Þetta láta konur yfir sig ganga án mótmæla

Já konur mínar, við erum víst þess verðugar að þessir karlar telji sig (en eru ekki) sama kyn og við. Höfnum við því eru við með fordóma og ástundum hættulega orðræðu. Réttur þeirra er svo mikill. Legg ekki meira á ykkur kynsystur! 

 

Þýskur raðmorðingi sem drap fimm konur og eitt barn skilgreinir sig nú sem konu. Wikepedia flokkar hann sem kvenkyns þegar fjallað er um hann.

Árið 2001 skilgreindi þetta ógnardýr sig sem konu og breytti nafni sínu löglega árið 2001. Hann er stór og mikill að vexti og af þeim sökum var hann kallaður ,,Dýrið.“ Hann hét áður Schmidt og í þessari grein má lesa um hann og morðin sem hann framdi.

Fyrsta fórnarlamb hans var 50 ára gömul kona árið 1989. Næstu þrjú árin urðu morðin fjögur og þar af eitt ungabarn. Móðir þess var á gangi í skógi með barnið og eftir að hafa kyrkt konuna sló hann barninu við trjástubb og myrti það.

Hann á líka að baki misheppnaðar tilraunir á tveimur 12 ára stúlkum sem börðust hetjulega gegn honum. Með hjálp stúlknanna fannst felustaður hans. Mikið af klámmyndum voru á staðnum.

Tveir menn á skokki sáu Schmidt fróa sér, könnuðust við lýsingu á honum og handtóku hann. Kúbein og kvenfatnaður var falið undir jakkanum hans. Hér endaði morðæði hans.

Hann hefur stundað þetta konublæti yfir lengri tíma og sagði frá í réttarhöldunum hvernig stuldur á kvenfatnaði æsti hann ungan að árum.

Í réttarhöldunum árið 1992 sagði Schmidt hvers konar kynferðislegt ofbeldi heillaði hann. Dómari dæmdi hann í 15 ára fangelsi og tryggði að hann væri á lokaðri geðdeild í Brandenburg. Ár hvert staðfesta læknar að hann sé samfélagi sínu hættulegur. Bróðir hans er á sama máli, stórhættulegur maður.

Schmidt er sagður klæðast kvenfatnaði í dag. Hann notar pils, blússur og gengur í skóm með háum hælum. Hann hefur fengið horóm frá 2010 og óskað eftir kynskiptiaðgerð sem var hafnað.

Talið er að hann hafi nauðgað transkonu (karlmanni sem skilgreinir sig konu) sem heitir Jasmin, hét áður Jens. Jasmin reyndi að gleypa tvö rakvélablöð til að fyrirfara sér. Maðurinn sat inni fyrir nauðgun á konu og hafði reynt að nauðga sálfræðingi í fangelsinu. Jasmin er líka sagður hafa myrt móður sína og réðist á líkið.

Í blaðaviðtali árið 2010 sagði Schmidt hafa viljað vera stelpa frá fjögurra ára aldri.

Á Wikipedia, síðu sem tileikuð er Schmidt, hafa nokkrir einstaklingar breytt textanum og sagt hann konu því þeir hafa samúð með sjálfsmynd hans. Einn notandi fjarlægði árið 2020 síðuna hans úr flokknum ,,karlkyns raðmorðingjar“ í ,,kvenkyns raðmorðingja.“

Síðar sama ár var annar sem tók út raunverulegt nafn hans því það brýtur í bága við lög að gefa upp upprunalegt nafn transfólks.

Reduxx hefur á vefsíðu sinni upplýst um finnskan fjöldamorðingja og breskan barnaníðing sem skilgreina sig sem konur. Það má lesa hér og hér.

 


Transaðgerðasinnar hafa sannfært heiminn

um að fjöldi allur af ungu fólki sé hinsegin. Hér má hlusta á Abigal ræða málið.

Hún segir m.a. þetta:

Enginn blaðamaður vildi taka málaflokkinn svo hún lét til leiðast.

Móðir hafði samband við hana, allt í einu voru margar stelpur, sem liðu andlega illa, ákveðnar í að vera strákar. Stundum passa þær ekki í hópinn og þá er kynið vandamálið. Tekin eru hormónalyf. Skelfileg þróun.

Boðskapurinn þarf að ná til fleiri. Komið unga fólkinu ykkur undir viðeigandi meðferð- ekki transferli. Beri enn á að barnið vilji vera hitt kynið þá kynnið transhugmyndafræðina fyrir því. Ekki fyrr.

Stúlkur fara meira að segja í hormónameðferð eftir eigin greiningu. Hægt að fjarlægja brjóst án greiningar og meðferðar segir Abigail. Ákvörðun sem er ekki afturkræf.

Margir skurðlæknar vilja ekki eyðileggja heilbrigða líkama, þeir sem gera það halda að stúlkum líki og vilji þetta. Takið eftir án greiningar og meðferðar.


Karlmaður gengur með barn

Hver heilvita maður veit að karlmenn geta ekki verið ófrískir. Karlmenn hafa ekki þau líffæri sem þarf til að ganga með barn. Samt fannst Glamour voða sniðugt að kynna ,,karlmann“ til sögunnar sem er með barni. Það vita allir að til þess þarf leg. Sem sagt kona sem skilgreinir sig sem karl er ófrísk. 

Afbökun, eins og þessi af raunveruleikanum er móðgun við konur. Svona fréttaflutningur gerir lítið úr hlutverki móður. Vona bara að þessi stúlka, sem skilgreinir sig sem karlmann, hafi ekki látið fjarlægja brjóstin svo blessað barnið fái móðurmjólkina. Kannski á líka að ljúga að okkur með það, að karlmenn mjólki og gefi barni sínu brjóst.

Sé það staðreynd að karlmaður geti gengið með barn af hverju í ósköpunum gerist það ekki í hjónaböndum? Maður spyr sig.

Minni á að stúlkan verður móður barnsins ekki faðir þó hún skilgreini sig sem karlmann samkvæmt dómi Mannréttindadómstólsins sem féll í apríl um slíkt mál. 

Fjölmiðlar bera þetta á borð fyrir fólk eins og það hefi ekkert á milli eyrnanna, auðvitað getur karlmaður ekki gengið með barn. Líffræðin er einföld.

Hér má sjá mynd af þvælunni.


Þingmenn bera ábyrgð á sálrænu ofbeldi stúlkna

segir Pauline Hanson þingmaður í Queensland á Nýja Sjálandi en hún las upp bréf í þinginu frá föður að nafni Paul Campion. Faðirinn mótmælir harðlega þeirri ákvörðun þingmanna að staðfesta kynrænt sjálfræði og þeim réttindum sem því fylgir. Réttindin eru að nota kvennarými.

Faðir stúlkunnar bendir á að opinberir framhaldsskólar hafa leyft strákum sem skilgreina sig sem stelpu að nota einkarými stúlknanna. Þegar hann kvartaði var honum sagt að engir drengir séu í búningsklefanum, bara stúlkur. Dóttir mín er ekki heimsk, hún sér mun á strák og stelpu.

Stúlkunum er neitað um að skipta um föt í öruggi rými segir í bréfinu. Ráðherra, sem er kona, hefur sagt að allir sem skilgreina sig sem konu er kona. Þetta getur þýtt að karlkennari sem skilgreinir sig sem konu getur nýtt búningsklefa stúlkna.

Stúlkur ættu að geta farið í gegnum kynþroskann án þess að eiga þetta ofbeldi yfir höfði sér af hálfu ríkisstjórnarinnar. Hér er ekki um líkamlegt ofbeldi að ræða heldur andlegt, konur og börn verða fyrir því.

Talað er um að leyfa trans-konum, sem eru líffræðilegir karlar, að spila tennis í kvennaflokki sem hefur þær afleiðingar að trans-konur yfirtaka íþróttina vegna líffræðilegra yfirburða. Mér misbýður sem föður. Hvernig getur ríkisstjórnin beitt stúlkurnar þessu ofbeldi, það er ekki spurning hvort heldur hvenær líkamlegt ofbeldi á sér stað.

Látið dóttur mína vera. Leyfið henni að þroskast og dafna í þá unga fallega konu sem hún vill vera eru skilaboð föður til þingmanna.

Þingmaðurinn bendir á að þeir sem samþykktu lögin eru meðsekir í sálrænu ofbeldi á stúlkur og börn. Þeir ættu að skammast sín. Hún segir í lokin að hún haldi baráttu sinni áfram fyrir ungar stúlkur og konur, afnema þurfi lögin og þetta þarf burt úr skólunum. Hér má lesa hlusta á orð þingmannsins en faðirinn setti myndband af ræðunni á snjáldursíðuna sína.

Íslenskir þingmenn, þeir sem samþykktu lögin, eru undir sama ámæli og þeir sem talað er um. Þingmenn hér á landi hafa dregið þrumuský yfir kvennabaráttu landsins.

Sorglegast af öllu, mjög margar þingkonur eru í forsvari fyrir þetta andlega ofbeldi á stúlkur. Held bara að sömu þingkonurnar hafi tekið oft og kröftuglega til máls undir metoo- umræðunni og höfnuðu alls kyns áreiti í garð kvenna. Þær samþykkja og leyfa andlegt ofbeldi á þeim núna!


Ég er hommi og mér er nákvæmlega sama hvað þú skilgreinir mig, nema hinsegin.

Ég ásamt mörgum öðrum skilgreinum okkur ekki hinsegin. Þegar samtökin ,,Fri“ (samtök um kyn- og kynhneigð) og ,,Pride“ auglýsa fjölbreytileika og þú tekur þátt ertu sammála þeim segir ungur norskur hommi, Loke Aashamar í grein á Nettavisen. Greinin ber yfirskriftina, Það er ekki hatur að vilja losna við ,,Pride.“

Lausleg þýðing er mín. Skáletrun eru eigin orð.

Ástæða greinarinnar er umræður í Nettavisen um ,,Pride“ daga í Noregi sem fer misvel í fólk. Vitað er að hótelkeðja neyddist til að flagga regnbogafánanum, hafði að lokum ekkert val. Ætlaði ekki að flagga fánanum í upphafi. Forstjórinn taldi fyrirtækið hafa fullt leyfi til að ákveða hvaða fána þeir flögguðu fyrir framan hótelin. Talið að þeim hafi verið hótað, útilokun. Þeir hlýddu.

Það eru margir LHB sem eru ekki sammála trans-hugmyndafræðinni. Við sem látum í okkur heyra erum kölluð transfóbísk, nasistar, hatursmenn, hægriöfgamenn, kristnir íhaldsmenn o.s.frv. Auðvitað erum við það ekki, en þeir sem halda þessu fram telja sig í fullum rétti að nota þessi orð á okkur.

Ég er þess fullviss að þeir sem vilja hlífa börnum sínum við ,,Pride“ er ekki hatursfullt fólk og aðhyllast frekar mína skoðun en ,,Fri“ og ,,Pride“ transaðgerðasinnum.

Í bréfi sem dreift var í leik- og grunnskóla þar sem óskað er eftir að börn séu tekin úr kennslustundum til að taka þátt í ,,Pride“ segir; ,,Að bera virðingu fyrir fólki óháð húðlit, trúarbrögðum eða kynhneigð er mikilvægt og eitthvað sem foreldrar ættu að kenna börnum sínum en það er munur á að læra að virða og efla, dást að og vegsama.“  Bréfið var sent til foreldra sem þurftu að samþykkja leyfisveitinguna.

Í bréfinu er lögð áhersla á að börn læri að bera virðingu fyrir öllum burtséð frá húðlit, trúarbrögðum og stefnumörkun. Að bent sé á muninn á þessu og eflingu, aðdáun og vegsemd held ég að inniberi meira en kemur fram í bréfinu.

Félagði ,,Fri“ eru samtök sem út á við talaði fyrir hagsmunum LHB en er orðin áróðursvél fyrir hinsegin- samfélag og transhugmyndafræðin.

Transaðgerðasinnar skilgreina sig sjálfir en láta ekki þar við sitja, þeir vilja skilgreina alla aðra. Þeir óska að aðrir kalli sig það sem þeir vilja en virða ekki ósk LHB fólks sem vill ekki láta skilgreina sig sem ,,hinsegin.“ Við neyðumst til að láta það yfir okkur ganga.

Áður fjallaði ,,Pride“ um að samkynhneigðir fái sama lagalega rétt og gagnkynhneigðir. Nú er nokkuð síðan það komst á og ,,Pride“ hefur gengt hlutverki sínu.

Við höfum líka áhuga á að ,,elska þann sem þú villt“ og það er samþykkt. Í dag virðist þetta snúast við því aðgerðarsinnar vilja breyta merkingunni ,,elska þann sem þú villt“ í  að ,,elska þann sem við viljum.“

Upphaflega átti ,,Pride“ að vera í viku um allt land. Allt í góðu með það að ,,Pride“ sé á landsvísu. Við höldum jól í desember og margir segjast þreyttir á jólunum þegar þau koma því undirbúningur hefst í október. Það er ekkert skrýtið að fólk sé þreytt á ,,Pride“, við heyrum af transhugmyndafræðinni allan ársins hring.

Mér verður óglatt að sjá regnbogafánann. Margir innan LHB hafa fengið nóg af áróðrinum svo kannski ættu menn og stjórnmálamenn að taka ábendingum um afstöðu fólks.

Þeir sem eiga sök á að umræðan gegn LHB hefur snúist gegn þeim eru ,,Fri“ og ,,Pride“ og fólki eins og Söruh Gaulin sem hefur lagst á sveifina með þeim.

Hér er grein Loke.

Sarah Gaulin fellur í þá gryfju að saka andstæðinga transhugmyndafræðinnar um hatur gegn transfólki. Þar með fellur hún í sömu gryfju og Samtökin 78 og transsamtökin hafa gert hér á landi. Sarah Gaulin leggst svo lágt að hún notar hryðjuverkin á ,,Pride“ dögum fyrir tveimur árum gegn foreldrum, að hún teldi þau vera komin lengra en svo að foreldrar frábiðji sig að leik- og grunnskólabörn taki þátt í ,,Pride“ göngum skólanna. Hvílík mannleysa, segi bara ekki meira. Hryðjuverk á ekki að nota sem dæmi í áróðursbaráttu transsamtaka á börn.

Ef fólk fellur ekki fyrir transhugmyndafræðinni þá bera menn hatur í brjósti sér gagnvart því fólki sem vill skilgreina sig annað en það. Þeir sömu vilja líka afnema mannréttindi af transfólki segja transaðgerðarsinnar, án þess að benda á hvaða mannréttindi eru afnumin.

 


Foreldrar víða um heim láta í sér heyra

Segja má að þeir vakni nú hver á eftir öðrum og átti sig á transvæðingunni víða um heim. 

Faðir sem lætur sig málið varðar ræðir við fólk. Sjá hér.

Slagorðið ,,Leave the kids alone" er notað í baráttunni. Sjá hér.

Sama gerist í Ástralíu. Sjá hér.

Hér má sjá þróun sem langflestir vilja ekki sjá.

Að vera umhugað um barn sitt hefur ekkert með fóbíu eða hatursorðræðu að gera. Mannréttindi að vernda barn sitt gegn transvæðingu í leik- grunn- og framhaldsskólum heims.


Nei gagnrýni á hinsegin málefni hefur ekkert með að gera að fólk vilji afnema mannréttindi hjá nokkrum manni

Sverre Avnskog aðjúnkt og sérkennslufræðingur sem kominn er á eftirlaun segir prófessorinn draga umræðuna um hinsegin málefnin niður á svo lágt plan að hún gerir allar merkingarbærar samræður ómögulegar og það gerir hann með því að eigna gagnrýnendum miðaldarlegar og ámælisverðar skoðanir. Sverre skrifaði grein í Nettavisen. Lausleg þýðing er mín.

Það er mjög sjaldgæft að ég lesi fullyrðingar sem eru svo fullar af ranghugmyndum, strámönnum og rangtúlkunum eins og Dag Øistein Endsjø prófessor í trúarbragðafræði skrifar í Nettavisen.

Það er prófessor sem hefur hæsta akademíska titil í landinu sem skrifar um hinsegin málefnin en lætur eins og hann skilji ekki gagnrýnina sem hefur komið fram. Hann heldur fram að gagnrýnendur vilji afnema mannréttindi af þeim sem taka þátt í hinsegin viðburðum.

Hefur nokkur einhvern tímann lagt til að þátttakendur í hinsegin málefnum missi mannréttindi?

,,Hvaða mannréttindi hafa þeir á móti” spyr prófessorinn. Eins og það sé viðeigandi spurning.

,,Er það samkomufrelsi sem þeir eru á móti- réttinn til að skipuleggja sig og tjá skoðanir sínar?”

,,Er það málfrelsið sem þeir vilja takmarka?”

,,Er það kannski rétturinn til einkalífs sem þeir vilja afnema?”

,,Eða er það mannréttindin sem hafna mismunun sem þau vilja burt?”

,,Kannski mannréttindin til betri heilsu sem þeir vilja fjarlægja?”

,,Eða mannréttindin barna burt?”

,,Svo næst þegar einhvern stígur fram og fordæmir hinsegin viðburði vinsamlegast biðjið þá að vera nákvæmari um hvaða mannréttindi þeir vilja fjarlægja.”

 

Með því að spyrja svo tilgangslausra spurninga, eins og prófessorinn gerir, sem augljóslega hafa þann tilgang að eigna gagnrýnendum hinsegin málefna slíkar miðaldarlegar- og ámælisverðar skoðanir, fer prófessor Endsjø með umræðuna um hinsegin málefni á svo lágt plan að hún gerir allar vitrænar samræður ómögulegar.

Jafnvel áberandi hommi eins og fjölmiðlastjarnan Jan Thomas gagnrýndi gleðigönguna fyrir nokkrum árum og sagði að sér líði ekki vel þar sem hvers konar kynhneigð og búningar eru í forgrunni og fókusinn á kynlíf í ólíknum myndum en ekki ástina.  

Sú staðreynd að prófessor Endsjø hafi í raun ekki áttað sig á því að gagnrýni af þessu tagi ýtir undir viðhorfu gegn hinsegin málefnum er næstum ótrúlegt. Mig grunar að hann þykist ekki vita betur en gefur sér að gagnrýnendur séu á móti mannréttindum.   

Þeir sem standa fyrir hinsegin viðburðum segja markmiðið að berjast fyrir að allir eigi rétt á að elska þann sem þeir vilja. Ég held í reynd að þeir séu afar fáir í Noregi sem hafa á móti þeim réttindum.

Það er allavega ekki um það sem gagnrýnin fjallar. Langt í frá.

Gagnrýnin á hinsegin málefni snýst ekki um réttinn til að elska þann sem maður vill, heldur að málaflokkurinn ýti undir kynjahugmyndafræði sem er mjög umdeild, vægt til orða tekið. Þeir sem eru á því að líffræðilegu kynin séu tvö, karl og kona, hafa örugglega sín mannréttindin líka, ekki satt?

Það hlýtur að vera leyfilegt, í nafni málfrelsis, að gagnrýna hinsegin málefnin þar sem þau draga fram sýn á kyn sem ekki ríkir sátt um. Það er líka mannréttindi.

Það hlýtur líka að vera fullkomlega löglegt, í nafni málfrelsis, að bregðast neikvætt við, þegar fólk klætt í búninga úr leðri og lakki gengur og teymir hvort annað eins og hunda í taumi og þátttakendur gleðigöngunnar tala í fjölmiðlum um mismunandi kynhneigð, þar sem t.d. karlmenn koma fram með kynhneigð þar sem þeir njóta þess að láta sparka í eistun á sér.

Eru það virkilega mannréttindi að geta sagt í fjölmiðlum að þú viljir láta berja þig, hýða, gera lítið úr þér og sparka í rassinn?

Er leyfilegt að telja slíka áherslu á kynhneigð í öllum afbrigðum óhóflega þar sem sumum kann að finnst uppáþrengjandi og að maður vilji frekar hafa þetta fyrir einkaklúbba? Þarf kynlífsþráhyggjur út á göturnar til að sýna allt og alla?

Við erum mörg sem viljum tjá okkur í fjölmiðlum en flest upplifum við að okkur sé hafnað og neitað um birtingu. Er það brot á málfrelsi okkar?

Hinsegin samfélagið skipar stóran sess í fjölmiðlum og virðast hafa alla fjölmiðla með sér til að ala á þessari hugmyndafræði í heilan mánuð, í leikskólum, skólum og á götum úti. Næstum hver stofnun í Noregi mun nú prýða sig með sínum eigin hinsegin viðburðum.

Hér má lesa greinina sem Sverre svarar.


Þær eru brandari

segja margir.

Aðrir segja ekki, þetta sé réttur.

Margir segja nei, alls ekki.

Sumir segja, slíkt á sér ekki stoð í raunveruleikanum.

Þær benda nú samt á það, raunveruleikinn, sjáðu.

Persónuleg skoðun, þetta nær ekki nokkurri átt!


Í alvöru, tala menn svona?

Mörgum finnst þetta skrýtið.

Mörgum finnst þetta kjánalegt.

Mörgum finnst fólk sem talar svona gera lítið úr sér.

Mörgum finnst þetta heimska.

Hér talar þingmaður eins og hún viti ekki hvort hún er að koma eða fara.

Persónulega finnst mér hún niðurlægja sig, held hún viti betur.


Ekki er öll vitleysan eins

hugsaði ég þegar ég horfði á þetta myndband

Mörgum þykir þetta ekki nokkrum manni bjóðandi.

Mörgum þykir þetta svo vitlaust að það nái ekki nokkurri átt.

Mörgum þykir þetta auðmýkjandi.

Mörgum þykir þetta heimska.

Hvað sem mörgum þykir þá segi ég nú bara, ekki er öll vitleysan eins.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband