagna eins og um gleðiatburð sé að ræða. Hér er um andlega veik börn að ræða sem þurfa sálfræði- eða geðmeðferð að halda.
Það hefur afdrifaríkar afleiðingar að halda þessu að börnum eins og oft hefur verið nefnt í pistlum bloggara. Þegar búið er að ýta börnum út á þessa braut festast þau í hlutverki sem leiðir of mörg í tilraunameðferðir lækna. Um 80% vaxa frá ónotum í eigin skinni, séu þau látin í friði.
Færst hefur í vöx að fólk sér eftir aðgerðunum. Um það fjalla fleiri fjölmiðlar. Á Íslandi ríkir þögn um trans-málaflokkinn nema hann sé hylltur.
Ný rannsókn sýnir að fólk sem hefur farið í gegnum ,,kynbreytingarmeðferð er 12,12 sinnum líklegra til að falla fyrir eigin hendi. Önnur nýleg rannsókn sýnir að flestir vaxa frá ónotunum í líkama sínum.
Áhættusöm kynstaðfesting
Rannsóknin metur áhættuna á sjálfsmorði eða sjálfsskaða tengda ,,kynstaðfestingaferlinu.
Tölurnar koma frá gögnum sem safnað er af ,, National Institutes of Health og University of Texas frá um 90 milljónum sjúklingum á aldrinum 18 til 60 ára.
Flestir þroskast frá þessu
Í langtímarannsókn sem birt var í febrúar voru 2772 manns fylgt frá ellefu ára aldrei til 26 ára. Það sýndi sig að flestir þroskuðust upp úr tilfinningunni um kynósamræmi.
,,Kynvanlíðan er sú tilfinning um vanlíðan og þjáningu sem einstaklingur upplifir þegar kynvitund hans passar ekki við það kyn sem hann fæddist. Þetta getur leitt til alvarlegra geðsjúkdóma eða fötlunar.
Tengist lélegri sjálfsmynd
Í upphafi rannsóknar sögðu 1 af hverju 10 börnum að þau sveifluðust í kynvitund sinni. Við 15 ára aldur kom í ljós að 1 af hverjum 25 sem lýstu ónotum með kyn sitt sem ,,oft eða ,,af og til.
,,Þrátt fyrir að kynhlutleysi sé tiltölulega algengt snemma á unglingsárum minnkar það almennt með aldrinum og virðist tengjast lakari sjálfsmynd og lakari geðheilsu.
Eiga erfitt með að staðsetja ,,sannleikann
Niðurstaða í fyrrnefndri rannsókn er marktæk, aukin hætta er á sjálfsvígstilraunum eftir kynstaðfestandi aðgerð. Það undirstrikar nauðsyn þess að fá ,,alhliða sálrænan stuðning eftir aðgerðina.
Rannsóknirnar sveiflast við fullyrðinguna um að kynstaðfestandi aðgerð fyrirbyggi sjálfsmorð.
Ég upplifi mig sem limlesta, tilraun sem tókst ekki segir ung kona. Lesið hér. Hún segist ekki vita hvað það er að hafa líkama fullorðinna, læknar og trans stofnun tók það frá henni áður en hún varð fullorðin.
Heimildir finnur þú hér, hér, hér og hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.7.2024 | 09:10
Glansmyndir af kynóreiðu unglinga í myndböndum
Myndböndin á TikTok og YouTube smita. Ég og margir aðrir telja það slæmt segir Kathrine Larsen geðhjúkrunarfræðingur.
Fjölgun barna og ungmenna sem leita til heilsugæslunnar vegna kynóreiðu hófst fyrir alvöru með fjölskylduþættinum ,,Fæddur í röngum líkama" sem sendur var út á TV 2 árið 2014.
Í dag sjáum við fleiri tilfelli af stelpum sem vilja verða strákar og strákar sem vilja verða stelpur. Og á TikTok og YouTube er fjöldinn allur af myndböndum af ungu fólki með kynóreiðu. Þessi myndbönd hjálpa til við að skapa glansmynd af kynbreytingum og hvetja til efasemda um sjálfsmynd okkar. Þetta hefur skapað smitáhrif sem margir, eins og ég, telja slæmt.
Að auki eru margir hræddir við að segja upphátt hvað þeim finnst. Hræddir við að móðga einhvern og hafa pólitíska ranga skoðun. Við eigum að vera jákvæð gagnvart þessari ,,þróun. Ef við erum það ekki erum við áreitt og sögð siðlaus. Ég er ekki ein um þessa skoðun og málfrelsi á ekki að nota til að þagga niður þessar raddir.
Ekki byggt á sönnunargögnum
Það eru ekki bara samfélagsmiðlar sem gera kynóreiðu rómantíska. Námskráin í norskum skólum í dag hvetur börn til að efast um hver þau raunverulega séu. (Sama á við um þá íslensku).
Þegar bæta átti námskránna um kynfræðslu árið 2020 komu fram leiðbeiningar fyrir kennslu um kyn og kynhneigð. Samtökin Fri (systursamtök trans Samtaka 78) lögðu fúslega til þekkingu sína í þessa námskrá. Það er þekking sem er ekki byggð á sönnunum, heldur trúarkerfi, að mínu mati.
Í námskrá norsku menntamálastofnunarinnar segir: Til kynhneigðar telst m.a. kynvitund, kynhneigð, erótík, nánd, nálægð og æxlun. Lögð er áhersla á að með því að sýna jákvætt viðhorf til kynhneigðar, víðsýni og virðingu fyrir fjölbreytileika kynjanna leggi skólar sitt af mörkum til að efla réttindi nemenda. Nemendurnir læra að kynferði er grundvallarþáttur í sjálfsmynd einstaklingsins sem hægt er að skilja á mismunandi vegu:
- Líffræðilegt kyn er kynið sem þú fæðist.
- Sálfræðilegt kyn er það kyn sem þér líður eins og.
- Félagslegt kyn er það kyn sem aðrir skynja þig sem.
- Löglegt kyn er það kyn sem þú ert skráður í þjóðskrá.
Mörg viðvörunarljós blikka
Ætlunin er samkvæmt námskránni, að þegar nemendur hitta fullorðna einstaklinga sem hafa innsýn og virðingu fyrir því að hægt sé að upplifa og tjá kyn á mismunandi hátt geti þeir öðlast meira sjálfstraust með eigin kynvitund. Á sama tíma þróa þeir skilning og virðingu fyrir öðrum.
Á vef Landlæknisembættisins eru einnig leiðbeiningar um þetta trúarkerfi: Þjónustan skal nota kyn- og stefnuhlutlaust mál í allri kennslu. Þessi kynhlutlausu hugtök eru kynnt strax í grunnskóla. Það er uggvænlegt að slík kennsluáætlun, sem og kennslubækur frá stærstu útgefendum, byggi nú á nýjum skilningi á veruleikanum á því hvað kyn er í raun og veru. Nemendur í skólanum í dag fá ekki þekkingu sem er fræðilega grundvölluð, sem getur verið skaðlegt.
Við vitum nú að meira en helmingur trans fólks glímir við alvarlegar geðraskanir og að einn af hverjum þremur hefur upplifað kynferðisofbeldi í æsku. Við vitum líka að margt ungt fólk með kynóreiðu er með greiningu innan einhverfurófsins og það gleymist oft.
Svíþjóð, sem áður var brautryðjandi í kynbundinni meðferð, hefur nú hert takmarkanirnar. Geðmeðferð er fyrsti kosturinn þar sem grunur leikur á kynóreiðu í stað lyfseðils fyrir hormónum. Nýlega missti læknirinn, Espen Esther Pirelli sem sjálfur er trans, lækningaleyfið. Ástæðan var margar tilgangslausar ávísanir á lyfseðilskyld lyf til að hefja kynskiptiaðgerð án þess að skoða sjúklingana nægilega. Auk þess voru skráningar ábótavant.
Við sjáum oftar sjúklinga sem sjá eftir kynskiptum. Mörg aðvörunarljós blikka.
Skapar ekki öryggi
DNA er tvöföld sameind, skrifar prófessor í þróunarlíffræði, Glenn-Peter Sætre í bókinni ,,Two Genders. Frjóvgun er einnig tvöföld sameind. Umfang þróunarinnar, eins víðfeðmt og það kann að virðast, takmarkast í raun af þeirri staðreynd að erfðasameindin er tvíundarsameind. Kyn er því þróunarlega og stærðfræðilega stöðugt fyrirkomulag, hvorki meira né minna.
Sætre leggur áherslu á að það að líta á kyn sem eitthvað fljótandi og breytilegt geri kynin mun erfiðari en þau þurfa að vera. Lög um kynrænt sjálfræði geta heldur ekki breytt þeirri líffræðilegu staðreynd að kynin eru tvö.
Þetta getur skapað vandamál fyrir ungt fólk segir Sætre. Í dag eru börnum talin trú um að með því að taka sum lyf (hormón) sé hægt að afneita raunveruleikanum og setja líffræðina í bið. Þetta er lygin sem er sögð. Hættulegar og tilraunakenndar meðferðir eru gerðar á börnum, samkvæmt bandarísku geðlæknunum og höfundunum Miriam Grossman og Jordan Peterson.
Sannleikurinn er að við getum ekki aðskilið sjálfsmynd okkar frá líkamlegum veruleika. Þetta hefur ruglingsleg áhrif á ungt fólk. Við fögnum afneitun á raunveruleikanum og óvissu um okkur sjálf. Markmið námskrárinnar er að fá börn og ungmenni til að öðlast meira sjálfstraust á eigin kynvitund, en því sem er lýst í námskráinni skapar ekki öryggi.
Við viljum stöðuga sjálfsmynd. Við viljum ekki skapa rugling á geðheilsunni. Fleiri valkostir og tækifæri færir ekki frelsi, heldur meiri kvíða. Þetta skapar ólgu. Ef þú ert það sem þér ,,finnst" að þú vera er þetta siðlaus, óhagkvæmur og öfugur upphafspunktur fyrir stöðugleikann sem við leitum öll að. Getur verið að þetta sé hluti af ástæðunni fyrir því að kvíði og þunglyndi eru svo algeng meðal ungs fólks í dag?
Óheppileg þróun
Kennsluáætlunin sem við höfum í norskum skólum í dag gefur ranga mynd af kyni. (Sama á við um Ísland). Kyn er aðskilið frá hinu líffræðilega og gert erfitt og óskiljanlegt fyrir nemendur. Þegar kyn verður það sem þú telur þig vera, og ekki eingöngu líffræðileg staðreynd, skapar það óróleika og rugling meðal unga fólksins.
Samkvæmt fræðslulögum skal kennslan byggjast á vísindalegri hugsun. Þegar kyni er miðlað ætti ekki að setja fram gervivísindakenningar sem niðurstöðu. Kyn er ekki fjölbreytileiki. Það er tvennskonar.
Áherslan á fjölbreytileika, umburðarlyndi og þátttöku í skólum, ásamt smitáhrifum og rómantík í gegnum samfélagsmiðla, hjálpar til við að stuðla að óheppilegri þróun. Þegar ungt fólk verður fyrir svo ruglingslegum hugsunum er auðvelt að skilja að fyrir suma er kynóreiða vinsælt fyrirbæri. En það er ekki víst að breyting á kyni verði sú glansmynd sem maður sér fyrir sér.
Greinina má lesa hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2024 | 08:36
Verkamannaflokkurinn í Bretlandi sigrar
Nýafstaðnar kosningar í Bretlandi sýna sigur flokksins. Hægt að óska þeim til hamingju. Hvort ástæða sé til að óska landsmönnum með þennan sigur skal ósagt látið. Held að menn hafi ekki hugsað hugsunina til enda.
Í Bretlandi ríkir mikil hinsegin sveifla. Svo mikil að samkynhneigður stjórnmálamaður veit ekki hvað kona er. Hann er samt viss um hvað karlmaður sé því hann er hommi, hann elskar karlmann. Varla eru hommar með trans-karli, sem er kona? Hér verður hann sér og bresku þjóðinni til skammar.
Hvernig geta stjórnmálamenn, sem vita ekki hvað kona er, sett lög þeim til verndar eða ávinnings? Ég vona að stjórnarandstaðan í Bretlandi láti Verkamannaflokkinn finna fyrir sér á komandi árum, sérstaklega þegar málefnin varða konur.
Kvennalistinn ,,Party Of Women" bauð fram. Ástæðan var að vekja athygli á hvað kona sé og í hvaða ógöngur bresk stjórnmál eru komin hvað konur varðar. Hér má sjá einn frambjóðandann og hér síðuna þeirra. Flott framtak kvenna sem berjast fyrir stúlkur og konur.
Trans öfgasinnar hafa ráðist að þessu framboði kvennanna. Telja að ógn stafi af konum. áhersla Kvennalistans er þessi ,,Party Of Women: Vote for women's sex-based rights, protection of children and freedom of speech to even talk about these things."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)