Færsluflokkur: Bloggar
20.10.2024 | 07:53
Barnamálaráðstefna haldin í gær
Í Hafnarfirði fór fram áhugaverð ráðstefna, Barnamálaráðstefna, í gær. Hópur fólks tók sig saman og kom henni á koppinn. Fólk víðs vegar að hélt fyrirlestra um málefni er varða börn frá leikskólaaldri og upp að 18 ára aldrei, þegar þau teljast sjálfráða.
Skipuleggjendur ráðstefnunnar buðu skólafólki á höfuðborgarsvæðinu, í hundruða tali, en það lét ekki sjá sig. Merkilegt. Einn kom með þá skýringu að kennarar væru vinstri sinnaðir og ráðstefnan hefði þ.a.l. ekki höfðað til þeirra. Áhugaleysi stéttarinnar sagði annar. Meðvirkni kennara sagði sá þriðji. Ýmsar getgátur á lofti.
Erindi ráðstefnunnar voru tekin upp og samkvæmt skipuleggjendum verður þeim dreift á netið. Málefnin komu úr öllum áttum, tjáningarfrelsið og þöggun, sveitarstjórnarmál eins og þau tengjast skólakerfinu, skólakerfið og hinsegin fræðin, trú og menning í breyttu samfélagi, heilbrigðikerfið og hinsegin fræðin, samfélagsmiðlar og fleiri.
Allt voru þetta áhugaverð erindi og varpaði ljós á margt sem maður vissi ekki áður. Sumir fyrirlestrarnir gefa fólki ástæðu til að kafa dýpra í efnið, því það er takmarkað hverju menn koma frá sér á 20 mín.
Takk þið sem stóðuð að ráðstefnunni, vonandi verður leikurinn endurtekinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2024 | 08:04
Svona er hægt að gabba fólk
Þetta er ótrúleg saga: Maður, Josh Seiter sem er þekktur úr bandarísku raunveruleikasjónvarpi (The Bachelor), ,,skipti" um kyn. Það sem hann segir er það sama og allmargir karlar gera í dag og er heita kartaflan í bandarískum stjórnmálum.
Josh Seiter lakkaði neglurnar, setti á sig varalit og gekk í kjólum. Hann safnaði staðreyndum, talaði síðan eins og karlmenn gera af því þeir halda að konur tali svona. Hann tók upp myndbönd og birti, fullt af þeim. Innihaldið var nákvæmlega eins og þau sjálfselsku og kjánalegu myndbönd sem aðrar trans-konur birta á samfélagmiðlunum segir Gregusson.
Margir héldu að hann meinti þetta. Og hvers vegna ættu þeir ekki að gera það? Þegar öllu er á botninn hvolft hefur brjálæðið verið normalíserað, konur jaðarsettar og Josh hegðaði sér bara eins og flestir karlmenn í kvenmannsfötum.
Trans-aðgerðasinnar fögnuðu honum og sögðu hann m.a. hugrakkan. Nú hefur Josh opinberað að þetta var sex mánaða tilraun, bara til að opinbera brjálæðið í málaflokknum.
Þetta er alveg frábært. Reyndar ádeila á Kamalu Harris, einnig norska stjórnmálamenn og blaðamenn sem hafa villst inn í landslag hinsegin málaflokksins án gagnrýnnar hugsunar. Hann opinberaði hversu galið og í reynd mikið brjálæði það er að veita karlmönnum lagalega stöðu konu skrifar Elin P. Gregusson.
Við þetta má bæta að sama brjálæðið er hér í gangi bæði meðal stjórnmála- og blaðamanna. Engin gagnrýn hugsun virðist til staðar þegar hinsegin málaflokkurinn er annars vegar. Börn gerð að tilraunadýrum eins og víða um heim, þeim gefin hormónalyf. Líffræðinni verður ekki breytt með lögum, ekki með lyfjum og ekki með skurðaðgerðum.
Viðtali við Johs Seiter hér.
Fréttamenn ræddu við hann fyrir nokkru síðan, hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2024 | 15:08
Ótrúlega vitlaus lög, í raunveruleikanum er þetta ekki hægt
Þvælan sem kemur frá Alþingi virðist ekki eiga sér nein takmörk. Því miður stendur enginn þingmaður í lappirnar og segir, nei þetta er ekki hægt. Enginn karlmaður getur fætt barn. Feður framleiðir sæði sem þarf til að frjóvga egg konu og úr verður barn. Það eru mæður, konur, sem verður ólétt, ganga með barn og fæðir það. Mannréttindadómstóllinn dæmdi á þá leið. Hér má lesa um það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2024 | 14:14
Þykir ekki vænlegur kostur
Píratar hafa ekki úr mörgum að velja ef Dóra Björt verður fyrir valinu hjá þeim og hún sett á lista fyrir kosningarnar. Hún hefur ekki verið mjög sannfærandi sem borgarfulltrúi, Margt umdeilanlegt það sem hún hefur komið að.
Samkvæmt könnun Maskínu fá Píratar fáa þingmenn. Voru Píratar ekki með reglu, bara átta ár á þingi? Ef svo er þá ekki kominn tími á Björn Leví og Þórhildi Sunnu og kannski fleiri!
![]() |
Dóra Björt vill á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2024 | 08:00
Hafa beinagrindur kyn
Þetta er fyrirsögn á grein sem ég las, reyndar með aðstoð gervigreindar því hún er á finnsku. Greinin er áhugaverð fyrir þær sakir að ,,woke stríðsmenn hafa nú náð inn í mannfræðina og fornleifafræði með hugmyndafræði sína.
Kynin eru tvö og það ber að greina þau
Þegar mannvistarleifar finnast við fornleifauppgröft hefur það verið mikilvægt verkefni mannfræðinga að komast að því hvaða hvort kynið fannst. Stúlkur og strákar þroskast líffræðilega á mismunandi hraða og því eru kyn nauðsynlegar upplýsingar þegar kemur að því að vita hversu gamalt fólk var þegar það dó.
Ef mörg látin börn finnast við uppgröftinn getur það verið merki um að barnamorð hafi verið stunduð í samfélagi. Í þessu tilfelli vilja fornleifafræðingar og mannfræðingar vita kyn barna til að komast að því hvort fyrirbærið hafi aðallega haft áhrif á stúlkur eða drengi.
Mannfræðingar hafa verið að þróa aðferðir til að ákvarða kyn í áratugi. Frá því seint á sjögunda áratugnum hefur verið hægt að ákvarða kyn nokkuð áreiðanlega út frá hlutföllum grindarholsins. Í dag er hægt að ákvarða mjög áreiðanlega í flestum tilfellum með grindarholsbrotum einum saman.
DNA getur einnig hjálpað í tilfellum þar sem það er tiltækt. Og það er ekki bara mannfræði - réttarvísindi nota sömu aðferðir til að ákvarða aldur og kyn fórnarlamba glæpa. Margir réttarfræðingar eru mannfræðingar eða nota mannfræðinga sem sérfræðinga í eigin rannsóknum.
Ársfundur mannfræðinga
Prófessor Elizabeth Weiss prófessor var þetta ofarlega í huga á síðasta ári þegar hún skipulagði kynningu á ársfundi bandarísku og kanadísku mannfræðifélaganna í Toronto.
Í pallborðinu sátu fjórir fyrirlesarar en erindi þeirra vörpuðu ljósi á mikilvægi kynja í mannfræði frá ólíkum sjónarhornum. Tillaga nefndarinnar, ásamt rökstuðningi hennar, hafði verið send skipuleggjendum ársfundarins tímanlega og dagskrá samþykkt án fyrirvara.
Það var engin pallborðsnefnd
Í september, þegar fundurinn nálgaðist, fengu Weiss og aðrir þátttakendur fréttir af því að pallborðinu hefði verið aflýst. Þetta er í eina skiptið sem bandaríska mannfræðifélagið hefur aflýst ráðstefnudagskrá í 122 ára sögu sinni.
Fréttin um aflýsingu olli smá uppnámi í fjölmiðlum og margir fjölmiðlar greindu frá þessu. Að sögn skipuleggjenda var pallborðinu aflýst vegna þess að það var byggt á ,,forsendum sem eru andstæðar viðurkenndum skoðunum í okkar fagi og settar fram á þann hátt sem skaðar viðkvæma meðlimi samfélags okkar."
Hverjar voru þá þessar forsendur, sem voru andstæðar viðteknum skoðunum fagsins? Að það séu tvö líffræðileg kyn og að þetta gæti haft einhverja þýðingu fyrir mannfræðina. Það var ekki hægt að segja það á ársfundi mannfræðinga árið 2023.
Hvar er heimili beina?
Ef þetta væri í fyrsta skipti sem Weiss hefði komist í snertingu við útilokun hefði hún örugglega verið hneyksluð. Hins vegar var þetta bara enn ein vegferðin á ferli sem hefur verið ólgusjór.
Elizabeth Weiss, prófessor emeritus í mannfræði við háskólann í San Jose, hefur vegna stöðu sinnar og skoðana, orðið eldingaleiðari milli ,,woke skoðana og líffræðilegrar mannfræði. Hún gerir grein fyrir þessum atburðum í nýlegri bók sinni, On the Warpath: My Battles With Indians, Pretendians, and Woke Warriors.
Bókin gefur góða hugmynd um hvernig ,,woke stríðsmenn í Bandaríkjunum geta rekið akademíu og hvað mannfræði er orðin. Eldri mannfræðingar eiga kannski erfitt með að trúa því sem þeir heyra.
Raunveruleg átök Weiss við ,,woke stríðsmenn hafa falið í sér stöðu hennar sem yfirmaður beinasöfnunar við háskólann í San Jose. Háskólinn í San Jose, til dæmis, hýsir Ryan Mound safnið sem inniheldur leifar um þrjú hundruð manna sem fundust á sama svæði - allt frá því fyrir komu Evrópubúa.
Hins vegar eru þessi bein viðfangsefni margra árekstra þar sem indíánaættbálkurinn á staðnum, Muwukme Ohlone, leitar að beinunum til að grafa þau í landi forfeðra sinna.
Og þetta leiðir okkur að kjarna átakanna
Lög sem sett voru árið 1990, Native American Graves Protection and Repatriation Act (NAGPRA) krefjast þess að stofnanir sem fá alríkisaðstoð skili leifum indíána og menningarminjum til alríkisskráðra ættbálka sem tilheyra sömu ætt eða eru menningarlega líkir hinum látna.
Þetta þýðir ekki að nokkur ættbálkur geti gert tilkall til leifanna. Þvert á móti verða þeir að geta sýnt fram á að þeir séu líffræðilega eða menningarlega ,,skyldir" hinum látnu og þar byrja vandamálin.
Til dæmis, þegar um er að ræða 2000 ára látinn einstakling er að ræða er ómögulegt að sanna líffræðileg eða menningarleg tengsl. DNA indíána er með svo áhrifarík blöndu af hvítu og rómönsku DNA að ómögulegt er hægt að greina mismunandi ættbálka með DNA.
Hér er hægt að lesa greinina, sem er mun lengri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2024 | 08:17
Annað hvort vantar þingmanninn vit í kollinn eða hann lifir í draumaheimi
Nikolaj Bøgh, þingmaður Íhaldsflokksins, skrifaði í Berlingske í gær að hann ,,vilji taka afstöðu gegn lagalegum kynskiptum" segir Lotte Ingerslev. Gott það sem komið er.
Hann skrifar að ,,uppgjör" hans verði að ,,endurreisa virðingu fyrir sameiginlegum veruleika". Það lofar líka góðu. --- En svo kemur það, keðjan hoppar af, því Nikolaj Bøgh vill að lagaleg kynbreyting LIFI AF.
Að mati Nikolaj Bøgh ætti að vera hægt að breyta löglegu kyni fólks sem ,,þjáist viðvarandi af alvarlegum kynama" og sem ,,eftir sérfræðiráðgjöf" hefur fengið tækifæri til að ,,breyta líffræðilegu kyni sínu".
Ég er undrandi.
Hvernig mun þetta uppgjör geta ,,endurreist virðingu fyrir sameiginlegum veruleika"?
Og hvað er þetta eiginlega, að geta ,,breytt líffræðilegu kyni þínu"?
Taka má undir orð Lotte.
Hugsa sér að nokkur stjórnmálamaður láti þetta út úr sér, ,,breyta líffræðilegu kyni. Það vita allir heilvita menn að það er ekki hægt, hefur ekki verið og mun aldrei verða. En kannski þarf maður ekki að undrast að þingmaður tali svona þegar grunnskólakennarar sem hafa fimm ára háskólamenntun skuli segja nemendum að það viti enginn hvort kynið þau eru þegar þau fæðst. Ekki mamma og pabbi, ekki ljósmóðirin og ekki læknirinn. Heldur, þegar þú sjálfur hefur aldur og vit til þá ákveður þú kynið. Skólabækur sem notaðar eru í skólunum segja þetta líka.
Kannski þarf maður ekki að undrast að þingmenn tali svona! Hvorki hér á landi né í Danaveldi því ,,woke-ið hefur náð tökum á skynsemi fólks og gagnrýnni hugsun.
Hér er greinin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2024 | 08:15
Er virkilega markaður fyrir þessa konu
Þórdís telur sig ábyggilega vinsælli en hún er. Ég geld varhug við að hún komist í valdastöðu á þingi. Hún hefur valdið miklum óskunda í samfélaginu. eyðir miklu fé í stríðsrekstur. Sleikt sambandi við Rússa. Ætlar að þvinga í gegn bókun 35.
Hún þekkir ekki sinn vitjunartíma og því verða kjósendur Sjálfstæðisflokksins að gera það fyrir hana. Hafna henni í komandi kosningum fari hún fram. Það er eina leiðin til að sýna óánægju fólks með störf ráðherra.
![]() |
Íhugar framboð í Suðvesturkjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 16.10.2024 kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.10.2024 | 07:01
London, England. Trans-aðgerðasinnar slepptu kakkalökkum, engisprettum og mjölormum á ráðstefnu LGB Alliance UK
Þetta segir Katrine Brøgger í færslu á snjáldursíðu sinni. Þeir sem voru til staðar sendu á samfélagsmiðlana hvað var í gangi. Fréttin barst fljótt út og skemmdarvargarnir náðust.
Katrine heldur áfrma, LGB Alliance UK eru fyrstu LGB samtökin sem stofnuð voru til að berjast fyrir mannréttindum lesbía, homma og tvíkynhneigðra á grundvelli líffræðilegs kyns. Samtökin voru stofnuð árið 2019 og eru meðlimir þeirra kerfisbundið og viðvarandi beittir markvissu áreiti af hálfu öfgafullra trans- aðgerðasinna.
Á dögunum hélt LGB Alliance UK ráðstefnu í Queen Elizabeth II Center í London. Þegar fyrsti ræðumaðurinn átti að tala komu sjö trans aðgerðasinnar inn í salinn með poka af kakkalökkum, engisprettum og mjölormum sem þeir slepptu inn í herbergið.
Sú staðreynd að trans- aðgerðasinnar hafa valið að nota skordýr sem eru meindýr, sérstaklega kakkalakka, til að reyna að eyða og koma í veg fyrir að lesbíur, hommar og tvíkynhneigðir safnist saman, er verulegt áhyggjuefni, þar sem samanburður við meindýr er regluleg notkun í afmennsku ferli átakanna. Hútúar kölluðu Tútsa reglulega kakkalakka fram að og meðan á þjóðarmorðinu í Rúanda stóð.
Ásamt stöðugum söngvum trans-aðgerðasinna eins og ,,Kill a TERF*" - beint að kvenréttindafrömuðum - sem og líkamlegum árásum á kvenréttindafrömuði á mótmælum í London, Nýja Sjálandi og Ástralíu - verður enn og aftur að hafa í huga að öfgafullir trans-aðgerðasinnar eiga jafnvel mjög erfitt með að skilja grundvallar lýðræðisreglur.
*TERF er svívirðingarorð sem trans-aðgerðasinnar fundu upp í tilraun til að þagga niður í kvenréttindasinnum sem halda því fram að réttindi kvenna eigi aðeins við um konur, ekki karla sem skilgreina sig sem konur.
Á árunum 2022, 2023 og 2024 hefur sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna um kynbundið ofbeldi gegn stúlkum og konum, Reem Alsalem, lagt mikla áherslu á að kvenréttindi Sameinuðu þjóðanna nái til líffræðilegra kvenna, ekki karla sem skilgreina sig sjálfa sem konur, þar sem skortur á þessum greinarmun muni styrkja og auka kynbundið ofbeldi gegn stúlkum og konum segir Katrine.
Sjá mátti umfjöllun breskra fjölmiðla um ofbeldið. Euronews lýsir trans aðgerðasinnum sem ,Anti- LGB. Hér má lesa um skemmdarverk og önnur umfjöllun hér.
Það eru margir meðlimir LGB bandalagsins ungir. Þetta eru ekki kynslóðaátök. Þetta er mannréttindabarátta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2024 | 08:46
Bráðskemmtilegt
Alvöru kynskiptingar tapa á gervifólkinu
Færst hefur í vöxt að karlmenn setji á sig varalit, fari í kjól, punti sig með eyrnalokkum og hálsmeni. Þeir fara jafnvel í há hælaða skó og nota veski. Allt til að vera þykistu kona segir þáttastjórnandi.
Myndbandið í færslunni sýnir hversu kjánaleg þessi hugmyndafræði er orðin. Í myndbandinu má sjá karlmann, Josh, gera grín að alvöru kynskiptingum, því þeir finnast í alvöru. Maðurinn sem sýndur er í þættinum niðurlægir ekki bara konur heldur kynskiptinga líka.
Josh sá viðskiptatækifæri í að ,,breytast í konu og reyna að haga sér sem kona. Hann á sér milljónir fylgjenda og græðir á tá og fingri. Karlmaður sem talar fyrir öllum trans-hugmyndunum nær fólki. Menn eru tilbúnir til að borga fyrir að sjá þessa þvælu sem hann ber á borð fyrir okkur.
Bloggari veltir fyrir sér, hvenær rísa alvöru kynskiptingar upp gegn þessum eftirhermum sem eyðileggur málstað þeirra?
Hvet lesendur til að hlusta á þetta, veitir ykkur innsýn í hver þróun trans-málaflokksins er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2024 | 07:29
Árás trans-aðgerðasinna á samkynhneigt fólk
Trans aðgerðasinnar slógu enn einn naglann í líkkistuna fyrir orðspor transfólks. Á ráðstefnu í gær sem haldin var fyrir homma, lesbíur og tvíkynhneigða í London, LGB Alliance, slepptu trans aðgerðasinnar hjörð af skordýrum inn í salinn til að stöðva konu sem átti að halda ræðu um illa meðferð á börnum og ungmennum með kynama, ónot í eigin líkama.
Árásir á hóp manna sem heldur ráðstefnur og útifundi er ekki ný af nálinni þegar trans-aðgerðasinnar eru annars vegar. Ofbeldi, hatur og hryðjuverk virðast hugnast þessum hópi best þegar þeir mótmæla tali venjulegra borgara. Ást, kærleikur og umburðarlyndi segja trans-aðgerðasinnar. Maður efast!
Dorte Toft mun birta grein um Gallup könnun á samúð trans-fólks í Bandaríkjunum og innlenda könnun á Englandi. Grein hennar birtist á mánudaginn í Berlinske, ef blaðið breytir ekki áætlun sinni. Það verður áhugavert að sjá hvað mun standa í greininni.
Fjórar stúlkur eru í haldi. Vonandi fá þær makleg málagjöld, sektir og fangelsisvist fyrir að stofna lífi fólks í hættu.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem trans-aðgerðasinnar, þetta friðelskandi fólk sem vill samúð samfélags og virðingu beitir hryðjuverkum og ofbeldi. Lögregluvernd þarf orðið á þá atburði sem haldnir eru vegna ofbeldis trans-aðgerðasinna.
Þegar talað er um bakslag í báráttu hinsegin fólks þá er það klárlega lesbíur og hommar sem fara verst út úr því og það vegna trans-aðgðerasinna. Hér er ekki bara um hatursræðu að ræða heldur hatursofbeldi gagnvart hópi fólks sem telur réttindum sínum ógnað.
Lesa má lesa málið hér og hér upptöku frá einum fundarmanninum.
Hér má sjá ofbeldi af hálfu transaðgerðasinna, hér og hér. Þetta er bara lítið brot af því líkamlega ofbeldi sem trans-aðgerðasinnar beita. Svo er það hið munnlega og kærur til lögreglu og dómsmál sem á að hræða fólk til þöggunar um mjög umdeildt samfélagsmál.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)