28.7.2018 | 18:55
Hvað gera konur á landsbyggðinni?
Varla er það fréttnæmt að kona sem er komin með hríðir þurfi af stað í hálftíma ferð. Hvað gera konur sem búa á landsbyggðinni langt frá sjúkrahúsi? Stað Ólafsfjörð, Þórshöfn, Dalvík, Flateyri, Djúpavogi og fleiri staði. Svona nokkuð þekkja margar konur og þykir ekki fréttnæmt.
Sendar keyrandi með hríðir á Akranes | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.7.2018 | 10:10
Ánægjulegt
Gott að hún, sem fulltrúi danska þingsins, átti ánægjulegar stundir í tengslum við þingfundinn á Þingvöllum. Reyndur stjórnmálamaður og lætur ekki ungæðishátt nokkurra þingmanna á sig fá, enda tilganglaust.
Pia hæstánægð með Íslandsför | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2018 | 11:58
Fóturinn full þungur
Skelfilegt að lesa svona frétt. Eflaust einhver sem lítur á bíl sem leikfang. Gott að bílstjórinn drap ekki aðra né sjálfan sig.
Á 160 km/klst. við Smáralind | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2018 | 10:13
Opið bréf til Brynjars Níelssonar og Helgu Völu Helgadóttur þingmanna
Ég vil byrja á að þakka fyrir tálmunarfrumvarpið sem lagt var fram á hinu háa Alþingi Íslendinga. Frumvarpið er nauðsynlegt í þágu barna. Frumvarpið er nauðsynlegt til að sporna gegn brotum á börnum. Frumvarpið er nauðsynlegt til að lágmarka ofbeldið sem lögheimilisforeldri beitir börn sín með tálmun. Frumvarpið verndar mannréttindi barna sem geta ekki talað sínu máli og vilja eiga samvistir við báða foreldra sína. Frumvarpið tryggir að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, sem við erum aðilar að, sé virtur. Frumvarpið er í alla staði lagað að þörfum og rétti barna. Frumvarið á fullan rétt á sér og því skora ég á ykkur að leggja það fram að nýju.
Margir þingmenn sem hafa barið sér á brjóst og segjast bera hag barna fyrir brjósti skiptu allt í einu um skoðun á meðan frumvarpið var til umræðu. Undir umræðunni átti ekki að hugsa um hag barna, heldur mæðra, því þingmenn vita að þær eru í meirihluta þegar kemur að tálmunum. Réttur barna að engu hafður. Vernda á ofbeldi lögheimilisforeldris eins og bersýnilega kom fram í umræðunni hjá of mörgum þingmönnum. Standa vörð um ofbeldi gagnvart barni er einkunnarorð margra þingmanna þegar kom að umræðinni um tálmunarfrumvarpið. Þingmenn horfðu ekki kynlaust á brot lögheimilisforeldris gagnvart réttindum barna.
Við brot á lögum eiga að vera viðurlög. Eins og þú sagðir Brynjar, í einni ræðu þinni, þá værir þú tilbúinn að breyta fangelsisvist fyrir tálmun í forsjársviptingu eins og Danir gera. Styð ykkur heilshugar í því sem þið teljið réttast í þessum málaflokki, umfram allt, það verður að gera tálmun á umgengni refsiverða. Réttur barna, líf og velverð þeirra er í húfi.
Á síðum blaða og miðla hefur margt og mikið verið skrifað um tálmun og aðskilnað barna frá foreldri sínu. Afleiðingin getur orðið skelfileg. Bitnar á uppvexti, skólagöngu og andlegri líðan barna. Allir eru sammála um að skilnaður foreldra á ekki að vera mál barna. Hvað þá að foreldri geti beitt tálmun án afleiðinga. Og enn síður að börn séu notuð sem vopn í valdabaráttu.
Hér rifja ég upp skrif þingmanns - Helga Vala Helgadóttir skrifar 3.4.2017:
Á hverjum degi á sér stað ofbeldi gegn börnum hér á landi. Ofbeldið er framið af foreldri sem ekki vill leyfa barninu að eiga í samskiptum við hitt foreldrið undir því yfirskini að barninu verði meint af samskiptunum. Hef ég í mínu starfi heyrt fjölmargar útgáfur af ástæðu og umfangi tjónsins sem kann að verða á sálu barns fái það að njóta samvista við báða foreldra sína. Nú skal tekið fram að einstaka sinnum er hætta á að barn lendi í óviðeigandi aðstæðum í návist foreldris en það er blessunarlega algjör undantekning.
Brynjar eins og þú veist nýta dómarar ekki þann rétt að dæma lögheimili eða forsjá af foreldri sem beitt hefur tálmun. Þegar forsjárdómar eru lesnir má sjá að dómarar gera ekkert með tálmanir. Oftar en ekki verðlauna dómarar það foreldri sem beitir tálmun. Gersamlega óviðunandi. Börnin blæða.
Hér með skora ég á ykkur, Brynjar og Helga, að leggja frumvarpið fram að nýju og halda málinu til streitu þar til réttur barna verður settur í fyrsta sæti þegar kemur að tálmun. Í svona málum eiga flokkadrættir ekki að eiga sér stað, sálarheill barna er í húfi.
Þingmenn sem segja sig berjast fyrir réttindum barna ættu að kynna sér málaflokkinn mjög vel áður en þeir vernda ofbeldið sem tálmun er. Of margir þingmenn hafa nú þegar fallið í þá gryfju. Endilega komið ykkur upp úr meðvirkninni sem þið hafið með lögheimilisforeldinu, sem beitir barn ofbeldi, og hugsið um hag barnanna.
Virðingarfyllst,
Helga Dögg Sverrisdóttir, grunnskólakennari, móðir og amma.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2018 | 20:45
Nei takk, ég vil hafa sitthvort salernið og svo fyrir fatlaða!
Þetta er nú meiri rugludallurinn. Nei takk ég vil ekki karlmenn inn á þau salerni sem ég nýti í opinberum byggingum, hótelum eða á öðrum stöðum þar sem margt fólk kemur saman. Finni menn sig ekki við að pissa, annað tveggja, sitjandi eða standandi á þar til merktum klósettum geta þeir notað klósett merkt fötluðum. Vona svo sannarlega að undanþágan nái ekki fram að ganga. Sé þetta eitt af þörfustu verkum mannréttindanefndar þá hefur hún lítið að gera þykir mér. Og já það má alveg kalla mig gamaldags en ég vil sitthvort salernið og svo fyrir fatlaða.
Telja ákvæði um salerni úrelt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.7.2018 | 13:51
Hann kynnir væntanlega ofurlaun sín
Ármann mun væntanlega kynna af hverju hann þarf svo há laun sem bæjarstjóri. Eins og fram hefur komið er hann launahærri en borgarstjóri New York borgar. Væri fróðlegt að vita af hverju það starfar, hvað sé svona krefjandi í Kópavogi sem ekki finnst í New York.
Bæjarstjórar á landinu mega upp til hópa skammast sín. Grunnskólakennari með 30 ára starfsreynslu nær ekki 600 þús. í mánaðarlaun. Ráða má 4 grunnskólakennara í stað Ármanns fyrir sömu laun. Og ég er viss um að þeir myndu sóma sér vel í starfi bæjarstjóra. ;) Kerfið er galið og bæjarfulltrúar sem samþykkja svona vitleysu eiga sök að máli.
Kópavogur með kynningu í New York | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2018 | 09:32
Hugsa ljósmæður um þær/foreldrana?
Kemur mér á óvart ef ljósmæður sinna foreldrum sem eiga barn á vökudeild. Oftar en ekki eru þessir foreldrar fráir á fæti og geta hugsað um sig sjálfir. Sjúkraliðar er vannýtt stétt og með því að ráða sjúkraliða inn á kvennadeildina mætti létta undir með ljósmæðrum á margan hátt. Valið og valdið hafa hjúkrunarfæðingar sem hafa á undanförnum áratugum ýtt sjúkraliðastéttinni burtu af ákveðnum deildum. Ljósmóðir með 6 ára háskólanám sinnir störfum sem sjúkraliði gæti hæglega unnið og gerði hér áður fyrr.
Hér á landi notum við oft á tíðum ofmenntað fólk í störf sem hægt er að leysa með öðrum starfsstéttum. Endurskoðunar er þörf á þröskuldunum sem ríkir enn á milli heilbrigðisstétta og hefur gert í áratugi.
Leysa þarf deiluna ekki spurning. Ljósmæður eru með sterka stöðu þær hverfa til annarra starfa og geta þar af leiðandi lagt þrýsting á stjórnvöld líkt og læknar gerðu. Þekkt fyrirbæri í fluggeiranum.
Mæður veikra barna sendar heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2018 | 09:30
Að sjálfsögðu verður samningurinn fordæmisgefandi
Veit ekki hvað formaðurinn meinar með að hún viti ekki hvort samningurinn verði fordæmisgefandi. Af hverju ætti hann ekki að vera það?
Ljósmæður er ekki eina stéttin sem telur sig eiga inni hjá vinnuveitendum sínum. Við munum hvernig fór með læknana, allir tölu sig eiga rétt á svipuðum hækkunum þegar ,,þjóðarsátt" var gerð um ríflega hækkun til læknastéttanna.
Grunnskólakennarar telja sig enn eiga inni hjá sveitarfélögunum og ekkert undarlegt að kjarasamningur ljósmæðra verði notaður sem viðmið, enda ekki mikill mundur á menntun þessara tveggja stétta, né ábyrgð nema síður sé.
Óvíst með fordæmisgildi samninganna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2018 | 16:43
Af hinu góða
Það var þetta sem þurfti til. Nú er bara að leita að þeim sem stunda svarta starfssemi í þessum geira. Vona að starfsmenn leggi sig fram um að leita uppi óskráðar íbúðir og ekki síður að almenningur leggist á eitt og láti vita af þeim íbúðum sem eru ekki skráðar.
Skrá Airbnb-íbúðir áður en vaktin hefst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2018 | 10:37
Sú sama og setti sig á háan hest...
Hér er væntanlega um sömu konu að ræða og setti sig á háan hest gagnvart nýjum borgarfulltrúum nú á dögunum. Valdið stígur sumum til höfuðs það má með sanni segja.
,,Með bréfi, dags. 14. júní 2017, veitti skrifstofustjórinn, yfirmaður stefnanda, honum áminningu í starfi. Hann var áminntur fyrir meint brot í starfi; meint brot á hlýðniskyldu við lögmæt fyrirmæli yfirmanns, fyrir óvandvirkni í starfi, ófullnægjandi árangur í starfi, framkomu sem samræmdist ekki starfi og óhlýðni við löglegt boð yfirmanns. Stefndi féll frá því að áminna stefnanda fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að hafa frumkvæði að umbótarverkefnum, innleiða þau og sinna eftirfylgd, svo sem ráðgert hafði verið að áminna fyrir samkvæmt bréfi, dags. 24. maí 2017."
Hún verður hún að eta þetta allt ofan í sig. Kannski að hugsa sinn gang hvað starf sitt varðar.
Er hissa hve skamman tíma það tók að koma málinu í gegnum dóm. Forsjárdeila sonar míns hefur tekið nokkur ár. Dómari hefur beðið í hálft ár með að kveða upp úrskurð, hér er um börn að ræða!
Ekki dýr í hringleikahúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)