Hvar eru metoo hreyfingarnar, Kvenréttindafélög, femínistar og mæður

þegar stúlkur sem sætta sig ekki við stráka í búningsklefum kalla á hjálp?

Stúlka sem kvartar til yfirstjórnar skóla, í útlöndum, því hún kærði sig ekki um strák, sem skilgreinir sig sem stelpu, í búningsklefanum. Hún fékk að heyra að hann mætti það. Dæmigert að réttindi kvenna séu látin víkja fyrir hugarástandi stráks.

Stúlkunni var vikið úr skólanum vegna skoðana sinna um að karlmaður ætti ekki að vera í kvennarýminu. Þegar skólayfirvöldum var hótað lögsókn féllu þeir frá brottrekstri stúlkunnar. Engir kvennahópar koma til aðstoðar eða láta í sér heyra. Af hverju ekki? Er hugarástand stráks mikilvægari en auðmýking stúlku?

Stúlkunni var boðin endurmenntun í líffræði. Lögfræðingur sem segir stúlkuna ekki þurfa endurmenntun segir hana vita nákvæmlega að stelpa er kvenkyn og strákur karlkyn. Stjórnarskráin kveður á um það.

Skólinn þvingar kynin til að vera saman, afklæðast fyrir framan gagnstæða kyninu. Stendur enginn upp fyrir stúlkunum. Hvar eru femínistar, metoo hreyfingin, kvennaréttindasamtök og þeir sem berjast fyrir réttindum kvenna? Það má spyrja sig. Kvenréttindafélag Íslands hefur ekki sagt orð um svona mál, að stúlkur þurfi að sætta sig við að strákar skipti um föt í búningsklefa kvenna á þeirri forsendu að þeir skilgreini sig sem stelpur.

Faðir stúlkunnar sem spyr, hver er réttur dóttur minnar og hver berst fyrir hana. Við það missti hann vinnuna og launin. Lífsviðurværi manns hverfur einfaldlega vegna þess að hann vill ekki strák inn í búningsklefa með dóttur sinni og öðrum stelpum. Aðrir feður sem létu þetta yfir stúlkurnar sínar ganga ættu að skammast sín. Ekki bara feður heldur mæður líka. Foreldrar um allan heim verða að vakna. Þetta er raunveruleiki og tilfellum fjölgar bara. Hlustið.

 

Hvar eru öll kvennasamtökin sem hafa barist í metoo hreyfingum um allan heim?

Faðir stúlku sem var nauðgað í búningsklefa var fjarlægður af lögreglu þegar hann talaði á opnum fundi skólaráðsins. Strákur sem skilgreinir sig sem stelpu nauðgaði dóttur hans í búningsklefa skólans. Transaðgerðarsinni sem er móðir í skólanum áreitti konuna hans. Maðurinn reyndi að segja aðgerðarsinnanum hvað gerðist en hún sagði honum að þetta hefði ekki gerst. Dóttur hans var ekki nauðgað!

Skólinn hefur brugðist einkennilega við málinu, má hluta á það hér. Hefði þetta verið karlmaður, en ekki strákur sem skilgreinir sig sem stelpu, hefðu málin þróast á annan veg. Nokkuð viss. Faðir stúlkunnar segir strákinn hafi ákveðið sig dag frá degi hvað hann ætli að vera. Bendir á myndir sem hann á og geti leyft fólki að skoða. Strákurinn er ekki alltaf klæddur eins og stelpa. Hjónin börðust fyrir að drengurinn fengi aðstoð því þau eru handviss um að hann láti til sín taka að nýju. Stúlkur þolendur!

Hvar eru öll kvennasamtökin sem hafa barist í metoo hreyfingum um allan heim? Af hverju þurfa stelpur að láta þetta yfir sig ganga? Merkilegt að fjöldahreyfingar kvenna séu þöglar sem gröfin. Hlustið.


Skömm að þessu

Nú var transkona, karlmaður sem skilgreinir sig sem konu, valin fegurst allra í kvennafegurðarsamkeppni. Niðurlæging kvenna alger. 

Menn þykjast setja kvennakvóta í stjórnir og nefndir. Hvernig á að framfylgja slíku þegar ekki er vitað hvort karl sem segir sig konu sækir um. Í mínum huga er það karlmaður. 


Transfólk er í meiri sjálfsvígshættu en unglingar sem glíma við kynama

Ný ritgerð um sjálfsvígstilraunir og sjálfsvíg meðal trans fólks birtist nýlega. Það er þekkt að aukin sjálfsmorðsáhætta er til staðar meðal hópsins. Rannsóknin er unnin út frá persónuupplýsingum og rannsakendur hafa fylgt Dönum sem eru skráðir trans, það vil segja gögnin eru ekki hlutdræg.

Í rannsókninni er fjallað um einstaklinga 15 ára og eldri sem eru fædd í Danmörku og fundust á árunum 1980 - 2021. Trans einstaklingur telst sá vera sem hefur fengið greiningu frá læknum og/eða hafa skipt um kennitölu frá manni til konu og öfugt. Þetta eru 3759 einstaklingar af 6.6 milljónum, sem vil segja um 0.06.% af íbúum. Að meðaltali var fólkið 22 ára þegar það var skráð trans.

Sjálfsmorðstilraun er skráð eftir samskipti einstaklings við sjúkrahús og eru upplýsingarnar skráðar í sjúkraskýrslu viðkomandi. Sjálfsvíg er skráð sem dánarorsök.

Stærsti hluti transfólks á árunum 2015-2021 er á aldrinum 15-25 ára.

Meðalaldur þeirra sem reynda sjálfsvíg í fyrsta skiptið er 27 ár. Algengi sjálfsvígstilrauna er skráð, þegar búið er að leiðrétta m.t.t. aldurs og fleira, er hún 7,7 hærri meðal trans fólks en annarra. Algengi þeirra sem tekst ætlunarverk sinn er 3,5 hærri fyrir transfólk en aðra íbúa. Þeim sem tókst að taka eigið líf voru að meðaltali 45 ára og kom bara fyrir hjá mönnum sem eru trans konur, ekki meðal kvenna sem eru trans menn.

Trans fólk hafði líka hærri tíðni dauðsfalla af öðrum ástæðum en sjálfsmorð.

Niðurstöðurnar samrýmast öðrum rannsóknum. Í verkefni SEXUS (2017-2018) svöruðu 23-24% trans fólks að þau hefðu gert tilraun til sjálfsvígs á móti 2-4% annarra íbúa.

Það finnast líka rannsóknir frá Svíþjóð, Hollandi og Englandi sem sýna sömu niðurstöður og danska rannsóknin. Sænsk rannsókn frá 1973-2003 sem fjallar um fólk sem fór í kynskiptiaðgerð. Meðal þeirra er sjálfsmorðstíðnin 3,6 hærri en í dönsku rannsókninni.

Hér er talað um fólk sem ER viðurkennt sem trans af samfélaginu, með því að skipta um kennitölu og læknisfræðileg inngrip.

Sjálfvígstíðnin lækkar ekki þó samfélagið viðurkenni skynjun einstaklings á eigin kyni sem er í ósamræmi við fæðingarkyn. 

Í tengslum við að unglingar óski eftir kynskiptum finna þau ráðleggingar á vafasömum vefsíðum þar sem þeim er ráðlagt að sannfæra foreldra fyrir kynskiptunum. Eitt af ráðnum er að ef þau viðurkenni ekki að þau séu trans þá sé mikil áhætta fyrir að þau taki eigið líf. Formleg viðurkenning tryggir ekki að trans fólk taki eigið líf, þvert á móti.

Fólk sem telur sig fætt í röngum líkama á oftar en ekki við andleg veikindi að stríða ofan á þessa tilfinningu sína. Það er eitthvað í heilanum sem orsakar vanlíðan þeirra. Að auki geta umhverfisáhrifin haft svipuð áhrif.

Pistill Politiken um rannsóknina hefur fyrirsögnina ,,yfirgengilegar tölur samkvæmt sérfræðingum.” Tölurnar eru ekki hærri en maður hefur séð í öðrum rannsóknum, heldur þvert á móti.

Politiken talaði m.a. við Astrid Højgaard sem er yfirlæknir á Kynstofunni Center í Álaborg, þar sem maður sinnir transfólki. Samkvæmt Astrid getur þessi vanlíðan orsakast af mögum þáttum. Ein af ástæðunum er streitan við að tilheyra minnihlutahóp og að ,,við sem samfélag erum ekki mjög góð í að faðma minnihlutahópa.”

Það skal nefnt að tölurnar í dönsku rannsókninni sýna að áhætta fyrir sjálfsmorði meðal trans fólks undanfarna áratugi fer minnkandi. Það gæti hangið saman með auknum skilningi og umburðarlyndi undanfarin ár. En það gæti líka hangið saman við að fleiri skipta um kyn og hlutfallslega fleiri sem skipta um kyn eru hæfir til þess. 

Tekið saman af Kåre Fog líffræðingi. Lausleg þýðing er mín.

Hér er krækja á ritgerðina.


Samtökin 22 og systursamtök þeirra á Norðurlöndunum

Til að sporna við alheimsyfirráðum trans aðgerðasinna hafa fjöldinn allur af lesbíum og hommum stofnað samtök á Norðurlöndunum. Dregið sig út úr trans hreyfingum. Hér á landi hafa Samtökin fengið töluna 22 aftan við nafnið. Forsvarsmenn Samtaka 22 hafa reynt að koma málstað sínum á framfæri en fjölmiðlar hafna þeim. Samtökin 78 sem hafa einkarétt á fjölmiðlum þegar transmálaflokkurinn er annars vegar hafa séð til þess. Hvernig, mér dettur í hug slaufun og illt umtal eins og aðrar trans hreyfingar í heiminum nota.

Hommum og lesbíum á Norðurlöndunum finnst nóg komið af trans málaflokknum sem hefur verið afbakaður að þeirra mati. Að mati samtakanna er of mikil áhersla á börn og trans væðingu þeirra.

Í ágúst munu Samtökin 22 halda málþing í Reykjavík, þann 12. ágúst, þar mun m.a. Tonje Gjevjon halda erindi. Hún er lesbía og var stefnt fyrir hatursorð í Noregi þegar hún sagði að karlmaður gæti ekki verið lesbía. Verður áhugavert að hlusta á hana.

Samtökin hafna því að trans kona (karlmaður sem skilgreinir sig sem konu) og er með typpi geta sagst vera lesbía. Á stefnumótasíðum fyrir lesbíur hafa þessir menn verið og telja sig eiga fullan rétt á því. Lesbíur eru þeim ekki sammála enda vita allir hvað lesbía er, kona sem elskar aðra konu, báðar með XX- litninga, píku og brjóst. Hafni lesbía stefnumóti við karl í þykjustuleik sem lesbía fær hún alls konar óhróður yfir sig.

Samtökin hafa líka barist gegn að trans karl (kona sem skilgreinir sig sem mann) en er með píku og brjóst geti kallað sig homma. Þeir sem vita ekki hvað hommi er þá er það karl sem elskar annan karl og báðir með XY litninga, typpi og pung. Það hefur trans karl ekki.

Öll samtökin hafna þeirri trans kennslu sem fram fer í leik- og grunnskólum á Norðurlöndunum. Þeim þykir fræðslan vera komin út fyrir velsæmisins mörk. Að kenna börnum að kynin séu fleiri en tvö er rangt að þeirra mati. Breytingar á tungumálinu hugnast þessum hommum og lesbíum ekki.

Samtökin hafa tekið höndum saman og berjast gegn trans væðingu barna. Þau hafna læknisfræðilegum inngripum í lífi barns sem glímir við ónot í eigin kyni. Þau mæla með góðri sálfræðimeðferð. Börn geta ekki verið trans, þetta eru börn sem eiga í erfiðleikum á kynþroskaskeiðinu og þurfa aðstoð. Þetta eru börn sem glíma oft við aðra andlega vanlíðan og eiga að fá aðstoð. Ef börnin fá að vera í friði, að fullorðnir hendi þeim ekki á translestina, þá verða mörg hver samkynhneigð og hin sættast við líkama sinn og kyn.

Öll samtökin hafa gefið út að þau skipta sér ekki af hvað fullorðið fólk gerir við líkama sinn og hvernig það lifir lífi sínu.  Þau hafa bent á að réttindi eins hóps á ekki að skerða réttindi annars hóps. Í því samhengi er bent á að ungar stúlkur mega þola að karl sem skilgreinir sig sem konu kemur í einkarými kvenna. Samtökin hafna, stúlknanna vegna að það sé lagalegur réttur karlanna. Sama gildir um konur sem skilgreina sig sem karlmann og aðgang að einkarýmum karla.

Orðið hér að neðan voru smíðuð þannig að orðið kona og karl komi ekki fyrir þegar talað er um trans fólk. Slíkt ruglar marga. Trans kona- er ekki kvenmaður. Trans maður- er ekki karlmaður.

Finnum góð íslensk orð yfir þessi orð og komum þeim inn í tungumálið.

Transvestite: Einhver sem hefur ánægju af að klæðast fötum hins kynsins.

Transsexual: Sá sem fer í kynskiptiaðgerð

Þeir sem aðhyllast baráttumálum Samtaka 22 og hafa áhuga á að styrkja þau geta lagt þeim lið.

Reikningur 0370-26-039568 kennitala: 640123-0440

Þú getur líka boðið samtökunum upp á kaffibolla, einn eða fleiri, Samtökin 22 -+ Hagsmunasamtök Samkynhneigðra (buymeacoffee.com)

Framlög til samtakanna eru frádráttarbær frá skatti. Margt smátt gerir eitt stórt.


Látið ekki hræða ykkur til þöggunar

Aðvara þarf við þróuninni þar sem lítill minnihluti getur breytt samfélagi. Kröfur minnihlutahópa að hafa áhrif á vestræn lýðræðis samfélög og breyta þeim að hluta er þróun sem við eigum ekki að sætta okkur við. Stöndum ekki á hliðarlínunni. Við þurfum inn á völlinn og taka þátt í umræðunni. Minnihluti getur gert kröfur á samfélag sem þorri manna er ekki fylgjandi. Allt gert í nafni jaðarhópa og rétttrúnaðar. Þarf ekki annað en hugsa til tungumálsins.

Saga blaðamanns, konu, sem var áreitt persónulega og sökuð um transfóbíu missti vinnuna fyrir að skrifa á hlutalausan hátt um að kynin séu tvö og rétt kvenna til einkarýma sinna. Í fréttinni sem skipti sköpum benti hún á lönd sem hafa dregið í land vegna lyfjagjafa barna sem glíma við kynáttu. Lyfjameðferðin er áhættusöm og hún vegur ekki upp á móti gagnsemi meðferðarinnar.

Hér má sjá frétt um málið og spjall við fréttamanninn sem um ræðir

Sem betur fer hafa blaðamenn unnið dómsmál gegn vinnuveitendum sínum. Ekki ýkja langt síðan að tvær breskar konur, sem voru reknar fyrir að segja að kynin séu tvö, unnu mál sín í vinnuréttinum. Hér má lesa um annað þeirra.

Við megum alls ekki gleyma málum sem reynt var að höfða gegn norskum konum, sem taka þátt í transumræðunni, lögreglan felldi þau niður. Engin ,,hatursorðræða” í málflutningi þeirra. Það er vinsælt af transeinstaklingum og hreyfingum víða um heim að saka fólk um slík ummæli. Hér má lesa um annað málið.

Hér á landi kærðu transaðgerðasinnar sálfræðing fyrir skrif sem byggja á staðreyndum. Alþjóð veit hvernig fór. Eins og í Noregi, engin ,,hatursorðræða.” Grein um málið má lesa hér.

Transkonum (karlmaður sem skilgreinir sig sem konu), og er aðgerðasinni, virðist umhugað að þagga niður baráttu kvenna og umræðuna um transmálaflokkinn. Af hverju er mér hulin ráðgáta. Telji þessir menn sig vera konur ættu þeir frekar að berjast fyrir réttindum kvenna. Annað kemur á daginn. Er það vilji þeirra að komast í búningsklefa kvenna, í íþróttir og önnur rými sem bara konur og stúlkur hafa aðgang að. Hugsanagangur sem erfitt er að skilja.

Eva Hauksdóttir lögmaður er ein þeirra sem ver tjáningarfrelsið. Hér og hér má lesa greinar um mál sem hún hefur komið að. Við þurfum á fólki að halda sem heldur í rétt almúgans til að tjá sig. Þessi mál eins og öll hin snéru að hinsegin málaflokknum og hafa ekkert til saka unnið annað er málnefnanlegan og þörf umræða. Menn velja hins vegar bálköstin og blaður til að verjast transmálaflokknum í stað umræðu.

Brynjar Níelsson er einn þeirra sem ver tjáningarfrelsið og hér skrifar hann pistil um samræður Guðmundar Andra Thorssonar og Þorbjargar Þorvaldsdóttur fulltrúa Samtaka 78 í þættinum Sprengisandur. Rétt eins og Brynjar bendir á, fánýtar samræður um tjáningarfrelsið. Kristján þáttastjórnandi Sprengisands tiplar á tám um málaflokkinn og það gerðu Gulli og Heimir líka í Bítið á Stöð 2 einn daginn.

Krossgötur.is er vefur þar sem rætt er um tjáningarfrelsið út frá alls konar málefnum. Hér er grein sem er í anda þess sem að ofan greinir, brottrekstur fyrir tjáningarfrelsið.

Manni virðist á þessum ásökunum að umræða og ummæli transaðgerðasinna eigi meiri rétt á sér en þær staðreyndir sem blaðamenn hafa sett fram. Hatur transaðgerðasinna á þeim sem kokgleypa ekki hugmyndafræði þeirra er orðið rétthærri sannleikanum og staðreyndum. Ætti að skelfa alla sem vilja að tjáningarfrelsið og lýðræði ríki. Þá sem vilja málefnanlega umræðu.

Enn sem fyrr, á Íslandi er enginn hugaður blaðamaður sem þorir að ræða sannleikann og staðreyndir þegar transmálaflokkurinn er annars vegar. 


Skyldi svona ofbeldi kennara og skólayfirvalda þrífast enn?

Í kjölfar myndbandsins þar sem kennari skammar nemendur sína fyrir að viðurkenna ekki að skilgreina megi sig sem kött varð til að þessi þáttastjórnandi ræddi við ungan mann. Honum var vísað úr skóla fyrir að segja sannleikann. Stórhættulegur kennari, lætur nemanda gjalda þess að segja sannleikann. Hvet ykkur til að hlusta.

Allt hófst þetta með að kennari rekur augun í síðu sem gefur bara val um karl og konu. Ræddi að það vantaði fleiri möguleika þar sem sumir skilgreina sig annað kyn. Nemandinn var ekki sammála því. Þetta er árið 2019 og strákurinn á ekki til orð að þetta sé enn í gangi.

Eftir því sem best verður séð hefur ástandið í skólum versnað en batnað. Enn vantar baráttuglatt fólk sem berst fyrir að sannleikurinn sé sagna bestur, kynin eru tvö.

Drengurinn lendir í rökræðum við kennarann og er vísað út úr tíma og þeir ætluðu að ræða saman síðar. Hann bíður eftir kennara í um 40 mínúturnar og ákveður þá að taka upp samræðurnar. Myndskeiðið fór á netið.

Honum var vísað úr skóla fyrir að segja sannleikann. Hvers konar geðveiki hefur gripið um sig í samfélögum sem reynir að telja fólki trú um að kynin séu fleiri en tvö. Hann sér ekki eftir neinu segir hann í viðtalinu.

Þegar kennarar og skólar segja að maður eigi að hafa frjálsar umræður og skoðanaskipti um allt mögulegt að þá uppgötvar maður að það má ekki þegar kemur að transmálaflokknum. Woke (rétttrúnaðar) menningin er ríkjandi og þar af leiðandi er ekki hægt að hafa skoðanaskipti.

Því miður er börnum kennt í dag að þetta sé staðreynd og það er sorglegt. Hann vill vera manneskja sem segir sannleikann í stað þess að bera út lygar. Hann vill ekki tilheyra þögla samfélaginu.

Annað tilfelli er drengur frá USA. Hann hélt fram að kynin væri tvö og átti að afsaka orð sín fyrir bekkinn. Afsaka líffræðilegan sannleik. Enn einn hættulegur kennari. Hann var ósáttur að kennt væri að kynin væru fleiri en tvö. Hann benti á staðreyndir líffræðinnar.

Síðan má spyrja hvort við viðurkennum að fullvaxta karlmaður sem langar að vera barn verði meðhöndlaður sem sex ára. Kannski glímir maðurinn við andlega veikindi og ætti að fá viðeigandi aðstoð.

Á Krossgötur.is birtist grein sem fjallar um skilgreiningar og hvernig skólasamfélagið hamrar á skólabörnum um skilgreiningar á kyngervi sem eru fráleitar. 

Til að svara fyrirsögninni þá vona ég að kennarar og skólayfirvöld hafi hugsað sinn gang og að svona ofbeldi þrífist ekki lengur í skólum. Sannleikurinn er sagna bestur.

 


Ætli starfsmennirnir sem skrifuðu undir séu meðvitaðir um hvað LGBTQ+ hreyfingin stendur fyrir.

Chr.Hansen er stórt fyrirtæki í matvælaiðnaðnum sem hefur fengið hótanir frá amerískum samstarfsaðilum um að hætta stuðningi við LGBTQ+ samfélagið.

Það er samkvæmt Verðbréfabankanum hótanir og slaufun í USA sem fékk Chr. Hansen til að taka ákvörðunina um að stoppa allan stuðning við pride, regnbogafánann og LGBTQ+. Ákvörðunin olli reiði meðal starfsmanna.

Varaforstjóri fyrirtækisins segir að um sé að ræða ofbeldisfullar og alvarlegar hótanir frá amerískum samstarfsaðilum. Chr.Hansen valdi að gefa eftir fyrir hótunum af tilliti til öryggi starfsmanna (m.a. í USA) og af tilliti til markaðshlutdeildar.

Um 400 starfsmenn skrifuðu til stjórnarinnar og þar stendur ,,Við erum mjög leið yfir ákvörðuninni. Okkur finnst þið verðsetja hagnað, hlutabréf og viðskiptavini ykkar ofar en starfsmenn, vinnuumhverfi og jaðarsetta minnihlutahópa um allan heim sem hafa not fyrir stuðning ykkar á þessum tíma sem vert er að hafa áhyggjur af.”

Ætli starfsmennirnir sem skrifuðu undir séu meðvitaðir um hvað LGBTQ+ hreyfingin stendur fyrir. Þau halda sennilega að um sé að ræða kúgað fólk sem hefur mikil not fyrir stuðning. Þau halda sennilega að maður sýni hve góður maður er ef samtökin séu studd.

En í reynd er þetta bara hluti af stuðningnum til LGBTQ+ og margt bendir til að samtökin hafi efni á að ráða fólk sem berst gegn fólki sem er ekki sammála því. Þetta eru vel skipulögð samtök sem þrýsta kröftuglega á að efnið þeirra komist að sem víða m.a. inn í skólana. Samtökin nota sérlega ógeðfelldar aðferðir til að hóta og skemma fólk sem fer gegn hugmyndafræðinni.

Það er ekki undra að margir hafi fengið nóg af árásagjörnum aðferðum í USA og fara gegn samtökunum og nota til þess sömu aðferðir og þeir hafa verið beittir.

Á Íslandi sér forsætisráðherra þessum samtökum, ásamt mögum fyrirtækjum, fyrir peningum. Skemmst frá því að segja að Katrín Jakobsdóttir lét Samtökin 78 fá 55 milljónir til m.a. að sporna við hatursorðræðu. Það vil segja þegar fólk segir sannleikann mega samtökin höggva í menn.

Ekki er ýkja langt síðan Target gerði slíkt hið sama. Fyrirtækið fór yfir velsæmis mörk samfélagsþegna og viðskiptavina sinna. Fötum sem höfða til hinsegin samfélagsins var stillt fram fyrir börn og það þótti mörgum of langt gengið í transvæðingu barna.

Hér má sjá fréttina á DR 1.

Børsen sá ástæðu til að fjalla um málið.

TV-2 gerði málinu líka skil.


Fyrir hvað stöndum við, regnbogfáninn er auglýsing

og mér líkar hann illa segir þessi frægi leikari Laurence Fox. Hér ræðir hann m.a. um transmálaflokkinn. Leikarinn hefur stofnað flokk sem mun berjast fyrir m.a. þessum málefnum á þingi.

Málfrelsi

Transhugmyndafræði

Innflytjendum

Menntun

Loftslagsbreytingar

Hann kemur líka inn á baráttu annarra hópa sem hafa verið á undan. Laurence fer vítt og breitt um þá málaflokka sem hann hefur áhuga á að tekið sá á í Bretlandi.

Honum finnst margt að þegar kemur að transmálaflokknum. Meðan annars segir hann, að karlmaður  sem klæði sig í kjól og kalli sig Brendu og skilgreini sig sem konu er ótrúverðugt og að samfélagið sætti sig við það er með ólíkindum. Við slíkan gjörning verður engin kona, maður er fæddur kona eða karl.

Hefur ekkert með fóbíu að gera. Aðgerðasinnar hóta fólki að kæra þá sem eru ekki sammála fyrir hatursorðræðu. Laurence er á móti limlestingum á börnum þegar kemur að skurðaðgerðum á börnum og lyfjagjöfum.

Í þessu myndbandi fer hann vel yfir hvernig skólakerfið reyndir að transvæða börn í Bretlandi.

Af hverju ertu að þessu spyr spyrillinn, hann svarar: að standa og gera ekkert er ekki í boði.


Fleiri þurfa að hverfa frá störfum

Það er ekki nóg að hún ein fari. Hún var ekki ein um klúðrið. Auðvitað á stjórn og allir sem komu að sölunni og höfðu ákvörðunarrétt að fara frá Íslandsbanka.

Umræðan hefur ekki verið minni eða harðari en tilefni gefur til. Birta á nafnalistann sem keypti í bankanum. Allt gegnsætt.

Mér þykja margir stjórnmálamenn ættu að taka hana sér til fyrirmyndar, þeir eru nokkrir sem hafa hlaupið illilega á sig án þessa að segja stöðu sinni lausri. Þeir virðast límdir við stólana sína. Fyrir stuttu varð ráðherra jafnréttismála í Noregi að segja af sér, hún réði vini og ættingja í opinberar stöður sem eru vel launaðar.

Ekki það Noregur má fagna að ráðherrann hverfi á braut, hann er einn þeirra sem stendur fyrir frumvarpi sem vill að börn séu fjarlægð frá foreldrum ef þau gera ekki eins og barnið vill þegar það segist vera trans. Hverri þjóð til heilla að slíkur ráðherrar og þingmaður hverfi af braut.


mbl.is Yfirgefur bankann „með miklum trega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Héðan kemur nei takk

 Það er mikill munur að segja en hugsa:

,,Ég vil gjarnan að þú viðurkennir tilfinningar mínar.”

Í það að segja:

,,Þú kallast cis af því ég segi það- og þú átt að líta á mig sem andstæðu af líffræðilegu kyni mínu og þú átt að tala um mig sem slíkan, líka þegar þú talar við aðra og þegar þú lýsir þínum veruleika.”

Annað er í lagi- hitt er fasismi.

Héðan kemur nei takk.

Ég get sagt án fordóma að ég viðurkenni að fáeinir einstaklingar upplifa sig sem annað kyn en það líffræðilega. Ég styð rétt þeirra til að lifa í öryggi í samræmi við kyngervi þess, svo lengi sem þeir taka ekki réttindi frá öðrum og öryggi. Ég get meira að segja samþykkt aðgerðir sem tryggja transfólk, m.m., auðvitað gengið út frá að þessar aðgerðir skaði ekki öryggi aðra, þar á meðal kvenna og barna.

Ég get ekki undir neinum kringumstæðum stutt að kvennarými, kvennaíþróttir og kvennafangelsi m.a. verða opnuð fyrir líffræðilega fædda karlmenn.

Ég get ekki undir neinum kringumstæðum stutt kröfu transfólks um breytingar á tungumálinu, réttindum, lagabreytingum sem grundvallast af líffræðilegu kyni.

Líffræðilegt kyn er vísindalega sannreyndur veruleiki- og tungumálið, réttindi og lög sem grundvallast á líffræðilegu kyni og mín skoðun er að það skal  vera óbreytt- sama á við um rannsóknir í læknavísindum og læknisfræði.

Allt annað er óásættanleg fyrir mig.

Þess vegna mæli ég gegn þessu.

Mun halda því áfram.

Søs Lihn Nielsen skrifaði þessa færslu á snjáldursíðuna sína og ég þýddi lauslega.

Á snjáldursíðu hennar hafa margir tekið undir orð hennar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband