Einelti hjá Kennarasambandi Íslands!

Á framboðsfundi, formannsefna Félags grunnskólakennara, í gærkvöldi kom fram að sitjandi formaður lagði starfsmann Kennarasamband Íslands í einelti. Samkvæmt formanninum er úrvinnsla málsins hafin. 

Á Vísi.is stendur ,,Á fundinum barst fyrirspurn um færslu sem birtist í Facebook-hóp fyrir grunnskólakennara á Íslandi þar sem fram kom að samkvæmt samskiptaskýrslu sem gerð var innan kennarasambandsins, flokkist hegðun sitjandi formanns, Þorgerðar Laufeyjar, gagnvart öðrum starfsmanni sem einelti. Samskiptin voru skoðuð af sálfræðistofu sem komst að þessari niðurstöðu." Hér má lesa fréttina.

Ég er sú sem spurði út í eineltið á umræddum fundi. Trúði ekki að um sannleik væri að ræða. Við fyrirspurn minni átti ég von á að formaðurinn segði að þetta ætti ekki við rök að styðjast. Gæti hrakið það sem fram kom í færslunni. Síðan reynir formaðurinn að gera mig tortryggilega og aðra sem hafa tjáð sig um málið. Það þykknaði í mér. Ljóst að formaður Félags grunnskólakennara hengir sendiboðann. 

Fréttablaðið kom líka með fréttina í morgunsárið, má lesa hér. Fréttablaðið segir ,,Heimildir Fréttablaðsins herma að niðurstaða fyrirtækisins sem gerði samskiptaúttektina hafi verið óvenju afgerandi ef miðað er við sambærileg mál sem upp koma og leiða til rannsóknar."

Vissulega má spyrja áleitinna spurninga eins og af hverju á að þagga svona gróft eineltismál niður eins og formaðurinn virðist vilja. Á þann veg mátti túlka orð hans á fundinum. 

 

 


Formannskjör í Félagi grunnskólakennara

Annað kvöld verður framboðsfundur frambjóðenda í formannssæti Félags grunnskólakennara. Fundurinn hefst kl.20:00. Sá hæfasti að mínu mati er Mjöll Matthíasdóttir. Hún hefur starfað innan kennarasamtakanna í fjölda ára og þekkir málefni Fg og Kennarasambandsins sem er kostur. Kosið verður 2.-7. maí n.k. Rafrænar kosningar.

Margt hefur gengið á í félagi grunnskólakennara undanfarin fjögur ár. Ég missti traust á forystunni þegar þau létu óátalið að formaður Félags kennara í Reykjavík hélt embætti sínu þrátt fyrir dóm. Skattsvik. Sem formaður svæðisfélags hefur viðkomandi með peninga að gera og stjórn Fg hefði átt að beina því til formannsins að hann léti af störfum á meðan dómurinn rynni út, á tveimur árum. Skilorð. Formaður félagsins verðlaunaði manninn með setu í viðræðunefnd. Foj, foj. Taka þarf á lögum félagsins um svona mál, getur alltaf komið upp.

Valddreifing er lítil sem engin innan félagsins. Skoði maður nefndir á vegum Fg er ljóst að formaður félagsins vill vini sína nálægt sér. Það sést. Undir hælinn lagt hvort varamenn séu kallaðir til. Skólamálanefnd er gott dæmi. Formaður nefndarinnar, sem er varaformaður Fg, fer í annað starf og þá tekur formaður Fg starfið að sér í stað varaformanns sem er eðlilegur hlutur.

Á stjórnarfundum eru gestir, sömu gestirnir, mjög oft á fundi stjórnar félagsins sem getur ekki talist eðlilegt, þó þeir sitji í viðræðunefnd. Sjá má þetta í fundargerðum, sem oft á tíðum eru illa skrifaðar og stundum rangfærslur.

Gerð var athugasemd við fundargerð ársfundar. Þar var fólk skráð á fund sem var ekki. 

Samvinna er lítil og svæðadeildir hafa nánast ekkert verið með í ráðum, hef samanburð frá því að Ólafur Loftsson var formaður. Kann illa við það. 

Mikil læti eru á starfsstöð Kennarasambandsins og samvinna af skornum skammti. Formaður Fg á sinn þátt í því. 

Formaður félagsins hefur hug á að draga Félag grunnskólakennara út úr samstarfi við KÍ. Kann því illa. Betra er að vinna saman en vinna gegn hvorum öðrum. Til slíkrar samvinnu þarf samvinnufúst fólk sem kann að taka og gefa. Ekkert er svo gott að ekki megi bæta það.

Við þurfum á leiðtoga að halda sem sátt er um. Við þurfum leiðtoga sem dreifir valdi. Við þurfum leiðtoga sem er tilbúinn að vinna með öllum. Við þurfum leiðtoga sem getur átt í góðum samskiptum við þá aðila sem á þarf að halda.

Þetta eru hugleiðingar mínar nú þegar ég má velja formann fyrir félagið sem ég greiði háar upphæðir til, Félags grunnskólakennara.


Innheimtustofnun kappkostar að vinna með meðlagsgreiðendum,

skrifaði sakborningur einu sinni. Skyldi það eiga við rök að styðjast. Einn af þeim eru til skoðunar hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga er Jón Ingvar Pálsson. Fyrir nokkrum árum reyndi formaður meðlagsgreiðenda að vekja athygli á störfum hans og fleiri innan stofnunarinnar. Kom á daginn að formaðurinn hafði rétt fyrir sér og nú er málið rannsakað.

Jón Ingvar skrifaði grein í mbl.is árið 2013 og ber af sér allar sakir. Hann hafði og hefur rangt fyrir sér.

Hann skrifar m.a. ,,Enn á ný fer Gunnar Kristinn Þórðarson, formaður Samtaka meðlagsgreiðenda, fram á ritvöll Morgunblaðsins í grein sinni þann 25. maí síðastliðinn. Þar fullyrðir hann meðal annars að opinberar stofnanir, þar á meðal Innheimtustofnun sveitarfélaga, stundi ítrekuð og alvarleg lögbrot. Er þetta reyndar ekki í fyrsta skiptið sem Gunnar Kristinn beinir slíkum ásökunum að Innheimtustofnun. Stofnunin hefur leitast við að svara Gunnari Kristni málefnalega þegar hann hefur beint formlegum fyrirspurnum til stofnunarinnar. Það er kappsmál Innheimtustofnunar að vinna með meðlagsgreiðendum og í langflestum tilvikum er það raunin."

Hér má lesa greinina þar sem Jón Ingvar Pálsson ber af sér alla sök. Annað kom á daginn.


Axla ábyrgð,

kann það einhver stjórnmálamaður eða ríkisbubbi? Undafarna áratugi hefur það ekki sést. Áslaug Arna tekur mann úr embætti skattstjóra eins og hún hafi fulla heimild til þess. Hún notar þyrlu í ríkiseign í einkanotum. Bjarni brýtur sóttvarnarlög. Frú Reykfjörð sömuleiðis. Sigríður Andersen skipar í dómstóla landsins eftir hentugleika með blessun kvenþingmanna. Átti að rétta af kynjahalla, löglegt eður ei skipti víst minnsta máli. Svona gætum við haldið áfram.

Yrði nýlunda í íslensku samfélagi ef þingmenn axli ábyrgð. Kæmi skemmtilega á óvart.


mbl.is Telur að lög hafi verið brotin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmdur skattsvikari býður sig

áfram fram í formannsstól Kennarafélags Reykjavíkur, en aðalfundur félagsins er 28. apríl n.k. Formaður félags grunnskólakennara lagði blessun sína yfir setu formannsins, þrátt fyrir sakfellingu, og benti á félagsmenn máli sínu til stuðnings, félagsmenn hefðu kosið hann. Þá var ekki vitað að hann væri skattsvikari, hvað þá að dómur væri fallinn. Síðan átti sagan eftir að breytast. Hérðasdómur og Landsréttur töldu manninn sekann.

Nú gefur skattsvikarinn aftur kost á sér. Hann hefur aðgang að fjármunum félags sem á nóg af peningum. Er honum treystandi? Maður spyr sig. 

Nú ríður á að grunnskólakennarar í Reykjavík sýni í verki að þeir vilji ekki skattsvikara sem formann. Galli á kosningafyrirkomulaginu er að fólk þarf að mæta á staðinn og kjósa, getur aftrað mörgum að gera það. 

Stjórn Félags grunnskólakennara er rúin trausti í mínum augum eftir að stjórnarmenn létu óáreitt að hafa skattsvikara í fremstu röð og gerðu honum hátt undir höfði. Sem betur fer er komið framboð í formannssæti Félags grunnskólakennara þannig að gefi núverandi formaður kost á sér hafa kennarar val. 

Hér má lesa frétt um málið, en þar segir. ,,Jón Ingi Gíslason, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, var í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og til greiðslu tæplega 20 milljóna króna sektar í ríkissjóðs. Jón hafði í héraði verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sambærilegrar sektar. Dómurinn er því þyngdur nokkuð."


Sænskur kennari, Selma, var rekinn

en það gladdi mig verulega að skólinn sem hún vann hjá mátti ekki þvinga hana til að nota orðið ,,hán“ um dreng. Gekk gegn hennar eigin gildum. Foreldrar drengsins, sem var 7 ára, vildu og fóru fram á að hún notaði ,,hán." í stað hann. Eftir samningaviðræður í nokkra mánuði var hún leyst frá störfum í viku, umþóttunartími. Foreldrarnir voru ekki sátt við að hún notaði skírnarnafnið hans, vildu þvinga hana til að nota ,,hán.“ Að umþóttunartímanum liðnum hafði hún ekki breytt lífsgildum sínum og þá var henni sagt upp.

Skólinn mátti ekki þvingað hana til að kalla drenginn ,,hán“ og því voru hennar dæmdar bætur, 150 þúsund sænskar krónur (um 2 milljónir). Skólanefndin leyfði henni ekki að kveðja nemendur né samstarfsfólkið sitt.

Mér þykir stúlkan tala af mikill skynsemi um málefni ,,trans“ fólks út frá eigin lífsgildum og þá kröfu hópsins að allir virði skoðanir og vilja þeirra en það er ekki gagnkvæmt. Allir þvingaðir inn á sömu skoðun. Því miður eru of margir sem láta sig fljóta með og gera ýmislegt gegn lífsgildum sínum til að þóknast öðrum.

Takk hatt minn ofan fyrir þessum unga kennara. Hér má hlusta á viðtalið sem er á sænsku. 


Áhorf minnkar á þessa prjálsýningu

og er það vel. Leggja má þessa skrautsýningu niður og nota peningana í eitthvað þarfara. Vona að áhorfið dvíni þannig að þeir leggi sýninguna niður í þeirri mynd sem hún er.

Hef aldrei skilið af hverju leikarar fá svona mikla athygli fyrir að sinna vinnu sinni. Launin, við skulum ekki tala um það. 

 


mbl.is Sigurvegari og skúrkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldeilis gott,

ganga þarf harðar fram í sameiningu sveitarfélaga. Mörg hver eru ekki fær um að sinna skyldu sinni við borgarana. Mörg þurfa að kaupa þjónustu frá öðrum. Kostnaður við yfirstjórn myndi minnka og mörg sveitarfélög þurfa á því að halda. Ekkert sveitarfélag ætti að telja færri en 5000 íbúa, jafnvel fleiri. 

Eyjafjörður sem dæmi ætti að vera eitt sveitarfélag með um 25 þús. íbúða. Í dag eru bæjarstjóri, nokkuð margir sveitastjóra og hellingur af sveitarstjórnarfólki. Færri gefa kost á sér til slíkra starfa og því myndi fækkun sveitarfélaga vera að hluta til svar við því.

Skólar eru misvel reknir og stoðþjónusta stopul vegna fjármags og fagfólks. Ráða þarf bót á því með stækkun sveitarfélaga.


mbl.is Langanesbyggð og Svalbarðshreppur sameinast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitleysan með trans-réttindin er komin

út fyrir öll skynsamleg mörk. Ríkisstjórn sem hleypur eftir tilfinningum 0.002% þjóðarinnar á kostnað hinna er ekki traustsins verð. Hér má sjá góða umfjöllun um málið Morgunblaðið - Textaútgáfa - Innskráning (mbl.is)

Hér kemur grein Írisar:

Siðræna transgátan
„Lyfja­fyr­ir­tæki er að prófa lyf við blöðru­hálskrabba­meini og býður karl­mönn­um að skrá sig í lyfja­rann­sókn­ina. Ég læt skrá mig sem karl­mann, því ég er „trans“ og skil­greini mig sem karl­mann. Lyfja­fyr­ir­tækið ger­ir enga at­huga­semd; lög­gjaf­inn hef­ur lög­fest að „kyn­vit­und“ ræður ríkj­um. Sá sem skil­grein­ir sig sem karl­mann er karl­maður. Ekki skipt­ir máli að lík­ami minn er kven­kyns og ég er því ekki með blöðru­hálskirt­il. Lyfja­fyr­ir­tækið send­ir niður­stöðurn­ar til Lyfja­eft­ir­lits­ins. Þeir minn­ast ekki á að einn – eða fleiri – þátt­tak­end­ur í rann­sókn­inni voru kven­kyns. Lyfja­eft­ir­litið samþykk­ir lyfið og heim­il­ar fyr­ir­tæk­inu að markaðssetja það. Eiga karl­menn sem svo í góðri trú taka lyfið við blöðru­hálskirt­il­skrabba­meini rétt á að vita að a.m.k. einn þátt­tak­enda í lyfja­próf­un­un­um var kven­kyns og því ekki með blöðru­hálskirt­il?“
Við vit­um hvernig for­sæt­is­ráðherra og meiri­hluti Alþing­is, sem bera ábyrgð á gend­er-gremlensku ný­lensku­lög­gjöf­inni nr. 80/​2019 um „kyn­rænt sjálfræði“, myndu svara. Sam­kvæmt trans-biblí­unni þeirra er það í verka­hring rík­is­valds­ins að fram­leiða gervi-raun­veru­leika fyr­ir þá sem „þjást af van­líðan gagn­vart eig­in kyn­ein­kenn­um og kyn­gervi sem [þeir telja] vera í and­stöðu við per­sónu­leika sinn“. Alþingi hef­ur ákveðið að þar sem raun­veru­leik­inn „skap­ar ... óþæg­indi fyr­ir trans ein­stak­linga“ verður lög­gjöf­in að vera í sam­ræmi við til­finn­ing­ar þeirra.
 
„Ljóst má vera að langt­um meiri fjöl­breytni rík­ir varðandi kyn og kyn­vit­und en hin hefðbundna tví­skipt­ing í karl­kyn og kven­kyn gef­ur til kynna,“ seg­ir í laga­frum­varp­inu.
Þetta er alrangt. Það er eng­in „fjöl­breytni varðandi kyn“ mann­vera og að hrista sam­an „kyn og kyn­vit­und“, sem ekki er mögu­legt að mæla á hlut­læg­an hátt, í kyn­ferðiskokkteil skap­ar rugl­ing og mis­skiln­ing varðandi þá ein­földu staðreynd að aðeins tvær teg­und­ir mann­vera – karl­kyns og kven­kyns – hafa gengið á þess­ari jarðar­kringlu.
Orðið „kyn“ hef­ur sömu merk­ingu í líf­fræði og í ís­lensku: „líf­fræðileg flokk­un ein­stak­linga sem karl­kyns eða kven­kyns“. Í gend­er-gremlensku er „kyn“ hins veg­ar „safn­hug­tak sem nær ... yfir kyn­ein­kenni, kyn­gervi, kyn­vit­und og kyntján­ingu“. Orðið „trans“, sem er notað 102 sinn­um í frum­varp­inu, er hvergi skil­greint. „Kyn­vit­und trans fólks er að ein­hverju eða öllu leyti á skjön við það kyn sem þeim var út­hlutað við fæðingu ...“ Þessi ritn­ing­ar­orð úr trans-biblí­unni eiga bet­ur heima í 16. ald­ar galdraþulu en 21. ald­ar laga­frum­varpi. Við vit­um öll að kyni er ekki „út­hlutað við fæðingu“ frem­ur en hæð/​lengd eða þyngd. Kyn er séð („obser­ved“) og skráð.
 
„Trans“ eða „trans­g­end­er“ er ekki ný­upp­götvað, glæ­nýtt og glans­andi þriðja kyn. All­ir sem ein­kenna sig „trans“ eru annaðhvort karl­kyns eða kven­kyns. Í meira en 99,982% til­vika er ein­stak­ling­ur annaðhvort ótví­rætt karl­kyns eða kven­kyns. Kyn­flokk­un bygg­ist á kyn­frumu­teg­und­un­um sæði og egg­frumu. Eng­in þriðja kyn­fruma er til og því er ekk­ert þriðja kyn til. Til­vist ein­ung­is tveggja kynja þýðir þó ekki að kyn geti aldrei verið óljóst, eins og „in­ter­sex“ ein­stak­ling­ar (0,018% ein­stak­linga fæðast með „ódæmi­gerð kyn­ein­kenni“) sýna. En til­vist in­ter­sex mann­vera sann­ar ekki að kyn sé „fjöl­breyti­legt“ frek­ar en fæðing ein­fættr­ar mann­veru afsann­ar að mann­ver­ur séu tvífætt­ar (bipe­dal).
„Frum­varpið miðast að því að bæta rétt­ar­stöðu trans og in­ter­sex fólks og færa hana til nú­tíma­horfs.“ „Nú­tíma­horf“ frum­varps­ins er senni­lega af face­book- og tikt­ok-tag­inu, með 60-100 kyn­gervi. Eða wikipedia, sem nú er öll á gend­er-gremlensku. Lög­in eiga að „standa vörð um lík­am­lega friðhelgi ein­stak­linga“. Álít­ur meiri­hluti Alþing­is ákvæði XXII.-XXIV. kafla al­mennra hegn­ing­ar­laga ekki full­nægj­andi til að verja „lík­am­lega friðhelgi“ borg­ar­anna?
Mér er ekki kunn­ugt um að ég eða aðrir borg­ar­ar sem ekki ein­kenna sig „trans“ (eða in­ter­sex) hafi notið sér­stakr­ar rétt­ar­stöðu um­fram „trans­fólk“. Fjöldi fólks þjá­ist ef­laust af „van­líðan gagn­vart“ ýms­um lík­am­s­ein­kenn­um sem það tel­ur „vera í and­stöðu við per­sónu­leika“ sinn. En flest­ir verða bara að láta sig hafa það. Nema þeir séu „trans“. Lög­gjaf­inn hef­ur skapað sér­stak­an lúx­us-trans-rík­is­borg­ara­rétt sem fel­ur í sér rétt til að láta skatt­greiðend­ur kosta út­lits­breyt­andi skurðaðgerðir og ríkið breyta aft­ur­virkt laga­leg­um skjöl­um þar til ár­ang­ur­inn er í sam­ræmi við „per­sónu­leika“ og til­finn­ing­ar trans-rík­is­borg­ar­anna.
Meira er í húfi en til­finn­ing­ar trans­fólks. Lög­fest­ing trans­ritn­ing­ar­orðanna er ósam­rýman­leg kyn­bundn­um rétt­ind­um. Nauðgarar og morðingj­ar sem „ein­kenna sig sem kon­ur“ eru í kvennafang­els­um. Karl­ar keppa í kvenn­aíþrótt­um – þar sem mun­ur á körl­um og kon­um er svo aug­ljós að keis­ar­inn er „á tipp­inu“ eins og börn­in segja. Kyn er grund­vallar­for­spárþátt­ur í upp­lýs­inga­öfl­un og grein­ingu um alla sam­fé­lagsþætti, þ.ám. heilsu, mennt­un, at­vinnu og glæpi.
Hvaða heil­vita sam­fé­lag tel­ur eðli­legt – hvað þá þjóðþrifa­verk – að lög­gjaf­inn leyfi borg­ur­un­um að breyta aft­ur­virkt op­in­ber­um laga­leg­um upp­lýs­ing­um og skjöl­um í sam­ræmi við til­finn­ing­ar sín­ar?
 
Rík­is­valdið á ekki að styðja rang­hug­mynd­ir fólks. Hvað þá að lög­festa þær á kostnað al­menn­ings(feitletrun mín).
 
Col­in Wright, evoluti­on­ary bi­olog­ist:
htt­ps://​www.realitysl­ast­stand.com/​p/​in­ter­sex-is-not-as-comm­on-as-red?s=r
htt­ps://​www.realitysl­ast­stand.com/​p/​sex-is-not-a-spectr­um?s=r

Hvað með börnin

sem hafa gaman af þessu og vilja taka þátt. Látum við þeirra óskir til hliðar. Látum umboðsmann barna stjórna námskrá, fögum og hvernig kennslu er háttað. Virðist þróunin í íslenskum skólum. Miðað við fjölda grunnskólabarna hef ég grun um að við séum ekki að tala um mikinn fjölda.

Má líkja þessu við að barn sem truflar tíma og eyðileggur hann fyrir hinum nemendunum er ekki vísað út úr tíma. Bannað samkvæmt umboðsmanni. Hvað með rétt hinna barnanna? Eiga fá börn að stjórna heildinni, maður spyr.

Vissulega á að vera valfrjálst að taka þátt í svona ,,streituvaldandi" æfingum í skólanum. Bannað þau, nei alls ekki.


mbl.is Vill láta banna píp-próf í grunnskólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband