Halldóra Mogensen hlýtur að segja af sér

Mér þykir ljóst eftir framgöngu Halldóru Mogensen í þessu máli að hún er óhæf til starfans. Hún á að víkja ekki spurning, hefur sjálf kallað eftir afsögn ráðherra og skipun Braga í embætti. Halldóra getur sýnt gott fordæmi. Stundin er orðið sorprit sem á að skammast sín fyrir aðförina að Braga og ekki síður fjölskyldunni sem fjallað var um. 

Dómstóll götunnar og oft á tíðum öfgafemínistar eru samfélaginu til skammar. Velti fyrir mér hvort við lærum eitthvað af þessu.

Ögmundur Jónasson sagðist hafa heyrt af þingkonu sem hafði samband út vegna Braga, verður fróðlegt að heyra hver telur sig svona merkilega að hún viti meira um málið en þeir sem hafa rannsakað það. Óvönduð vinnubrögð sem við eigum ekki að sætta okkur við.


mbl.is Verið „afskaplega sársaukafullt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað héldu menn

Að sjálfsögðu kemur að samdrætti, ekki hægt að bæta endalaust við ferðamönnum. Menn sáu fyrir að ákveðinn fjöldi kæmi en svo myndi jafnvægi ríkja í greininni. Hreint með ólíkindum allar þessar hótelbyggingar sem standa að mestu hluta tómar yfir veturna allavega á landsbyggðinni. Gullgrafaraæði greip um sig meðal fjárfesta. Og ekki síður airbnb húseigenda. Þar eiga menn von á miklum gróða, svo miklum að margir flytja út úr húsnæði sínu til að þéna á leigu sem oftar en ekki er greidd undir borðið.


mbl.is Hætta við að fjárfesta í hótelum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband