15.9.2023 | 19:37
Kvensjúkdómalæknir sinnir bara konum
ekki karlmönnum sem skilgreina sig sem konu. Hér má lesa um málið.
Fyrir flesta menn er þetta augljóst. Til að leita til kvensjúkdómalæknis þarftu að hafa kvenmannslíffæri. Þar liggur sérhæfingin segir franski læknirinn í greininni.
Trans-samtök una ekki við þetta. Svei mér þá er fólk svona heimskt eða? Hvernig á kvensjúkdómalæknir að skoða og hjálpa trans-konu með líffæri karlmanns. Reynið að ímynda ykkur það
Trans-fólk gerði það sem það gerir. Ráðast að skynsömu fólki, kallar það trans-fóbískt fyrir að segja sannleikann. Læknirinn svaraði.
"Ég er kvensjúkdómalæknir og hugsa um alvöru konur. Ég hef enga hæfileika til að sjá um KARLMENN, jafnvel þótt þeir hafi rakað af sér skeggið og sagt ritaranum mínum að þeir séu orðnir konur. Kvensjúkdómafræðileg skoðun hentar ekki karlmanni. Það eru sérhæfðari og mjög hæf þjónusta til að sjá um menn eins og þig," skrifaði Acharian og lagði áherslu á texta sinn með hástöfum. "Takk fyrir að upplýsa trans-fólk um að koma aldrei til mín."
Tek hatt mitt ofan fyrir þessum lækni að standa með læknisfræðilegri þekkingu sinni. Enda er tíma hans mjög illa varið að ræða og skoða trans-konu sem hefur ekkert í líkamanum sem hann getur fjallað um fagleg séð. Fleiri þurfa að stíga fram og segja sannleikann um líkamana karlmanns og kvenmanns. Þessi lenti í gini úlfsins sem margir dásama.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2023 | 19:51
Fréttaflutningur Ruv fyrir neðan allar hellur
Fréttamenn níða skóinn af fólki í Samtökunum 22 og fá forsvarsmann trans Samtakana 78 í lið með sér. Fólkið er nýtt niður í aðalfréttatíma sjónvarpsins með hjálp forsvarsmanns trans Samtakanna 78 án þess að fréttamenn gefi öðrum kost á að tjá sig.
Hvað gengur Hauki Hólm til og fréttastofunni? Af hverju fjalla þeir ekki hlutlaust um trans- málaflokkinn og ræða við báða aðila. Að þjóðin skuli sitja uppi með fréttamenn, á ríkismiðli, sem eru svona hlutdrægir er til háborinnar skammar.
Nokkuð skýr einstaklingur getur séð á stefnuskrá Samtaka 22 að ekkert hatur, fordómar eða annað einkennilegt er í gangi. Markmiðin eru skýr. Börnin og heilsa þeirra hafa forgang. Hins vegar hefur enginn frá trans Samtökunum 78 sagt hvaða falsfréttir eru sagðar, þeir segja ekki hvaða hatursorðræða er í gangi, þeir gaspra bara.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hoppar á vagninn. Hún hefur að mér vitandi ekki boðið forsvarsmönnum Samtaka 22 í spjall til að heyra hvað samtökin hafa fram að færa. Hún varði óviðeigandi fræðslu skólabarna á að sonur hennar hefði lært um túrverki og börnin hefðu gott af að vita af því. Mikil ósköp! Auðvitað verður strákur að vita að stelpur kveljist, sumar hverjar, þegar þær hafa á klæðum. En Katrín vill líka að þessar stelpur, sem strákurinn hennar á að hafa samhygð með, mæti trans- konu með kynfæri karlmanns í búningsklefa sundlauga. Katrínu finnst ekkert að því að leggja það á ungar stúlkur og konur. Henni finnst heldur ekkert athugavert að karlmaður sem skilgreinir sig sem konu keppi við þær í kvennaflokki, og vinnur vegna karlmennsku sinnar.
Við hljótum að gera meiri kröfur til fréttastofu Ruv, og annarra miðla, en að apa upp gagnrýnislaust öskur trans Samtakana 78. Komið með rök og bendið á hvar skóinn kreppir.
Samtökin 22 og þeir sem styðja málstað þeirra bera virðingu fyrir öllum einstaklingum, burt séð frá atgervi þess.
Mannréttindadómstóllinn dæmdi börnum í hag gagnvart hinsegin foreldrum. Engar fréttir fluttar af því hjá Rvu, samt er um tímamótadóm að ræða, tvo frekar en einn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2023 | 21:07
Hann er karlmaður, skilgreinir sig hán, er kynjafræðingur
og höfundur bókarinnar Kyn, kynlíf og allt hitt. Menntamálastofnun ákvað að þýða bókina og nota sem kennsluefni fyrir 7-10 ára börn.
Höfundurinn er frá Kanada og þar eru menn ekki á eitt sáttir við það sem borið er á borð fyrir börn og foreldra í hinsegin fræðum. Margir foreldrar berjast nú gegn þeirri transvæðingu sem á sér stað í skólakerfinu þar. Menn eins Chris er eitt dæmi. Mikil og hljóðlát barátta en honum verður ágengt. Þekktur víða um hinn vestræna heim.
Chris boðar það sem margir boða hér á landi. ,,Látið börnin vera en fullorðnir geta gert það sem þeir vilja. Víða má sjá mótmæli í Kanada enda þar eins og hér hefur vitundarvakning orðið meðal foreldra og margra annarra. Ekkert bakslag- heldur vitundarvakning!
Miðað við hve trans-hópurinn er fámennur er vægi örhópsins mikið í samfélaginu, stjórnsýslunni, skólum og áhrif þeirra gífurleg. Svo má deila um hvort það sé æskilegt eður ei.
Það má sjá á skrifum í bókinni, Kyn, kynlíf og allt hitt, að höfundurinn er ekki eins og fólk er flest. Held að fæstir myndu skrifa um endaþarmsuppgötvun fyrir börn í þessu samhengi.
Hann telur líka að kynin séu fleiri en tvö, sem er ekki hægt líffræðilega séð. Þess konar málflutningur eða kennsla í skólum á ekki að heyrast né sjást. Atgervi manna getur svo verið ólíkt. Það gerist í kollinum ekki litningunum.
Hugmyndir höfundar bókarinnar, Kyn, kynlíf og allt hitt, eru verulega brenglaðar á köflum. Sumt gott má finna í bókinni en ósannindi á ekki að bera á borð fyrir neinn eins og gert er í henni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2023 | 20:31
Foreldrafélag grunnskóla á Vesturlandi beitir skoðanakúgun
Foreldri benti á að það hefði sent inn lýsingar námsefnis úr bókinni ,,Kyn, kynlíf og allt hitt með spurningum um hvort fólk væri sátt með þetta. Færslan fór á snjáldursíðu foreldrafélags grunnskóla.
Ekki leið á löngu þar til færslunni var eytt út án skýringa.
Þetta sýnir glöggt hvers konar skoðanakúgun er í gangi af hálfu fólks sem hugnast ekki að ræða málið af einhverri alvöru. Hér má lesa gagnrýni á námsefnið, ekki að ósekju. Foreldrar í foreldrafélaginu ættu frekar að hvetja til umræðu en þagga hana.
Af hverju má foreldri ekki segja frá námsefni og óska eftir umræðum um það sem hann og margir aðrir foreldrar eru ekki sáttir með. Dónaleg og óvirðandi athugasemdum er sjálfsagt að eyða út.
Fulltrúar foreldrafélags sem stunda skoðanakúgun eru ekki á réttum stað og þeir sem fyrir félaginu fara ættu annað tveggja, opna umræðuna ellegar fara sem forsvarsmenn foreldrafélags. Framkoma þeirra sýnir að þeim er ekki treystandi fyrir forystunni.
Hvet fulltrúa foreldrafélagsins til að lesa þetta.
Bloggar | Breytt 13.9.2023 kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kíkti yfir bókin kyn, kynlíf og allt hitt sem gefið er út af Menntamálastofnum. Hinsegin hugmyndafræðin hefur náð tökum á starfsmönnum þar eins og víða annars staðar. Farið er með blákaldar lygar í bókinni og er stofnuninni til skammar. Að Menntamálastofnun ljúgi að nemendum þessa lands er með ólíkindum. Bókin er ætluð 7- 10 ára börnum.
Starfsmaður Menntamálasstofnunar klóraði í bakkann og stóð sig illa. Nei við þurfum ekki þessa bók. Ruv samkvæmt sér, ræðir ekki við neinn sem er gagnrýnandi heldur meðvirkir.
Rafbókina má finna hér.
Á blaðsíðu 16-17 er talað um að kynlíf sé eins og að fara í Tívolí. Meti hver fyrir sig hversu heppilegt það er. Þegar kynferðisafbrotamenn segja börnum að hafa ekki áhyggjur því þetta er eins og að vera í Tívolí.
Svo koma rangfærslur, ekki staðreyndir.
Á bls. 70-71.
Stelpur og strákar og við hin. Það er ekkert við hin. Annað tveggja er kynið stelpa eða strákur.
Flestir strákar hafa typpi. Það að hafa typpi gerir þig ekki að strák- BULL. Strákar fæðast með typpi.
Flestar stelpur hafa píku. Að hafa píku gerir þig ekki að stelpu- BULL. Allar stelpur hafa píku.
Svona rangfærslur eiga ekki að sjást í námsbókum.
Á bls. 75 er verið að gefa í skyn að væntanlegt barn sé ekki strákur eða stelpa. Hver er tilgangurinn?
Á bls. 77 er sagt frá afar sjaldgæfum frávikum um kyn eins og það sé daglegur viðburður, intersex. Mér finnst þetta óviðeigandi að tala um þennan litningagalla við 7-10 ára börn því í flestum tilfellum er greinanlegt hvort litlingaparið er ríkjandi, XX eða XY.
Á bls. 81 er dregið í efa að heilbrigðisstarfsfólk viti hvað það er að gera. Nefna okkur strák eða stelpu af því þau halda það segir í bókinni. Óboðlegt.
Á bls. 83 er talað um að flestir verða stelpa eða strákur. Þú getur ekki verið neitt annað samkvæmt líffræðinni og ég tel vafasamt að sá fræjum byggðum á trans-hugmyndafræði hjá ungum börnum.
Á bls. 84 heldur höfundur áfram að sá efasemdarfræjum sem styður ekki við vísindalega þekkingu.
Umræða um sjálfsfróun tekur svo við og eru nokkrar blaðsíður. Sitt sýnist hverjum um þessa fræðslu í skóla fyrir 7 10 ára börn. Ísland er fjölmenningarsamfélag þar sem menn fylgja ólíkum trúarbrögðum. Ef þetta samræmist ekki trúarbrögðum barna og foreldra skal varlega farið með þessa kennslu.
Á bls. 151 byrjar trans- hugmyndafræðin. Höfundi bókarinnar finnst nauðsynlegt að kynna börnum það sem hugmyndafræðin talar um.
Á bls.158-159, eru hugtökum trans-hreyfinga útskýrð, orð sem þau vilja nota. Almenningur vill ekki sjá þessi orð enda ber þeim ekki að nota þau undir neinum kringumstæðum nema vilja það sjálfir. Að troða þessu upp á börn í grunnskóla er fyrir neðan allar hellur. Í listanum má sjá ,,cis eða ,,sis sem enginn notar um konur nema trans-fólk. Það eru ekki til neinar aðrar konur nema líffræðilega fæddar konur og því er þetta uppnefni óþarft, óviðeigandi og móðgandi. Hvað þá að heilaþvo 7-10 ára börn með þessum orðum. Talað er um ,,intersex" eins og það sé mjög algengt á þessari síðu. Litningagalli ef menn skyldu ekki vita það.
Nei góðir hálsar við hljótum að krefjast vísindalegrar þekkingar og staðreynda þegar kennsluefni og fræðslu er í grunnskólum landsins, ekki hugmyndafræði trans-hreyfinga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2023 | 20:22
Fimmtíu gráir skuggar og Langholtsskóli
Þegar bókaröðin 50 gráir skuggar kom út varð uppi fótur og fit víða um heim. Sama með myndirnar. Bækurnar þóttu sýna gróft kynlífsblæti sem hluti mannskynsins stunda, sennilega fáir miðað við hausatölu. Hér á landi vilja ákveðnir menn kalla BDSM blæti kynhneigð (já þú last rétt, kynhneigð) sennilega til að styrkja stöðu sína innan trans Samtakanna 78.
BDSM er kynlífsathöfn þar sem undirgefni annars aðila er aðalhlutverkið, með samþykki, bindingar, ólar, svipur, leðurfatnaður, grímur, binda fyrir augun og hvað annað sem maður getur nefnt sem tilheyrir kynlífsleikjunum. Mörgum finnst þetta ógeðfellt blæti á meðan aðrir dýrka það. Svona er það með flest blæti. Eitt er víst, þetta er ekki fyrir börn frekar en dragdrottningar.
Undanfarna daga hefur mynd af veggspjaldi flogið um samfélagsmiðlana sem skólastjóra Langholtsskóla finnst svo smart að hafa upp á vegg. Hvernig hún réttlætir það veit ég ekki. Börn á aldrinum 6-16 ára í Langholtsskóla og öðrum skólum þar sem veggspjöldin hanga uppi geta farið á netið til að fræðast um kynlífsblæti fullorðna. Er það í verkahring skólastofnunar að auglýsa sérstakt kynlífsblæti fyrir börnum? Er það í verkahring skólastjóra? Er það í verkahring kennara? Svari hver fyrir sig.
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir starfar í Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar (sem boðar trans-málefnin af fullum krafti) segir í leiðbeiningum sínum um hvernig eigi að tala við börn um klám ,,Rannsóknir sýna að því yngri sem börn eru þegar þau verða fyrir því að sjá klám í fyrsta sinn því meiri líkur eru á að þau upplifi vanlíðan. BDSM er klám í augum margra og því undarlegt að grunnskóli haldi fram við börn að það sé kynhneigð. Reykjavíkurborg skartar sama veggspjaldi og Langholtsskóli á vef borgarinnar.
Það er engum blöðum um það að fletta að skólastjóri Langholtsskóla fór yfir strik velsæmisins gagnvart börnum. Segja má að í svona leyndum skilaboðum, sem eru á veggspjaldinu, felist ofbeldi. Auðvitað á stjórinn að standa fyrir svörum um það. Ekki bara fyrir foreldrum heldur almenningi og skólayfirvöldum.
Af hverju ágæti skólastjóri finnst þér nauðsynlegt að kynna BDSM-blæti fyrir börn sem ganga í Langholtsskóla?
Kristján Hreinsson skáld skrifaði góðan pistil á snjáldursíðuna sína í gær. Hvet ykkur til að lesa. Hann vill ganga lengra og stofna samtök.
Foreldrasamtök voru stofnuð í Noregi, þau vilja staðreyndakennslu í skólum ekki hugmyndafræði. Foreldrar streyma inn í félagið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2023 | 08:03
Ég sendi á skólastjóra Síðuskóla á Akureyri fyrirspurn um komandi ,,kennsluefni" hinseginfræðslu.
Foreldrar á Akureyri og víðar eru meðvitaðri um hvað gengur á innan veggja skólanna í kjölfar umræðu í samfélaginu. Láta sig málið varða. Faðir á Akureyri leyfði mér að birta þessu færslu sem hann birti á snjáldursíðu og ég rakst á fyrir tilviljun.
Hann segir:
Nokkrar spurningar og smá útskýringu á minni skoðun. Hún gat engu svarað vegna þess að engar upplýsingar höfðu borist til hennar. Hún sagðist myndi heyra í mér þegar hún hefði eitthvað í höndunum og benti mér á að hafa samband við Kristínu Jóhannesdóttur sviðstjóra eða Heimi Örn Árnason formann fræðslu- og lýðheilsuráðs. Sem ég gerði.
Þau hafa ekki enn svarað.
Ég sá fyrir einhverju síðan fréttir um að Akureyrarbær hefði samið við Samtökin 78 um hinsegin fræðslu" í skólum bæjarins. Ég hef nokkrar spurningar.
*Hvert er opinbert námsefnið ef eitthvað og get ég fengið að skoða það?
*Hefur það verið yfirfarið af menntamálaráðuneytinu og/eða skólayfirvöldum?
*Hver eða hverjir munu kenna það?
*Hafa þeir einstaklingar réttindi og/eða reynslu þegar kemur að kennslu?
*Af hverju er einu lífsskoðunarfélagi (t.d 78) hleypt inn í skólakerfið á meðan öðru var úthýst þaðan? (Þjóðkirkjan)
* Hvenær á þessi ,,kennsla" að eiga sér stað og munu þið segja frá því fyrirfram og gefa foreldrum kost á að afþakka hana fyrir hönd barna sinna?
Ég er á móti því sem samtökin 78 hafa verið að boða undanfarið og öfganna sem fylgir þessari umræðu þeirra.
Ég veit að kynin eru tvö, ekki óendanleg eins og þau segja.
Ég veit að það fæðist engin í röngu kyni þótt einhverjum líði kannski þannig.
Ég veit að það er ekki hægt að skipta um kyn, þótt margt sé hægt að gera til að breyta útliti einhvers.
Ég veit að það þjónar ekki hagsmunum Xxxxxx míns né nokkurra annarra barna að fá þessa brengluðu innrætingu Samtakana 78 sem er að tröllríða umræðunni í þjóðfélaginu. Og vel flestir foreldrar sem ég hef talað við eru sömu skoðunar þótt fæstur þori að tjá sig um það opinberlega af ótta við stimpla og úthrópanir.
Samtökin hafa sjálf ekki vilja gefa upp hverjir kenna og hvað, en segja að allt námsefni sé á síðunni hinseginfraotila.is, ef ég man slóðina rétt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2023 | 10:23
Á ekki að kæra skjólastjóra Langholtsskóla?
Ljóst er að stjórinn misbýður blygðunarsemi nemenda skólans. Á veggspjaldi í skólanum stendur að BDSM sé kynhneigð. Vinsamlegast athugið ef börn leita þetta uppi á netinu er sjónin ekki fögur né barnvæn. Fólk í leðurfatnaði, í kynlífsathöfnum, með svipu, leikandi hunda í leðurdressi, o.s.frv. Þegar fólk stundar þetta blæti þá er í gangi valdaleikur (drottnun og undirgefni) og stundum með bindingar og svipuhögg. Skólastjóra Langholtsskóla og Reykjavíkurborg finnst sjálfsagt að benda börnum skólans inn á þessa síður með því að hengja upp veggspjöld.
Þegar ég sló inn BDSM í leitarstikuna birtist þetta ,, Leitin bdsm gæti skilað opinskáu efni ætlað fullorðnum og hefur verið síað með Bing öruggri leit stillingum þínum. Núverandi stillingar í Öruggri leit á Bing sía burt niðurstöður sem gætu innihaldið efni ætlað fullorðnum. Breyttu stillingum Öruggrar leitar til að sýna einnig þær niðurstöður. Kannski eru börn ekki með þessar síu og þá birtast miður fallegar myndir á skjánum, ekki ætlaðar börnum.
Af hverju er verið að setja efni ætlað fullorðnum inn á veggspjöld sem hanga í grunnskólum, einhver ábyrgur sem getur svarað því?
Annað sem ég rak augun í á umræddu veggspjaldi. Bent er á lyfjameðferð sem leið til að breyta um kyn, sem er ekki hægt. Veit skólastjóri hvaða afleiðingar hormónalyfjagjafir hafa á börn? Til hvers að benda börnum 6 -16 ára á læknisfræðileg inngrip á veggspjaldinu, veltið því fyrir ykkur. Hormónameðferð er ógagnreynd og því bönnuð hér á landi frá og með áramótunum. Hún er talin af sérfræðingum gera meira ógagn en gagn. Skemmir líkama barns.
Foreldrar barna í Langholtsskóla, vaknið. Þetta er óviðeigandi með öllu og fínt að tilkynna til lögreglu, skólayfirvalda og annarra ábyrgðaraðila sem er umhugað um velferð barna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2023 | 06:20
Langholtsskóli velur að baða nemendur sína í hinseginfræðum
Tungumálakennarar tala um að baða börnin í tungumálinu þegar alls konar orð, orðasambönd, orðflokkar, kyn og tíðir orða er hengt upp á vegg í skólastofunni. Samkvæmt tungumálafræðum styrkir þetta orðaforða barna sem lesa þetta af og til í skólastofunni.
Langholtsskóli í Reykjavík ákvað að hengja upp veggspjöld í skólanum um transhugmyndafræðina. Kennurum og stjórnendum Langholtsskóla finnst mikilvægt að börn í 1.-10. bekk fræðist um kynhneigð þar sem BDSM kynhneigð er dregin fram í sviðsljósið, fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Veggspjöldin hanga uppi þar sem börn geta lesið á hverjum degi.
Kennurum og stjórnendur Langholtsskóla þykir mikilvægt að börnin lesi á veggspjöldum sem hanga upp á vegg í skólanum um kynhneigðir sem eru ekki til í augum vísinda en fyrirfinnst í huga fólks og sálarlífi. Ungum börnum býðst að baða sig í þessum orðaforða.
Það er ekki öllum um þetta gefið. Hugmyndafræðin er umdeild og á ekki að bera á borð fyrir ung börn eins og um fullorðið fólk sé að ræða. Í augum einhverra foreldra, hinir vita kannski ekki af þessu veggspjöldum, er þetta óviðeigandi með öllu.
Kennarar og stjórnendur Langholtsskóla velja að segja ekki sannleikann þegar kemur að kynvitund. Þau hafa veggspjöld upp á vegg sem fer með staðreyndarvillur, kyn sem við fengum úthlutað. Kennarar hafa misst ráð og rænu ef þeir telja börnum trú um það. Að sjálfsögðu vitum við hvernig kynin verða til og hvort kynið dafnar í móðurkviði. Barn ber annað tveggja XX- XY litninga sem stjórnar kyni þess. Enginn úthlutar kyni. Samt mega nemendur í Langholtsskóla búa við þessar lygar sem stjórnendur og kennarar bera á borð fyrir þau.
Er ekki mál að linni. Látið staðreyndir tala. Með svona veggspjöldum á göngum skóla má tala um innrætingu. Fjarlægið þvæluna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2023 | 09:18
Segjum börnum satt í leik- og grunnskóla
,,Sé markmiðið að styðja og hjálpa barn þarf það staðreyndarþekkingu. Sem dæmi að Suðurpóllinn er ekki Norðurpóllinn. Björk er ekki greni. Maður er ekki kona og stúlka er ekki strákur.
Hvoru tveggja í senn samhygð og skilningur er mikilvægt t.d. þegar strákur heldur að hann sé stelpa og stelpa heldur að hún sé strákur.
En hvað gerist í huga ungra barna sem fá að vita að ,,þú ert sennilega fæddur í röngu kyni?
Að ljúga að börnum og sérstaklega á því þroskaskeiði sem barnið er að finna sig sjálft og skilgreina er óskynsamt, samkvæmt lækninum og prófessornum Dr. Riittakerttu Kaltiala sem er leiðandi á þessu sviði sérfræðinga.
Ég vona að menn viðurkenni tilfinnigar barna án þess að samþykkja þær sem staðreyndir. Annars sviptum við þau tækifærinu til að þróa kraftmikla, yfirvegað og sterkt sálarlíf sem þau þurfa á að halda gagnvart raunheimum.
Við eigum að segja börnum sannleikann- líka um kyn.
Hér má lesa færslu Tonje Gjevjon. Lausleg þýðing er mín.
Greinin sem Tonje tekur þetta úr finnur þú hér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)